Morgunblaðið - 05.05.1995, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÍBÝLI • FRÉTTIR •
mgtmlflftftife
Prentsmiöj
Föstudagur 5. mal 1995
Blað D
Lagnasýning
íFrankfurt
I þættinum Lagnafréttir
fjallar Sigurður Grétar Guð-
mundsson um lagnasýning-
una í Frankfurt. Hún er
stórviðburður á sínu sviði,
þar sem hver framleiðand-
inn reynir að komast fram
úr hinum í frumleika./20^
Óvenjuiegar
innréttingar
Sérstæðar innréttingar í
veitingastaðnum Carpe
diem við Rauðarárstíg
eru viðfangsefni Bjarna
Ólafssonar í smiðjuþætti
hans að þessu sinni. Þær
minna á leikmynd af
gamalli smiðju./24^
0 T T E K T
íbúðirá
góðu verði
í Kópa-
vogsdal
ÞAÐ ER meiri bjart-
sýni yfir nýbygg-
ingamarkaðnum
en var, en kröfurn-
ar eru orðnar meiri. Nú gild-
ir að byggja góðar en ódýr-
ar íbúðir. Þetta kemur fram
í viðtali við Sigurð Sigur-
geirsson, framkvæmda-
stjóra byggingafyrirtækis-
ins Járnbendingar hf., sem
áformar að byggja 52 íbúðir
í tveimur fjölbýlishúsum við
Gullsmára í Kópavogi. í
fyrsta áfanga verður byggt
sjö hæða lyftuhús með 28
íbúðum. Framkvæmdir eru
þegar hafnar af krafti. Hús-
ið verður steypt upp í sumar
og væntanlega fokhelt fyrir
1. desember nk., en íbúðirn-
ar afhentar fullbúnar í apríl
á næsta ári.
Verð þeirra verður að
teljast hagstætt og fimm
íbúðir eru þegar seldar. —
Það er því greinilega góð
eftirspurn eftir nýjum íbúð-
um nú, þegar hægt er að fá
þær nánast á sama verði og
notaðar íbúðir hafa verið
seldar á, segir Sigurður,
sem telur samkeppnina á
nýbyggingamarkaðnum
hafa aukizt mjög./18
Húsnæðissparnaðarreikningar
heyra brátt sögunni til
Vaxandi innlegg
á síðustu árum
SKATTAAFSLÁTTUR vegna hús-
næðissparnaðarreikninga hefur nú
verið í gildi í tíu ár, en eins og sést
á súluritinu hér til hliðar, virðist
sem fólk hafi ekki áttað sig á því,
hve hagstætt þetta sparnaðarform
er fyrr en nú á allra síðustu árum.
Þannig voru sparendur einungis
446 árið 1989 og innleggin námu
þá aðeins 49,5 millj. Arið 1993
voru sparendur aftur á móti orðnir
5.244 og innleggin það ár-námu
1.071,5 millj. kr. Tölur fyrir síð-
asta ár liggja ekki fyrir hendi enn,
en verið að vinna þær úr skatt-
framtölum.
Senn líður að því, að fólk geti
ekki lengur lækkað skattana sína
með því að spara til húsnæðis-
kaupa, því að húsnæðissparnaðar-
reikningar fara nú bráðum að
renna sitt skeið á enda. í árslok
1992 var gerð sú lagabreyting, að
skattaafslátturinn lækki í þrepum
um 5% á ári og falli síðan niður á
árinu 1997. Afslátturinn hefur því
farið lækkandi ár frá ári. Fram til
ársloka 1992 var afslátturinn 25%
af innleggi ársins, en lækkaði síðan
í 20% af innleggi ársins 1993, var
15% vegna síðasta árs og verður
10% af innleggi ársins í ár. Frá
og með 1. janúar 1977 fellur þessi
skattaafsláttur alveg niður. Úttekt
vaxta hefur hins vegar engin áhrif
á skattaafslátt sparenda, enda sé
úttektin í samræmi við reglur við-
komandi banka.
Húsnædissparnaðarreikningar
1989-93
Milljónir kr.
-1.200
446 582
3.152 5.070 5.244
Meðalinnlegg á ári
SJÓÐUR 2
FYRSTI & EINI
TEKJUSJÓÐURINN Á ÍSLANDI SEM GREIÐIR
MÁNAÐARLEGA VEXTI
Sjóður 2 er fyrsti
tekjusjóðurinn á íslandi
sem greiðir vexti umfram
verðbólgu mánaðarlega og
hentar því þeim sem vilja
auka mánaðarlegar
tekjur sínar.
• Mánaðarlegar vaxtagreiðslur.
• Skattfrj álsar vaxtatelcjur.
• Úttekt heimil hvenær sem er, án nokkurs
kostnaðar.
• Lágmarks inneign í sjóðnum er 500.000 kr.
• Fylgir ávöxtun íslenskra markaðsskuldabréfa
og rjárfestir einungis í traustum skuldabréfum.
• Okeypis varsla bréfanna.
• Mánaðarleg yfirlit um vexti og eign.
• Hægt að fá vexti lagða inn á reikning í hvaða
banka sem er.
Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um
Sjóð 2 í afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma
560-8900. Jafnframt er hægt að kaupa Sjóð 2
í útibúum íslandsbanka um allt land.
Verið velkomin í VÍB.
FORYSTAI FJARMALUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR (SLANDSBANKA HF.
• Adili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a. 155 Reykjavík. Sími 560-8900.