Morgunblaðið - 24.05.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.05.1995, Qupperneq 1
fltargtutHafc 1995 M MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ \ BLAÐ V' — KNATTSPYRNA 1. deildarkeppnin hófst með miklum látum og óvæntum úrslitum Þrír með þrennu og þijú rauð spjöld ÞAÐ má með sanni segja að 1. deildar- keppnin í knattspyrnu hafi hafist með miklum látum í gærkvöldi — óvænt úrslit, nítján mörk, þar af náðu þrír leikmenn að skora þrennu og þijú rauð spjöld voru á lofti. Keppnin hófst heldur betur með óvæntum úrslitum, þegar nýliðar Leift- urs lögðu Fram að velli, 0:4, i Laugar- dalnum. Þar skoraði Jón Þór Andrés- son þrjú mörk í fyrsta deildarleik sin- um með Leiftri, en hann kom frá Val, þar sem hann lék aðeins einn leik sl. keppnistímabil, eftir fimm ára fjarveru vegna meiðsla. Tveir Eyjamenn skor- uðu einnig þijú mörk, þegar þeir unnu óvæntan stórsigur, 8:1, gegn Vals- mönnum. Tryggvi Guðmundsson, sem Iék með KR sl. keppnistímabil, og ívar Bjarklind, sem lék með KA sl. keppnis- tímabil. Enn ein óvæntu úrslitin áttu sér stað í Vesturbænum, þar sem KR-ingar máttu sætta sig við enn eitt tapið gegn FH á heimavelli, 0:1. Nýliðar Grinda- víkur töpuðu heima fyrir Keflavík, 1:2, og Skagamenn lögðu Breiðablik að velli, 2:0. Alls voru skoruð nítján mörk í fyrstu umferð, að meðaltali tæplega fjögur mörk í leik. Arnar Grétarsson, fyrirliði Breiða- bliks, fékk að sjá rauða spjaldið og einnig þeif Hörður Már Magnússon, Val og Jón Sveinsson, FH. ■ Frásögn / C3-C6 Guðrún setti ís- landsmet í 100 m grindahlaupi GUÐRÚN Arnardóttir úr Ármanni setti íslands- met í 100 m grindahlaupi á svæðismeistaramóti háskóla í Suð-austur fylkjum Bandaríkjanna um helgina. Guðrún hljóp á 13,32 sek. og bætti eigið met, sem var 13,39 sek. — sett árið 1993. Þessi árangur hennar er betri en B-Iágmarkið fyrir heimsmeistaramótið í Gautaborg, sem verður í ágúst — lágmarkið er 13,54 sek. Guðrún varð í öðru sæti á eftir Kimberly Car- son, sem hljóp á 13,23 sek. Þess má geta að Guð- rún náði einnig B-Iágmarki í 400 m grinda- hlaupi, er hún hljóp á 56,88 sek., sem er næst besti tími sem íslensk kona hefur náð á vegalengd- inni. Hún varð sigurvegari í hlaupinu, en í sjötta sæti var Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSE, á 60,03 sek. Bogdan ráðinn þjálfari í París BOGDAN Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfari íslands í handknattleik, er á förum til Parísar, þar sem hann mun taka við þjálfun París St. Germain Asnieres, liðinu sem Júlíus Jónasson lék með. Gengið var frá ráðningu hans um helgina á íslandi. Núrnberg verður áhuagamannalið NÚRNBERG, sem bræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir leika með, er eitt af fjórum liðum sem missa sæti sitt í atvinnumannadeildunum — 1. og 2. deild — næsta keppnistímabil. Þýska knatt- spyrnusambandið ákvað þetta á mánudaginn, en hin liðin sem verða einnig að leika í áhugamanna- deildum eru Dynamo Dresden, Hertha Berlín og Saarbriiggen. Félögin fjögur hafa átt í fjárhags- erfiðleikum og er það ástæðan fyrir því að liðin eru sett út úr atvinnumannadeildunum. Þar sem þrjú af þessum liðum eru í 2. deild hefur verið ákveðið að ekkert lið falli úr deildinni í ár. Ravelli hrópaði „svarthaus" THOMAS Ravelli landliðsmarkvörður í knatt- spyrnu lenti heldur betur í sviðsljósinu í 7. um- ferð AUsvenskan um helgina þega Gautaborg lék gegn AIK i Stokkhólmi. Eftir stimpingar í víta- teig hans taldi hann einn miðvallarleikmann AIK, Pascal Simpson, sem er dökkur á hörund, hafa beitt bolabrögðum og öskraði til hans „svarthaus" þannig að heyrðist langar leiðir upp í stúku. Hefur þetta vakið feyknaathygli, ekki síst vegna þess að sænska knattspyrnulandsliðið tók þátt í gerð áróðursmyndbands gegn rasisma. Ravelli hefur nú beðið Simpson formlega afsökunar, en hátt settir menn innan knatspyrnusambandsins hafa látið á það skína að um leikbann vegna þessa geti orðið að ræða. Ravelli hefur sagt að ummæli sín séu auðvitað óafsakanleg, en bendir á að hann hafi verið kom- inn gersamlega úr jafnvægi eftir fyrri hálfleik- inn. Þá hafi hinn alræmdi stuðningsmannahópur AIK, Black Army, verið fyrir aftan mark hans og öskrað að honum miður falleg orð. Sænska sjónvarpið hefur sýnt upptöku af framgöngu Black Army og heyrast þar skýrt ýmis ókvæðis- orð sem eingöngu eru gerð til þess að bijóta menn niður andlega. HANDKNATTLEIKUR Þorbergur hættur með landsliðið Morgunblaðið/Þorkell Fyrsta þrennan JÓN Þór Andrésson, sem sækir hér að Birki Krístins- syni, markverði Fram, sem iék sinn 200. leik fyrir liðið, varð fyrstur til að skora þrennu í 1. deild — sín fyrstu deildarmörk, þegar Leiftur skellti Fram, 0:4. Jón Þór hafði verið frá keppni vegna meiðsla í fimm ár. orbergur Aðalsteinsson til- kynnti Ólafi B. Schram, for- manni Handknattleikssambands íslands, í gær að hann sæktist ekki eftir því að halda áfram sem landsliðsþjálfari íslands í hand- knattleik. Þorbergur sagði við Morgunblaðið að fyrir Heimsmeist- arakeppnina hefði hann ákveðið að standa eða falla með gengi liðs- ins í keppninni og dæmið hefði ekki gengið upp. „Ég ákvað fyrir HM að gengi dæmið ekki upp myndi ég hætta og sú ákvörðun stendur. Ég hef verið með liðið í fimm ár og vil líta á tímann í heild sinni. Þetta hafa verið mjög ánægjuleg fimm ár, bæði árangurslega og líka varð- andi aðra þætti í starfsemi HSÍ.“ Aðspurður um hvað nú tæki við sagði Þorbergur: „Það er alveg óljóst á þessari stundu.“ HANDKNATTLEIKUR: JASON OLAFSSON FER TIL BRIXEN / C2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.