Morgunblaðið - 12.05.1995, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Plor0Mu|ifeí»ií>
Föstudagur 12. maf 1995
Blað D
Tröppur
í görðum
í þættinum Gróður og
garðar fjallar Stanislas
Bohic, garðhönnuður um
tröppur í görðum. Þær
eiga sinn þátt í heildar-
mynd garðsins, annað
hvort sem hluti af heildinni
eða sem aðalatriði. /18 ►
Bygginga-
dagar1995
Byggingadagar Samtaka
Iðnaðarins verða haldnir
um helgina. Markmiðið er
að gera byggingariðnað-
inn sýnilegri og vekja at-
hygli á starfsemi bygg-
ingafyrirtækja og fram-
leiðenda./16 ►
Fasteigna-
markaðurinn
á Arnarnesi
HVERGI hafa húseignir
verið jafn eftirsóttar
og á Amarnesi í
Garðabæ. Hverfíð hefur yfír
sér sérstakt yfírbragð. Lóðir
eru stórar og húsin eru því
frjálsari af sér en ella og njóta
sín betur í umhverfínu. Glæsi-
leg einbýlishús með fallegum
görðum setja svip á hverfið,
en Qölbýlishús eru þar engin.
Þar eru ekki heldur neinar
opinberar byggingar og engin
iðnaðarhús.
Þó að Arnarnesið sé eftir-
sótt, þá em þar enn til auðar
byggingarlóðir, bæði á nesinu
sunnanverðu og norðanverðu.
Við Mávanes em þannig þijár
auðar sjávarlóðir og er ein
þeirra til sölu nú. Þessi lóð er
um 1.500 ferm. og með góðu
útsýni. Á hana eru settar 6
millj. kr. Þetta er eignarlóð
eins og allar aðrar lóðir á Arn-
amesi og er af þeim sökum
vafalaust dýrari en ella.
Verð á stórum húseignum
hefur verið í lágmarki miðað
við það sem áður var og Arnar-
nesið hefur ekki farið varhluta
af því. Verð á góðum húseign-
um þar er því ekki miklu hærra
en á eftirsóttum stöðum ann-
ars staðar á höfuðborgarsvæð-
inu. En eftir sem áður hefur
Amamesið mikla sérstöðu í
vitund margra./24
Viðhald og
viðgerðir ört
vaxandi
TALSVERÐAR breytingar urðu á
skiptingunni milli einstakra þátta
byggingariðnaðarins á árunum
1992-1994, eins og fram kemur á
teikningunni hér til hliðar. Nýbygg-
ingar byggingaraðila drógust tals-
vert saman sem hlutfall af heildar-
verkefnunum, en hlutfall verkefna
unnin fyrir einstaklinga, sem byggðu
sjálfir, jókst aftur á móti.
Þá vekur það athygli, að smíði
félagslegra íbúða er miklu minni
þáttur í verkefnum byggingariðnað-
arins en áður, en þær voru 11,2%
af verkefnum byggingariðnaðarins
1992, 6,4% árið 1993 en aðeins 3,7%
í fyrra.
Sama máli gegnir um opinberar
byggingar, en þær voru 19,8% af
verkefnum byggingariðnaðarins
1992,17,9% árið 1993 en aðeins 8,5%
á síðasta ári. Bygging atvinnuhús-
næðis er eftir sem áður aðeins lítill
hluti af verkefnum byggingariðnað-
arins, enda hefur smíði atvinnuhús-
næðis verið mjög lítil undanfarin ár
miðað við það sem áður var.
Viðhald og viðgerðir eru hins veg-
ar ört vaxandi þáttur. Nær helming-
ur af verkefnum byggingariðnaðar-
ins í fyrra var á því sviði eða 48,8%,
en var aðeins 28,9% árið 1992. ís-
lenzk hús eru tiltölulega ný og því
hafa margir talið, að viðhaldsþörf
þeirra væri ekki eins knýjandi og
ella. Á næstu árum má hins vegar
gera ráð fyrir, að þessi þáttur fari
enn vaxandi.
Framangreindar tölur eru byggð-
ar á svörum sextíu fyrirtækja í bygg-
ingakönnun, sem Samtök iðnaðarins
framkvæma árlega.
Helstu verkefni í byggingar-
iðnaði 1992-94 (hlutfallsleg skipting)
17,4%
15,5%
5,2%
6,2%
4,4%
11,0%
íbúðarhúsnæði til
SÖIu (byggingaraðiiar)
Verkstæðisvinna og annað
7,9%
8,8%
48,8%
Opinberar
byggingar
1982
1983
1984 1982
1983
1984
SJÓÐUR 2
FYRSTI & EINI
TEKJUSJÓÐURINN Á ÍSLANDI SEM GREIÐIR
MÁNAÐARLEGA VEXTI
Sjóður 2 er fyrsti
tekjusjóðurinn á íslandi
sem greiðir vexti umfram
verðbólgu mánaðarlega og
hentar því þeim sem vilja
auka mánaðarlegar
tekjur sínar.
Mánaðarlegar vaxtagreiðslur.
Skattfrjálsar vaxtatekjur.
Uttekt heimil hvenær sem er, án nokkurs
kostnaðar.
Lágmarks inneign í sjóðnum er 500.000 kr.
Fyígir ávöxtun íslenskra markaðsskuldabréfa
og rjárfestir einungis í traustum skuldabréfum.
Okeypis varsla bréfanna.
Mánaoarleg yfirlit um vexti og eign.
Hægt að fá vexti lagða inn á reikning í hvaða
banka sem er.
Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um
Sjóð 2 í afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma
560-8900. Jafnframt er hægt að kaupa Sjóð 2
í útibúum íslandsbanka urn allt land.
Verið velkomin í VÍB.
FORYSTA í FJÁRMALUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi tslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavik. Sími 560-8900.