Morgunblaðið - 17.05.1995, Blaðsíða 8
8 C MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRCTTIR
VELSLEÐAAKSTUR
gg‘ ‘ ÍM&
> m ”'J
Meistarataktar
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
GUNNAR Hákonarsson er f essinu sfnu vlö erfiðar aöstæður. Hann vann erfiðustu keppnis-
grein íslandsmótsins f vélsleöaakstri um helgina og tryggöi sér meistaratitillnn í snjókrossl.
Gunnar lánsamur og
fagnaði meistaratitli
Sérútbúinn
sigursleði
GUNNAR Hákonarson ekur
rúmlega 100 hestafla Yama-
ha V Max 600 snjósleða.
ÚRSLIT
Svíþjóð
Gautaborg - Frölunda.............1:1
Hammarby - Öster.................2:2
Trelleborg - Örgryte.............4:1
AIK - Degerfors..................1:2
Helsingborg - Malmö.............2:1
Norrköping - Djurgárden..........2:0
Örebro - Halmstad................1:0
■Arnór Guðjohnsen lagði upp sigurmark
Örebro — átti stungusendingu inn á
Kubuztal, sem skoraði. Hlynur Stefánsson
og Hlynur Birgisson léku einnig með Örebro
og fengu allir ágætis einkunn, Arnór var
talinn besti maður vailarins og fékk 4 í ein-
kunn hjá GT.
■Kristófer Sigurgeirsson lék ekki með Frö-
lunda, þar sem hann er meiddur.
Að loknum fimm umferðum er Norrköp-
ing efst með 10 stig, Helsingborg hefur 9,
Malmö, Trelleborg, Halmstad og Orebro eru
með 8 stig. Örgryte og Frölunda eru í tveim-
ur neðstu sætunum með 4 stig.
AKUREYRINGURINN Gunnar
Hákonarson á Yamaha varð ís-
landsmeistari í snjókrossi á ís-
landsmótinu í vélsleðaakstri um
helgina, en þá var iokakeppnin
haldin. Keppt var í fjórum
keppnisgreinum, en mótið var
það þriðja sem gilti til meistara.
I fjallaralli varð sveit Ski- Doo
meistari eftir að Sigurður Gylfa-
son náði besta tíma í sveit Ski-
Doo og innsiglaði sigur sveitar-
innar. Sigurður Gylfason varð
einnig meistari í spyrnu og í
brautarkeppni hreppti Jóhann
Eysteinsson á Polaris titilinn
eftir frækna sigra í mörgum
flokkum.
Eg er ekkert í skýjunum yfir titl-
inum, því ég vann á óláni ann-
arra að þessu sinni. Helstu keppi-
■■■■■B nautarnir heltust úr
Gunnlaugur lestinni vegna vélar-
Rögnvaldsson bilana og mér tókst
skrifar fyrir vikið að vinna
allar þijár umferðir
snjókrossins. Það tryggði mér titil-
inn, sagði Gunnar Hákonarson í sam-
tali við Morgunblaðið.
Fyrir mótið voru Akureyringurinn
Vilhelm Vilhelmsson og Garðbæing-
urinn Sigurður Gylfason á Polaris
efstir og jafnir í stigakeppninni um
meistaratitilinn. En báðir lentu í
ógöngum á Ísafírði. Daginn fyrir
keppni biluðu vélamar í sleðum
þeirra. „Það hefur allt gengið á aftur-
fótum að undanförnu. Það hrundi vél
hjá mér fyrir skömmu og tókst ekki
að laga hana, hún bilaði aftur. Ég
fékk þá lánsvél, sem bilaði líka. Hún
var þá lagfærð, en bilaði síðan dag-
inn fyrir keppni,“ sagði Vilhelm. „Eg
fékk varahluti boðsenda og raðaði
vélinni saman nóttina fyrir keppni.
Hún gaf sig síðan i annarri umferð
snjókrossins. Stimpilstöng gekk
hreinlega útúr blokkinni. Þetta er
búið að vera grátlegt basl. Ég var
farinn að gera mér vonir um titilinn
og þetta var því hrikalegt áfall. Ég
er þegar búinn að fá minn skerf af
mótlæti gegnum árin, þannig að ég
hélt að minn tími væri kominn. Það
fór þó á annan veg. Eina sárabótin
er sú að Gunnar félagi minn vann
titilinn," sagði Vilhelm.
Gunnar er 27 ára gamall og hefur
keppt í vélsleðaakstri í nokkur ár.
Hann varð meistari í snjókrossi í
fyrra í sínum flokki. í ár verður að-
eins einn íslandsmeistari í hverri
þeirra fjögurra keppnisgreina, sem
gilda til Islandsmeistara, þó keppt
sé í mörgum undirflokkum. „Mér
gekk ekkert alltof vel í vetur. Náði
ekki almennilegu sambandi við sleð-
ann, sem var útfærður til keppni,
með öflugri vél og keppnisfjöðrun.
Líklega er sleðinn bara orðinn betri
en ég....“, sagði Gunnar.
„Eg varð annar á Mývatnsmótinu
og áttundi í Bláfjöllum. Þá háði mér
svolítið að vera á aflminni sieða en
Sigurður-og Vilhelm, þeir hurfu allt-
af á beinu köflum brautanna. En
þeir töpuðu á lokasprettinum og ég
stóð eftir með pálmann í höndunum.
Vilhelm hefur verið í hörkuformi í
vetur og hefði átt skilið að næla í
titil í ár. Sjálfsagt munum við mæt-
ast í go-kart akstri í sumar, en við
eigum báðir keppnisbíla af því tagi.
Höfum þegar sprett úr spori og kepp-
um kannski ef mót verða haldin á
nýrri braut í sumar. Þessir bílar eru
hrikalega öflugir og maður er miklu
hræddari á þeim en vélsleðunum, því
hröðunin er mikil og mikil spenna
að aka þeim fyrir vikið", sagði Gunn-
ar.
faðm
FOLX
■ FAUSTINO Asprilla, miðhetji
ítalska knattspymuliðsins Parma,
á yfír höfði sér fangelsisdóm í
Kólumbíu, eftir að tvær skamm-
byssur, sem voru ekki skráðar,
fundust í bifreið hans um áramót.
■ EMILIO Butragueno, miðheiji
Real Madrid á Spáni er á förum
frá félaginu og bendir allt til að
hann gangi til liðs við japanska lið-
ið Verdy Kawasaki.
■ JÚRGEN Klinsmann fær
112,5 millj. ísl. kr. í árslaun fyrir
að leika með Bayern Miinchen.
■ FRANKFURT hefur keypt
sænska sóknarleikmanninn Jo-
hnny Ekström frá Dynamo
Dresden á 69 millj. ísl. kr.
■ BANDARÍSKI landsliðsmaður-
inn Eric Wynalda ætlar að fara
frá Bochum, ef liðið fellur úr 1.
deildinni.
■ ALAN Smith, framkvæmda-
stjóri Crystal Palace, var rekinn
aðeins 24 klukkustundum eftir að
liðið var búið að leika sinn síðasta
leik í ensku úrvalsdeildinni — liðið
féll og leikur í 1. deild næsta vetur.
■ GEORGE Weah, landsliðsmað-
ur Líberíu, sem leikið hefur með
París St. Germain, mun leika með
AC Milan næsta keppnistímabil.
Liðin komust að samkomulagi um
kaupverð í fyrrakvöld, en ekkert
var hins vegar gefíð upp um þá
hlið mála.
■ PREBEN Elkjær, fyrrum
landsliðsmaður Danmerkur, hefur
verið ráðinn þjálfari danska 1.
deildarliðsins Silkeborg. Eftir að
Larsen lagði skóna á hilluna hefur
hann starfað við að lýsa knatt-
spyrnuleikjum fyrir danska sjón-
varpsstöð, en sagðist ekki hafa
getað hafnað þessu freistandi at-
vinnutilboði.
■ BRIAN Horton, framkvæmda-
stjóri Manchester City, var rekinn
frá liðinu í gær. Horton og aðstoð-
armaður hans David Moss, mættu
ekki í kvöldverð liðsins, eftir tap á
heimavelli, 2:3, gegn QPR á sunnu-
daginn, en strax eftir leikinnn til-
kynnti Francis Lee, eigandi City,
Horton að hann yrði látinn fara.
■ LUIS Fernandez, þjálfari Par-
ís St. Germain, tilkynnti Brasilíu-
manninum Valdo í gær, að hann
léki ekki meira með liðinu á þessu
keppnistímabili, þannig að allt
bendir til að Valdo verði látinn
fara frá liðinu. Nú þegar er ljóst
George Weah fer til AC Milan
eftir keppnistímabilið og þá getur
farið svo að franski landsliðsmað-
urinn David Ginola fari til Barcel-
ona.
GOLF
Fyrsta stigamót sumarsins á Strandarvelli um helgina
Björgvin og Olöf best
BJÖRGVIN Sigurbergsson og
Ólöf Marfa Jónsdóttir, kylfingar
úr Keili sigruðu á fyrsta stiga-
móti sumarsins í golfi sem
fram fór á Strandarvelli um
helgina.
Björgvin lék hringina tvo samtals
á 141 höggi. Hann lék fyrri
hringinn á einu höggi yfir pari en
■■■■!■ þann síðari á parinu.
Frosti Ágætis veður var á
Eiösson Hellu, sólríkt en
skrifar nokkur vindur.
„Það er sama með
mig og beljurnar, ég er ánægður að
komast út,“ sagði Björgvin sem einn-
ig sigraði á fyrsta mótinu í fyrra.
„Ég held að menn verði fljótir að
komast í gang og ég er nokkuð
ánægður með mína spilamennsku.
Ég hef verið að breyta sveiflunni og
það hefur skilað sér en púttin hefðu
mátt vera betri í fyrri hringnum.“
Björn Knútsson, einnig úr Keili,
hafnaði í öðru sæti á 145 höggum
en hann er nýkomin frá Bandaríkj-
unum þar sem hann stundar nám
og spilar golf.
Góð þátttaka var hjá bestu kylf-
ingunum í mótið enda mega kylfing-
ar ekki við að missa úr stigamót.
Mótin gefa stig til landsliðs en
óvenju mörg verkefni eru hjá liðun-
um í sumar.
Hjalti Pálmason úr GR lék fyrri
daginn á 73 höggum en fékk frávís-
un fyrir að mæta ekki á réttum tíma
á teig á sunnudaginn. Misskilningur
varð þess valdandi og Hjalti hugði
rástímann vera seinna um daginn
og varð þannig af dýrmætum stigum
í keppninni um landsliðssæti.
Ólöf María Jónsdóttir sigraði með
fjögurra högga mun í kvennaflokki.
Hún lék á 156 höggum en Ragnhild-
ur Sigurðardóttir úr GR hafnaði í
öðru sæti. „Ég var frekar svekkt
með útkomuna í fyrra en geri mér
vonir um að spila miklu betur í ár.
Ég spilaði ágætlega í þessu móti og
það er greinilegt að púlið í vetur er
farið að skila sér,“ sagði Ólöf María.
Morgunblaðið/Frosti
ÞAU höfnuðu í efstu sætunum á stigamótinu á Heilu. Frá
vinstri; Björn Knútsson sem varð annar, þá sigurvegararnir
Ólöf María Jónsdóttir og Björgvin Sigurbergsson.