Morgunblaðið - 07.05.1995, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995
MORGUNBLAÐIÐ
VID GANG-
STÉTT ARBRÚN
eftir Bergljótu Ingólfsdóttur
í BRESKUM sjónvarpsþætti fyr-
ir nokkru kom við sögu maður sem
handtekinn var þar sem hann var
„kerb crawling" og það þýtt sem
hann hefði brotið umferðarlög. Vart
gefur það rétta mynd af framgöngu
fyrrnefnds manns.
Það sem Bretar kalla „kerb
crawling" (líka „curb crawling“) er
það athæfí karla að aka löturhægt,
lóna við gangstéttarbrún til að kom-
ast í talfæri við skyndikonur sem
þar standa og bíða eftir kúnnum.
Það er ekki einasta að vændis-
konur bijóti lög með starfi sínu, það
gera einnig þeir karlar sem notfæra
sér þjónustu þeirra, jafnvel þeir
semgerast líklegir til þess. Lög þess
efnis voru sett í Bretlandi árið 1985
og er þeim framfylgt hvar sem því
verður við komið.
Lögreglan er því á ferli á fáföm-
um strætum breskra borga, eftir
að skyggja tekur, í þeim hverfum
sem slík skyndikynni tíðkast.
Menn taka því mikla áhættu með
að stöðva bíla sína í rennusteininum
og eiga þar í samningaviðræðum
við portkonur á gangstéttarbrún-
inni. Þegar slík mál komast í frétt-
ir eru iðulega rifjuð upp viðbrögð
virðulegs, fyrrverandi dómara, sem
gripinn var rétt í þann mund sem
ung vændiskona var að koma sér
fyrir í bíl hans, „Hamingjan sanna,“
sagði hann, „heppinn var ég að þið
komuð, stúlkan ruddist inn í bílinn
hjá mér og neitar að fara út!“
Úr háum söðli
í októbermánuði árið 1991 var
ríkissaksóknari Breta, sir Allan
Green, á heimleið eftir kvöldverð
með samstarfsmönnum í London.
Hann ók eins og leið lá fram hjá
King’s Cross stöðinni, en í stað
þess að aka beint áfram til heimilis
síns, í Primrose Hill, beygði hann
inn í varasamt og óþrifalegt hverfí
á bak við stöðina. Þar er ekki íbúða-
byggð en vörugeymslur, gasstöð,
sóðalegar kaffístofur á stangli og
bensínsala. Á þessum stað halda
sig vændiskonur, hórmangarar, eit-
SAMNINGAVIÐRÆÐUR við gangstéttarbrún.
urlyfjasalar og aðrir þeir sem forð-
ast að sýna sig í dagsbirtu.
Inn í þetta hverfí ók Green, stöðv-
aði bílinn og tók bensín, en í stað
þess að setjast umsvifalaust inn í
bíl sinn aftur, og aka á braut, gaf
hann sig á tal við vændiskonu sem
þar var. í sama mund bar þar að
lögreglubíl, sem lagt var beint fyrir
aftan bíl Green, út úr honum þustu
SIR Allan Green og Lady Eva í marsmánuði 1991 þegar hann
var sæmdur aðalsnafnbót. Myndin er tekin í Buckingham-höll.
nokkrir lögregluþjónar, handtóku
stúlkuna og stungu henni inn í bíl-
inn.
Einn lögregluþjónninn sneri sér
að saksóknaranum, krafði hann um
skilríki og sagði hann þar með kom-
ast á skrá lögreglunnar. Það fer
engum sögum af frekari orðaskipt-
um mannanna tveggja, en vísast
hefur þeim báðum orðið nokkuð um
þessa óvæntu uppákomu, á þessum
ólíklega stað.
Sir Allan Green stóð á tindi fer-
ils síns þegar þetta var, 'nann hafði
hlotið aðalstign rúmu hálfu ári áð-
ur. Hann þótti sýna vasklega fram-
göngu í viðureign við lögbijóta.
Green er kominn af efnafólki, gekk
í bestu skóla og stundaði lögfræði-
nám sitt í Cambridge. Mönnum
þótti frami hans í starfi verðskuld-
aður, enda virtur af öllum þeim sem
til þekktu.
Einkalíf hans þótti óaðfínnan-
legt, þrítugur kynntist hann
sænskri konu sinni, Evu Attman,
en hún kom tvítug að aldri til Lond-
on, til þess að stunda hagfræðinám.
Þau áttu tvö uppkomin börn og
hjónaband þeirra hafði staðið í 24
ár. Vina og kunningjahópur þeirra
var stór og „selskapslíf" þeirra líf-
legt.
Við þeirri spurningu hvað sak-
sóknaranum hafi gengið til að láta
sjá sig í því illræmda hverfí, bak
við King’s Cross stöðina, fékkst
ekkert svar.
Þeir voru til sem fannst að Green
hefði átt að notfæra sér aðstöðu
sína og þagga málið niður, en það
mun ekki hafa verið hans stíll.
Á hádegi daginn eftir sagði hann
af sér, sagði þar með skilið við
bæði hátt launaða og eftirsótta virð-
ingarstöðu.
Eins og búast mátti við var þetta
mál fyrirferðarmikið í fjölmiðlum,
enda ekki á hveijum degi sem slík-
ir atburðir gerast. Fréttamenn sátu
um þau hjón, fyrir utan heimili
þeirra, þegar þau lögðu af stað til
sumarhúss síns á Miðjarðarhafseyj-
unni Minorca. Þeim var fylgt eftir
alla leið út á flugvöll. Aðspurð
sögðu þau fátt, en Eva Green sagð-
ist ætla að standa við hlið manns
síns, tilfinningar sínar væru
óbreyttar.
Þremur mánuðum síðar var frá
því skýrt opinberlega að hún hefði
sótt um skilnað frá manni sínum.
Auðmýkingin varð henni um megn.
Fallið úr mannvirðingarstiganum
of hátt.
Eftirmáli
í febrúarmánuði árið 1993 var
komið að Evu Green látinni í íbúð
sinni. Engin merki voru um að henni
hafí verið gert mein, enginn óboðinn
komist þar inn. Dánarorsök varð
því ekki sönnuð svo óyggjandi væri.
Þeir sem þekktu hana best, þ.á m.
bróðir hennar, dr. Per Ola Áttman,
yfirlæknir við Salgrenska sjúkra-
húsið í Gautaborg, töldu það af og
frá að hún hefði stytt sér aldur.
Skíðaferð með vinum var á næsta
leiti svo og önnur ferðalög framund-
an.
Ríkissaksóknarans fyrrverandi
biðu almenn lögmannsstörf, svo
sem að veija þá sem sakaðir eru
um lögbrot. Hann er því kominn
hinum megin við borðið, ef svo má
að orði komast.
Beygjan inn í það illræmda
hverfi, á bak við King’s Cross stöð-
ina, síðkvöld eitt um árið, varð
sannarlega mikill örlagavaldur í lífí
Green hjónanna.
Auglýsing
Sambú, rekstrarfélag Lífeyrissjóðs bænda og
Samvinnulífeyrissjóðsins, mun flytja starfsemi
sína úr Sambandshúsinu á Kirkjusandi
á 3. hæð í Hús verslunarinnar, Kringlunni 7.
Vegna flutninganna verða skrifstofur Sambús
lokaðar föstudaginn 5. maí 1995, en opna í
hinu nýja húsnæði að morgni mánudagsins
8. maí 1995.
Síma- og faxnúmer verða óbreytt.
Sambú
Nýtt bílaverkstæði
NÝLEGA opnaði Brynjólfur Wium
Karlsson, bifvélavirkjameistari,
nýtt verkstæði á Kársnesbraut 100
í Kópavogi sem hann rekur undir
nafninu Afram gengur hjá Binna.
Þar mun Brynjólfur annast alla
venjulega þjónustu við bifreiðaeig-
endur, viðgerðir og viðhald.
Brynjólfur rak áður í félagi við
annan aðila bifreiðaverkstæðið
Áfram gengur, en hefur nú hafíð
starfsemi á eigin spýtur. Hann
veitir alla þá þjónustu við bílaeig-
endur sem þá vanhagar um og
útvegar varahluti í allar gerðir
bifreiða. Um mánaðamótin varð
það óhapp að eldsvoði varð í fyrir-
tækinu við hlið Áfram gengur hjá
Binna og því varð nokkur truflun
á rekstri fyrirtækisins. En nú hef-
ur Brynjólfur hafið ótrauður rekst-
ur á ný.
BRYNJÓLFUR Wium Karlsson í bifreiðaverkstæði
sínu Áfram gengur hjá Binna.