Morgunblaðið - 20.05.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
LAUGARDAGUR 20. MAI
BLAÐ
B
HM I HANDKNATTLEIK
Kátir Frakkar
Morgunblaðið/RAX
FRAKKAR fögnuAu glæstum slgri gegn ÞJóðverJum, 22:20, í undanúrslltum helmsmeistarakeppnlnnar í Laugar-
dalshöll í g»r. Þeir leika tll úrsllta um HM-tltilinn aðra heimsmeistarakeppnina í röð. Hér fá þeir útrás fyrir
gleði sína; Frakkarnir Gael Monthurel (nr. 9), Frédéric Volle og Eric Qulntin. Frakkland og Króatía, sem vann
Svíþjóð 28:25 í undanúrslltum, lelka til úrslita um helmsmelstaratitillnn í Laugardalshöll á morgun kl. 15.00.
■ HM í handknattleik / B2-B5, B8
Kristján getur ekki
tekið við landsliðinu
ORÐRÓMUR hefur verið á kreiki um að Krist-
ján Arason muni taka við af Þorbergi Aðalsteins-
syni landsliðsþjálfara, en Kristján sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöldi að liann gæti
ekki tekið við iiðinu þar sem hann væri samn-
ingsbundinn Dormagen. „Ólafur Scram formað-
ur HSÍ ræddi við mig fyrr í vetur og spurði
hvort ég væri tilbúinn til að taka við af Þor-
bergi þegar hann hætti og var þá verið að tala
um Olympíuleikana. Það er mikill heiður fyrir
mig að vera einn af þeim sem koma hugsanlega
til greina sem landsliðsþjálfari.“
Kristján er er samningsbundinn hjá Dormag-
en fram til 30. júní 1996. Hann segist ætla að
uppfylla samning sinn í Þýskalandi. En hver
ætti að taka við liðinu?
„Ég vil ekki svara því á þessari stundu hvort
þorbergur á að hætta eða halda áfram. Það er
hans mál og forsvarsmanna HSÍ. Ef þeir ná
ekki samkomulagi finnst mér Þorbjörn Jensson
vera sá Islendingur sem égtreysti best fyrir
landsliðinu. HSI verður einnig að svara spurn-
ingunni hvort það ætti frekar að fá erlendan
þjálfara til starfa en því fylgir örugglega meiri
kostnaður," sagði Kristján og benti á að þjálfari
Hvít-Rússa gæti verið líklegur kandidat, enda
væru Hvíta-Rússland og Rússland að sameinast.
Reiknar ekki með
miklu frá liði sínu
ÞJÁLFARI Egypta, Ulrich Weiler sagði eftir sig-
urleikinn gegn Tékkum að hann reiknaði ekki
með miklu frá leikmönnum sínum í síðasta leik
liðsins, leiknum um 5. sætið þar sem liðið mætir
Rússum. „Leikmenn mínir gáfu sig alla í þennan
leik og þeir hafa ekki krafta í meira, sérstaklega
ekki lykilmenn liðsins sem fengið hafa litla hvíld
á mótinu. „Battery is empty,“ sagði Weiler, sem
útleggst gæti; „tankurinn er tómur."
Rymanov lék sinn
síðasta leik
ALEXANDER Rymanov, hinn sterki varnarmað-
ur í liði Rússa til margra ára, lék að öllum líkind-
um kveðjuleik sinn með landsliðinu í gær. Ry-
manov lenti í samstuði með þeim afleiðingum
að öxlin fór úr lið og þurfti mikil átök til að
koma henni á réttan stað. Rymanov er 36 ára
gamall og sagði við Maximov þjálfara að nú
væri hann hættur. Hann yfirgaf rússneska hóp-
inn um síðustu helgi og fór til Þýskalands til að
leika með félagsliði sínu í 2. deildinni og kom
meiddur á ökkla til baka og var leikurinn gegn
Sviss fyrsti leikur hans eftir komuna til baka.
Hann mun snúa sér að þjálfun á næsta tímabili.
Afríkuþjóð aldrei
svo ofarlega
HVORT sem Egyptaland nær að vinna Rússland
í keppni þjóðanna um fimmta sætið breytir það
engu um að árangur Egypta er sá besti sem
Afríkuþjóð hefur náð á heimsmeistaramóti í
handknattleik frá upphafi. Árangur þeirra gerir
það líka að verkum að Afríkuþjóðir fá einu sæti
fleira á næstu heimsmeistarakeppni á kostnað
Evrópuþjóðar.
Hvaða þjóðir
tryqqja sér
farseðil
tiI Atlanta og
Kumamoto?
í dag ræðst hvaða þjóðir keppa á Ólympíu-
leikunum í Atlanta í Bandaríkjunum á næsta
ári og hverjir komast á HM97 í Japan.
Baráttan verður hörð og spennandi.
Miðaverð: 3.000 og 2.200 kr. í
sæti og 1.500 og 1.000 kr. í stæði.
Miðasalan opnar kl. 10:00.
■&■
K.UN\p;o
ý>