Morgunblaðið - 18.05.1995, Side 1
FLUG - ‘ ^ -Á: SJÓDIR I \ ppi|i| FJÖLMIDLUN 1 ó'l
Jóhannes til Atlas ÉÉUi Heildsalar í lána- Murdoch í marg- jL
Air /4 kerfinu /6 mm i,>P! miölun /8
VEDSKUTIAIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 1995 f BLAÐ n
Internet
í undirbúningi er stofnun hlutafé-
lags, Internet á íslandi hf. Til-
gangur félagsins er að annast al-
þjóðlega tölvunetsþjónustu
byggða á Internet-stöðlum, að
eiga hlutdeild í alþjóðlegum tölvu-
netum og að stuðla að hagkvæm-
astri uppbyggingu tölvunets á
landsvísu og þróun lausna á sviði
tölvunetssamskipta.
Ríkisvíxlar
57 gild tilboð, alls að fjárhæð 797
milljónir, bárust í 3ja ára óverð-
tryggð ríkisbréf í gær. 16 gild til-
boð komu í 3ja mánaða ríkisvíxla,
alls 1.879 millj. Heildarfjárhæð
tekinna tilboða í rikisvíxla er 1.369
miHj., en þar af tilboð frá Seðla-
banka 455 millj. á meðalverði
samþ. tilboða. Tekið var tilboðum
í ríkisbréf fyrir 150 miHj. Meðal-
ávöxtun samþ. tilboða í 3ja mán-
aða víxla er 7,25% og í 3ja ára
rikisbréf 9,88%.
Borgarnes
Hlutafélagið Engjaás hf. var
stofnað í Borgarnesi fyrr í vik-
unni. Eigendur félagsins eru
Kaupfélag Borgfirðinga, Mjólk-
ursamsalan í Reykjavík, Osta- og
smjörsalan og Mjólkurbú Flóa-
manna. Fyrirtækinu er ætlað að
efla atvinnulíf á staðnum.
SÖLUGENGIDOLLARS
RIKISFYRIRTÆKI
TIL SÖLU
Einkavæðing hefur farið fram ...
júní 1992
júní 1992
eignasala hófst 1992
ágúst 1992
hófst í ágúst 1992
Prentsmiðjan Gutenberg hf.
Framleiðsludeild ÁTVR
Ríkisskip
Ferðaskrifstofa íslands hf.
Jarðboranir hf.
Menningarsjóður eignasala fór fram haustið 1992
Þróunarfélag íslands hf. nóvember 1992
íslensk endurtrygging hf. desember 1992
Rýni hf. desember1993
SR-mjöl hf. desember 1993
Þormóður rammi hf. mars 1994
Lyfjaverslun íslands hf. nóv. 1994 og jan. 1995
M.kr.
85.6
18,9
350,4
18.7
93,0
26,0
130,0
162,0
4,0
725,0
89,4
402,0
Einkavæðing náði ekki fram að ganga
Steinullarverksmiðjan hf. Brunabótafélag íslands
Þvottahús ríkisspítalanna Barri hf.
Háskólabíó
Einkavæðing í náinni
Búnaðarbanki íslands
Landsbanki íslands
Fiskveiðisjóður íslands
Iðnlánasjóður
Rafmagnsveitur ríkisins
Húsameistari ríkisins
Bifreiðaskoðun íslands hf.
Steinullarverksmiðjan hf.
Stofnlánadeild
Landbúnaðarins
framtíð . . .
Kísiliðjan hf.
íslenska járnblendifélagið hf.
íslenskir aðalverktakar hf.
Endurvinnslan hf.
Sementsverksmiðjan hf.
Áburðarverksmiðjan hf.
Póst- og símamálastofnunin
Fríhöfnin á Keflavikurflugvelli
Skýrsluvélar ríkisins og
Reykjavíkurborgar
I TIÐ síðustu rikisstjórnar var lögð fram áætlun sem gerði ráð fyrir sölu
ríkisfyrirtækja fyrir samtals 4 milljarða króna á kjörtímabilinu. Staðreyndin
varð sú að heildartekjur af sölu ríkisins á fyrirtækjum og eignum vegna
einkavæðinggar nema 2,1 milljarði á kjörtímabilinu.
Fyrri ríkisstjórn lagði m.a. fram áætlun um sölu Búnaðarbanka þar sem
nauðsynleg lagafrumvörp hafa verið samin og sérstök undirbúnings-
nefnd skilaði af sér ítariegri skýrslu um málið. Helstu ástæður þess að
einkavæðing Búnaðarbankans náði ekki lengra eru annars vegar lægð í
efnahagslífinu og hins vegar skortur á pólitískum stuðningi á Alþingi.
Verkefnið bíður nú þeirrar ríkisstjórnar sem nú situr og má tvímælalaust
telja einkavæðingu Búnaðarbankans mikilvægasta hlutverkið á sviði
einkavæðingar á næstu árum.
Flugleiðir hf. flölga vélum til
að mæta aukinni eftirspurn
Taka á leigu
Boeing 737
vél frá Japan
STJÓRN Flugleiða hf. ákvað á fundi
sínum á þriðjudag að ganga til
samninga við japanska fyrirtækið
Diamond Leasing um leigu á einni
Boeing 737-400 flugvél. Vélin kem-
ur hingað til lands í næstu viku og
verður þá tekin til skoðunar í flug-
skýli félagsins í Keflavík. Reiknað
er með að hún verði tekin í notkun
um miðjan júní.
Skoðunin er framkvæmd fyrir
leigusalann og er því utan leigu-
samnings. Hér er um að ræða svo-
nefnda C-skoðun sem tekur um
þijár vikur. Þannig skapast viðbót-
arverkefni fyrir tæknisvið félagsins
og þarf að bæta við 10-15 flugvirkj-
um tímabundið af þessum sökum.
Meðan á skoðuninni stendur verður
sætum í vélinni fækkað til samræm-
is við sætafjölda í öðrum vélum fé-
lagsins af sömu gerð sem hafa 153
sæti.
Bætt við tveimur ferðum til
Kaupmannahafnar
Flugvélin er leigð til að mæta
aukinni eftirspurn á Evrópuleiðum
félagsins og til að auka svigrúm við
gerð áætlana. Bókanir hafa verið
góðar það sem af er árinu og útlit
er fyrir mikla flutninga í sumar.
Eru bókanir raunar ívið betri en á
sama tíma í fyrra og gert er ráð
fyrir að þetta viðbótarframboð sæta
muni mæta því.
Þegar hefur verið ákveðið að
bæta við tveimur áætlunarferðum
til Kaupmannahafnar á viku eftir
að vélin verður tekin í notkun og
einni til Osló. í sumar verða 22 ferð-
ir á viku til Kaupmannahafnar frá
miðjum júní eða allt að fjórar ferðir
á dag. Bæði er þar um að ræða
farþega á leið til Danmerkur og
Hamborgar en einnig farþega sem
millilenda í Kaupmannahöfn á leið
sinni til annarra áfangastaða. Því
til viðbótar mun leiguvélin verða
notuð á leiðinni til Narsarsuak og
Syðri-Straumfjarðar á Grænlandi
og fleiri áfangastaða.
Ráða yfir átta millilandavélum
Boeing-vélin er leigð í tæpt ár í
upphafi en möguleiki er á að fram-
lengja samninginn til allt að fimm
ára. Þar með munu Flugleiðir hafa
yfir að ráða fimm Boeing 737-400
vélum og þremur Boeing 757-200
vélum. Leiguvélin mun einnig nýtast
félaginu í haust þegar aðrar Boeing
737-vélar verða í skoðun.
Verið er að fara yfír flugvélaþörf
á næsta ári en við blasir að þá þurfi
einnig að stækka flotann. í því sam-
bandi er m.a. til athugunar að hefja
flug til Halifax í Kanada. Fram kom
fyrir aðalfund Flugleiða í mars að
hugmyndir væru uppi um að fljúga
þangað tvisvar í viku en flugið get-
ur hafist í fyrsta lagi næsta vor.
Á SÍÐUSTU 5 ÁRUM HAFA UM 1200 AÐILAR
GERST FÉLAGAR í ALVÍB
VlLT ÞÚ EKKI BÆTAST í HÓPINN?
8,7% ávöxtun frá upphafi.
Persónuleg ráðgjöf til sjóðfélaga um lífeyris- og eftirlaunamál.
ítarleg ársfjórðungslcg yfirlit.
Félagar í ALVÍB vita alltaf nákvæmlega hver inneign þeirra er
og hvaða eftirlaunum þeir geta átt von á.
Ávöxtun hvers sjóðfélaga er reiknuð út sérstaklega.
Inneign í ALVÍB erfist.
Allir geta greitt viðbótariðgjöld í ALVÍB.
Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð
geta greitt öll sín iðgjöld í ALVÍB.
’ Lágur rekstrarkostnaður.
Örugg eignasamsetning.
Almennur lífeyríssjóður VÍB, ALVÍB,
er séreignarsjóður þar sem framlög
sjóðfélaga eru eígn hans og færast á
sérreikníng hans.
FORYSTA í FJÁRM.ÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.