Morgunblaðið - 19.05.1995, Qupperneq 2
2 B FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA / MEISTARAKEPPNI KVENNA
Góð byijun hjá
kvenfólkinu
KVENFÓLKIÐ kemur vel undan
vetri ef marka má frammistöðu
leikmanna KR 09 Breiðabliks á
gervigrasinu á Asvöllum í
Hafnarfirði í gærkvöldi. Þar átt-
ust liðin við í meistarakeppn-
inni og hafði KR verðskuldaðan
sigur, 1:0.
Spilið var gott á köflum og
greinilegt að liðin eru tilbúin
fyrir sumarið. Vesturbæingar spil-
■■mHi uðu meira á meðan
Stefán Kópavogsbúar
Stefánsson gerðu meira af því
skrifar að senda boltann
upp kantana og áttu
Ásthildur Helgadóttir og Sigrún S.
Óttarsdóttir sitthvort skotið í slá
KR eftir hálftíma leik.
KR-ingar áttu þó sín færi og
fimm mínútum eftir leikhlé fékk
Ásdís Þorgilsdóttir stungusendingu
upp vinstri kantinn, lék upp að
endamörkum og renndi boltanum
framhjá Sigfríði Sophusdóttur í
marki Blika. Breiðablik komst við
það meira inní leikinn en KR hélt
áfram að skapa sér færi og Olga
Færseth, nú KR-ingur, átti skot í
slá. Sigríður Óttarsdóttir fékk opið
tækifæri til að jafna og tryggja
þannig framlengingu þegar hún
komst á auðan sjó innfyrir vörn
KR rétt fyrir leikslok en slappt skot
hennar rataði beint í fang Sigríðar
Pálsdóttur markvarðar KR. Þar
með lak vindurinn úr Blikum og
þrátt fyrir nokkur færi KR, jafnvel
þrír KR-ingar gegn einum Blika,
tókst ekki að.bæta við.
„Við byijum vel og ákváðum að
beijast enda búnar að heyra utan
úr bæ að Breiðablik myndi fara
létt með okkur og vorum ekki á
því,“ sagði Helen Ölafsdóttir fyrir-
liði KR, kampakát með bikarinn í
höndunum og bætti við: „Við höfum
æft vel, hlaupið mikið en átt við
meiðsli að stríða. En þetta er að
koma og gefur okkur byr undir
báða vængi því eftir að við töpuðum
Reykjavíkurtitlinum til Vals, þurft-
um við að vinna upp sjálfstraustið."
Liðið virtist ekki skorta úthald og
spilaði vel út á velli þar sem Guð-
laug Jónsdóttir réði ríkjum en í
framlínunni voru Sara Smart og
Olga Færseth góðar saman. Hel-
ena, sem hefur leikið í framlínunni,
lék nú aftast og fórst það vel úr
hendi.
Breiðabliks var ekki mikið síðra
lið að þessu sinni, en leikmenn nýttu
ekki færin og skorti þrek í lokin.
Ásthildur Helgadóttir og Margrét
Ólafsdóttir voru sterkar á miðjunni
en án mikils stuðnings og Sigrún
Óttarsdóttir var góð, þrátt fyrir að
klúðra besta færi leiksins. Vanda
Sigurgeirsdóttir, þjálfari og leik-
maður Breiðabliks, var einnig ágæt
og ekki svartsýn á sumarið: „Fall
er fararheill."
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KR-stúlkur meistarar meistaranna
GERÐUR Guðmundsdóttir í KR og Ásthildur Helgadóttir, sem skrýðist nú búningi Breiðabliks
á ný, eigast hér við um boltann i Meistarakeppninni í gærkvöldi þar sem KR vann 1:0
Tvær á slysavarðstof una
SUMARIÐ byijar ekki vel fyrir Ingu Dóru Magnúsdóttur í KR og
Helgu Hannesdóttur úr Breiðabliki, því þær enduðu báðar á slysavarð-
stofunni fyrir leikslok.
í leiknum í gær háðu þær baráttu um háan bolta en skullu saman
og skárust báðar á höfði. Á Ingu Dóru þurfti að sauma nokkur spor
en Helga fór verr því fyrir utan skurð, sem þurfti nokkur spor til að
loka á slysavarðstofunni, nefbrotnaði hún.
IMokkur félagsskipti
NOKKRIR lykilleikmenn kvennaliða hafa skipt um félag fyrir sumarið
og hafa KR-ingar fengið flesta leikmenn og Breiðablik misst.
Olga Færseth og Inga Dóra Magnúsdóttir gengu yfir í KR úr
Breiðabliki, Olga Einarsdóttir kom úr Hetti og Sara Smart skipti yfir
úr Haukum. Ennfremur fór Katrín Jónsdóttir úr Kópavoginum yfir í
Garðabæ og spilar með Stjörnunni í sumar. Hinsvegar misstu KR-ing-
ar Ásthildi Helgadóttur yfir í Breiðablik.
FRJALSIÞROTTIR / VORMOT IR
Morgunblaðið/Kristinn
Besti tími frá 1982
SiGMAR Gunnarsson UMSB fer fremstur í Kaldalshlaupinu
en hann náði besta tíma í hlaupinu frá 1982. Gunnlaugur
Skúlason UMSS fylgir honum fast eftir og í hnapp með þeim
eru bræðurnir Sveinn og Björn Margeirssynir UMSS.
FJÓRIR hlupu undir 11 sek. í 100 m, sem var úrtökuhlaup fyrir Smáþjóðaleikana í Lúxem-
borg. Jón Arnar Magnússon UMSS, þriðji frá hægri, sigraði á góðum tíma, 10,59 sek.
Bræðurnir frá Mælifellsá
stórbættu metin í3000 m
SKAGFIRSKIR frjálsíþróttamenn náðu góðum árangri á Vormóti
ÍR á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Jón Arnar Magnússon UMSS
sýndi að hann er líkiegur til að slá íslandsmetið ítugþraut í lok
mánaðarins og bræðurnir frá Mælifellsá stórbættu Islandsmetin
í 3000 metrum í drengja- og sveinaflokki.
Bræðurnir Sveinn og Björn Mar-
geirssynir UMSS stiga vart
fæti á hiaupabrautina öðru vísi en
að setja íslandsmet
Ágúst °g Það gerðu Þeir í
Ásgeirsson Kaldalshlaupinu í
skrifar gær. Þar eru stór-
skemmtilegir hlaup-
arar á ferð með gott keppnisskap.
Sveinn, sem er á 17. aldursári,
bætti drengjamet sitt um rúmar
átta sekúndur, eða úr 8:49,40 í
8:41,01 mínútu.
Björn er ári yngri eða 16 og
hefur tekið stórstígum framförum
frá í fyrra. Hann hljóp nú á 8:42,67
og bætti ársgamalt sveinamet bróð-
ur síns um tæpar sjö sekúndur.
Tíminn er ótrúlega góður af 16 ára
pilti og í hlaupinu bætti hann besta
árangur sinn í greininni frá í fyrra
um rúmar 42 sekúndur.
Sigmar Gunnarsson UMSB vann
Kaldalshlaupið á endaspretti, tók
fram úr Sveini þegar 200 metrar
voru eftir, og hljóp á 8:38,85. Er
það besti tími í Kaldalshlaupinu frá
upphafi en keppt hefur verið í því
frá 1982. Fjórði varð Gunnlaugur
Skúlason UMSS á 8:45,5.
Jón Arnar hljóp 100 metrana
kröftuglega á 10,59 sekúndum.
Meðvindur var 2,8 sekúndumetrar
en ískalt loftið vegur á móti. Byij-
unin lofar góðu og íslandsmetið,
10,57 sek., lifir tæplega sumarið
af. Jón kastaði einnig kringlu 46,74
metra og spjótj 57,90 metra.
Þrír hlauparar aðrir hlupu 100
metrana undir 11 sekúndum. Uó-
hannes Már Marteinsson ÍR varð
annar á 10,82 sem bendir til þess
að hann muni bæta sig í sumar.
Hið sama er að segja um Hörð
Gunnarsson UMSK sem hljóp á
10,94 að ekki sé minnst á Trausta-
son, 18 ára FH-ing, sem hljóp á
10,99. Er það í fyrsta sinn hann
hleypur undir 11 og örugglega ekki
það síðasta.
Geirlaug B. Geirlaugsdóttir Ár-
manni hefur aldrei verið betri en í
ár og hljóp öðru sinni í vor undir
12 sekúndum, nú á 11,92 sek.
Þessi árangur, sem að framan
greinir, svo og margur annar gefur
vonir um gott fijálsíþróttasumar.