Morgunblaðið - 10.05.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1995 5
FRETTIR
Aðalfundur Bíl-
greinasambandsins
Nauðsyn
að lækka
bílakostnað
heimilanna
Á AÐALFUNDI Bílgreinasam-
bandsins sl. laugardag var sam-
þykkt ályktun þess efnis að nauð-
synlegt sé að lækka bílakostnað
heimilanna um leið og eðlileg end-
urnýjun bílaflotans verði tryggð.
Án aðgerða lækki tekjur ríkisins
af bílum um þrjá milljarða á ári.
Þróun undanfarinna ára hafi ver-
ið sú að bílum í umferð fækki, störf-
um í bílgreininni fækki og opinber
gjöld hækki. Fundurinn telur mjög
alvarlegt að samkeppnisstaða ís-
lensks atvinnulífs sé skert með mun
hærri gjöldum á flutningatæki en
tíðkast í öðrum löndum og bendir
sérstaklega á ósamræmi gjalda af
vörubílum í samanburði við önnur
atvinnutæki.
Herferð gegn svartri
atvinnustarfsemi
Aðalfundurinn hvetur stjórnvöld
til að marka framtíðarstefnu varð-
andi bifreiðaeign og bifreiðainn-
flutning landsmanna með hagsmuni
bifreiðaeigenda, ríkissjóð og aðila
sem starfa við bílgreinina í huga.
Fundurinn hvetur stjómvöld og al-
menning að hugleiða nauðsyn þess
að viðhalda eðlilegri endurnýjun
bílaflotans sem hluta af þeim lífs-
gæðum sem þjóðin hefur valið sér
og sem hluta af nauðsynlegri sam-
keppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Þá hvatti fundurinn til tafar-
lausrar herferðar gegn svartri at-
vinnustarfsemi og ítrekaði að eng-
inn raunhæfur árangur hefði náðst
á þessu sviði þrátt fyrir yfirlýsingar
stjórnvalda þar um.
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson.
Austur-
bakki Jök-
ulsár gijót-
varinn
Fagurhólsmýri. Morgunblaðið.
AÐ undanförnu hefur verið
unnið við að grjótverja austur-
bakka Jökulsár á Breiðamerk-
ursandi, en úr honum grófst
nokkuð mikið síðastliðið sum-
ar. Áin var orðin mjög djúp
við bakkann og brúarturninn.
Verkið er unnið af heima-
mönnum.
Y& þú taka að þér fæða og klæða ðarlaust barn á Indlandi?
að munai
|j|
Kyrir aöcins 1450 krónur n mánuði gclur þú gofið nauðstöddu götubarni fæði, klæði, mcnntun. la’knishjálp og heintili. 11J Á L l'A R ST A K F
| S i g 1 Ú II i t • 1 05 Rvk • Sínii 561 <>117