Morgunblaðið - 10.05.1995, Blaðsíða 48
V í K
N
MTIf
alltaf á
Miövikudög imi
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 509 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaiCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNAI'STRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
Sigur gegn Túnis
ÍSLENDINGAR unnu Túnisbúa
25:21 í leik í HM í handknattleik
í Laugardalshöll í gærkvöldi.
Valdimar Grímsson var marka-
hæstur íslendinga og skoraði 9
mörk og er eitt þeirra í uppsigl-
ingu á myndinni. íslenska liðið
mætir Ungverjum í í kvöld.
■ HM í handknattleik/Cl-12
Borgin hyggst
spara 260 millj.
króna í rekstri
NEFND um sparnað í rekstri borgar-
innar hefur lagt fram tillögur um
260 millj. kr. sparnað á árinu.
Meðal tillagna er að framlag til
stjórnar borgarinnar verði lækkað
um 17 millj., til menningarstofnana
um 10 millj., framlag til skólamála
lækki um 14 milij., til æskulýðs-,
íþrótta- og tómstundamála um 30
millj., framlag til öldrunarmála lækki
um 31 milljón, fjármagnsgjöld verði
lækkuð um 50 millj. og að kostnaður
við framkvæmdir við fráveitu eða
holræsi á vegum borgarinnar lækki
um 60,5 millj.
Þetta eru hæstu liðir tillagnanna
en þær gera samtals ráð fyrir 260
milljóna króna spamaði sem sam-
svarar um 2,7% niðurskurði á áætl-
uðum rekstrargjöldum borgarsjóðs.
Dregið úr listkynningu
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi, sem á sæti í nefndinni, sagði
að haft hefði verið að leiðarljósi að
ekki þyrfti til uppsagna starfsfólks
að koma, fremur hvar mætti gæta
meiri hagræðingar.
Lagt er til að sparað verði í ýmsum
liðum í skólamálum. Spara megi á
árinu 5 milljónir kr. með því að lækka
rafmagns- og hitunarkostnað í skól-
um með því að yfirfara hitakerfi.
Spara megi 1.850 þúsund kr. með
þvi að nota margnota moppur til
þrifa í skólum í stað einnota, dregið
verði úr listkynningum í skólum og
sparast með því 2 millj. á árinu og
dregið verði úr framlagi til þróunar-
sjóða grunnskóla um 2,5 milljónir kr.
Dregið verði úr yfirvinnu hjá
starfsmönnum íþrótta- og tóm-
stundaráðs og leigubílaakstri, en
stærsta liðinn segir Sigrún vera
skerðingu á styrkjum til félagasam-
taka. Þá er gert ráð fyrir að Dagvist
bama spari 6,5 milljónir kr. í ár með
hagræðingu við innkaup á matvör-
um, t.a.m. með sameiginlegum út-
boðum á matarinnkaupum með Fé-
lagsmálastofnun, einnig er rætt um
hvort eðlilegt sé að leikskólar leggi
ungbörnum til bleiur.
Sigrún sagði að forystumenn og
starfslið Félagsmálastofnunar hefði
skilað aðdáunarverðu starfi í hug-
myndum að spamaðarleiðum og hef-
ur nefndin ákveðið að verðlauna
þennan hóp með 150.000 kr. fyrir
innsendar tillögur. Þar er áætlað að
ná megi fram 31 milljónar kr. sparn-
aði á árinu en þar er stærsti liðurinn
niðurskurður á yfirvinnu starfs-
manna, að sögn Sigrúnar, án þess
að það skerði þjónustuna.
Gert er ráð fyrir að spara megi 5
milljónir kr. á árinu með innsöfnun
á dagblaðapappír, 5 milljónir kr. með
því að kveikja á götuljósum 15 mínút-
um síðar en gert er nú.
Þá er gert ráð fyrir 60,5 millj. kr.
minni útgjöldum borgarinnar á árinu
vegna framlags ríkisins til fram-
kvæmda í fráveitumálum.
Reykjavíkurapótek á
horni Austurstrætis og
Pósthússtrætis.
Veitingahús
í Reykjavík-
urapóteki?
SAMNINGAVIÐRÆÐUR um
kaup Vals Magnússonar veit-
ingamanns á húsi Reykjavík-
urapóteks af hlutafélaginu
Austurstræti 16, em á loka-
stigi.
Gert er ráð fyrir að á næstu
dögum ráðist hvort af kaupun-
um verður en flest þykir nú
benda til þess, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
Húsið er um 3.000 fermetr-
ar, fjórar hæðir, kjallari og ris
og mun Valur stefna að því
að reka veitingastað í húsinu
en þó mun miðað við að
Reykjavíkurapótek verði
áfram starfrækt í húsinu fyrst
um sinn.
Valur Magnússon hefur
rekið nokkra veitingastaði í
Reykjavík undanfarin ár, s.s.
Café Óperu. Hann stofnaði í
fyrrahaust Kaffi Reykjavík
sem hann seldi fyrir skömmu.
Stækkun álversins
Fundur á
föstudag
FUNDUR viðræðunefnda vegna
stækkunar álversins í Straumsvík
verður haldinn hér á landi á föstu-
daginn. Þá verður haldið áfram að
ræða um orkuverð og annað sem
tengist stækkuninni. Síðasti fundur
aðila var haldinn í London síðari
hluta aprílmánaðar.
Jóhannes Nordal, formaður stór-
iðjunefndar, sagði að áfram væri
stefnt að því að koma viðræðum svo
vel á veg að hægt yrði að taka stefnu-
markandi ákvarðanir um framhaldið
í næsta mánuði. Aðspurður hvort
þessi fundur nú gæti ráðið úrslitum
sagðist hann ekki vilja taka svo djúpt
í árinni. Alusuisse hefur lýst yfir
áhuga á byggingu nýs kerskála, en
það myndi þýða að framleiðslugeta
álversins í Straumsvík ykist um 60
þúsund tonn á ári.
----♦ ♦ ♦----
Ekkert þok-
ast í deilu
Sleipnis
RÍKISSÁTTASEMJARI frestaði
fundi Sleipnis og viðsemjenda kl. 23
í gærkvöldi til kl. 17 í dag.
Bolli Ámason, fulltrúi VSÍ í við-
ræðunefndinni, sagði að ekkert hefði
þokast í samkomulagsátt á átta tíma
fundi í gær. Hann sagði að viðræð-
urnar hefðu strandað á launaliðnum.
Ef ekki næst samkomulag hefst
verkfall Sleipnis á miðnætti í nótt.
ESB gerir kröfur vegna fyrirhugaðs samstarfssamnings SAS og Lufthansa
S AS gæti þurft að hætta
samstarfi við Flugleiðir
VERÐI af samstarfi skandinavíska flugfélagsins SAS og þýska
félagsins Lufthansa gæti það haft í för með sér að SAS yrði að
slíta samstarfi við Flugleiðir að kröfu Evrópusambandsins. Að sögn
fréttastofa í Danmörku og Þýskalandi hefur þetta fyrirhugaða sam-
starf vakið efasemdir framkvæmdastjórnar ESB vegna þeirrar ein-
okunaraðstöðu sem það myndi veita flugfélögunum tveimur.
Karfí mik-
ilvægari en
þorskur
KARFAAFURÐIR urðu mik-
iivægasta framleiðsluvara
Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna á síðasta ári. Tók
karfinn við af þorskinum
sem Iengi hafði verið í fyrsta
sætinu.
Breytingin varð ekki ein-
göngu vegna samdráttar í
þorskframleiðslu heldur
fremur vegna stórsóknar SH
í karfanum, bæði með mikilli
aukningu í úthafskarfaafla
íslenskra skipa og viðskipta
við sífellt fleiri erlenda
frystitogara.
■ Karfinn veltir/6
Enn liggja ekki fyrir nákvæmar
fréttir af sameiningunni, því hvorugt
félaganna hefur gefið út tilkynningu
um hana. SAS efnir til blaðamanna-
fundar á morgun, þar sem búist er
við að samvinnan verði á dagskrá.
Samkvæmt fréttum í gær stefna fé-
lögin á að starfa náið saman varð-
andi farmiðasölu, viðhald og þjón-
ustu, auk þess s'em bókunarkerfi fé-
laganna verða sameinuð.
Viðræður félaganna hafa staðið
yfir frá því á síðasta ári. Einhver
snurða virtist þó hlaupa á þráðinn í
gær, því fundi SAS í Stokkhólmi,
þar sem kynna átti áætlunina fyrir
yfirmönnum í fyrirtækinu, var frest-
að á síðustu stundu. Fyrir SAS er
brýnt að finna samstarfsaðila, sem
er bæði öflugur í Evrópu og vestan-
hafs. Samstarfíð er talið styrkja mjög
stöðu Kastrup-flugvallar, því í stað
þess að Lufthansa efli Hamborgar-
flugvöll, eins og hugmyndir voru
uppi um, verður Kastrup nú norðlæg
þungamiðja félaganna.
Samkvæmt fréttum danska út-
varpsins í gær hafa flugfélögin þegar
leitað samþykkis framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, sem
þarf að ganga úr skugga um að sam-
starfið stangist ekki á við samkeppn-
isreglur ESB. Samkvæmt útvarps-
fréttunum setur nefndin skilyrði um
að flugfélögin láti af flugi til ein-
hverra staða í Evrópu og láti af sam-
starfí við núverandi evrópska sam-
starfsaðila sína, sem í tilfelli Luft-
hansa er Finnair og í tilfelli SAS
Flugleiðir.
Þýzka fréttastofan DPA sagði í
gær að þessar kröfur hefðu valdið
mestum erfiðleikum í lokahrinu
samningaviðræðna þeirra Júrgens
Webers stjórnarformanns Lufthansa
og Jans Stenbergs, stjórnarformanns
SAS.
Ólíkt samstarf
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, sagði í gær að þetta mál
hefði ekki verið rætt formlega við
fyrirtækið. Því hefði ekki verið
hreyft við félagið að slíta þessum
samstarfssamningi og eftir að hafa
fylgst með viðræðunum undanfarn-
ar vikur teldi fyrirtækið litlar líkur
á að honum yrði rift. Ef af samein-
ingunni yrði hlytu menn að átta sig
á því að samstarf SAS og Flugleiða
væri af allt öðrum toga og stærð-
argráðu en hinna aðilanna. Flugleið-
ir væru í útjaðri þessa Evrópumark-
aðar og samstarfið við SÁS gæti
tæpast fallið undir ákvæði um
blokkarmyndun. Hann sagði að of
snemmt væri að ræða þessi mál, en
ef af sameiningu yrði gæti hún allt
eins opnað Flugleiðum nýja mögu-
leika.