Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 1
1
1995 ■ MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ BLAÐ
■ iHll11111111 - i - v
HSÍ tapar
ekkiá
keppninni
EKKI verður fjárhagslegt tap hjá Handknatt-
leikssambandi íslands á heimsmeistarakeppn-
inni, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, en
hagnaður verður hins vegar 20 til 30 milljónum
krónum minni en vonast var til og með það í
huga að ísland kæmist í átta liða úrslit. Heim-
ildir Morgunblaðsins úr forystu HSÍ herma að
í gærkvöldi miðar hafi verið búið að selja að-
göngumiða fyrir meira en 50 milljónir króna
en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 80 millj-
ónum kr. vegna miðasölu. Inni í þeirri tðlu eru
tryggingar uppá 40 miiyónir.
jr
Islendingar úr leik eftir stærsta tap í heimsmeistarakeppni frá upphafi
„EVIarkmioin
öll farin
í vaskinn"
„ÞESSI leikur var ekki ósvipaður og sá gegn Sviss; sama ráð-
leysið kom upp í sókninni og enginn af leikmönnunum fyrir
utan þorði að taka af skarið og því fór sem fór, sagði fyrirliði
íslenska liðsins, Geir Sveinsson að leikslokum í gærkvöldi —
eftir að íslendingar höfðu verið slegnir út úr heimsmeistara-
keppninni í 16-liða úrslitum, af heimsmeisturum Rússa.
Morgunblaðið/Sverrir
GEIR landsliðsfyrirliði tekur
á móti syni sínum, Arnari
Sveini, að leikslokum í gær-
kvöldi. Eiginkonan og móðir-
in, Guðrún Helga Arnars-
dóttir er í baksýn.
Seinkað
um kortér
ÁKVEÐIÐ hefur verið að
leikir, sem eiga skv. skrá að
byija klukkan 17 hefjistekki-
fyrren kl. 17.15, ef ske kynni
að hinir fyrri lendi í fram-
lengingu, eins og gerðist á
tveimur stöðum í gær.
Eftir góðan fyrri hálfleik sáu ís-
lendingar aldrei til sólar í þeim
seinni. Staðan í leikhléi var 11:8, en
íslendingar gerðu aðeins fjögur mörk
í síðari hálfleik og urðu að sætta sig
við stærsta tap sitt í heimsmeistara-
keppni frá upphafi — 12:25.
Geir fyrirliði átti enn einn stórleik-
inn en eins og fyrri daginn þá má
enginn við margnum. Félagat' hans í
liðinu náðu sér ekki á strik.'
„Það sem drap alveg endanlega í
okkur var þessi geysisterka sex núll
vörn sem þeir léku í síðari hálfleik.
Við komumst ekkert áfram í sókninni
og þeir keyrðu yfir okkur með hrað-
aupphlaupum. Það vantaði alveg hjá
sóknarmönnum okkar að keyra á
vömina og hamra boltann í markið.
Nú höfum við tapað þremut' leikjum
í röð og ég vil meina að markvarslan
og vörnin hafi geta verið mikið betri
gegn Suður—Kóreu og þar misnotum
við mörg dauðafæri og gerum óþarf-
lega mikið af sóknarvitleysum. Gegn
Sviss hefðum við getað gert mun
betur á öllum vigstöðvum. I kvöld er
það hins vegar sóknarleikurinn sem
klikkaði alveg. Þannig að ef horft er
á síðustu þtjá leiki þá hefur okkur
tekist að lagfæra vörnina, en sóknar-
leikurinn skánar ekkert. Þó að okkur
tækist að skora átta niörk í fyrri
hálfleik þá var sóknarleikurinn ekkert
sérstakur og í heild var sóknarnýting-
in 33%, sem er lélegt. Lavrov var
ekkert að vetja mikið meira en okkar
markverðir, en hann fékk bara mikið
færri skot á sig,“ sagði Geir.
„Fyrir keppnina hafði ég sett mér
ákveðin markmið, sem öll efu farin í
vaskinn. Nú er bara að setja sér ný
markmið og það er níunda sætið. Það
verður bara að fara að einbeita sér
að því strax í kvöld og alis ekki hengja
haus. Nú verður að fara upp á hótel
og undirbúa sig fyrir leikin gegn
Hvít—Rússum á morgun [í dag] og
finna leiðir til þess að leggja þá að
velli,“ sagði Geir Sveinsson að lokum.
Morgunblaðið/Sverrir
Allt búið!
DAVÍÐ B. Sigurðsson, liðsstjóri
íslenska landsliðsins til margra
ára, var niðurlútur eftir tapið í
gær eins og aðrir aðstandendur
liðsins. Þessi mynd er ef til vill
dæmigerð fyrir vonbrigðin sem
fylgja eftir miklar væntingar til
liðsins; allt búið.
EkkimeðáOL
NÚ et' næsta víst að handboltaiandsliðið kemst ekki á Ólympíuleik-
ana í Atlanta á næsta ári. Sjö efstu þjóðirnar á HM fá þátttökurétt
á ÓL og það áttunda einnig, verði ein þeirra sjö' Evrópuþjóða, sem
komriar eru í átta liða úrslit hér, Evrópumeistari á næsta ári, því
sigur í EM gefur keppnisrétt í Atlanta. Eina von íslendinga um
að komast á ÓL er því að sigra í Evrópukeppninni.
HM : EGYPTAR EIIMA ÞJODIN UTAN EVROPU18-LIÐA URSLITUM / C11