Morgunblaðið - 10.05.1995, Síða 1
| ÞRAUTIRl
Heimilisfang:
MYNDASÖGUR
MOGGANS
Morgunblaðinu
Kringlunni 1
103 Reykjavík
D
BLAÐ
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 10. MA11995
Ljóðið um veðrið
Miskunnarlaus veturinn vefur kulda, snjó
og verkföllum um sig.
Svo tekur sumarið við þar sem sólin skín og
krakkar hoppa og skoppa og eru yfir sig
glöð að skólinn sé búinn.
A vorin þiðnar snjórinn rétt eins og bömin
í höndum kennara.
Á haustin falla laufín eins og flugvél sem
hrapar niður til jarðar.
etta vel orta ljóð er eft-
ir 10 ára gamalt skáld
úr Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi, Örn Er-
lendsson, Skeijabraut 7.
Veturinn sem kveður
okkur á morgun, sumar-
daginn fyrsta, er fyrir
margra hluta sakir minnis-
stæður, veður hafa verið
válynd, kennarar fóru í
margra vikna verkfall til
þess að reyna að fá betri
laun fyrir að kenna ykkur,
grislingar, og hann Örn
segir okkur þetta meðal
annars í ljóðinu sínu.
Og takið eftir, ljóð þurfa
ekki að ríma, ef ort er bara
til þess að láta ríma, verður
hugsunin oftar en ekki ansi
rýr. Að láta ríma er svo sem
ágætis æfing, mörg
snilldarljóð hafa verið ort
þar sem rím er í hávegum
haft, en rímið eitt og sér
gerir ljóð ekki að ljóði.
Hafíð þetta í huga, sjáið
bara ljóðið hans Amar, þar
er heilmikil hugsun og tak-
ið eftir hvemig hann er
alveg óháður endarími (það
er að síðustu orð í ljóðlínu
ríma hvert við annað).
Ég skora á ykkur að
skoða ljóð með annað í
huga en bara að læra þau
vegna skólans. Mörg núlif-
andi skáld hafa ort falleg
ljóð um t.d. veturinn,
hvemig væri að leita í
bókahillunum heima hjá
ykkur, ef ekkert er þar að
fínna, farið þá bara á bóka-
safnið í ykkar heimabyggð.
Gangi ykkur vel og góða
skemmtun.
Marmarakúlur
GERIÐ honum Gísla greiða, in ekki upp á marga físka.
hann veltir fyrir sér Svar fyrir ykkur og Gísla
hveijar kúlanna eru eins, en er að fínna í Lausnum á blaðs-
hann er eitthvað viðutan í íðu númer - segi ykkur það
dag, blessaður, og einbeiting- ekki!
Brosandi heimur
HALLÓ!
Við erum tvö systkin
og lesum alltaf Mynda-
sögur Moggans, og nú
langar okkur að senda
myndir til ykkar. Við
eigum heima í Melhæð
1, Garðabæ.
Bless, bless.
Huld og Hlynur.
Huld Hafsteinsdóttir,
10 ára, og Hlynur Haf-
steinsson, 5 ára, okkur
er sönn ánægja að birta
myndirnar ykkar, og
þökkum hjartanlega fyr-
ir.
Myndin hans Hlyns
heitir Brosandi heimur -
ó, hvað við yrðum öll
glöð ef allir í heiminum
gætu brosað með okkur.
Við erum heppin að
vera Islendingar, krakk-
ar, því hér er ekkert
stríð, með öllum þeim
hörmungum sem því
fylgja. Hér ríkir ekki
hungursneyð, við búum
ekki í hreysum, börn eru
ekki notuð sem vinnu-
dýr.
Finnst ykkur ekki
gott að búa á þessari
eyju langt norður í hafi,
þótt vindar blási stund-
um meira en við vildum
og sólin skíni ekki alla
daga?
Sendið okkur nú línu
og segið okkur hvað þið
eruð að gera, íslensku
börn.
crr i 0 Ó.TOi