Morgunblaðið - 07.05.1995, Side 1

Morgunblaðið - 07.05.1995, Side 1
KRAFTUR OG MEIRIRÁSFESTA í VOLVO 960 - REKSTRAR- KOSTNAÐUR BIFREIÐA1995 - FRAMTÍÐARÞRÓUN RAFBÍLA - FIMM ÞÚSUNDASTIBÍLLINN SKOÐAÐUR HJÁ AÐALSKOÐUN 1 <gg> TOYOTA | Tákn um gæði < Corolla Special Series, sérbúnir lúxusbilar á einstöku tilboðsverði. 1995 SUNNUDAGUR 7. MAÍ BLAÐ Kringlunni 5 - síini 569-2500 BMW 730i er það sem oft er kallað forstjórabíll en Danir kalla „Diplomat-Limousiner“. Áður var 7-línan boðin með 6 strokka vél en með nýrri kynslóð er sú vél horfin og í hennar stað býðst bíll- inn með átta strokka vél eða 12 strokka vél. Vélin býður upp á mikið afl og er þýðgeng og hag- kvæm í rekstri (eyðsla á hveija 100 km sögð vera 11 lítrar, þá líklega í þjóðvegaakstri). Há- markshraði er 235 km á ídst. og hann er sagður 8,3 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km hraða. Meðal útbúnaðar í BMW 730i er tvöfalt gler í öllum gluggum og er þetta líklega fyrsti bíllinn sem kemur hingað til lands með tvöföldu gleri. Þá er í honum hraðastilling, ABS-hemlalæsivöm, rafstýrðar rúðu, speglar, sæti og hnakkapúðar. Stillingar fyrir út- varp eru í stýri og hægt er að svara í bílsíma sem fylgir bílnum með hnappi í stýri. Pjarstýrðar samlæsingar eru í lykli. Bíllinn er afturhjóladrifmn og með spólvörn sem hægt er að taka Morgunblaðið/Þorkell BMW 730i er dýrasti bíll sem fluttur hefur verið til lands- ins til almennrar sölu. BÍLLINN er leðurklæddur að innan og mesta tækninýjungin er sú að hægt er að svara í bíl- símann og hækka og lækka í útvarpi frá hnöppum í stýri. úr sambandi þegar ökumaður kýs. Hann er leðurklæddur að innan. Önnur kynslóð 730i kom á markað 1987 og seldi Bílaumboð- ið, sem þá hafði umboð fyrir BMW, 20 bíla það ár. Þá komu þrír bílar til landsins 1990. Sýningin hjá B&L verður opinn í dag, sunnudag, frá kl. 13-16. iandsþing FÍB Árni Sigf ússon kjörinn f ormaður Á 22. Landsþingi Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda sem hald- ið var í gær var kjörinn nýr for- maður samtakanna, Árni Sig- fússon borgarfulltrúi. Árni tekur við formennsku af Birni Péturssyni. Landsþing FÍB er haldið á tveggja ára fresti. Að sögn Runólfs Ólafssonar fram- kvæmdastjóra FÍB var grunn- þáttur í umfjöllun á þinginu vega- mál og umferða- röiyggi og sam- tenging þessara tveggja þátta. Fulltrúar á Landsþingi eru frá hveiju kjör- dæmi, fjórir frá hveiju þeirra, en þó níu frá Reykjavík og átta frá Reykjanesi. Fulltrúar á Landsþingi eru á fjórða tug. ÁRNI Sigfússon DÝRASTI bíll sem fluttur hefur verið inn til landsins til almennrar sölu, BMW 730i, verður sýndur hjá B&L um helgina. BMW 730i er þriðja kynslóð þessa eðalvagns sem fyrst kom á markað 1987. Bíllinn kostar 8,9 milljónir kr. eða svipað og ál-Audi sem verður vinningur í Happdrætti Háskóla íslands. BMW 7-línan kemur í þremur útfærslum, 730i, 740i og 750i. Bíllinn sem hingað er kom- inn er 730i, með 3ja lítra, 8 strokka, 32 ventla, 218 hestafla vél. Þyngd bílsins á hvert hestafl er 7,7 kg. Þegar loft- mótstaða skipti ekki máli BMW 507 er einn af fallegri bílum eftirstríðsáranna. Þetta var tveggja sæta sport- bíll og yfirbyggingin var úr áli. Þeir voru framleiddir á árunum 1956 til 1959. Margir hafa velt því fyrir sér hvaða ítök fornbílar hafa í nútíma- manninum. Hvers vegna stöðva jafnvel þeir sem líta á bíla einvörðungu sem sam- göngutæki úti á götu til að horfa á gamla glæsivagna? Hönnun á yfirbyggingu bíla sem við köllum núna fornbíla laut ekki sömu lögmálum og hún gerir nú. Langt fram á sjötta áratuginn var loftmót- staða ekki mikiivægt hugtak í hugum bílahönnuða og ein- mitt þessi staðreynd veitti þeim ótakmarkað frelsi til að hanna einstaklega fallega bíla. Margir segja líka að fornbílarnir hafi persónu- ieika sem nýja bíla skortir en það verður hver að dæma fyrir sig. BMW 730i á 8,9 millj. króna sýndur hjó B&L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.