Morgunblaðið - 14.05.1995, Side 2
2 C SUNNUDAGUR 14. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
-L-
Nýr Escort rokselst
Á BILINU 1.200-1.500 manns
sóttu sýningu Brimborgar um síð-
ustu helgi á nýjum Ford, að sögn
Egils Jóhannssonar framkvæmda-
stjóra Brimborgar. Segir Egill að
30 bílar hafi selst, eingöngu Esc-
ort, og farið sé að selja bíla úr
næstu sendingu. Hann segir að lík-
lega séu 25 bílar seldir úr 30 bíla
sendingu sem kemur um næstu
mánaðamót. „Við erum alveg ör-
ugglega búnir að selja 51 bíl af
Ford gerð frá því við tókum yfir
umboðið og í lok vikunnar á ég von
á því að selst hafi 65 bílar,“ sagði
Egill.
í áætlunum Brimborgar var ráð-
gert að selja fyrsta árið 156 bíia.
Salan nú er strax orðin þriðjungur
af því. Þar fyrir utan stóð til að
Brimborg fengi umboðið um síðustu
áramót en það dróst fram til 1.
febrúar og fyrirtækið gerði sínar
fyrstu pantanir 1. mars sl. „Þetta
er því stutt ár en mér sýnist að við
förum létt með það að selja 200
bfla á árinu,“ sagði Egill.
Aðspurður um ástæðurnar fyrir
þessum góðu viðtökum sagði Egill
að Brimborg þekkti orðið þennan
markað, „við vitum t.d. hvað bílarn-
ir mega kosta og hvernig þeir eiga
að vera útbúnir. Einnig held ég að
við komum bílunum betur á fram-
færi en áður var gert. Svo skemm-
ir það ekki fyrir okkur að við teljum
okkur veita góða þjónustu og það
fælir viðskiptavinina ekki frá,“
sagði Egill.“
Nýr og breyttur bfll
Escortinn nýi er framleiddur í
borginni Saarlouis í Þýskalandi.
Fyrsta eiginlega andlitslyftingin
sem Escort fékk var gerð árið 1992
og nú kemur bíllinn með nýju lagi,
breyttum framenda og hliðarlínum
og innanrýmishönnun. Auk þess er
hann hlaðinn tæknilegum breyting-
um sem bæta aksturseiginleika og
notendaviðmót bílsins og færir hann
upp um flokk í gæðum. Undirvagn-
inn er í grundvallaratriðum hinn
sami en með breytingum á aftur-
öxli og Ijöðrunarbúnaði þykja akst-
urseiginleikarnir betri og bíllinn
liggja betur á vegi í beygjum.
Auk þessara grundvallarbreyt-
inga hefur innanrýmið verið tekið
í gegn og býður bíllinn nú af sér
þýskan þokka hvað varðar hljóðein-
angrun. Ný framsæti eru í bílnum
og mælaborðið mun líkara en áður
því sem er i Mondeo. ■
Upphitcmleg f ramrúóa
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
AUK fernra og 5 dyra bíla býðst Escortinn sem langbakur á 1.298
þúsund kr. og einnig er hann fáanlegur sem lítill sendibíll.
MÆLABORÐIÐ hef-
ur fengið svip frá
stóra bróður,
Mondeo.
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
ESCORT CLX 4 dyra er með samlitum stuðurum og nýju andliti og kostar á götuna 1.248 þúsund kr.
MEÐAL búnaðar í nýjum Ford Esc-
ort og Mondeo er upphitanleg fram-
rúða en við slíkan búnað kannast
flestir aðeins í afturrúðum. Það ætti
að geta komið sér vel á norðlægum
slóðum að hafa hita á framrúðunni
sem auk þess að bræða snjó og
hélu getur haldið móðu frá rúðunni.
Ford er eina merkið á markaði
hérlendis sem býður upp þennan
búnað en hann var fáanlegur í Toy-
ota Camry í annarri mynd, þ.e.a.s.
með hitalínu undir þurrkublöðum.
Eins og í afturrúðum eru það
Nokkrir keppinautar Ford Escort CLX
Vökva- stýri He Útv. og segulb. Isti Sam- læs. útbú Loftpúði í stýri inað Styrk.b. í hurð. ur í Litað gler bíln Verksm. ryðvörn um íslensk ryðvörn Málm- litur Vélarstærð og vélarafl Stærð Hestöfl VERÐ M. virðsaukask. og skráningu
VW Golf CL1400, 3 dyra já nei nei nei já já já nei nei 1,41 60 1.180.000 kr.
Peugeot 306 XN, 3 dyra já nei nei já já já já nei nei 1,41 75 1.135.000 kr.
Nissan Sunny LX1400,3 dyra já já nei nei já nei já já já 1,41 85 1.059.000 kr.
Suzuki Baleno 1300, 3 dyra já nei nei nei já já já nei nei 1,31 86 1.089.000 kr.
Renault Clio 1400, 3 dyra já já*4 j á*i nei já já já já já 1,41 80 1.149.000 kr.
Toyota Corolla 1330 XLi, 3 dyra já nei nei nei já já já já*2 já 1,331 90 1.079.000 kr.
Honda Civic DX, 3 dyra já já nei já*3 já já já já já 1,341 75 1.195.000 kr.
Ford Escort CLX, 3 dyra já já já nei já B já nei nei 1,41 75 1.138.000 kr.
1: Fjarstýrðar samlæsingar, '2: íslensk ryðvörn á undirvagni, *3: Og fyrir farþega i framsæti, *4: Fjarstýrt frá stýri.
þræðir sem leiða rafmagn sem hita
upp framrúðuna en þeir eru mun
fíngerðari, liggja þéttar en í aftur-
rúðum og eru vart sjáanlegir með
berum augum. Bíllinn verður að
vera í gangi til þess að búnaðurinn
bræði snjó af rúðunni.
Engar forsendur fyrir hærra
iðgjaldi af framrúðutryggingu
Því hefur verið haldið fram að
eigendur bíla með upphitanlegri
framrúðu þurfi ef til vill að greiða
hærri framrúðutryggingu kjósi þeir
að taka slíka tryggingu á annað
borð. Reynir Þórðarson hjá VÍS
segir að í skilmálum framrúðu-
tryggingar fyrirtækisins sé kveðið
á um að hækka megi iðgjaldið í
samræmi við verðmæti rúðunnar
en ekki hafi reynt á þetta áður og
alls óvíst hvort það verði gert.
Við nánari skoðun kom einnig í
ljós að upphitanleg framrúða í Esc-
ort frá umboðinu er á svipuðu verði
og jafnvel ódýrari en venjulegar
framrúður. Frá umboðinu kostar
hún 19.890 kr. og telur Egill Jó-
hannsson framkvæmdastjóri Brim-
borgar engar forsendur fyrir hærri
framrúðutryggingum í Ford vegna
upphitanlegrar framrúðu. Frekar
væri það á hinn bóginn að lækka
ætti iðgjöldin. ■
Vorhreingerning
ó bílnum
MARGT þarf að athuga í sambandi við þrif
á bílnum að afloknum vetri. Skola þarf
burt tjöru og salti sem safnást hefur fyrir
og huga að ýmsu. Hér á eftir verður fylgt
ráðleggingum fagmanna á Bónstöðinni hjá
Jobba, Skeifunni 17.
Bíllinn er þveginn vandlega með tjöru-
uppleysi. Þá er bíllinn skolaður með volgu
vatni, (í köldu vatni storknar tjaran og salt-
ið og situr eftir i lakkinu). Salt og tjara
setjást líka á undirvagn og vél bílsins og
þarf að þvo það burt á sama hátt. Mikið
salt á bílvél getur leitt til útleiðslu í raf-
magni.
Bíllinn bónaður
Veljið alltaf bílabón sem lítið þarf að
nudda því það er sama hve mjúk tuskan
er, það verður ekki hjá því komist að rispa
lakkið örlítið í hvert sinn sem þvegið eða
bónað er.
Margar gerðir vinilhreinsiefna eru fáan-
legar hér á landi. Berið vinilhreinsinn á
allt plastefnið utan á bílnum, kannski verð-
ur að fara tvær til þrjár umferðir til að
árangurinn verði eins og ætlast var til. Ef
gljáinn í lakkinu er ekki nægur og lakkið
virðist matt getur þurft að massa það til
að fá góðan gljáa í það. Það er verk sem
fæstir bíleigendur gera sjálfir því það krefst
góðra tækja svo vel takist til.
Hurðaföls og rúður
Því næst eru allar hurðir bílsins opnað-
ar. Hurðaföls þarf að hreinsa vel því þar
er tjara og salt eftir veturinn. Þetta er þolin-
mæðisverk því erfitt er að komast að með
tuskuna við lamir. í hurðarstafnum er rofí
sem kveikir inniljós í bflnum. Salt getur
komist í rofann og valdið bilun. Nóg er að
skola hann með volgu vatni.
Teppi hreinsuð
Gúmmímottur þarf að þvo með tjöruupp-
leysi og skola með volgu vatni. Berið ekki
vinilhreinsi á mottur því með því geta þær
orðið hálar. Teppin sjálf er oftast nóg að
ryksuga ef vel hefur verið gengið um .bíl-
inn. En ef tjara er í þeim salt og önnur
óhreinindi, eða bleyta hefur komist í þau
og fúkki, verður að djúphreinsa þau. Það
getur verið mikið verk sem krefst góðs
tækjabúnaðar.
Þegar bíllinn er orðinn hreinn og gljá-
andi er um að gera að halda honum í þessu
ástandi sem lengst. Hafið ávallt ykkar eig-
in þvottakúst og vaskaskinn í bílnum því á
þvottaplönum eru kústarnir misjafnir og
geta verið smitaðir tjöru og sandi. ■