Morgunblaðið - 24.05.1995, Síða 1
fltargtutHafc
1995 M MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ \ BLAÐ V'
—
KNATTSPYRNA
1. deildarkeppnin hófst með miklum látum og óvæntum úrslitum
Þrír með þrennu og
þijú rauð spjöld
ÞAÐ má með sanni segja að 1. deildar-
keppnin í knattspyrnu hafi hafist með
miklum látum í gærkvöldi — óvænt
úrslit, nítján mörk, þar af náðu þrír
leikmenn að skora þrennu og þijú rauð
spjöld voru á lofti.
Keppnin hófst heldur betur með
óvæntum úrslitum, þegar nýliðar Leift-
urs lögðu Fram að velli, 0:4, i Laugar-
dalnum. Þar skoraði Jón Þór Andrés-
son þrjú mörk í fyrsta deildarleik sin-
um með Leiftri, en hann kom frá Val,
þar sem hann lék aðeins einn leik sl.
keppnistímabil, eftir fimm ára fjarveru
vegna meiðsla. Tveir Eyjamenn skor-
uðu einnig þijú mörk, þegar þeir unnu
óvæntan stórsigur, 8:1, gegn Vals-
mönnum. Tryggvi Guðmundsson, sem
Iék með KR sl. keppnistímabil, og ívar
Bjarklind, sem lék með KA sl. keppnis-
tímabil.
Enn ein óvæntu úrslitin áttu sér stað
í Vesturbænum, þar sem KR-ingar
máttu sætta sig við enn eitt tapið gegn
FH á heimavelli, 0:1. Nýliðar Grinda-
víkur töpuðu heima fyrir Keflavík, 1:2,
og Skagamenn lögðu Breiðablik að
velli, 2:0. Alls voru skoruð nítján mörk
í fyrstu umferð, að meðaltali tæplega
fjögur mörk í leik.
Arnar Grétarsson, fyrirliði Breiða-
bliks, fékk að sjá rauða spjaldið og
einnig þeif Hörður Már Magnússon,
Val og Jón Sveinsson, FH.
■ Frásögn / C3-C6
Guðrún setti ís-
landsmet í 100 m
grindahlaupi
GUÐRÚN Arnardóttir úr Ármanni setti íslands-
met í 100 m grindahlaupi á svæðismeistaramóti
háskóla í Suð-austur fylkjum Bandaríkjanna um
helgina. Guðrún hljóp á 13,32 sek. og bætti eigið
met, sem var 13,39 sek. — sett árið 1993. Þessi
árangur hennar er betri en B-Iágmarkið fyrir
heimsmeistaramótið í Gautaborg, sem verður í
ágúst — lágmarkið er 13,54 sek.
Guðrún varð í öðru sæti á eftir Kimberly Car-
son, sem hljóp á 13,23 sek. Þess má geta að Guð-
rún náði einnig B-Iágmarki í 400 m grinda-
hlaupi, er hún hljóp á 56,88 sek., sem er næst
besti tími sem íslensk kona hefur náð á vegalengd-
inni. Hún varð sigurvegari í hlaupinu, en í sjötta
sæti var Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE, á 60,03
sek.
Bogdan ráðinn
þjálfari í París
BOGDAN Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfari
íslands í handknattleik, er á förum til Parísar,
þar sem hann mun taka við þjálfun París St.
Germain Asnieres, liðinu sem Júlíus Jónasson lék
með. Gengið var frá ráðningu hans um helgina á
íslandi.
Núrnberg verður
áhuagamannalið
NÚRNBERG, sem bræðurnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir leika með, er eitt af fjórum liðum
sem missa sæti sitt í atvinnumannadeildunum —
1. og 2. deild — næsta keppnistímabil. Þýska knatt-
spyrnusambandið ákvað þetta á mánudaginn, en
hin liðin sem verða einnig að leika í áhugamanna-
deildum eru Dynamo Dresden, Hertha Berlín og
Saarbriiggen. Félögin fjögur hafa átt í fjárhags-
erfiðleikum og er það ástæðan fyrir því að liðin
eru sett út úr atvinnumannadeildunum. Þar sem
þrjú af þessum liðum eru í 2. deild hefur verið
ákveðið að ekkert lið falli úr deildinni í ár.
Ravelli hrópaði
„svarthaus"
THOMAS Ravelli landliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu lenti heldur betur í sviðsljósinu í 7. um-
ferð AUsvenskan um helgina þega Gautaborg lék
gegn AIK i Stokkhólmi. Eftir stimpingar í víta-
teig hans taldi hann einn miðvallarleikmann AIK,
Pascal Simpson, sem er dökkur á hörund, hafa
beitt bolabrögðum og öskraði til hans „svarthaus"
þannig að heyrðist langar leiðir upp í stúku.
Hefur þetta vakið feyknaathygli, ekki síst vegna
þess að sænska knattspyrnulandsliðið tók þátt í
gerð áróðursmyndbands gegn rasisma. Ravelli
hefur nú beðið Simpson formlega afsökunar, en
hátt settir menn innan knatspyrnusambandsins
hafa látið á það skína að um leikbann vegna þessa
geti orðið að ræða.
Ravelli hefur sagt að ummæli sín séu auðvitað
óafsakanleg, en bendir á að hann hafi verið kom-
inn gersamlega úr jafnvægi eftir fyrri hálfleik-
inn. Þá hafi hinn alræmdi stuðningsmannahópur
AIK, Black Army, verið fyrir aftan mark hans
og öskrað að honum miður falleg orð. Sænska
sjónvarpið hefur sýnt upptöku af framgöngu
Black Army og heyrast þar skýrt ýmis ókvæðis-
orð sem eingöngu eru gerð til þess að bijóta
menn niður andlega.
HANDKNATTLEIKUR
Þorbergur hættur með landsliðið
Morgunblaðið/Þorkell
Fyrsta þrennan
JÓN Þór Andrésson, sem
sækir hér að Birki Krístins-
syni, markverði Fram, sem
iék sinn 200. leik fyrir liðið,
varð fyrstur til að skora
þrennu í 1. deild — sín fyrstu
deildarmörk, þegar Leiftur
skellti Fram, 0:4. Jón Þór
hafði verið frá keppni vegna
meiðsla í fimm ár.
orbergur Aðalsteinsson til-
kynnti Ólafi B. Schram, for-
manni Handknattleikssambands
íslands, í gær að hann sæktist
ekki eftir því að halda áfram sem
landsliðsþjálfari íslands í hand-
knattleik. Þorbergur sagði við
Morgunblaðið að fyrir Heimsmeist-
arakeppnina hefði hann ákveðið
að standa eða falla með gengi liðs-
ins í keppninni og dæmið hefði
ekki gengið upp.
„Ég ákvað fyrir HM að gengi
dæmið ekki upp myndi ég hætta
og sú ákvörðun stendur. Ég hef
verið með liðið í fimm ár og vil líta
á tímann í heild sinni. Þetta hafa
verið mjög ánægjuleg fimm ár,
bæði árangurslega og líka varð-
andi aðra þætti í starfsemi HSÍ.“
Aðspurður um hvað nú tæki við
sagði Þorbergur: „Það er alveg
óljóst á þessari stundu.“
HANDKNATTLEIKUR: JASON OLAFSSON FER TIL BRIXEN / C2