Morgunblaðið - 07.05.1995, Side 32

Morgunblaðið - 07.05.1995, Side 32
32 B SUNNUDAGUR 7. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ Palme-rannsóknarhópurinn að leysast upp Kaupmannahöfn. Morgunblaöiö. HÓPUR lögreglumanna og ann- arra sérfræðinga, sem settur var á stofn eftir morðið á Olof Palme forsætisráðherra Svíþjóðar er að leysast upp. Sjö af 22 meðlimum hafa snúið sér að eða eru að snúa sér að öðrum verkefnum, því það er orðið lítið af vísbendingum til að fylgja. Hans Ölvebro formaður hópsins er þó enn bjartsýnn á að morðið upplýsist. Eftir að Olof Palme var skotinn á götu í Stokkhólmi í febrúar 1986 hefur óspart verið unnið að rann- sókn morðsins, en hingað til ár- angurslaust. I fyrravor lýsti Ölvebro því yfir að málið yrði upplýst á því ári, en það hefur Engar nýjar vís- bendingar ekki gengið eftir. Ölvebro segir að einn maður liggi undir grun um að vera bendlaður við málið, en rannsókn á máli hans hefur þegar staðið yfirlengi án þess að botn fáist í það. Ölvebro segir hópinn vinna út frá þeirri kenn- ingu að morðinginn hafi verið einn að verki og að ekki hafi verið um samsæri að ræða. Lögreglumennirnir sem hafa yfirgefið hópinn eða eru á leiðinni í önnur störf hafa ekki viljað skýra nákvæmlega hvaða ástæður búa þar að baki en gefa í skyn að þegar sé búið að rannsaka það efni, sem liggi fyrir. Fyrr í vor voru kafarar látnir leita að morð- vopninu í stöðuvatni, en árangurs- laust og orðrómur var uppi að hluti rannsóknarhópsins hefði verið eindregið á móti köfun, þar sem engar forsendur hefðu verið fyrir henni. Pyrsta flug LTU LTU flýgur fyrsta áætlunarflug sitt miili Keflavíkur og Dusseldorf 29. maí nk LTU er alþjóðlegt flugfélag sem flutti 6 milljónir farþega á síðasta ári milli 80 flugvalla víðsvegar um heiminn. LTU var kosið besta flugfélagiö‘1994 af þýskum ferðaskrifstofum. LTU flýgur vikulega frá 29. maí til 18. sept. 1995. Upplýsingar um ferðir LTU eru veittar á næstu feróaskrifstofu. LTU á ÍSLANDI Stangarhyl 3a - 110 Reykjavík LTU INTERNATIONAL AIRWAYS Hútúmenn fallast á að halda heim Kigali. Reuter. UM 1.800 Hútúmenn sem setið hefur verið um í flóttamannabúðum í suðurhluta Rúanda, hafa fallist á það að halda heim, að sögn innan- ríkisráðuneytis landsins. í síðasta mánuði myrtu hermenn Tútsa þús- undir manna í búðunum. Hútúarnir höfðu áður krafist þess að fá að komast til Zaire. Að sögn embættismanna Sam- einuðu þjóðanna (SÞ) var hluti Hútúmannanna, sem hermennirnir höfðu umkringt, vopnaður en aðrir voru skelfingu lostnir óbreyttir borgarar. Þeir hafa neitað að yfir- gefa búðirnar af ótta við hefndir vegna fjöldamorða á Tútsum á síð- asta ári. Stjórnvöld í Rúanda fullyrtu í fyrstu að um forherta glæpamenn væri að ræða, sem ætti að setja í fangelsi. Síðar kom hins vegar ann- að hljóð í strokkinn og sagði Seth Sendashonga innanríkisráðherra að ætlunin væri ekki að hneppa þá í fangelsi heldur að senda þá aftur til þorpa sinna þar sem yfirvöld á hverjum stað munu kanna fortíð þeirra. Að sögn SÞ hafa nokkur þúsund Hútúmanna nú þegar verið handtekin við heimkomuna í þorp sín. Borgartún 20 í Borgartúni 20 er til leigu. 250 fm. verslunarpláss á jarðhæð sem á að vera laust í ágúst 1995. Góð bílastæði. Húsið er vel staðsett fyrir margskonar viðskipti. Upplýsingar gefur Árni Árnason í símum 587-1566 og 562-8411. Kaffiterían Domus Medica / cmddyri Domus Medica er starfrcekt kaffitería fyrir gesti og gangandi. Þar fcest góður matur á hóflegu verði. Iðunnar Apótek starfaði við Laugaveg 40a frá 1928 - / 995. Innréttingarnar sem eru frá 1928 verða settar upp á Lyfjaminja- safninu á Seltjarnarnesi. Iðunnar Apótek hefur nú opnað í nýjum og glæsilegum húsakynnum í Domus Medica við Egilsgötu B. Við það skapast betra aðgengi fyrir viðskiptavini auk pess sem næg bílastæði eru við húsið. Apótekið er liður í bættri pjónustu Domus Medica en um þessar mundir er unnið að umfangsmiklum endur- bótum innanhúss með þarfir sjúklinga og viðskiptavina hússins í huga. Þar er m.a. fullkomin röntgendeild og öflug rannsóknarstofa. í húsinu starfa yfir 70 læknar, heimilislæknar, sérfræðingar og tannlæknar. Iðunnar Apótek Domus Medica Egilsgötu 3,101 Reykjavík, sími 563 1020. Opið virka daga kl. 9 -1 9.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.