Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 1
SKAMMVINN ■als/ela Morgunblaðið/Kristinn KIRKJAN, kirkjuholtið og krakkarnir á skóladagheimilinu Skólagerði með myndir sínar af frumbýlunum í bænum. Kirkja úr pappa og álfar úr leir KRAKKARNIR á skóladagheimilinu Skólagerði í Kópavogi hafa unnið að lík- ani af Kópavogskirkju, kirkjuklukk- unum, holtinu þar í kring og álfunum, frá því fyrir páska. Listaverkið var gert í tilefni 40 ára afmæiis bæjarins og sýnt gestum og gangandi á afmælisdaginn, sem var í gær. Auk þess var foreldrum og systkinum boðið að beija dýrðina augum síðar um daginn og í grillveislu. Guðrún Björnsdóttir leikskólakennari átti hugmyndina og hafði veg og vanda af framkvæmdinni. Hún segir að flestir hafi tekið þátt í verkefninu og verið áhugasamir og fróðleiksfúsir. Ófáar ferðir hafi verið farnar í kirkjuholtið til að allt mætti verða sem likast fyrirmynd- inni. Til þess að sjá álfana berum augum freistaði ein stúlkan þess að spila á flautu til að laða þá úr fylgsnum sínum. Tiltæk- ið bar árangur og a.m.k. einn fullyrti að hafa séð álf læðast um holtið. Guðrún segir að krakkarnir hafi lært heilmikið um sögu bæjarins í tengslum við verkefnið, enda haft ýmsar heimildir uppi við. Auk líkansins teiknuðu þeir, lituðu og klipptu út frumbýlin og íbúa þeirra. „Við reyndum að hafa hráefnið sem náttúrulegast, hvítur pappi var not- aður í kirkjuna, sag, vírnet, endurunninn pappír og steinar úr fjörunni í holtið og bjöllur og álfar úr leir,“ segir Guðrún. ■ Námsstefna um græna ferðamennsku NAMSSTEFNA sem nefnd er „Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjón- ustu - græn ferðamennska" verður í Odda, stofu 101 í Háskólanum 19. maí nk. Námsstefnan er haldin í samvinnu við Menningarstofnun Goethe á íslandi og Endurmenntun- arstofnun HÍ og hana skipulögðu Ingiveig Gunnarsdóttir, ferðamark- aðsfræðingur og Ása María Björns- dóttir, hótel- og markaðsfræðingur. Ingiveig sagði að þeim færi fjölg- andi sem gerðu sér ljóst að umhverf- isvæn ferðamennska væri það sem koma skal. Þeir sem sæktu ráðstefn- ur um ferðamál og fylgdust með umræðum um ferðaþjónustu fyndu í æ ríkara mæli að ferðaskipuleggj- endur og aðrir með lifibrauð af ferðaþjónustu sæju að ferðamenn hugsuðu meira um hreinleika og náttúrufegurð við val á ferðamanna- stöðum. Hún taldi að framboð/eftir- spum afþreyingar hlyti og að breyt- ast í samræmi við þetta. Hugmyndafræði grænnar ferða- mennsku kom fyrst fram sem and- svar við neikvæðum áhrifum fjölda- ferðamennsku sem gætt hefur víða og sums staðar lagt í rúst vinsæl ferðamannasvæði. Ingiveig sagði að meginviðfangs- efnið væri að kynnast hugmyndafræði grænnar ferða- mennsku og líta á fyr- irmyndir að fram- kvæmd hennar frá Þýskalandi og Bret- landi. Einnig verði sjónum beint að ferða- þjónustu, dreifingu ferðamanna um land- ið, nýtingu ferða- mannastaða og sér- stök áhersla verður lögð á afþreyingar- þáttinn. Tveir erlendir gestafyrirlesarar tala á námstefnunni, frá Þýskalandi og Bretlandi. Aðrir fyrirlesarar eru Sigrún Helgadóttir, náttúrufræð- ipgur, Bjami Helgason, fomleifafr., Árni Bjömsson, þjóðháttafr., Paul Richardsson, hjá ferðaþjónustu bænda, Brynja Benediktsdóttir og Erlingur Gíslason, leikarar og Gunn- ar Steinn Pálsson, almannatengill. Coletta Burling, forstöðum. Goethe- stofnunarinnar setur námsstefnuna með erindi sem nefnist „Glöggt er gests augað.“ ■ moo 47t 1100 1 reDEiiZjan *.*r nU ri) 636000 S63 6000Í 552 6000 Aðeins 12% nota nýju símanúmerin ■■■ ÍBÚAR á höfuðborgarsvæð- ■• inu virðast heldur seinir að tileinka sér sjö stafa síma- númerakerfið, sem verður allsráðandi frá og með 3. júní næstkomandi. Samkvæmt mæling- um Pósts og síma höfðu aðeins 12% símnotenda á svæðinu vanið sig á að bæta 5 eða 55 fyrir framan númerin um síðustu mánaðarmót. Notendur farsímakerfís nota sjö stafa númer heldur meira og sömu- leiðis fólk utan höfuðborgarsvæðis. „Vissulega finnst okkur þetta lítil notkun á sjö stafa númerum, sérstaklega í ljósi þess að þau voru tekin í notkun fyrir jól og taka al- farið við 3. júní,“ segir Brandur Hermannsson, yfirtæknifræðingur hjá Pósti og síma. Símsvarar verða tengdir við úrelt símanúmer og munu þeir minna á 7 stafa númer- in ásamt því að greina frá nýju númeri. Upplýsingamar verða á íslensku og ensku þegar hringt er innanlands, en þegar hringt er frá enskumælandi landi verða upplýs- ingamar fyrst á ensku og svo ís- lensku. „Við erum ennfremur með símsvara á Norðurlandamáli, þýsku, frönsku og spænsku fyrir símhring- ingar frá viðkomandi löndum." Brandur segist undrandi á því að fólk hafi ekki verið duglegra að æfa sig í að nota 7 stafa síma- númer og koma sér upp tækni við að leggja þau á minnið. „Hver og einn fínnur eigin leið til að muna nýju númerin, en mörgum hefur reynst vel að beina athyglinni fyrst að síðustu 4 tölustöfunum og síðan hinum þremur." Svæðisnúmer munu falla niður eftir 3. júní og á meðfylgjandi töflu kemur fram hvemig símanúmer breytast á landinu. Um áramótin var númeri út úr landinu breytt úr 90 í 00, en Brandur segir að samkvæmt mælingum Pósts og síma reyni um 5% þeirra sem hringja til útlanda enn að nota 90-númerið. Símanúmer fyrir far- síma, talhólf, boðtæki, græn númer og símatorg munu einnig breytast 3. júní. Númer sem byija á 984, 985, 988 og 989 breytast þannig að 9 sem fyrsti stafur fellur brott. Græn númer eru núna á sviðinu 99-6000 til 99-9999. Þau breytast þannig að í stað 99 kemur 800. Símatorgsnúmer eru núna á svið- inu 99-1000 til 99-5999. Þau breyt- ast þannig að í stað 99 kemur 90 og þriðji stafur númersins segir til um gjaldflokk. Engin breyting verður á gjald- skrá Pósts og síma samfara breyt- ingum í 7 stafa númer, að sögn Brands, og verða símsvarar, sem svara gömlum núm- erum, gjaldfrí þjón- usta. Þá má geta þess að í október næstkomandi verða þriggja stafa þjónustu- og sérnúmer tekin í notkun. Neyðamúmer, sem nú er 0112 verður þá 112.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.