Morgunblaðið - 19.05.1995, Page 1

Morgunblaðið - 19.05.1995, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Föstudagur 19. maf 1995 Blað D Húsnæðis- lánakerfið I þættinum Markaðurinn fjallar Grétar J. Guðmunds- son um húsnæðislánakerfið. Hugsanlegar breytingar geta leitt til væntinga og þá safnast upp þörf. Slíkt er óheppilegt. / 2 ► Þegar lagnir bila Nýju fjöleignarhúsalögin leysa ekki úr öllum spurn- ingum um skiptingu kostn- aðar, ef lagnir bila, segir Sigurður Grétar Guð- mundsson í þættinum Lagnafréttir. / 10 ► Kröfur markað- arins ráði V[ERÐ á nýjum íbúðum er hagstætt nú. Sam- keppnin á nýbygginga- markaðnum er meiri en var og knýr byggingaraðilana til ítrustu hagkvæmni. Verð á eldhúsinnréttingum, gólfefn- um o. fl. hefur einnig lækkað mjög mikið á undanförnum árum. En sala á nýjum íbúð- um ræðst mjög af því, hvort þær falla að kröfum markað- arins, sem er stöðugt að breytast. Fólk gefur sér góð- an tíma við íbúðarkaup nú, fer á milli staða og ber saman verð og gæði. Með harðnandi samkeppni hefur samvinna og samráð milli byggingaraðila, fast- eignasala og arkitekta aukizt til muna í þeim tilgangi að fá það fram, hvaða íbúðir henta bezt kröfum markað- arins. Kemur þetta fram hér í blaðinu í dag í viðtalsgrein við þá Elfar Olason, sölu- mann hjá fasteignasölunni Skeifunni og Gunnar Óskars- son arkitekt. Þar seffir m. a., að nú sé engin þörf á að byggja stór einbýlishús. Markaðurinn sæki alfarið í lítil hús, helzt á einni hæð. Eftirspurn eftir stórum blokkaríbúðum á bil- inu 120-140 ferm. er Iíka lít- il. Astæðan er sú, að fjöl- skyldurnar hafa almcnnt minnkað. / 24 MT Oviss verkefna- staða hjá bygg- ingariðnaðinum BYGGINGARIÐNAÐURINN býr við mikla óvissu, hvað varðar verkefni, eins og teikningin hér til hliðar ber með sér. Hún sýnir verkefnastöðuna nú og fyrir tveimur árum og er byggð á könnunum, sem gerðar voru á veg- um Samtaka iðnaðarins og náðu til 60 fyrirtækja, lítilla sem stórra. Óvissan er greinilega meiri en fyrir tveimur árum, sem þýðir ekki endilega það sama og að minna sé um verkefni nú. Nær helmingur byggingarfyrirtækjanna hefur nú aðeins verkefni til 1-2 mánaða. Þau eru í “kroppi“ eins og kallað er á fagmáli, það er í stuttum verkefnum, aðallega breytinga- og viðhaldsverk- efnum. Einungis 7% byggingarfyrir- tækjanna nú-telja sig hafa örugg verkefni í 7-12 mánuði og aðeins 4% í yfir eitt ár. Þetta veldur að sjálfsögðu vanda fyrir alla áætlanagerð og skipulagn- ingu og skilar sér vart í auknum mannaráðningum, þrátt fyrir hugs- anlega þörf. Margir treysta sér ekki til þess að ráða meiri mannskap, þegar verkefnastaðan er ótrygg, m. a. vegna stífra uppsagnarákvæða. Afleiðingin er frekar meiri yfirvinna hjá þeim starfsmönnum, sem fyrir eru, ef jafna þarf sveiflur og meira er leitað til undir verktaka. Nokkur veltuaukning hefur orðið hjá byggingarfyrirtækjunum að und- anförnu eftir mikinn samdrátt, en hún hefur ekki haft í för með sér atvinnuaukningu í byggingariðnað- inum og stafar sennilega af auknum innflutningi á tilbúnum byggingar- hlutum. (Heimíld: Samtök iðnaðarins) Verkefnastaða 60 fyrirtækja í byggingarstarfsemi 1993 og 1995 Verkefni til. yfir eins árs ’95 '93 7-12 mán. ’95 '93 5-6 mán. '95 *93 3-4 mán. ’95 ’93 1-2 mán. ’95 Heimild: @|samtök mim IONAÐARINS '93 SJÓÐUR 2 FYRSTI & EINI TEKJUSJÓÐURINN Á ÍSLANDI SEM GREIÐIR MÁNAÐARLEGA VEXTI Sjóður 2 er fyrsti tekjusjóðurinn á íslandi sem greiðir vexti umfram verðbólgu mánaðarlega og hentar pví þeim sem vilja auka mánaðarlegar tekjur sínar. • Mánaðarlegar vaxtagreiðslur. • Skattfr j álsar vaxtatekjur. • Uttekt heimil hvenær sem er, án nokkurs kostnaðar. • Lágmarks inneign í sjóðnum er 500.000 kr. • Fylgir ávöxtun íslenskra markaðsskuldabréfa og ijárfestir einungis í traustum skuldabréfiim. • Okeypis varsla bréfanna. • Mánaðarleg yfirlit um vexti og eign. • Hægt að fá vexti lagða inn á reikning í hvaða banka sem er. Ráðgjafar VÍB veita frekari upplýsingar um Sjóð 2 í afgreiðslunni í Ármúla 13a eða í síma 560-8900. Jafnframt er hægt að kaupa Sjóð 2 í útibúum fslandsbanka um allt land. Verið velkomin í VÍB. FORYSTA í FJÁRMÁLUM! VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR iSLANDSBANKA HF. • Adili at) Verðbréfaþingi íslands • Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.