Morgunblaðið - 04.05.1995, Síða 1
FfÖLMIDLflJR
ítök Murdochs
gagnrýnd /5
SKREYTINGAR HRAEFNI
Athafnakona á Veröhækkanir á
Austurlandi /4 blaðapappír /6
VIÐSKIPn AIVINNUIÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995
BLAÐ
Banki
Landsbanki Islands hefur sótt
um leyfi til byggingarnefndar
Reykjavíkur til að byggja nýtt
bankaútibú í Reykjavík. Nýja
bankaútibúið á að rísa í Grafar-
vogi, nánar tiltekið á lóð nr. 1
við Fjallkonuveg. Til að byrja
með ætlar bankinn að byggja
bráðabirgða útibú úr timbri á
lóðinni.
Tívolí
Hafnarstjórn Reykjavíkur hefur
samþykkt umsókn Jörundar Guð-
mundssonar um starfsleyfi fyrir
Tívolí UK í Reykjavík nú í sum-
ar. Jörundur sótti um starfsleyfi
fyrir tívolíið við Reykjavíkur-
höfn, nánar tiltekið við Miðbakka
dagana 8.-23. júlí nk. Tívolíið
hefur verið á þessum sama stað
síðustu sumur.
Bónus
Bónus hefur fengið samþykki
byggingarnefndar Reykjavíkur
til að stækka matvöruverslun
sína í Holtagörðum. Auk Þeirrar
verslunar rekur Bónus nú sex
verslanir á höfuðborgarsvæðinu,
og tvær í Færeyjum.
SÖLUGENGIDOLLARS
1. Tovota 405 21,0 -10,0
2 Nissan 308 15,9 +16,7
3. Volkswagen 246 12,7 +59,7
4. Hvundai 179 9,3 +0,5
5. Subaru 133 6,9 +1230
6. Opel 106 5,5 +783,3
7. Mitsubishi 93 4,8 -27,9
8. Renault 69 3,6 +35,3
9. Volvo 64 3,3 -5,9
10. Mazda 54 2,8 +8,0
Aðrar teg. 275 14,2 -14,3
Samtals 1.932 100,0 +14,5
Bifreiðainnflutningur
í janúar til apríl
1995 1994 1995 1994
NÝSKRÁNINGUM fólksbíla hefur fjölgað um 14,5% það sem af er árinu
miðað við sama tímabil í fyrra. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru nýskráðir
1.932 fólksbílar, en í apríllok á síðasta ári nam innflutningurinn 1.687 bílum.
í apríl síðastliðinn voru nýskráðir 593 fólksbílar, en 487 í apríl 1994 og er
aukningin tæp 22%. Hvað varðar markaðshlutdeild einstakra fólksbíla-
tegunda er Toyota mest seldi fólksbílinn það sem af er árinu með markaðs-
hlutdeild upp á 21 %. Salan hefur þó dregist saman um 10% frá sama
tímabili í fyrra. Nissan, sem er í öðru sæti, hefur hins vegar aukið söluna um
16,5%. Ennfremur sést hér ofar að af tíu mest seldu fólksbílategundunum á
umræddu tímabili hafa 7 aukið söluna frá sama tímabili í fyrra.
Upplýsingar um mánaðarlegar nýskráningar bifreiða frá árinu 1991 eru
á súluriti hér neðar og sést þar að eftir umtalsverðan vöxt á milli mánaða
framan af þessu ári dróst innflutningur saman á milli mars og apríl.
Nýskráningar bifreiða, mánaðarlegar frá 1991
1.6oo-------------------------------------------------------------
1.400 ; rj |-----------------------------------------------------
1.200-- ----------------------------------------------------------
1.000 «----------------------------------------------------------
800-- --------------- r"j----------------------------------------
6001-1(1 n— — n--------------------íi n-------
400 n~ n ft-rfl rr--
200 -
° 1991 1992 1993 1994 1995
Burðarás kaupir
í sjá varútvegs-
fyrirtækjum
Eignast tæplega 3% hlut í Síld-
arvinnslunni hf.
BURÐARÁS hf., eignarhaldsfélag
Eimskips, keypti nýlega hlutabréf í
Síldarvinnslunni hf. í Neskaupsstað
að nafnvirði 7,5 milljónir króna eða
sem svarar til um 2,8% heildarhlut-
afjár. Seljandi bréfanna var Sæplast
hf. á Dalvík.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips, segir að kaupin séu liður
í þeirri stefnu félagsins að dreifa að
einhveiju marki fjárfestingum sín-
um. Félagið hafi einnig keypt hluta-
bréf í Skagstrendingi hf. á Skaga-
strönd og Arnesi í Þorlákshöfn. Að-
spurður um hvort Eimskip væri með
þessum kaupum að tryggja hags-
muni sína betur í flutningum á sjáv-
arafurðum sagði Hörður að svo
væri ekki, enda hefði féiagið annast
flutninga fyrir þessi fyrirtæki um
langa hríð.
Eimskip er gegnum Burðarás orð-
inn annar stærsti hluthafinn í Skag-
strendingi með tæplega 12% hlutafj-
ár. Nýlega keypti félagið 6,5% hlut-
aflár af Smáey hf., fyrirtæki Magn-
úsar Kristinssonar í Vestmannaeyj-
um. Jafnframt á Burðarás 10% hlut
í Árnesi í Þorlákshöfn en félagið tók
þátt í 126 milljóna hlutafjáraukn-
ingu fyrirtækisins í mars sl.
„Þessi fyrirtæki eru skráð á hluta-
bréfamarkaði og fjárhagsstaða
þeirra hefur lagast. Við teljum
áhugavert að vera hluthafar í þess-
um fyrirtækjum og efla þannig
hlutabréfamarkaðinn," sagði Hörður
Sigurgestsson.
Lýsmg að kaupa stóran
hluta saminga Lindar
SAMNINGAR standa yfir um að
Lýsing hf. kaupi af Landsbankan-
um stóran hluta af þeim eignar-
leigusamningum sem áður voru í
eigu Lindar hf. Ef samningar tak-
ast má gera ráð fyrir því að eignar-
leigusamingar að fjárhæð 1,5 millj-
arðar skipti um hendur.
Ólafur Helgi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Lýsingar, segir að á
þessu stigi sé verið að ræða um
kaup á eignarleigusamningum við
trausta viðskiptavini. Ef samningar
náist uni þá verði það einnig kann-
að hvort möguieikar séu á kaupum
samninga við viðskiptamenn sem
séu í einhveijum vanskilum með það
í huga að skuldbreyta þeim. Hugs-
anlega yrði um ábyrgð Landsbank-
ans að ræða á þeim hluta samning-
anna. Afgangi samninganna yrði
hins vegar rift.
„Það er fullur vilji til að ná sam-
komulagi um kaup Lýsingar á þeim
samningum s_em geta talist sölu-
vara,“ sagði Ólafur Helgi.
Á SÍÐUSTU 5 ÁRUM HAFA UM 1200 AÐILAR
GERST FÉLAGAR í ALVÍB
VlLT ÞÚ EKKI BÆTAST í HÓPINN?
• 8,7% ávöxtun frá upphafi.
• Persónuleg ráðgjöf til sjóðfélaga um lífeyris- og eftirlaunamál.
• ítarleg ársfjórðungsleg yfirlit.
• Félagar í ALVÍB vita alítaf nákvæmlega hver inneign þeirra er
og hvaða eftirlaunum þeir geta átt von á.
• Ávöxtun hvers sjóðfélaga er reiknuð út sérstaklega.
• Inneign í ALVÍB erfist.
• Allir geta greitt viðbótariðgjöld í ALVÍB.
• Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð
geta greitt öll sín iðgjöld í ALVÍB.
• Lágur rekstrarkostnaður.
• Örugg eignasamsetning.
Almennur lífeyrissjóður VÍB, ALVÍB,
er séreignarsjóður þar sem framlög
sjóðfélaga eru eign hans og ferast á
sérreikning hans.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.