Morgunblaðið - 16.05.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995 C 3
HM I HANDKIMATTLEIK
Leikur Rohers kom
okkur í opna skjöldu
- sagði Valdimar Grímsson eftir leikinn gegn Sviss
Valdimar Grímsson var ekki
ánægður eftir leikinn gegn
Sviss. „Ég leyni því ekki að ég er
hálf „sjokkeraður" og vonsvikinn
eftir þennan leik. Við reyndum að
undirbúa okkur eins og hægt var
fyrir þennan leik en það gekk því
miður ekki betur en þetta. Það var
ákveðið óöryggi í sóknarleiknum,
boltinn fékk ekki að fljóta nægilega
vel. Þegar við vorum komnir í hálf-
færi slepptum við boltanum í stað
þess að láta bijóta á okkur og ég
er ekki ánægður með það.“
„Markvarslan var líka alveg í
lágmarki. Við verðum að veija 15
til 20 bolta í svona leik til að eiga
raunhæfa möguleika móti liði eins
og Sviss. Þetta er auðvitað samspil
markvarða og varnar. Svisslending-
ar eru með mjög öflugar skyttur
og þeir voru að skjóta langt fyrir
utan punktalínu og við vorum
kannski of seinir út á móti þeim.“
REYKJAVÍK
- Patrick Roher kemur irm í lið
Svisslertdinga og á stórleik, skorar
níu mörk úr 10 skotum. Þið hafið
væntanlega ekki reiknað með hon-
um í aðalhlutverki?
„Nei, það er engin launung að
þessi leikmaður kemur okkur mikið
á óvart. Við höfðum aldrei séð þenn-
an leikmann áður. Hann kom aðeins
inná í öðrum leik þeirra og gerði
enga stóra hluti og við reiknuðum
því ekki með miklu af honum. Við
vorum fyrst og fremst búnir að
undirbúa okkur gagnvart Rubin.
Hann er leikmaður sem kemur mik-
ið inná miðjuna, en síðan kemur
þessi leikmaður sem við reiknuðum
ekki með og það setti okkur út af
laginu."
- Verður ekki erfitt að ná sér upp
eftir þessa tvo tapleiki í 16-Iiða
úrslitum?
„Nei, alls ekki. Við höfum sýnt
það og sannað að við leggjum okk-
ur alla fram. Um leið og við bökkum
hvorn annan uppi og komum tví-
efldir til leiks gengur þetta betur.
Þetta þýðir að við verðum að fara
svolítið aðra leið að undanúrslitum
en við ætluðum okkur í upphafi."
Strákarnir eru komn-
ir til Reykjavíkur
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, ákvað eftir leikinn
gegn Svisslendingum, að skipta um umhverfi — landsliðið er
komið til Reykjavíkur, eftir að hafa verið á Hótel Örk í Hvera-
gerði í síðustu viku. „Eg vildi vera áfram með strákana í Hvera-
gerði, en eins og málin hafa þróasttel ég að það sé nauðsynlegt
að skipta um umhverfi," sagði Þorbergur. Dvalarstaður landsliðs-
ins er nú Hótel Saga. Eftir leikinn gegn Svisslendingum fór
landsliðshópurinn saman í leikhús og síðan heim til sín. Landsliðs-
hópurinn mætti síðan á landsliðsæfingu á sunnudag, fóru á leik
Rússiands og Tékklands í Kaplakrika á sunnudagskvöldið og
þaðan til Hveragerðis til að sækja farangur sinn — gera sig klára
til að yfirgefa Hveragerði í gærmorgun. Til Reykjavíkur kom
liðið um hádegi.
'ELANL:
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
RÁÐÞROTA! íslendingar áttu ekkert svar við leik Svisslend-
inga. Þorbergur Aðalstelnsson, landsliðsþjálfari, hafði
greinilega áhyggjur af gangi mála.
Vantaði allt frumkvæði
- sagði Geir Sveinsson, íyrirliði íslands
Geir Sveinsson, fyrirliði ís-
lenska liðsins, var eini leik-
maður íslands, sem spilaði af eðli-
legri getu eins og hann hefur
reyndar gert í allri keppninni.
Hvaða skýringu hefur hann á
frammistöðu liðsins gegn Sviss?
„Það er kannski einfalt. Við
vorum ekki að spila góðan hand-
bolta. Við fáum ekki það út úr
þeim einstaklingum, sem eru að
spila, sem við eigum að fá. Ein
skýring er sú að markverðirnir og
við hinir þekktum ekki þennan
Rohr. En það afsakar það ekki að
hann skuli skora níu mörk úr tíu
skotum."
- Sóknarleikurinn var nú ekki
heldur til að hrópa húrra fyrir?
„Nei, ég held í raun að það sé
sama hvar mann ber niður. Það
var allt lélegt og vantaði frum-
kvæðið í öllu.“
- Nú erum þið með marga sér-
fræðinga og aðstoðarmenn, var
undirbúningnum fyrir leikinn
ábótavant?
„Nei, hann var eins góður og
kostur er. Hann var reyndar mjög
stuttur. Við komum austur í
Hveragerði klukkan níu í gær-
kvöldi og vorum að til miðnættis
og byijuðum svo aftur klukkan tíu
í morgun og vorum til_ hádegis.
Þannig að við nýttum þennan
stutta tíma mjög vel og ekkert út
hann að setja. En þegar inn á
völlinn er komið eru það við sem
eigum að standa klárir á því sem
fyrir okkur var lagt. Þjálfarar og
aðrir geta þá ósköp lítið gert ann-
að en séð um innáskiptingar."
- Er það kannski þessi mikla
pressa sem er á leikmenn sem
gerir það að verkum að þeir gera
ekki\ það sem fyrir þá er lagt?
„Ég get ekki svarað fyrir hina
leikmennina. Ég hef sjálfur mjög
gaman af því að spila hér í Laugar-
dalshöll fyrir þessa áhorfendur sem
eru alveg meiriháttar. Ég nýt
hverrar mínútu sem ég spila hér.
Aðrir verða að svara fyrir sig, hvort
það sé of mikil pressa á þeim.“
Morgunblaðið/RAX
GEIR Sveinsson tekur hraustlega á einum leikmanni Sviss,
sem sækir að marki. Elnar Gunnar Sigurðsson og Guðmund-
ur Hrafnkelsson eru einnig á myndinni.
Hemandez
varði vel
VLADIMIR Rivero Hern-
andez, markvörður frá Kúbu
hefur varið flest skot í keppn-
inni, 91 talsins en hann hefur
þurft að eiga við 217 skot frá
mótherjum sínum. Suk-hyung
Lee, markvörður Suður-
Kóreu, er ekki langt undan
með 42% nýtingu eins og
Hernandez. Hann hefur varið
68 af þeim 162 skotum sem
hann hefur fengið á sig og
Roif Dobler er með 68 af 160
skotum varin.
Slök nýting
hjá Kúveit
YOUSEF Alfadhli, maikvörð-
ur Kúveit var sá markvörður
sem hafði slökustu nýtinguna
í keppninni, varði 40 af þeim
125 skotum sem hann fékk á
sig, eða 32%. Andreij Lavrov
markvörður Rússa varði 41
af 109 skotum, 38% og Ro-
lando Pusnik frá Slóvéníu
varði 42 skot af 122 og var
með 34% nýtingu.
Patrekur
„Við höfðum svar við öllu“
Urs Múhlethaler, þjálfari Sviss-
lendinga, var ánægður með
leik sinna manna. „Við lékum mjög
vel bæði í sókn og vörn og Patrick
Rohr átti stórleik og ég held að það
hafi komið íslenska liðinu á óvart
eins og mér hversu sterkur hann
var. Við leystum vörn íslenska liðs-
ins vel. Við leystum 3-2-1-vörn
Kóreumanna vel og gerðum það
einnig gegn íslensku vörninni. Þetta
sýnir vissan styrk. Við höfðum svar
við öllu — bæði sóknar- og varna-
raðgerðum íslenska liðsins. Við
erum með gott lið og góða leikmenn
í hverri stöðu.“
Hann sagðist hafa verið svolítið
hraéddur við það að láta Rohr leika
í stað Rubins, sem var meiddur, því
hann vissi ekki hvernig hann myndi
leysa það hlutverk. „Hann fékk
gott rými vegna þess að íslendingar
reiknuðu ekki með honum. Þeir
lögðu áherslu á að stöðva Marc
Baumgartner."
„Þetta var erfiður leikur og hann
var ekki auðveldur fyrir okkur. ís-
lenska liðið var inni i leiknum allt
þar til fímm mínútur voru eftir. Við
undirbjuggum okkur mjög fyrir
þennan leik. Skoðuðum myndband
með leik íslenska liðsins og koit-
lögðum það og eins skoðuðum við
hvað íslensku leikmennirnir, þjálfari
og aðrir sögðu í fjölmiðlum fyrir
leikinn. Ég held að þetta hafi hjálp-
að okkur með þessi tvö til þrjú
mörk sem við þurftum til að sigra,"
sagði þjálfarinn.
Liðsheildin skóp sigurinn
Patrick Rohr var ekki að státa
sig af afrekum sínum og sagði að
liðið ætti fýrst og fremst hrós skil-
ið fyrir frammistöðuna en ekki hann
einn. „Ég hefði aldrei getað unnið
íslendinga einn og því er það fyrst
og fremst góð liðsheild sem skóp
þennan sigur. Þjálfarinn undirbjó
okkur mjög vel fyrir þennan leik
og við vorum einbeittir frá fyrstu
mínútu."
„óþekkur"
PATREKUR Jóhannesson
hefur þurft að hvíla í 12 mín-
útur samkvæmt ákvörðunum
dómaranna, en samkvæmt
brottrekstxarlistanum eru
það Mashiko Tanaka frá Jap-
an og Péter Kóvacs frá Ung-
verjaiandi sem eru harðastii-
í horn að taka, eða „óþægast-
ir“ því báðum var skipað að
hvíla sig í 14 mínútur. Þeir
hafa báðir lokið keppni þaim-
ig að þeir halda ekki þessum
vafasama titli, en margir leik-
menn hafa þurft að hvíla í 12
mínútur eins og Patrekur.