Morgunblaðið - 21.05.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 21. MAÍ1995 B 21
JNk "I—ifTllB BBh — Hi ■ II 9 A I \f~^l N/C/K \S~~^ A O
/ o//\/Cj?/\R
Heilsuhúsið
óskar eftir starfsmanni. Þarf að vera áhuga-
samur um heilsuvörur, reglusamur, stundvís
og snyrtilegur. Vinnutími er frá kl. 13.30-
18.00. Framtíðarstarf. Starfið er laust strax.
Skriflegar upplýsingar um aldur og fyrri störf
sendist afgreiðslu Mbl. fyrir mánudaginn 29.
maí, merktar: „Reyklaus vinnustaður -1147“.
Umsóknum ekki svarað í síma né á staðnum.
Handmenntakennarar
Kirkjubæjarskóli á Kirkjubæjarklaustri óskar
eftir handmenntakennara/smíðakennara
næsta skólaár.
í skólanum eru tæplega 100 nemendur,
kennsluaðstaða ágæt og gott bókasafn. I
boði er gott húsnæði og öll almenn þjónusta
er á staðnum. Kirkjubæjarklaustur er rómað
fyrir verðursæld og náttúrufegurð, fjarlægð
frá Reykjavík er 270 km og vegur með slit-
lagi.
Við leitum eftir einstaklingi, sem hefur áhuga
á að byggja upp og þróa spennandi starf í
smíðakennslu sem og öðru starfi í skólanum.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Upplýsingar veitir skólastjóri, Hanna Hjartar-
dóttir, í símum 98-74633 eða 98-74635.
Verkalýðsfélagið
Eining
óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu
félagsins á Akureyri.
Starfssvið:
Vinnustaðaeftirlit og skrifstofustörf.
Umsækjandi þarf að vera vanur félagsstörf-
um, geta unnið sjálfstætt og eiga auðvelt
með að umgangast fólk. Ennfremur að hafa
góða þekkingu á tölvuvinnslu, t.d. Word og
Excel.
Umsóknarfrestur er til 2. júní nk.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofuni á
Akureyri.
Upplýsingar um starfið eru veittar á skrif-
stofu félagsins á Skipagötu 14, sími
96-23503 (Björn eða Sigrún).
>“<
1
Hafnarfjörður
Stjórnunarstarf
Forstöðumaður
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða forstöðu-
mann framkvæmda- og tæknisviðs bæjarins
sem samsvarar starfi bæjarverkfræðings.
Við leitum að verkfræðingi með mikla
reynslu, þar á meðal af stjórnunarstörfum.
Nauðsynlegt er að viðkomandi sé ákveðinn,
skipulagðurog hafi ríka stjórnunarhæfileika.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní nk.
Ráðningartími er frá 1. júlí nk.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., með ítar-
legum upplýsingum um menntun og fyrri
störf merktar: „Forstöðumaður". Með allar
umsóknir verður farið með sem trúnaðar-
mál og þeim öllum svarað.
Hagva ngurhf
■" o Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 ' I Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir
Framtíðarstarf
Við erum fyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu sem leggur metnað sinn í að uppfylla
þarfir og væntingar viðskiptavinarins. Ef þér
finnst það hljóma spennandi gæti vaktstjóra-
starf hjá okkur verið eitthvað fyrir þig.
Við viljum gjarnan fá umsóknir frá fólki sem
hefur reynslu af verslunar- og/eða þjón-
ustustörfum, sem er tilbúið að takast á við
krefjandi verkefni og getur unnið vaktavinnu.
Guðni Jónsson annast móttöku umsókna
fyrir okkur og veitir nánari upplýsingar á
skrifstofu sinni, Háteigsvegi 7, 105 Reykja-
vík, til 24. maí nk.
Guðni Iónsson
RÁÐGTÖF; RÁÐNINGARÞTÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI 62 13 22
Kannt þú listina
að selja?
Öflugt og ört vaxandi útgáfufyrirtæki í
Reykjavík óskar eftir sölustjóra til starfa nú
þegar.
Verkefni eru næg og um framtíðarvinnu að
ræða. Viðkomandi þarf að taka fullan þátt í
rekstri fyrirtækisins og ákvarðanatöku um
verkefni og lausn þeirra.
Mjög góð laun eru í boði fyrir réttan aðila.
Þá kemur eignaraðild sölustjórans að fyrir-
tækinu vel til greina og er raunar æskileg.
Á sama stað óskast sölufólk í tímabundin
verkefni.
Áhugasamir sendi upplýsingar til afgreiðslu
Mbl. merktar: „K - 15055“ fyrir laugardaginn
27. maí.
jS
Gerðaskóli í Garði
Sérkennari - almennur kennari
Gerðaskóli óskar eftir áhugasömum sérkenn-
ara til að skipuleggja og leiða sérkennsluúr-
ræði við skólann og einnig góðum almennum
kennara í eldri deildir. í skólanum eru um
220 nemendur í 1.-10. bekk og samhent
kennaralið.
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Upplýsingar um aðstöðu og húsnæði gefur
Eiríkur Hermannsson, skólastjóri í síma
422-7020 (vs.) eða 422-7048 (hs.).
Skólanefnd.
Reykhólaskóli
Við Reykhólaskóla eru eftirfarandi stöður
lausar frá 01.08.1995.
1. Almenn kennarastaða, æskilegar
kennslugreinar, danska og raungreinar.
2. Sérkannarastaða, um er að ræða fjöl-
þætta kennslu og þjálfun einstaklings
sem er að hefja nám í fyrsta bekk.
3. Smíðakennarastaða og gangavarsla.
Hólabær
Við Hólabæ, leikskólann á Reykhólum, er
laus frá 01.08.1995, staða leikskólastjóra.
Upplýsingar um stöðurnar veitir Skarphéðinn
Ólafsson, skólastjóri, í síma 93-47806 og
93-47807.
Reykhólar eru í fögru umhverfi við innanverð-
an Breiðafjörð. Þaðan er 290 km til Reykjavík-
ur. Almenn og góð þjónusta er á svæðinu.
Læknaritari
Heimilislæknir í Domus Medica óskar eftir
læknaritara til starfa sem fyrst. Um er að
ræða 85% hlutastarf með möguleika á aukn-
ingu. Launakjör samkvæmt samningi við TR.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar afgreiðslu Mbl.
fyrir 27. maí merktar: „DM - 18097“.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraþjálfari
Staða hjúkrunarforstjóra við dvalarheimilið
Höfða á Akranesi er laus til umsóknar frá
1. ágúst.
Einnig eru lausar stöður hjúkrunarfræðings
og sjúkraþjálfara frá 1. júní.
Höfði er dvalar- pg hjúkrunarheimili fyrir aldr-
aða og öryrkja. íbúar eru 78. 54 í þjónustu-
rými og 24 á hjúkrunardeild.
Góð starfsaðstaða. Umsóknarfrestur. er til
31. maí nk.
Upplýsingar um störfin og launakjör gefa
framkvæmdastjóri og hjúkrunarforstjóri í
síma 93-12500 á skrifstofutíma.
Dvalarheimilið Höfði,
Akranesi.
Rafvirki
RARIK óskar að ráða rafvirkja eða starsmann
með sambærilega menntun til starfa á
Blönduósi.
Starfið felst í almennum rafvirkjastörfum auk
flokkstjórnunar.
Nánari upplýsingar um starfið veiflr umdæm-
isstjóri RARIK á Blönduósi.
Umsækjendur tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf í umsókn sinni og sendi þær til
RARIK fyrir 31. maí nk. merktar:
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Ægisbraut 3, 540 Blönduós.
Sérhæft ritarastarf
Nýstofnað atvinnu- og ferðamálastofa
Reykjavfkurborgar óskar að ráða starfs-
mann í sérhæft ritarastarf. Fastir starfsmenn
eru þrír. Starfið er laust strax.
Við leitum að starfsmanni sem hefur til að
bera:
★ Skipulagshæfileika.
★ Stjórnunarhæfni.
★ Góða tungumálakunnáttu (skrifa/tala).
★ Tölvukunnáttu.
★ Menntun á háskólastigi.
★ Starfsreynslu.
í boði er nýtt starf hjá nýstofnuðu fyrirtæki
þar sem unnið verður að áhugaverðum
verkefnum. Starfið henta einstaklingi sem
vill vinna sjálfstætt.
Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
ásamt mynd til Ráðningarþjónustu Hag-
vangs hf., Skeifunni 19, fyrir 29. maí 1995
merktar „197“.
Hasvai ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir