Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 18

Morgunblaðið - 30.04.1995, Side 18
J J _ >í;:Í#í Opið. Þrílótur af myndavél er parna til samanburðar. Þar ríkir slík dauöo- kyrrö að það lætur ngan ósnortinn. o 'O LD o ~d »o =3 CD YJABAKKAJÖKULL er austasti skriðjökullinn sem gengur norður úr Vatnajökli. Hinir jöklamir, tveir talsins, eru Brúaijökull og Dyngjujökull. Eyjabakkajökull er þeirra minnstur og kemur hann úr Djöflaskarði, sem er slakki austan við svokallaða Breiðu- bungu. Jökullinn hefur skriðið fram á aura þar sem er að finna grunn lón. Framundan honum var eitt sinn graslendi sem fór illa í hlaupi í jöklinum árið 1890. í bókinni „Landið þitt“ er því lýst þannig að jökullinn hafi vafið graslendið sem framundan honum var „upp í mikla torfustranga en þrýsti því sem fjær var upp í fellingar og sjást þess enn merki. Er auk þess getið tveggja annarra hlaupa í jöklinum, árin 1931 og 1938, en þrátt fyrir það umrót sem þeim fylgdi hafí jökull- inn hörfað til baka um 1300 metra frá mörkum sín- um í hlaupinu 1890. Eyjabakkajökull er, eins og svo margt í íslenskri náttúru, ekki allur þar sem hann er séður. Leyndardómar hans eru ef til vill margvíslegir, en sem títt er, af- hjúpast leyndardómar náttúrunn- ar hver af öðrum þótt trúlega sé enn verið að taka af toppnum á ísjakanum. Einn af leyndardómum Eyja- bakkajökuls afhjúpaðist fyrir fá- einum árum. ÖIlu nær er kannski að segja að jökullinn hafi afhjúp- að hann sjálfur. En þannig mun það hafa verið, að gangnamenn sem voru að líta eftir fé við jökul- sporðinn sáu hvar á féll úr jöklin- um. Var að sjá að hún kæmi út úr allnokkrum helli. Ekki reynd- ist unnt að kanna málið, en það beið betri tíma. I ljós kom að þama var gríðar- mikill íshellir í jöklinum. Enginn veit hversu langur hann er, enginn hve lengi hann hefur verið til. Hann heitir ekkert og sárafáir vita um hann, auk þess að það er afar erfítt að komast að honum og þegar gengt er í hann þurfa menn iðulega að grafa sig inn í hann. Þá er eins gott að vita hveiju leitað er að og hvar eigi að leita. Það er aðeins hægt að fara í hellinn að vetrarlagi og fram á vorið, því að sumarlagi rennur um hann fyrrgreind jökulkvísl. Á öðrum tímum aðeins silfurtær lindá sem þó er talsvert vatns- mikil. Enginn veit hvaðan hún kemur og hún hverfur eins og dögg fyrir sólu inn í jökulinn. Dauðakyrrð Átta manna hópur ferðamanna úr röðum Ferðaklúbbsins 4x4 nýtti sér blíðviðrið um síðustu helgi og hélt inn á Eyjabakkajök- ul í því skyni að kanna hellinn. Einn í hópnum var Ólafur H. Guðgeirsson sem var að skoða undrið í fyrsta sinn. Aðeins einn í hópnum hafði áður komið í hell- inn. Hópurinn fór fyrst Gæsa- vatnaleið og þaðan upp á Trölla- dyngju, meðfram norðuijaðri Vatnajökuls yfir Vesturöræfin uns komið var að Snæfelli. Þar er skáli þar sem hópurinn gisti. Þaðan eru aðeins fáir kílómetrar að jaðri Eyjabakkajökuls. J í iðrum Eyjabakkajökuls. „Svelgurinn", iurðulegt árrni í íshellinum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.