Morgunblaðið - 21.05.1995, Síða 1
FRAMTÍÐAKÞRÓUN RAFBÍLA - REYNSL UAKSTUR Á HONDA
CIVIC - IVECODAILYSENDIBÍLALÍNAN - VETTVANGSPRÓFUN
HJÁ SCANIA - B&L AFHENDIR FYRSTA RENAULT VÖRUBÍLINN
\
Kringlunni 5 - sími 569-2500
Corolla Special Series,
sérbúnir lúxusbdar
á einstöku tilboðsverði.
S
I gg> TOYOTA
g Tákn um gceöi
Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson
LAGUNA langbakurinn er sannkallaður fjölskyldubíll, sem rúmar sjö manns.
Bílaleiga Akureyrar
bætir við bílaf lotann
BÍLALEIGA Akureyrar fékk í
vikunni afhenta 35 fjórhjóla-
drifna Subaru-Impreza bíla sem
fyrirtækið keypti af Ingvari
Helgasyni, umboðsaðila Subaru á
íslandi.
Birgir Ágústsson einn eigenda
fyrirtækisins sagði bílana virki-
lega góða viðbót við bílaflotann
sem í væru um 300 bílar, flestir
fjórhjóladrifnir. „Við stefnum að
því að hafa sem mest af fjórhjóla-
drifsbílum á okkar bílaleigu, þeir
eru vinsælir yfir veturinn þegar
veður er óstöðugt og reyndar
yfir allt árið, þeir hafa gefist
best,“ sagði Birgir.
Bílarnir eru að koma á götuna
einn af öðrum, en Birgir sagði
að töluvert væri um bókanir
vegna heimsmeistarakeppninnar
í handbolta, bæði á Akureyri og
í Reykjavík þar sem fyrirtækið
er einnig rekið. „Við erum mjög
ánægðir með þessi kaup, þetta
eru góðir bílar sem hafa reynst
vel,“ sagði Birgir. ■
Laguna langbakur
á markað í sumar
HEIMSFRUMSÝNING var á Re-
nault Laguna langbaki á bílasýn-
ingunni í Barcelona um síðustu
helgi. Meðal nýjunga í þessum bíl
er sætisbekkur aftast í bílnum sem
rúmar tvö börn og er hægt að leggja
hann saman ef ætlunin er að hliðra
til fyrir farangri. Með notkun sætis-
bekksins rúmar langbakurinn sjö
manns. Langbakurinn kemur á
markað í Evrópu í sumar og næsta
haust.
Laguna langbakurinn státar af
mesta farangursrými í þessum
stærðarflokki bíla. Sætisbekkurinn
verður boðinn sem aukabúnaður og
samkvæmt rannsóknum Renault
veita sætin, sem snúa aftur, meira
öryggi í 80% allra umferðaróhappa.
Á bekknum eru armpúðar og
þriggja punkta öryggisbelti. Þótt
bekkurinn sé ætlaður börnum þá
geta fullorðnir setið í þeim án telj-
andi óþægindi.
Bíllinn verður einnig fáanlegur
með afturhlera sem opnast í tvennu
lagi sem kemur sér vel þar sem
lofthæð er lítil, eins og t.d. í bílskúr-
um.
Ríkulega búlnn
Loftpúði í stýri er staðalbúnaður
í Laguna langbaknum og loftpúði
fyrir farþega í framsæti er auka-
búnaður. í hurðum eru styrktarbit-
ar og bíllinn er fáanlegur með
ABS-hemlalæsivöm. Hægt verður
að velja um bensín- eða dísilvélar;
2,2 lítra fjölventladísilvél sem skilar
85 hestöflum, 2 lítra, 16 ventla
bensínvél, 140 hestafla, sem verður
frumkynnt í júní og auk þess 95
hestafla, 1,8 lítra vél og 115 hest-
afla, 2 lítra vél, báðar með átta
ventlum.
Bíllinn verður boðinn í þremur
útfærslum, RN, RT og RXE og
staðalbúnaður í þeim öllum verður
m.a. fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður að framan, tölvustýrð
þjófavörn sem læsir vélinni, vökva-
stýri, útvarp með fjarstýringu á
stýri, þakrið, loftpúði fyrir ökumann
og sætisbeltastrekkjarar. ■
Audi A3
fæðist
AUDI verksmiðjurnar hafa
hafið undirbúning að því að
setja á markað Audi A3,
minnsta bílinn sem verk-
smiðjurnar hafa framleitt í
18 ár, eða síðan Audi 50 var
og hét. Á myndinni sem unn-
in er í tölvu er sýnd þrennra
dyra hlaðbaksútfærsla af
bílnum. Hann verður frum-
sýndur á næsta ári.
Dregur úr
bílasölu
í Evrópu
BÍLASALA í Evrópu dróst saman
um 2,6% í apríl. Alls voru skráðir
1.015.600 bíiar í apríl en á sama tíma
í fyrra voru skráningarnar
1.042.800.
Mestur varð samdrátturinn í
Frakklandi, 12,4%, 2,3% í Bretlandi
og 1,6% á Ítalíu. Hins vegar jókst
salan í Þýskalandi um 3,2% en mest
varð aukningin á írlandi, 23,4% og
í Finnlandi, 19%.
Markaðshlutdeild Volkswagen-
samsteypunnar var mest í apríl,
17,1%,‘eða alls 173.450 bílar skráð-
ir, General Motors með 13,7% og
PSA (Peugeot, Citroen) með 11,7%
hlutdeild. ■
-----»--»■ ♦-
Audiboðar
komu nýs
AUDI hefur boðað að fyrir lok þessa
áratugar hefjist framleiðsla á nýrri
gerð álbíls og verður árleg fram-
leiðsla um 50 þúsund bílar.
Audi hefur þegar framleitt 5 þús-
und Audi A8 álbíla á þessu ári en
þeir eru smíðaðir í verksmiðju fyrir-
tækisins í Neckarsulm. Þetta er jafn-
mikill fjöldi A8 og var framleiddur
á öllu síðasta ári. Áætlanir gera ráð
fyrir að smíðaðir verði 15 þúsund
bílar á þessu ári. Ályfirbyggingin á
A8 er 40% léttari en samskonar yfir-
bygging úr stáli. ■