Morgunblaðið - 19.05.1995, Blaðsíða 1
B L A Ð A L L R A L / \ N E > S M / K N N A
pQTi0ttt#lfaí<ÍÍ>
B
1995
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
Skagamenn meistarar meistaranna
AKURNESINGAR gjörsigruðu KR-inga, 5:0, í árlegum leik íslands- og bikarmeistara fyrra ðrs — Meistara-
keppni KSÍ — sem fram fór á Akranesi í gærkvöldi. Á myndinni hefur Ólafur Þórðarson, fyrirliði ÍA, tekið við
bikarnum sem nafnbótinni fylgir. Það var Eggert Magnússon, til hægri, sem afhenti Ólafl fyririiða bikarinn.
■ Ótrúlegt / B8
Kæra Rússa ekki
tekin til greina
KÆRA Rússa vegna leiksins gegn Þjóðverjum
var ekki tekin til greina af aganefnd IHF. Rúss-
ar áfrýjuðu til dómstóls IHF sem komst að sömu
niðurstöðu og aganefndin þannig að úrslit leiks-
ins standa og Þjóðveijar mæta því Frökkum í
undanúrslitum í dag, en Rússar leika um fimmta
til áttunda sæti.
Aganefndin féllst á að dómararnir hefðu gert
mistök og kæra Rússa væri lögmæt, en hún taldi
hins vegar að Þjóðverjar hefðu ekki hagnast á
mistökum dómaranna og því tók hún kæruna
ekki til greina.
Dómstóll IHF féllst á niðurstöðu aganefndar
og staðfesti hana. Niðurstaða dómstólsins er
endanleg.
Guðni á Wembley
GUÐNI Bergsson leikur með Bolton gegn Tran-
mere um sæti í ensku úrvalsdeildinni mánudag-
inn 29. maí og verður það í annað sinn á skömm-
um tima sem fyrirliði íslenska iandsliðsins leikur
úrslitaleik á Wembley en sá fyrri var gegn
Liverpool í deildarbikarnum. Guðni átti stórleik
í fyrrakvöld og fékk góða dóma í fjölmiðlum
þegar Bolton vann Wolves 2:0 eftir framlengdan
leik en Úlfarnir unnu 2:1 heima í fyrri leiknum.
í annað sinn lék hann sem miðvörður liðsins og
hafði nóg að gera, ekki síst eftir að samheiji
hans, Alan Stubbs, fór meiddur af velli um miðj-
an seinni hálfleik. Heimamenn gerðu annað
mark sitt snemma i seinni hálfleik framlenging-
ar og lögðu Úlfarnir allt í sóknina eftir það en
vörn Bolton var vandanum vaxin. Lið Bolton fer
í afslöppunarferð til Portúgals um helgina og
verður þar í nokkra daga fyrir úrslitaleikinn.
Svíþjóð og ísland mætast í Evrópukeppni lands
liða í Stokkhólmi 1. júní og á KSI kröfu á að
fá Guðna fjórum dögum fyrir leik en um samd-
ist að hann léki úrslitaleikinn með Bolton.
Sigur og tap
ÍSLENSKA landsliðið í badminton vann Banda-
ríkjamenn 3:2 í annarri umferð heimsmeistara-
mótsins i badminton sem fram fer í Sviss. Liðið
er í sjötta riðli með Póllandi, Bandaríkjamönnum
og Sviss. í fyrstu umferðinni á miðvikudaginn
tapaði ísland 1:4 fyrir Sviss. Báðir leikir ís-
lenska liðsins voru jafnir. 1 gær unnu Árni Þór
Hallgrímsson og Guðrún Júlíusdóttir tvenndar-
leikinn 15:8 og 15:9, Elsa Nielsen sigraði mót-
herja sinn í einliðaleik kvenna 11:7 og 11:5 en
Broddi Kristjánsson tapaði 8:15 og 8:15 í einliða-
leik karla og staðan var orðin 2:1. Elsa og Guð-
rún tryggðu sigurinn i tvíliðaleik kvenna með
þvíað vinna 17:16,10:15 og 15:11. Broddiog
Árni töpuðu síðan tvíliðaleik karla 15:18 og 9:15.
í gær töpuðu Árni Þór og Guðrún í tvenndar-
Ieik 1:15 og 7:15. Broddi vann fyrstu lotuna
18:13 í einliðaleiknum, en tapaði síðan 15:18 og
5:15 og nú var steðan orðin 0:2 og útlitið svart.
Eini vinningur íslands var í einliðaleik kvenna
þar sem Elsa sigraði auðveldlega 11:1 og 11:9
og lagaði stöðuna í 1:2. Broddi og Árni Þór lentu
í mikilli rimmu í tvíliðaleik en töpuðu í odda-
hrinu 9:15,15:10 og 16:18. Elsa og Vigdís Ás-
geirsdóttir töpuðu síðan i tvenndarleik 9:15 og
6:15. Að sögn aðstandenda hópsins eru um 1500
áhorfendur á leikjunum, sérstaklega leikjum
heimamanna og mikil stemmning.
Undanúrslit
keppa um gullið. Láttu þig ekki vanta á
þennan heimsviðburð. Miðaverð í sæti er
4.000 og 5.500 kr. og í stæði 1.500 og
3.500 kr. Miðasalan opnar kl. 10:00.
V • \r