Morgunblaðið - 07.05.1995, Blaðsíða 1
KRAFTUR OG MEIRIRÁSFESTA í VOLVO 960 - REKSTRAR-
KOSTNAÐUR BIFREIÐA1995 - FRAMTÍÐARÞRÓUN RAFBÍLA
- FIMM ÞÚSUNDASTIBÍLLINN SKOÐAÐUR HJÁ AÐALSKOÐUN
1 <gg> TOYOTA
| Tákn um gæði
<
Corolla Special Series,
sérbúnir lúxusbilar
á einstöku tilboðsverði.
1995
SUNNUDAGUR 7. MAÍ
BLAÐ
Kringlunni 5 - síini 569-2500
BMW 730i er það sem oft er
kallað forstjórabíll en Danir kalla
„Diplomat-Limousiner“. Áður var
7-línan boðin með 6 strokka vél
en með nýrri kynslóð er sú vél
horfin og í hennar stað býðst bíll-
inn með átta strokka vél eða 12
strokka vél. Vélin býður upp á
mikið afl og er þýðgeng og hag-
kvæm í rekstri (eyðsla á hveija
100 km sögð vera 11 lítrar, þá
líklega í þjóðvegaakstri). Há-
markshraði er 235 km á ídst. og
hann er sagður 8,3 sekúndur úr
kyrrstöðu í 100 km hraða.
Meðal útbúnaðar í BMW 730i
er tvöfalt gler í öllum gluggum
og er þetta líklega fyrsti bíllinn
sem kemur hingað til lands með
tvöföldu gleri. Þá er í honum
hraðastilling, ABS-hemlalæsivöm,
rafstýrðar rúðu, speglar, sæti og
hnakkapúðar. Stillingar fyrir út-
varp eru í stýri og hægt er að
svara í bílsíma sem fylgir bílnum
með hnappi í stýri. Pjarstýrðar
samlæsingar eru í lykli.
Bíllinn er afturhjóladrifmn og
með spólvörn sem hægt er að taka
Morgunblaðið/Þorkell
BMW 730i er dýrasti bíll sem
fluttur hefur verið til lands-
ins til almennrar sölu.
BÍLLINN er leðurklæddur að
innan og mesta tækninýjungin
er sú að hægt er að svara í bíl-
símann og hækka og lækka í
útvarpi frá hnöppum í stýri.
úr sambandi þegar ökumaður kýs.
Hann er leðurklæddur að innan.
Önnur kynslóð 730i kom á
markað 1987 og seldi Bílaumboð-
ið, sem þá hafði umboð fyrir BMW,
20 bíla það ár. Þá komu þrír bílar
til landsins 1990.
Sýningin hjá B&L verður opinn
í dag, sunnudag, frá kl. 13-16.
iandsþing FÍB
Árni Sigf ússon
kjörinn f ormaður
Á 22. Landsþingi Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda sem hald-
ið var í gær var kjörinn nýr for-
maður samtakanna, Árni Sig-
fússon borgarfulltrúi. Árni
tekur við formennsku af
Birni Péturssyni.
Landsþing FÍB er
haldið á tveggja
ára fresti. Að
sögn Runólfs
Ólafssonar fram-
kvæmdastjóra FÍB var grunn-
þáttur í umfjöllun á þinginu vega-
mál og umferða-
röiyggi og sam-
tenging þessara
tveggja þátta.
Fulltrúar á
Landsþingi eru
frá hveiju kjör-
dæmi, fjórir frá
hveiju þeirra, en
þó níu frá
Reykjavík og
átta frá Reykjanesi. Fulltrúar á
Landsþingi eru á fjórða tug.
ÁRNI Sigfússon
DÝRASTI bíll sem fluttur hefur verið inn til landsins til almennrar
sölu, BMW 730i, verður sýndur hjá B&L um helgina. BMW 730i
er þriðja kynslóð þessa eðalvagns sem fyrst kom á markað 1987.
Bíllinn kostar 8,9 milljónir kr. eða svipað og ál-Audi sem verður
vinningur í Happdrætti Háskóla íslands. BMW 7-línan kemur í
þremur útfærslum, 730i, 740i og 750i. Bíllinn sem hingað er kom-
inn er 730i, með 3ja lítra, 8 strokka, 32 ventla, 218 hestafla vél.
Þyngd bílsins á hvert hestafl er 7,7 kg.
Þegar loft-
mótstaða
skipti ekki
máli
BMW 507 er einn af fallegri
bílum eftirstríðsáranna.
Þetta var tveggja sæta sport-
bíll og yfirbyggingin var úr
áli. Þeir voru framleiddir á
árunum 1956 til 1959. Margir
hafa velt því fyrir sér hvaða
ítök fornbílar hafa í nútíma-
manninum. Hvers vegna
stöðva jafnvel þeir sem líta á
bíla einvörðungu sem sam-
göngutæki úti á götu til að
horfa á gamla glæsivagna?
Hönnun á yfirbyggingu bíla
sem við köllum núna fornbíla
laut ekki sömu lögmálum og
hún gerir nú. Langt fram á
sjötta áratuginn var loftmót-
staða ekki mikiivægt hugtak
í hugum bílahönnuða og ein-
mitt þessi staðreynd veitti
þeim ótakmarkað frelsi til að
hanna einstaklega fallega
bíla. Margir segja líka að
fornbílarnir hafi persónu-
ieika sem nýja bíla skortir
en það verður hver að
dæma fyrir sig.
BMW 730i á
8,9 millj. króna
sýndur hjó B&L