Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 2
2 D FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 D 3
ÚRSLIT
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
A-deild:
Víkingur-KR......................0:6
- Guðmundur Benediktsson 2, Heimir Guð-
jónsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Steinar
Adolfsson, Izudin Daði Dervic,
■KR leikur til úrslita í mótinu.
Evrópukeppni féiagsliða
Fyrri leikur í úrslitum
Parma, Ítalíu:
Parma - Juventus.............. 1:0
Dino Baggio (5.). 23.000.
England
Aston Villa - Manchester City...1:1
(Ehiogu 9.) - (Rosler 63.). 30.133.
Everton - Chelsea...............3:3
(Hinchcliffe 38., Ablett 50., Amokachi 70.)
- (Furlong 29., 77., Hopkin 51.). 33.180.
Newcastle - Tottenham...........3:3
(Gillespie 7., Peacock 10., Beardsley 70.) -
(Barmby 22., Klinsmann 24., Anderton
26.). 35.603.
Southampton - Crystal Palace....3:1
(Wilmot 1„ sjálfsm., Watson 9., Le Tissier
86.) - (Southgate 26.). 15.151.
West Ham - QPR..................0:0
22.923.
1. deild
Stoke - Bolton.................1:1
Swindon - Notts County.........3:0
Tranmere - Wolverhampton.......1:1
Frakkland
Deildarbikarúrslit
PSG - Bastia....................2:0
Alain Roche (22.), Rai (84.). 25.000.
Holland
MW Maastricht - Ajax............0:3
Íshokkí
Heimsmeistarakeppnin
Átta liða úrslit
Tékkland - Rússland.............2:0
(1:0, 0:0, 1:0).
Jiri Kucera (8.42), Otakar Vejvoda (45.51.
■Tékkland mætir Finnlandi í undanúrslit-
um á morgun.
Kanada - Bandarikin.............4:1
(2:0, 1:0, 1:1).
Dale DeGray (14.40), Jean-Francois Jomp-
he (15.30), Todd Hlushko (37.16), Ralph
Intranuovo (53.54) - Paul Stanton (46.19)
■Kanada mætir Svíþjóð í undanúrslitum.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
1. umferð í úrslitakeppni NBA.
Austurdeild
Atlanta - Indiana................89:105
■Indiana vann samanlagt 3:0.
Chicago - Charlotte..............103:80
■Chicago hefur 2:1 yfir.
Vesturdeild
Denver - San Antonio.............95:99
■San Antonio vann samanlagt 3:0.
Portland - Phoenix.............109:117
■Phoenix vann samanlagt 3:0.
I KVOLD
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
A-deild:
Laugardalur: Fram - Þróttur....20
Frjálsar
Flugleiðahlaupið
í kvöld kl. 19 hefst Flugleiðahlaupið við
Scandic Hótel Loftleiðir. Hlaupnir verðar 7
km í kringum Reykjavíkurflugvöll og er
hlaupið öilum opið en keppendum verður
skipt niður f Qóra fiokka. Allir þátttakendur
sem ljúka hlaupinu fá verðlaunapening auk
þess sem aðalverðlaun hlaupsins verða dreg-
in út að hlaupi loknu. Þar hafa allir jafna
möguleika, sama í hvaða röð þeir ienda í
hlaupinu. Aðalverðlaunin eru flugfarmiði á
Evrópuleiðum Flugleiða, gisting og morgun-
verður á Scandic Hótel Loftleiðum og kvöld-
verður fyrir tvo í Blómasalnum.
Skráning fyrir hlaupið fer fram í dag,
keppnisdaginn og hefst kl. 17, að Scandic
Hótel Loftleiðum. Þátttökugjald er kr. 500.
FELAGSLIF
Uppskeruhátíd hjá
Frömurum
Uppskeruhátíð unglinganefndar hand-
knattleiksdeildar Fram verður haldin í
dag kl. 17.30 í íþróttahúsi Fram við
Safamýri. Farið verður yfir liðið tímabil
og viðurkenningar veittar, kaffíveitingar
á eftir. Allir iðkendur, foreidrar og vel-
unnarar eru velkomnir.
Leiðrétting
Upplýsingar um eftirfarandi leik á Norðurlanda-
móti stúlkna, 20 ára ogyngri, í Finnlandi síð-
ari hluta aprfl, voru rangar í blaðinu á sínum
tíma. ter birtast því hér aftur, réttan
ísland - Noregur...........61:45
Stig íslands: Björg Hafeteinsdóttir 16, Anna
Marfa Sveinsdóttir 14, Inga Magnúsdóttir 8,
Elisa Vilbergsdóttir 5, Anna Dís Sveinbjöms-
dóttir 5, Helga Þorvaldsdóttir 5, Linda Stefáns-
dóttir 4, Kristín Magnúsdóttir 2 og Eria Hend-
riksdóttir 2.
■Leyfilegt var að þijár eldri stúlkur en tvítug-
ar væru með hveiju liði á mótinu. Björg, Anna
María og Linda voru eldri stúlkumar í liði fs-
lands.
IÞROTTIR
IÞROTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Rússaríboði
Stjömunnar
Rússneska landsliðið í hand-
knattleik kom hingað til lands
í fyrradag. Fram til laugardags
dvelur liðið hér í boði Stjörnunnar
í Garðabæ. Garðbæingar munu á
þessum tíma sjá þeim fyrir gist-
ingu, fæði og æfingaaðstöðu. Að
sögn Magnúsar Andréssonar, for-
manns meistaraflokksráðs karla,
þá er þetta boð einn hluti af samn-
ingi félagsins við rússneska lands-
liðsmanninn, Dimitri Filippov, sem
leikur með Stjömunni. 1 framhaldi
af þessu ákvæði í samningi
Filippovs þá hefur félagið á undan-
förnum mánuðum átt gott samstarf
við rússneska landsliðið og m.a.
hefur Viggó Sigurðsson, þjálfari
Stjörnunnar, verið með landsliðinu
í æfingabúðum síðustu vikur í þeim
tilgangi að kynnast þjálfunarað-
ferðum þeirra. Magnús taldi Stjörn-
una hafa mikinn hag af þessu sam-
starfi og ekki væri verið að steypa
félaginu út í fjárhagslegar skuld-
bindingar vegna heimsóknarinnar.
Þvert á móti væri þetta góð kynn-
ing fyrir félagið og vera rússnesku
leikmannnanna hér gæti eflt áhuga
á handknattleik hjá ungu fólki í
Garðabæ.
14. HM Á ISLANDI 1995
w
ÍSLAND &
■A
HEIMSMEISTARAR
1995 ?
1993 Rússland
1990 Svíþjóð
1986 Júgóslavía
1982 Sovétríkin
1978 V-Þýskaland
1974 Rúmenia
1970 Rúmenía
1967 Tékkóslóvakía
1964 Rúmenía
1961 Rúmenía
1958 Svíþjóð
1954 Svíþjóð
1938 Þýskaland
<i>
o
r
( ^
Co
/1993
' 1967
i 1954
DANMÖRK }jf
m’Kr....1 ■ l'
þýskaland^ i
71938 A-ÞÝSKAL.
19581
1974 \
/
á
'\y
r
V-ÞÝSKAL.
1982
1961
FRAKKLAND
1970 SVISS
1964
1990
WÍA
../
/!
Sigmundur Ó. Sleinarsson
tók saman/Morgunblaðið GÓI
Fjórar þjóðir léku árið 1938,12
árið 1961 en í öðrum HM-mótum
léku 16 þjóðir. Alls leika 24 þjóðir
á íslandi. Aðeins tvisvar hefur
heimaþjóð fagnað HM-titli,
Þjóðverjar 1938 og Svíar 1954.
FRJALSAR
Morgunblaðið/Þorkell
FRI gerir samning um fatnað
Fijálsíþróttasamband ísland og
Austurbakki hf, umboðsaðili
Nike íþróttavara, undirrituðu ný-
lega samstarfssamning til næstu
þriggja ára. Á þeim tíma mun lands-
lið Islands klæðast fatnaði frá Nike
næsta þijú árin, en_ einnig mun
unglingaverkefni FRÍ 2000 njóta
góðs af þessum samningi. Frjáls-
íþróttasambandið hefur síðustu
fjögur ár verið í samstarfi við
Austubakka hf. Helstu verkefni
landsliðsins á næstunni eru Smá-
þjóðaleikarnir í Luxemborg í lok
maí og Evrópubikarkeppni landsliða
í Tallin í Eistlandi í júní.
Á myndinni takast Bjöm Þóris-
son,t.v., sölustjóri Austurbakka hf
og Helgi S. Haraldsson, formaður
FRÍ, í hendur eftir að samningurinn
hafði verið undirritaður.
Morgunblaðið/Kristinn
RÚSSNESKU leikmennlrnir Andrey Lavrov markvörður til vinstri og Vasiliy Kudinov eru leikreyndastir
í hópnum hjá heimsmeisturunum sem mætir Stjörnunni í kvöld.
Maximóv þjálfari heimsmeistara Rússa íhandknattleik
Gæðunum hefúr hrakað
hjá öllum þeim bestu
Gæði þess handbolta sem leikinn er
nú er lakari en var fyrir nokkrum
árum síðan. Þetta er ekki eingöngu
vandamál í Rússlandi, heldur hjá ölium
bestu handboltaþjóðum heims. Þetta
lýsir sér meðal annars í að það eru
mikið fleiri eldri leikmenn lykilmenn í
sínum liðum en áður var, minna er um
unga leikmenn," sagði Maximóv, þjálf-
ari rússneska landsliðsins í handknatt-
leik á blaðamannfundi í gær.
Hann sagði ennfremur að það væri
vandamál í rússneskum handknattleik,
og fleiri íþróttum, að verr gengi að fá
ungt fólk til að æfa íþróttir. Megin
ástæðuna taldi hann vera þá að eftir
þær breytingar sem átt hefðu sér stað
í heimalandi hans á sl. árum, hefði
ungt fólk úr fleiri möguleikum að velja.
Jafnframt að margir bestu íþróttamenn
Rússlands hefðu á liðnum árum sótt í
æ ríkari mæli út fyrir heimalandið til
að stunda sína íþrótt, þar sem miklir
peningar væru í boði.
Um það hvernig gengi að fjármagna
handboltalandsliðið nú eftir að ríkið
væri hætt að leggja fjármuni í það í
eins ríkum mæli og áður var, svaraði
Maximóv því til, að það gengi bæri-
lega. Þeir hefðu fengið ýmsa styrkta-
raðila til liðs við sig. En umhverfið
væri ólíkt því sem verið hefði áður. Þá
setti ríkið peninga í handknattleikinn
en krafðist á móti sigurs i öllum mót-
um. Sú krafa hefði sett mikla pressu á
menn og haft slæm áhrif á leikmenn
og forráðamenn liðsins. Auðvitað væri
ennþá krafa um árangur en hún kæmi
meira til af því að auðveldara væri að
fá styrktaraðila til liðs við sig ef árang-
ur væri góður.
Maximóv sagði að eftir að rússnesk-
ir handboltamenn hefðu farið að sækja
í meira mæli til vestur Evrópu, en áður,
til þess að stunda sína íþrótt hefði um
leið kostnaður við að reka landsliðið
stóraukist. Það kostaði stórfé að kalla
liðið saman og það leiddi svo til þess
að það kæmi sjaldnar saman en áður.
Honum gengi þar af leiðandi verr að
vita hvert líkamlegt ástand manna
væri. Sumir leikmenn kæmu í góðu
formi frá sínum félagsliðum, og nefndi
hann sem dæmi í því sambandi Dimitri
Filippov, leikmann Stjörunnar og
Lavrov, markvörð, sem léki með
frönsku félagsliði. Síðan væru aðrir
leikmenn í lélegu formi, en hann vildi
ekki nefna nein nöfn. Maximóv vildi
ekki segja neitt um hvort hann áliti að
lið hans verði titilinn á HM á íslandi,
sagði aðeins: „Guð einn veit hver stend-
ur upp sem sigurvegari að leikslokum."
Rússneska landsliðið
mætir úrvalsliði Viggós
Itilefni af dvöl rússneska landsliðsins
í handknattleik hér á landi í boði
Stjörunnar hefur handknattleiksdeild
félagsins ákveðið að slá upp handbolta-
veislu n.k. laugardag í íþróttahúsinu í
Ásgarði.
Upphitun fyrir veisluna verður í
kvöld kl. 20, þegar 1. deildar lið Stjörn-
unnar í handknattleik mætir rússneska
landsliðinu í æfingaleik. Þarna verður
á ferðinni einstakt.tækifæri fyrir hand-
knattleiksáhugamenn beija heimsmeit-
KNATTSPYRNA
arana augum fyrir átökin í HM. Áður
en leikurinn byijar leikur 5. flokkur
stúlkna hjá Stjörnunni æfingaleik og í
leikhléi mætir 6. flokkur Stjörnustráka
rússnesku snáðunum í léttum leik.
Á laugardaginn hefst síðan aðalveisl-
an kl. 15.15, með vináttuleik Stjörnu-
stráka í 5. flokki gegn jafnöldrum sín-
um í Val. í framhaldi af þeim leik tek-
ur hápunkturinn við, en þá mætir úr-
valslið Viggós Sigurðssonar landsliði
Rússlands. Þarna verður að sjálfsögðu
síðasti æfingaleikur rússneska lands-
liðsins fyrir HM. í leikhléi etja rúss-
nesku snillingarnir kappi við stúlknalið
6. flokks kvenna.
Strax að leik loknum tekur við upp-
skeruhátíð handknattleiksdeildar
Stjörnunnar. Hún verður í Stjörnu-
lundi. Þar mun m.a. Dimitri Filippov,
leikmaður Stjörnunnar og rússneska
landsliðsins aflienda viðurkenningar til
ungra handknattleiksiðkenda hjá
Stjörnunni.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Barkley kvaddi höllina
í Portland með 47 stigum
Indiana, Phoenixog San Antonio í 2. umferð úrslitakeppninnar
ÞRJU lið, Indiana Pacers,
Phoenix Suns og San Atnonio
Spurs, tryggðu sér í fyrri nótt
sæti í 2. umferð í úrslita-
keppni NBA-deildarinnar.
Charles Barkley gerði 47 stig
fyrir Phoenix i síðasta leikn-
um f Memorial Colisuem-
íþróttahöllinni í Portland.
Michael Jordan og félagar í
Chicago Bulls þurfa aðeins
einn sigur gegn Charlotte til
að komast í 2. umferð.
Charles Barkley var í sviðsljós-
inu og gerði 47 stig og tók
12 fráköst fyrir Phoenix í 109:107
sigri gegn Portland á útivelli. Þar
með er Phoenix komið áfram og
vann um leið alla átta leikina gegn
Portland á tímabilinu. „Við reynd-
um allt til að þurfa ekki að vera
hér í Portland fram á föstudag.
Þetta var góður leikur frá upphafi
til enda. Við lékum frábærlega,"
sagði Barkley, sem hitti úr 16 af
26 skotum sínum utan af velli og
11 af 13 frá vítalínu.
Þetta var síðasti leikurinn í Me-
morial Colisuem íþróttahöllinni í
Portland því næsta vetur verða
heimaleikri liðsins í nýrri höll, Rose
Garden, sem tekur 21.700 áhorf-
endur í sæti. „Ég hef alltaf hitt vel
í þessu húsi og það er eftirsjá í
því,“ sagði Barkley. Rod Strickland
var stigahæstur heimamanna með
21 stig og Clifford Robinson kom
næstur með 19. Phoenix mun leika
við annað hvort Houston eða Utah
í 2. umferð.
Sean Elliott gerði sigurkörfu San
Antonio þegar 32 sekúndur voru
eftir gegn Denver á útivelli, 95:99,
og þar með er liðið komið áfram.
Hann gerði 18 stig í leiknum og
hitti úr 14 af 16 vítaskotum sínum.
Avery Johnson og David Robinson
gerðu 24 stig hvor fyrir San An-
tonio sem mætir annað hvort La-
kers eða Seattle í næstu umferð.
„Þetta var mjög spennandi leikur,“
sagði Elliott. „Við vissum að þeir
kæmu ákveðnir til leiks, en við
héldum ró okkar og lékum skyn-
samlega."
Chicago komst í 2:1 gegn Charl-
otte á heimavelli með því að sigra
sannfærandi 103:80. Toni Kukoc
gerði 14 af 22 stigum sínum í þriðja
leikhluta, en Michael Jordan var
að vanda stigahæstur með 25 stig.
Scottie Pippen gerði 14 stig, átti
níu stoðsendingar og tók fimm frá-
köst. Chicago leikur aftur á heima-
velli í nótt og getur þá tryggt sig í
2. umferð þar sem Boston eða Or-
lando verður móthetji. Larry John-
son var stigahæstur gestanna með
22 stig og Alonzo Mourning var
haldið niðri í 13 stigum, en hann
hitti aðeins úr tveimur af níu skot-
um sínum utan af velli.
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ undirritun KSÍ og Sjóvá-Almennra í gær. Sitjandi frá vinstri: Lúðvík Georgsson formaður
1. delldar samtakanna, Eggert Magnússon formaður KSÍ, Ólafur B. Thors forstjórl SJóvá-
Almennra, Viðar Jóhannesson gæðastjóri Sjóvá-Almennra. Standandi frá vinstrh Jóhannes
Ellertsson frá Keflavík, Theódór S. Halldórsson Val, Björgúlfur Guðmundsson KR, Ólafur Helgl
Árnason Fram, Gunnar Þórisson Lelftri, Svelnn Ingvason Brelðablikl, Gunnar Sigurðsson ÍA,
Svavar Slgurðsson Grindavík og Þórlr Jónsson frá FH.
KSÍ og Sjóvá-Almennar
semja til þrigaja ára
Igær var undirritaður samstarfs-
samningur milli Knattspyrnu-
sambands Islands og tryggingafé-
lagsins Sjóvá-Almennra um að
tryggingafyrirtækið styrki 1. deild
karla í knattspyrnu næstu þijú ár.
Að sögn Eggerts Magnússonar for-
manns KSl fagnar knattspyrnu-
hreyfingin því sérstaklega að fá
þetta sterka og virta fyrirtæki til
samstarfs. Samningurinn er að
verðmæti 12 miljónir en þar af
skiptast fimm milljónir á milli félag-
anna eftir árangri í 1. deild karla
- sem mun heita Sjóvá-Almennar
deildin á samningstímanum. Þannig
munu sigurvegarar í 1. deild fá
700.Ö0 krónur, annað sætið gefur
570.000, þriðja 510.000 og önnur
minna en tvö neðstu liðin fá
445.000 krónur. Einnig er gert ráð
fyrir að leikmenn á samningi hjá
félögunum verði tryggðir hjá Sjóvá-
Almennum og þannig séu skilyrði
slíkra leikmannasamninga uppfyllt.
Fyrirtækið muni einnig leggja til
verðlaun á lokahófi knattspyrnu-
manna.
Ennfremur var undirrituð
viljayfirlýsing um að unnið verði
að þróun samstarfssamnings við
þijár efstu deildir karla, sem felur
í sér iðkendatryggingar við alla
iðkendur í félögunum og jafnvel
einnig peningaverðlaun eftir ár-
angri. Gert er ráð fyrir að tillögur
að samningi liggi fyrir í októþer
1995.
Knattspyrnukonurnar eru ekki
inni í þessum samningi enda er eitt
ár eftir að samningi þeirra við
íþróttavörufyrirtækið Mizuno.
Að sögn Olafs B. Thors forstjóra
Sjóvá-Almennra hefur fyrirtækið
ætíð stutt við íþróttir í landinu. Nú
verði áherslubreyting því hand-
knattleikurinn hafi verið í fyrirrúmi
hjá fyrirtækinu en engu að síður
væri ekki verið að afskrifa aðrar
íþróttagreinar með þessum samn-
ingi.
Reykjavíkurmótið
1995
Fimmtudagur 4. maí ki. 20.00
Fram — Þróttur
Gervigrasið Laugardal
ÍlíÍíSÍIIiÍIÍiSÍlll
Hópferð á úrslitaleik Arsenal
AÐDÁENDUR Arsenal á íslandi hafa
ákveðið að efna til hópferðar á úrslita-
leik Arsenal og Real Zaragosa frá Spáni
í Evrópukeppni bikarhafa sem verður í
París miðvikudaginn 10. maí. Flogið
verður til Lúxemborgar daginn fyrir
leikdag og haldið þaðan með rútu til
Parísar en heimferð er daginn eftir leik.
Ferðin er farin í samvinnu við Ferða-
skrifstofuna Samvinnuferðir/Landsýn
þar sem nánari upplýsingar eru veittar
eins og hjá forsvarsmanni klúbbsins á
Selfossi (s. 98-22499). Þess má geta
að Arsenalklúbburinn fór á úrslitaleik
Arsenal í Kaupmannahöfn í fyrra og
vegna þess hvað ferðin þótti takast vel
var ákveðið að halda uppteknum hætti
eftir að Arsenal hafði haft betur gegn
Sampdoria í undanúrslitum.
ICELAND
1995
ÞU FÆRÐ UPPLYSIN6AR UM HM
Á VERALDARVEFNUM
ORACLG” W o r I d W i d e W e b I n t e r f a c e K i t
TEYMI
ORACLE HUGBÚNAÐUR Á ÍSLANDI