Morgunblaðið - 07.05.1995, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 7. MAÍ1995 B 29
RADAUGl YSINGAR
Menningarmálanefnd
Reykjavíkur
auglýsir eftir umsóknum um styrki til menn-
ingarstarfsemi í borginni.
Umsóknum skal skilað á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem fást hjá ritara nefnd-
arinnar sem einnig veitir allar nánari upplýs-
ingar í síma 55-26131.
Umsóknirnar skulu hafa borist Menningar-
málanefnd Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum, v.
Flókagötu, 105 Reykjavík, fyrir 1. júní nk.
Frá Lýðveldissjóði
Lýðveldissjóður auglýsir eftir umsóknum um
styrki til minni háttar verkefna á sviði vist-
fræði sjávar og til eflingar íslenskri tungu. Um
getur verið að ræða styrki til eins til fjögurra
ára. Heildarfjárhæð styrkjanna ár hvert er kr.
fimm milljónir á hvoru sviði næstu fimm ár.
Umsóknum skal fylgja ýtarleg greinargerð þar
sem fram komi afmörkun verkefnis, verklýsing
og verkáætlun og annar rökstuðningur sem
máli skiptir. Sérstaklega skal gerð grein fyrir
gildi verkefnisins, hagnýtu og/eða fræðilegu,
tengslum þess við önnur verkefni og nýmælum
ef þeim er að skipta. Ef sótt er um fé til kaupa
á tækjabúnaði þarf að skilgreina hann eins
nákvæmlega og kostur er.
Með umsóknum skal fylgja yfirlit yfir fyrri
störf og ritverk umsækjanda sem máli skipta
fyrir þau verkefni sem um ræðir.
Sjóðsstjórn mun senda umsóknirtil umsagn-
ar sérfræðinga á því sviði sem um ræðir
eftir því sem þurfa þykir. Við mat á umsókn-
um mun sjóðsstjórn m.a. taka tillit til eftirfar-
andi atriða:
1) Vísindalegs og hagnýts gildis fyrirhugaðs
verkefnis.
2) Að verkefni sé skýrt afmarkað, markmið
skýr og vel rökstudd.
3) Að gerð sé grein fyrir stöðu þekkingar á
umræddu sviði og hvernig verkefnið teng-
ist fyrri rannsóknum ef við á.
4) Þekkingar og færni umsækjanda.
5) Að verkáætlun sé traust og trúverðug og
rækileg kostnaðaráætlun sé í samræmi
við markmið.
6) Að verkefni feli í sér mikilsvert framiag á
sínu sviði eða í því felist nýmæli.
Umsóknir skal senda til Lýðveldissjóðs, skrif-
stofu Alþingis, 150 Reykjavík, eigi síðar en
1. júnf 1995.
LÝÐVELDISSJÓÐUR
Sumarskóli í Skotlandi
Þriggja og fjögurra vikna alþjóðlegur ensku-
skóli fyrir 13-16 ára unglinga í júlí, í úthverfi
borgarinnar Dundee við austurströnd
Skotlands. Skólinn er staðsettur í fallegu og
rólegu umhverfi og býður upp á fjölbreytta
íþrótta- og tómstundaiðkun ásamt fjölda
skoðunarferða. Einnig er sérstakur golfpakki
í boði enda fjölmargir golfvellir í nágrenninu.
Reyndur, íslenskur fararstjóri verður með
börnunum allan tímann.
Nánari uppl. fást hjá Karli Óskari Þráinssyni
í síma 557-5887 og á faxi 587-3044.
Bændaskólinn
á Hvanneyri
Bændadeild auglýsir
Innritun stendur yfir
Á Bændaskólanum á Hvanneyri getur þú
lært flest það, er viðkemur nútíma búskap,
hvort heldur þú kýst hinar hefðbundnu bú-
greinar eða að leggja á nýjar brautir.
Þú getur valið um þrjú svið:
Búfjárræktarsvið - landnýtingarsvið
- rekstrarsvið
auk valgreina, s.s. hrossarækt, skógrækt,
tóvinnu, heimilisgarðrækt, fiskrækt, alifugla-
og svínarækt, búsmíði, vinnuvélar, kanínu-
rækt o.fl.
Búfræðinámið ertveggja ára nám. Stúdentar
geta lokið því á einu ári. Athygli er vakin á
því, að búfræðinám er nauðsynlegur undan-
fari námi í Búvísindadeild (Bs 90) sem næst
verður innritað í haustið 1996.
Umsókn um skólavist sendist skólanum fyrir
10. júní nk. Nánari upplýsingar fást á skrif-
stofu skólans. Stúdentar, sem hyggjast hefja
búfræðinám í júní og Ijúka námi vorið 1996,
hafi samband sem fyrst.
Bændaskólinn á Hvanneyri, 311 Borgarnesi,
sími 93-70000, fax 93-70048.
Skólastjóri.
Hraðnámskeið ítáknmáli
Hraðnámskeið í Ták 1, 2, 3 og 4, 5, 6 verða
haldin í Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og
hreynarskertra dagana 6. júní til 26. júní nk.
Innritun stendur til 12. maí í síma 562 7702
eða 562 7789.
Auglýsing um
íflL^ innritun nýnema
hAbkóunn
A AKUREYRI
Heilbrigðisdeild: Hjúkrunarfræði
Kennaradeild: Kennaranám
Rekstrardeild: Rekstrarfræði
Iðnrekstrarfræði
Gæðastjórnun
Sjávarútvegsdeild: Sjávarútvegsfræði
Umsóknarfrestur um skólavist er til 1. júní
1995.
Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af
prófskírteinum. Ef prófum er ekki lokið skal
senda skírteini um leið og þau liggja fyrir.
Við innritun ber að greiða 25% skrásetning-
argjalds, kr. 5.750,- og er þessi hluti óaftur-
kræfur fyrir þá nemendur sem veitt er skóla-
vist. Bent er á að auðveldast er að leggja
þessa upphæð inn á póstgíróreikning Há-
skólans á Akureyri, reikningsnúmer 0900-26-
156876.
Skilyrði fyrir inntöku í háskólann er stúdents-
próf eða annað nám sem stjórn háskólans
metur jafngilt. í gæðastjórnunarbraut rekstr-
ardeildar gilda þó sérstök inntökuskilyrði um
tveggja ára rekstrarnám eða annað nám sem
stjórn háskólans metur jafngilt. Á fyrsta ári
í heilbrigðisdeild er gert ráð fyrir að fjöldatak-
mörkunum verði beitt. Þannig verði fjöldi
þeirra 1. árs nemenda sem fá að halda áfram
námi á vormisseri 1996 takmarkaður við
töluna 25.
Umsóknarfrestur um húsnæði á vegum
Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri er til
20. júní 1995.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veitt-
ar á skrifstofu háskólans, Þingvallastræti 23,
600 Akureyri, sími 96-30900, frá klukkan
9.00 til 14.00.
Upplýsingar um húsnæði á vegum Félags-
málastofnunar stúdenta á Akureyri eru veitt-
ar í síma 985-40787 og 96-30968.
Háskólinn á Akureyri.
Frá grunnskólum
^ Garðabæjar
Innritun nemenda í grunnskóla Garðabæjar
fyrir næsta skólaár er hafin. Áríðandi er að
foreldrar innriti börn fyrir 12. maí, f 1.-10.
bekk, eigi að tryggja þeim skólavist.
Garðaskóli: 7., 8., 9. og 10. bekkur. Nánari
upplýsingar í síma 658666.
Hofstaðaskóli: Börn sem búa í Bæjargili,
Hnoðraholti, Hæðarhverfi og Mýrum. Nánari
upplýsingar í síma 657033.
Flataskóli: Börn sem búa annars staðar í
Garðabæ. Nánari upplýsingar í síma 658560.
Fundur með foreldrum vorskólabarna (f. 1989)
verður þriðjudaginn 23. maí í Flata- og Hofs-
staðaskóla kl. 17.30 (Aðeins foreldrar).
Vilji foreldrar innrita börn sfn með öðrum
hætti en fram kemur hér að ofan, er þeim
bent á að hafa samband við forstöðumann
fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar
frá kl. 10.00-12.00 virka daga, sími 658066.
Forstöðumaður fræðslu- og
menningarsviðs í Garðabæ.
Tilsjónarmenn óskast
Félagsmálaskrifstofa Garðabæjar óskar eftir
að komast í samband við einstaklinga og fjöl-
skyldur, sem tilbúnar væru til að annast til-
sjón og stuðning við börn, unglinga og fjöl-
skyldur.
Vinsamlegast hafið samband við félagsmála-
skrifstofu Garðabæjar í síma 91-656622.
Félagsmálastjóri.
Hafnarstræti-miðbær
Stórglæsilegt 363 fm. skrifstofuhúsnæði á
2. hæð þar sem Féfang hf. var áður.
Húsnæðið skiptist í móttöku, 11 skrifstofu-
herbergi, 3 skjalageymslur, eldhús og 2
snyrtingar. Lyfta í sameign. Allar lagnir eru
fyrir hendi, þ.á m. síma- og tölvulagnir.
Símkerfi gæti jafnvel fylgt. Þannig að hér er
hægt að flytja inn og hefja rekstur strax.
ilÓU
® 10090
Skipholti 50B, 2. hæð t.v.,
sími 622344.
409 fm við Krókháls
Til leigu er mjög gott 409 fm atvinnuhús-
næði á jarðhæð á Krókhálsi 3. Mikil lofthæð.
Innkeyrsludyr. Hentugt fyrir iðnað, þjónustu
eða verslun.
Upplýsingar í síma 553-5433 kl. 19-22.
Til leigu
Til leigu er rúmlega 430 fm iðnaðarhúsnæði
utan Reykjavíkur. Hentar vel til matvæla-
vinnslu eða fyrir léttan iðanð. Til greina
kæmi eignaraðild eða hlutafjáraukning upp
á 4-8 millj. króna af hálfu leigusala.
Starfandi fyrirtæki koma einungis til greina.
Önnur atriði er varða húsnæðið og staðsetn-
ingu þess.
- Fjarlægð frá Reykjavík er tæplega 200 km.
- Vörufl.samgöngur eru a.m.k. þrisvar í viku
til Reykjavíkur.
- Flest öll þjónusta af hálfu hins opinbera
er á staðnum.
- Lofthæð er breytileg en alls staðar hærri
en 3,2 m.
Áhugasamir sendi stutta greinargerð á af-
greiðslu Mbl. merkta: „B - 16158“.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Fullum trúnaði heitið.