Morgunblaðið - 03.05.1995, Page 1

Morgunblaðið - 03.05.1995, Page 1
i0r0«ttMíiÍ>iií> B 1995 MIÐVIKUDAGUR 3. MAI BLAD Keflvíkingar eiga fyrst heimaleik DREGIÐ hefur verið í riðla í TOTO-keppninni í knatt- spymu, sem Keflavík tekur þátt í. Keflvíkingar eru í 6. riðli ásamt liði númer tvö frá Frakklandi, liði núm- er tvö frá Austurríki, skosku liði og liði frá Króatíu. Leikið verður í 12 riðlum og fara sigurvegarar riðl- anna ásamt þeim fjórum liðum sem ná bestum ár- angri í öðru sæti í 16 liða úrslit þar sem leikið verð- ur með útsláttarkeppni eins og í átta liða úrslitum. Þau fjögur lið sem þá verða eftir mætast í forkeppni UEFA. Frakkar eiga eitt lið í meistarakeppninni, eitt í keppni bikarhafa, fjögur sæti í UEFA-keppninni og Qögur í Toto-keppninni þannig að gera má ráð fyrir að Keflvíkingar fái lið í 7. til 8. sæti deiidarinnar í heimsókn 24. eða 25. júní. Skotar eru með eitt lið í Evrópukeppni meistaraliða, annað í keppni bikar- hafa, tvö í UEFA-keppninni og svo eitt í þessari keppni en Keflvíkingar sækja það heim 1. eða 2. júlí. Króatar leika 5 Keflavík 8. eða 9. júlí og síðan spila Keflvíkingar í Austurríki 15. eða 16. júlí. HANDKNATTLEIKUR Sextán manna hópurfyrirHM tilkynntursíðar ívikunni Héðinn verður ekki með í keppninni Héðinn Gilsson, ein helsta skytta íslands og með öflugri varn- armönnum, leikur ekki með í Heimsmeistarakeppninni í hand- knattleik sem hefst á íslandi á sunnudag. Hann hefur ekki getað æft að undanförnu vegna meiðsla og að loknu þrekprófi í gær var ljóst að hann er ekki tilbúinn. „Það hefur legið í loftinu að Héðinn yrði ekki með,“ sagði Þor- bergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari, við Morgunblaðið í gær- kvöldi þegar niðurstöður þrekprófs- ins lágu fyrir. „Hann hefur átt við meiðsl að stríða, hefur ekki getað æft síðan hann kom til landsins og er þess vegna ekki í nægilega góðri æfingu. Héðinn hefði án efa styrkt hópinn og ég hefði óskað þess að hann yrði með en því miður er það oft svo að maður fær ekki alltaf það sem maður vill. Við ákváðum að setja leikmennina í þrekpróf á þessum tíma, þetta er niðurstaðan og við gerum okkur grein fyrir henni.“ Héðinn var ekki með landsliðs- hópnum í Danmörku en þangað fóru 17 leikmenn og halda þeir áfram æfingum en endanlegur 16 manna hópur verður tilkynntur á morgun eða föstudag. „Hér eftir leggjum við fyrst og fremst áherslu á tækniæfingar og styttum æfing- arnar frá því sem verið hefur," sagði Þorbergur en meðan á riðlakeppn- inni stendur og jafnvel lengur kem- ur íslenski landsliðshópurinn til með að halda til á Hótel Örk í Hvera- gerði og fer þangað á laugardag. ■ *HM 95 bls. B2-B5 Morgunblaðið/RAX Rándýrir upptökubílar FJÓRIR upptökubílar frá TV2 og Danmarks Radio komu til landsins í gær. Bílarnir verða notaðir við útsendingar Rikis- sjónvarpsins frá Heimsmeistarakeppninni í handknattleik, sem hefst um næstu helgi. Verðmæti bílanna og þess bún- aðar sem í þeim er mun vera um 600 milljónir króna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Héðinn ekki tilbúinn HÉÐINN Gilsson fór í þrekpróf í gær eins og 17 aðrir lands- liðsmenn í handknattleik. Hann hefur ekki getað æft að und- anförnu vegna meiðsla og stóðst ekki þrekprófið þess vegna. Eins og sjá má reyndi hann það sem hann gat en það var ekki nóg og þar með var Ijóst að hann leikur ekki á HM. Matthías Noregs- meistari Hornamaðurinn Matthías Matt- híasson, fyrrum leikmaður IR, varð um helgina Noregsmeist- ari í handknattleik með félögum sínum i Elverun þegar þeir lögðu Runar, á heimavelli þeirra, 18:19. Fyrri .leikur liðanna endaði með jafntefli, 19:19. „Þetta er í fyrsta skipti sem El- verun hreppir Noregsmeistaratitil- inn í handknattleik svo það má nærri geta hvort ekki hafi verið hátíð í bæ,“ sagði Matthías Matthí- asson, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Matthías lék allan fyrri leikinn og skorað fjögur mörk. Hann lék fyrri hálfleikinn í síðari leiknum og skoraði eitt mark. „El- verun er með ungt lið og það náði toppnum í vetur. Eg hef leikið tölu- vert með i vetur og er með rúm þrjú mörk _að meðaltali í leik eftir tímabilið. Ég á einn vetur eftir af íþróttakennaranámi mínu og verð þvi hérna úti næsta vetur og reikna með því að leika áfram með lið- inu.“ sagði Matthías Matthíasson, Noregsmeistari í handknattleik. FRJALSAR Martha á réttri leið Þetta hlaup var tilraun hjá mér til að athuga hvar ég stæði eftir þungar æfingar síðustu vikur. Ég er að ljúka ákveðnu æfingatíma- bili og nú tekur við meiri léttleiki. Jú, það var jákvætt að bæta sig um hálfa mínútu frá hlaupinu í fyrra, sagði Martha Ernstdóttir, hlaupakona, en hún varð önnur um helgina í fjölmennasta götuhlaupi sem haldið er í Noregi árlega. Mart- ha hljóp 10 km á 33,33 mín. Norska stúlkan Gunnhild Halle sigraði í hlaupinu, var hálfri mínútu á undan Mörthu. „Ég er mjög sátt við það form sem ég er í og tel að allt sé á réttri leið. Nú fer ég að létta æfingarnar og hlaupa skemmri vegalengdir. Þá fer maður að verða sprækari. Fyrsta brautarhlaupið mitt verður 3 km hlaup á móti í Ósló 20. maí og í framhaldi af því taka við Smá- þjóðaleikarnir og Evrópubikar- keppnin,“ sagði Martha Ern'stdóttir. SKVASS: KIM MAGNÚS NIELSEN VARÐIHTIUNN ENN EINU SINNI/B6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.