Morgunblaðið - 24.05.1995, Page 3

Morgunblaðið - 24.05.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 C 3 KIMATTSPYRNA „Vorum eins og böm í höndunum á þeim“ - sagði Marteinn Geirsson, þjálfari Fram, eftir að leikmenn Leifturs höfðu komið, séð og sigrað í Laugardalnum, 0:4 „ÞEIR voru einfaldlega betri á öllum sviðum — við vorum eins og börn í höndunum á þeim,“ sagði Marteinn Geirsson, þjálf- ari Fram, eftir að nýliðar Leifturs höfðu unnið óvæntan stórsig- ur, 0:4, á Valbjarnarvelli í Laugardal. „Ég hreinlega átta mig ekki á hvernig þetta gat gerst — það var góð stemmning i hópnum fyrir leikinn og leikmenn ákveðnir að leggja sig hundr- aðprósent fram. Við vissum að leikurinn yrði erfiður, en ég reiknaði ekki með þessum stóra skelli. Við verðum að setjast niður fyrir næsta leik — það er stuttur tfmi til stefnu; við mætum Eyjamönnum á laugardaginn," sagði Marteinn. Sigmundur Ó. Steinarsson skrífar Oskar Ingimundarson, þjálfari Leifturs, var ánaégður eftir leikinn. „Við höfðum heppnina með okkur, því að þátt fyrir að við höfðum leikið illa í lok fyrri hálfleiks og byrjun seinni hálfleiks, náðu Framarar ekki að nýta sér það og komast inn í leikinn. Þetta var of langur slæmur kafli hjá okk- ur og ef við leyfum okkur að falla niður á það plan sem við fórum á, verður okkur refsað. Það er gott að byija með sigri, en það þýðir ekki að fagna lengi — við eigum erfiðan leik gegn KR á laugardag- inn,“ sagði Óskar, sem var ánægður með baráttu sinna manna. Kom Óskari á óvart hvað Fram- arar voru daprir? „Nei, ég veit að þeir hafa átt í erfiðleikum með að stilla upp sínu besta liði á undirbún- ingstímabilinu vegna meiðsla leik- manna. Þegar þeir eru búnir að því, verður Framliðið sterkt. Það er ekki hægt að dæma eitt né neitt strax, því að þetta var aðeins fyrsti leikur liðanna af átján sem fram- undan eru.“ Leiftursmenn sýndu mikla bar- áttu í leiknum og voru þeir mun grimmari en Framarar — náðu yfír- höndinni á miðjunni, þar sem leik- menn Fram bökkuðu of mikið, þannig að leikmenn Leifturs fengu frið til að byggja upp sóknarlotur sínar. Þegar Leiftursmenn skoruðu sitt annað mark gegn gangi leiks- ins, var eins og allur vindur færi úr leikmönnum Fram. Þess má geta að leikmenn Leift- urs voru ekki langt frá því að bæta við mörkum í fyrri hálfleik. Jón Þór Andrésson, sem skoraði þrjú mörk fyrir þá, átti skot í stöng og þá varði Birkir Kristinsson skot frá Ragnari Gíslasyni, með því að slá knöttinn i þverslá og aftur fyrir endamörk. Ríkharður Daðason hjá Fram fékk nokkur ágæt tækifæri til að skora, en var ekki á skotskón- um. Baráttan var aðalsmerki Leift- ursmanna. Þorvaldur Jónsson var öruggur í markinu og Ragnar Gíslason lék stórt hlutverk fyrir framan hann. Gunnar Oddsson gerði marga laglega hluti á miðj- unni og þá var Jón Þór Andrésson eitraður í sókn. Þeir Pétur B. Jóns- son og Gunnar Már Másson eru alltaf hættulegir — stórir og sterk- ir sóknarleikmenn. 0B vM Eftir þunga skókn Leiftursmanna á 31 mín., bjargaði Krist- ■ | ján Jónsson skoti frá Jóni Þór Andréssyni á marklínu — knötturinn barst aftur út til Jóns Þórs, sem var staddur á auðum sjó innan markteigs og þakkaði hann fyrir sig með því að skora. 0B Pétur Bjöm Jónsson átti skot að marki Fram á 58. mín. — ■ ifcknötturinn barst til Jóns Þórs, sem var við markteigshom og skoraði hann úr þröngri stöðu — knötturinn fór f netið við nærstöng. 0B Sigurbjörn Jakobsson átti langa sendingu fram völlinn á ■ O 74 mín. Jón Þór geystist á eftir knettinum, komst með hann inn fyrir vörn Fram og skoraði framhjá Birki Kristinssyni, út við fjærstöng. 0B ií Ragnar Gíslason lék með knöttinn upp vinstri kantinn á ■®W77. mín., sendi knöttinn fyrir mark Fram, þar sem Páll Guðmundsson var á auðum sjó og skoraði örugglega, með því að senda knöttinn út við stöng. Dansinn byrjadur Morgunblaðið/Þorkell DANSINN er byrjaður í 1. deildarkeppninni. Hér taka þelr Þorbjörn Atll Svelnsson, Fram, og Sigurbjörn Jakobsson, Leiftri, sporlð. „Ég hafði heppnina með mér“ JÓN ÞÓR Andrésson skoraði fyrsta mark 1. deildarkeppn- innar og hann gerði betur — hann skoraði þijú mörk gegn Fram. „Ég hafði heppnina með mér — reiknaði ekki með að skora þrjú mörk,“ sagði Jón Þór, sem var að vonum kátur eftir leikinn. Jón Þór var að leikasinn fyrsta deild- arleik fyrir Leiftur, en hann lék einn ieik fyrir Val sl. keppnistímabil, eftir að hafa „verið frá vegna meiðsla í nára í fimm ár, eða frá 1989 þegar hann lék fimm leiki fyrir Val. ■ ÞEGAR leikmenn Fram og Leif- urs gengu til leiks, gengu tíu ungir strákar með þeim inná Valbjamar- völl — klæddir búningum 1. deildarl- iðanna tíu. ■ EGGERT Magnússon, formaður KSÍ, setti mótið með stuttri ræðu. ■ EINAR Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Sjóva/Almennar var heiðursgestur leiksins og tók hann upphafsspyrnu 1. deildarkeppninnar, sem er styrkt af Sjóvá/Almennar. ■ BIRKIR Kristinsson, landsliðs- markvörður úr Fram, fékk blómvönd fyrir leikinn — hann lék sinn 200. meistaraflokksleik með Fram. ■ TVEIR af leikmönnum Leiknis — úr byrjunarliði liðsins léku ekki með, þar sem þeir tóku út leikbann. Það vora þeir Sverrir Sverrisson og Júlíus Tryggvason. ■ AÐEINS tveir af leikmönnum Leifturs í byijunarliði, eru frá Ólafs- firði — Þorvaldur Jónsson, mark- vörður og Sigurbjörn Jakobsson. ■ LEIFURSMENN lögðu Fram- ara að velli, 5:2, í æfingamóti fyrir stuttu. ■ LEIKMENN Leifturs, sem mæta KR á Ólafsfirðj á laugardag- inn, fóru í flugi til Ólafsfjarðar í gærkvöldi, eða eftir að þeir voru búnir að sjá leik KR og FH. Leik- mennirnir eru allir að koma saman fyrir norðan — í fyrsta skipti í ár. ■ GUNNAR Oddsson, miðvallar- spilari Leifturs, varð fyrstur til að sjá gula spjaldið í 1. deildarkeppn- inni. Bragi Bergmann sýndi honum það eftir átta mín. í leiknum gegn Fram. ÚRSLITALEIKURINN UM EVRÓPUBIKARINN LEIÐIN í ÚRSLITIN: Meistaradeildin: D riðíll: Heima Úti AC Milan 2-0 2-0 AEKAþena Salzburg 2-0 1-1 2-1 0-0 Lokaslaðan: Mðrk Slig Ajax Amsterdam 9:2 10 AC Milan 6:5 5 Austria Salzburg 4:6 5 AEK Aþena 3:9 2 8 liða úrslit: Hajduk Split 3-0 0-0 Undanúrslit: Bayern Múnchen 5-2 0-0 AJAX AMSTERDAM Þjálfarí Louls van Gaal Liklegt byrjunarlið: Edwin van der Sar Michael Reiziger Danny Blind Frank Rijkaard Frank de Boer RonalddeBoer Clarence Seedort Jari Litmanen FinidiGeorge Nwankwo Kanu Marc Overmars Miðvikudaginn 24. maí 1995 Emst Happel leikvangurirtn í Vín Kl.18.30 A.C. MILAN MÍLANÓ Þjálfan: Fabio Capello Lfklegt byrjunarlið: Sebastiano Rossi Christian Panucci Franco Baresi Alessandro Costacurta Paolo Maldini Roberto Donadoni Demetrio Albertini Marcei Desailly Zvonimir Boban Dejan Savicevic Marco Simone LEIÐIN í ÚRSLITIN: Meistaradeildin: D riðill: Heima Úli Ajax 0-2 0-2 Salzburg 3-0 * 1-0 AEKAþena 2-1 0-0 Lokaslaðan: Mörk Stig Ajax Amsterdam 9:2 10 AC Milan 6:5 5 Austria Salzburg 4:6 5 AEKAþena 3:9 2 8 liða úrslit: Bentica 2-0 0-0 Undanúrslit: ParisSG 2-0 1-0 * Tvö stig dregin afAC Milan vegna óláta áhorfenda, en úrslit leiksins þó látin standa óbreytt Stefnir í erfiða titilvöm AC Milan Ajax og AC Milan leika til úrslita ■ í Evrópukeppni meistaraliða og verður leikurinn í Vínarborg í kvöld. ítalska liðið á titil að veija, vann Barcelona 4:0 í úrslitum í fyrra. Það byijaði ekki sannfærandi í keppninni en sigraði Benfíca og PSG örugglega í átta liða úrslitum og undanúrslitum. Ajax og AC Milan vora saman í riðli og vann Ajax báða leikina 2:0 en þjálfararnir segja það sem á undan sé gengið hafi ekkert að segja í kvöld. „AC Milan hefur bætt sig mikið síðan síðast liðið haust og teflir fram breyttu liði,“ sagði Loius van Gaal, þjáifari hollenska liðsins. „Það sem gerðist í fyrra hefur ekkert með þenn- an leik að gera.“ Hollendingurinn Frank Rijkaard hjá Ajax hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir leikinn en hann á 15 ára feril að baki. Fyrir fímm áram gerði hann sigurmark AC Milan á sama velli í 1:0 sigri gegn Benfíca í úrslitum meistarakeppninnar og varð AC Milan þá meistari í fímmta sinn. „Þetta verð- ur aðeins draumaúrslitaleikur fyrir mig ef Ajax sigrar," sagði hann. Mikið hefur verið gert úr ungu og efnilegu liði Ajax og bíða margir spenntir eftir því að sjá hvernig því vegnar gegn reynslumiklu liði AC Milan sem leikur í fímmta sinn til úrslita á síðustu sjö árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.