Morgunblaðið - 10.05.1995, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIDJA MORGUNBLAOSINS MIDVIKUDAGUR 10. MAÍ1995
BLAD
3 Bygging loðnu-
verksmiðju á
Fáskrúðsfirði
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Bækur
g Tímamótaverk
um íslenskan
sjávarútveg
Markaðsmál
0 Karfinn veltir
þorskinum úr
sessi hjá SH
Greinar
7 Tryggvi Leifur
Óttarsson og
Þórður Tryggvi
Stefánsson
STEINBÍTUR LIGGUR í L0ÐNU
• STEINBÍTURINN hefur tekið
illa hjá triliukörlmn á Stöðvarfirði
og í byggðarlögunum þar í kring.
Sveinn Jónsson og Magnús Stef-
ánsson á Sæborgu SU 42 voru að
landa 1.150 kg þegar blaðamaður
hitti þá á bryggjunni á Stöðvar-
firði en þeir höfðu lagt Iinuna
daginn áður. Sögðu þeir að stein-
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
bítsafiinn hefði farið upp í 5-6
tonn í vor en að undanförnu hefði
lítið afiast. Þeir leggja línuna út
af Breiðdalnum. Segja félagarnir
að töluvert af loðnu hafi verið á
svæðinu og telja að steinbiturinn
vilji ekki taka á meðan hann liggi
í loðnunni. Þá gæti það haft áhrif
hvað sjórinn væri kaldur.
Fréttir Markaðir
Málmleit í
rælguvinnslu
• NOTKUN málmleitar-
tækja í matvælaiðnaði hefur
færst mjög í vöxt á síðustu
árum en með þeim er komið
í veg fyrir, að málmfiísar,
málmhlutir og aðrir slíkir
aðskotahlutir slæðist með
vörunni. Um siðustu áramót
tóku gildi lög um notkun
þeirra í ríkjum Evrópusam-
bandsins og má búast við, að
sama krafa verði gerð til
framleiðenda utan þess, sem
sejja á Evrópumarkaði, ekki
síst á Evrópska efnahags-
svæðinu, EES. Hér á landi
er notkun þessara tækja
einnig að hefjast, einkum i
rækjuvinnslunni, og er þar
um að ræða búnað frá breska
fyrirtækinu Loma, sem er
eitt hið virtasta á þessu sviði.
Hefur fyrirtækið Eltak hf.
nýlega gengið frá samningi
við Loma um sölu og þjón-
ustu á íslandi./2
Hraðskreiður
fiskibátur
• BÁTASMIÐJA Guðmund-
ar hf. í Hafnarfirði hefur
þróað nýja útfærslu á Sóma
860 hraðfiskibátnum. Kemst
hann mun hraðar en aðrir
fiskibátar, eða allt að 30
hnúta tómur og 25 hnúta
með þriggja tonna afla. Ósk-
ar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir að þessi bátur sé fyrsti
fiskibáturinn sem „plani“
með svo mikinn afia./2
Metár í
framleiðslu SH
• FRAMLEIÐSLA og sala
Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna hefur aldrei verið
meiri en á síðasta ári. Fram-
leidd voru 117.700 tonn á
móti 103 þúsund tonnum árið
1993. Framleiðsla fyrir er-
lenda aðila nam 15.800 tonn-
um en 11.800 tonn árið áður.
Árið er einnig metár þó ein-
göngu sé litið á innlendu
framleiðsluna. Hún nam 102
þúsund tonnum á móti 91
þúsund tonni árið 1993 og
80 þúsund tonnum árið 1992.
Áður var alltaf miðað við
framleiðsluárin 1979 og 1980
þegar framleiðsla SH náði
100 þúsund tonna markinu
en nú er komið nýtt viðmið-
unarár, árið 1994.
Framleitt fyrir
sölukerfi SH
103.070
tonn
82.380
tonn
t1-828
tonn
117.700
tonn
15.600
tnnn
Framl. erl.
frystlskipa
82.380
tonn
91.245
tnnn
101.900
tonn
Innlend
framleiðsla
1992 1993 1994
Vægi loðnu og
síldar eykst
Sölumiðstöðin selur
afurðir 42 frystiskipa
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrysti-
TTÍ-H- cLinið oA Vinfio húsanna hefur það sem af er
rLiitt SKipio ao netja þessu ári tekið að sér að seya
búraveiðar á Faerurserk afurðii;, fyrir „níu
° sem ekki hafa aður venð 1
viðskiptum við sölusamtökin. Selur SH nú fyrir 42 skip, þar af 15 erlend,
og hefur fjöldi skipanna tvöfaldast frá árslokum 1993. Eitt af nýju skipunum
stundar veiðar á búra á Fagurserk.
Skipið sem er á búranum heitir
Alksnyne og er frá Litháen. Skipið var
gert upp af færeyskum og norskum
aðilum og er áhöfnin skipuð Færeying-
um og Litháum. Gylfi Þór Magnússon,
framkvæmdastjóri markaðsmála hjá
SH, segir áhugavert að skipið skuli
vera sent á búraveiðar fremur en út-
hafskarfa. Færeyingarnir þekki vel
búramiðin sem eru langt suður af Is-
landi, frá Fagurserk sem er suðvestur
af Rockall og allt suður til Azoreyja.
Hann segir að búrinn sé eftirsótt afurð
og í háu verði. Skipið hefur nýlega
hafíð þessar veiðar og hefur Gylfi ekki
fregnir af aflabrögðum.
Styrklr markaðsstarfið
Gylfi Þór segir að þessi mikla fjölg-
un frystiskipa í viðskiptum við sölu-
samtökin hafi verið gífurlegt átak fyr-
ir starfsfólk SH, en það hafi gengið
vel. Afurðir eru skoðaðar eftir hveija
löndun og haldinn fundur með áhöfn
fyrir brottför. Þá eru sendir eftirlits-
menn út með hveiju skipi að minnsta
kosti einu sinni á ári til aðstoðar og
samræmingar á vinnubrögðum. Þá eru
alltaf sendir menn í fyrstu veiðiferð
skipa sem eru að hefja viðskipti.
Spurður um ástæðurnar fyrir aukn-
um viðskiptum hjá SH á þessu sviði
segir Gylfir Þór að styrkur sölusamtak-
anna liggi í þjónustu við skipin hér
heima, það er að veita aðstoð, ráðgjöf
og tækniupplýsingar, og ekki síður í
sterkri stöðu SH á mörkuðunum. Þetta
sjái útgerðir margra skipa þegar þær
beri sarnan afurðaverð og þjónustu.
Hann segir að þegar skipin komi inn
til löndunar iiggi á að selja afurðirnar
og þar komi markaðsstarf SH að góð-
um notum. Segir Gylfi að aukin við-
skipti við erlend frystiskip styrki mark-
aðsstarf SH, með því öðlist samtökin
enn betri yfirsýn yfir markaðinn sem
sé mikilvægt í þessu starfi.
Landar 901
af steinbít
• LINUBÁTURINN Skarfur
frá Grindavík kom með full-
fermi af steinbít til ísafjarð-
ar í gærmorgun. Aflinn er
um 90 tonn og fékkst á fimm
dögum norður af Látraröst.
Línusteinbít hefur ekki verið
landað á Isafirði í langan
tíma, en á meðan línuútgerð
var stunduð þaðan var uppi-
staða aflans á vorvertíð
steinbítur./B
Vélbúnaður
fyrir ígnlker
• ÞRÍR útskriftarnemar í
iðnaðartæknifræði við
Tækniskóla Islands hafa
unnið að vélvæðingu ígul-
keravinnslu sem lokaverk-
efni náms við skólann. Hafa
þeir hannað brotvél og eru
með hugmyndir um vélvæð-
ingu allrar vinnslunnar.
Hafa þeir áhuga á að ráðast
í markaðssetningu tækjanna
erlendis./8
103.070
Hlutdeild
afurðaflokka
í sölu SH
117.700
Breyting
milli ára,
‘93 tll '94
Boltiskur +2%
Skeltiskur,
krabbadýr +zö/»
Síld, loðna +61%
o.tl.
Kældar
1993 1994 afurðlr
-6%
• BOLFISKUR var um tveir
þriðju hluti framleiðslu SH
á síðasta ári, eða 66% og
hafði minnkað úr 75% frá
árinu 1993 þrátt fyrir 2%
framleiðsluaukningu. Hlut-
fallsleg minnkun bolfisks
stafar af mikilli aukningu í
framleiðslu á síld og loðnu
sem var í fyrra um 24%.
Mikilvægi hinna verðmiklu
tegunda rækju, humars og
hörpudisks fer stöðugt vax-
andi og er nú 22% reiknað
í inagni en enn mikilvægara
í verðmætum./6
I-