Morgunblaðið - 24.05.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 C 3
KIMATTSPYRNA
„Vorum eins og böm
í höndunum á þeim“
- sagði Marteinn Geirsson, þjálfari Fram,
eftir að leikmenn Leifturs höfðu komið,
séð og sigrað í Laugardalnum, 0:4
„ÞEIR voru einfaldlega betri á öllum sviðum — við vorum eins
og börn í höndunum á þeim,“ sagði Marteinn Geirsson, þjálf-
ari Fram, eftir að nýliðar Leifturs höfðu unnið óvæntan stórsig-
ur, 0:4, á Valbjarnarvelli í Laugardal. „Ég hreinlega átta mig
ekki á hvernig þetta gat gerst — það var góð stemmning i
hópnum fyrir leikinn og leikmenn ákveðnir að leggja sig hundr-
aðprósent fram. Við vissum að leikurinn yrði erfiður, en ég
reiknaði ekki með þessum stóra skelli. Við verðum að setjast
niður fyrir næsta leik — það er stuttur tfmi til stefnu; við
mætum Eyjamönnum á laugardaginn," sagði Marteinn.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrífar
Oskar Ingimundarson, þjálfari
Leifturs, var ánaégður eftir
leikinn. „Við höfðum heppnina með
okkur, því að þátt
fyrir að við höfðum
leikið illa í lok fyrri
hálfleiks og byrjun
seinni hálfleiks,
náðu Framarar ekki að nýta sér
það og komast inn í leikinn. Þetta
var of langur slæmur kafli hjá okk-
ur og ef við leyfum okkur að falla
niður á það plan sem við fórum á,
verður okkur refsað. Það er gott
að byija með sigri, en það þýðir
ekki að fagna lengi — við eigum
erfiðan leik gegn KR á laugardag-
inn,“ sagði Óskar, sem var ánægður
með baráttu sinna manna.
Kom Óskari á óvart hvað Fram-
arar voru daprir? „Nei, ég veit að
þeir hafa átt í erfiðleikum með að
stilla upp sínu besta liði á undirbún-
ingstímabilinu vegna meiðsla leik-
manna. Þegar þeir eru búnir að
því, verður Framliðið sterkt. Það
er ekki hægt að dæma eitt né neitt
strax, því að þetta var aðeins fyrsti
leikur liðanna af átján sem fram-
undan eru.“
Leiftursmenn sýndu mikla bar-
áttu í leiknum og voru þeir mun
grimmari en Framarar — náðu yfír-
höndinni á miðjunni, þar sem leik-
menn Fram bökkuðu of mikið,
þannig að leikmenn Leifturs fengu
frið til að byggja upp sóknarlotur
sínar. Þegar Leiftursmenn skoruðu
sitt annað mark gegn gangi leiks-
ins, var eins og allur vindur færi
úr leikmönnum Fram.
Þess má geta að leikmenn Leift-
urs voru ekki langt frá því að bæta
við mörkum í fyrri hálfleik. Jón Þór
Andrésson, sem skoraði þrjú mörk
fyrir þá, átti skot í stöng og þá
varði Birkir Kristinsson skot frá
Ragnari Gíslasyni, með því að slá
knöttinn i þverslá og aftur fyrir
endamörk. Ríkharður Daðason hjá
Fram fékk nokkur ágæt tækifæri
til að skora, en var ekki á skotskón-
um.
Baráttan var aðalsmerki Leift-
ursmanna. Þorvaldur Jónsson var
öruggur í markinu og Ragnar
Gíslason lék stórt hlutverk fyrir
framan hann. Gunnar Oddsson
gerði marga laglega hluti á miðj-
unni og þá var Jón Þór Andrésson
eitraður í sókn. Þeir Pétur B. Jóns-
son og Gunnar Már Másson eru
alltaf hættulegir — stórir og sterk-
ir sóknarleikmenn.
0B vM Eftir þunga skókn Leiftursmanna á 31 mín., bjargaði Krist-
■ | ján Jónsson skoti frá Jóni Þór Andréssyni á marklínu —
knötturinn barst aftur út til Jóns Þórs, sem var staddur á auðum sjó
innan markteigs og þakkaði hann fyrir sig með því að skora.
0B Pétur Bjöm Jónsson átti skot að marki Fram á 58. mín. —
■ ifcknötturinn barst til Jóns Þórs, sem var við markteigshom
og skoraði hann úr þröngri stöðu — knötturinn fór f netið við nærstöng.
0B Sigurbjörn Jakobsson átti langa sendingu fram völlinn á
■ O 74 mín. Jón Þór geystist á eftir knettinum, komst með
hann inn fyrir vörn Fram og skoraði framhjá Birki Kristinssyni, út
við fjærstöng.
0B ií Ragnar Gíslason lék með knöttinn upp vinstri kantinn á
■®W77. mín., sendi knöttinn fyrir mark Fram, þar sem Páll
Guðmundsson var á auðum sjó og skoraði örugglega, með því að
senda knöttinn út við stöng.
Dansinn byrjadur
Morgunblaðið/Þorkell
DANSINN er byrjaður í 1. deildarkeppninni. Hér taka þelr
Þorbjörn Atll Svelnsson, Fram, og Sigurbjörn Jakobsson,
Leiftri, sporlð.
„Ég hafði
heppnina
með mér“
JÓN ÞÓR Andrésson skoraði
fyrsta mark 1. deildarkeppn-
innar og hann gerði betur —
hann skoraði þijú mörk gegn
Fram. „Ég hafði heppnina
með mér — reiknaði ekki með
að skora þrjú mörk,“ sagði
Jón Þór, sem var að vonum
kátur eftir leikinn. Jón Þór
var að leikasinn fyrsta deild-
arleik fyrir Leiftur, en hann
lék einn ieik fyrir Val sl.
keppnistímabil, eftir að hafa
„verið frá vegna meiðsla í nára
í fimm ár, eða frá 1989 þegar
hann lék fimm leiki fyrir Val.
■ ÞEGAR leikmenn Fram og Leif-
urs gengu til leiks, gengu tíu ungir
strákar með þeim inná Valbjamar-
völl — klæddir búningum 1. deildarl-
iðanna tíu.
■ EGGERT Magnússon, formaður
KSÍ, setti mótið með stuttri ræðu.
■ EINAR Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Sjóva/Almennar var
heiðursgestur leiksins og tók hann
upphafsspyrnu 1. deildarkeppninnar,
sem er styrkt af Sjóvá/Almennar.
■ BIRKIR Kristinsson, landsliðs-
markvörður úr Fram, fékk blómvönd
fyrir leikinn — hann lék sinn 200.
meistaraflokksleik með Fram.
■ TVEIR af leikmönnum Leiknis
— úr byrjunarliði liðsins léku ekki
með, þar sem þeir tóku út leikbann.
Það vora þeir Sverrir Sverrisson
og Júlíus Tryggvason.
■ AÐEINS tveir af leikmönnum
Leifturs í byijunarliði, eru frá Ólafs-
firði — Þorvaldur Jónsson, mark-
vörður og Sigurbjörn Jakobsson.
■ LEIFURSMENN lögðu Fram-
ara að velli, 5:2, í æfingamóti fyrir
stuttu.
■ LEIKMENN Leifturs, sem
mæta KR á Ólafsfirðj á laugardag-
inn, fóru í flugi til Ólafsfjarðar í
gærkvöldi, eða eftir að þeir voru
búnir að sjá leik KR og FH. Leik-
mennirnir eru allir að koma saman
fyrir norðan — í fyrsta skipti í ár.
■ GUNNAR Oddsson, miðvallar-
spilari Leifturs, varð fyrstur til að
sjá gula spjaldið í 1. deildarkeppn-
inni. Bragi Bergmann sýndi honum
það eftir átta mín. í leiknum gegn
Fram.
ÚRSLITALEIKURINN UM EVRÓPUBIKARINN
LEIÐIN í ÚRSLITIN:
Meistaradeildin:
D riðíll: Heima Úti
AC Milan 2-0 2-0
AEKAþena Salzburg 2-0 1-1 2-1 0-0
Lokaslaðan: Mðrk Slig
Ajax Amsterdam 9:2 10
AC Milan 6:5 5
Austria Salzburg 4:6 5
AEK Aþena 3:9 2
8 liða úrslit: Hajduk Split 3-0 0-0
Undanúrslit:
Bayern Múnchen 5-2 0-0
AJAX
AMSTERDAM
Þjálfarí
Louls van Gaal
Liklegt byrjunarlið:
Edwin van der Sar
Michael Reiziger
Danny Blind
Frank Rijkaard
Frank de Boer
RonalddeBoer
Clarence Seedort
Jari Litmanen
FinidiGeorge
Nwankwo Kanu
Marc Overmars
Miðvikudaginn 24. maí 1995
Emst Happel leikvangurirtn í Vín
Kl.18.30
A.C. MILAN
MÍLANÓ
Þjálfan:
Fabio Capello
Lfklegt byrjunarlið:
Sebastiano Rossi
Christian Panucci
Franco Baresi
Alessandro Costacurta
Paolo Maldini
Roberto Donadoni
Demetrio Albertini
Marcei Desailly
Zvonimir Boban
Dejan Savicevic
Marco Simone
LEIÐIN í ÚRSLITIN:
Meistaradeildin:
D riðill: Heima Úli
Ajax 0-2 0-2
Salzburg 3-0 * 1-0
AEKAþena 2-1 0-0
Lokaslaðan: Mörk Stig
Ajax Amsterdam 9:2 10
AC Milan 6:5 5
Austria Salzburg 4:6 5
AEKAþena 3:9 2
8 liða úrslit:
Bentica 2-0 0-0
Undanúrslit:
ParisSG 2-0 1-0
* Tvö stig dregin afAC Milan vegna óláta áhorfenda, en úrslit leiksins þó látin standa óbreytt
Stefnir í erfiða
titilvöm AC Milan
Ajax og AC Milan leika til úrslita
■ í Evrópukeppni meistaraliða og
verður leikurinn í Vínarborg í kvöld.
ítalska liðið á titil að veija, vann
Barcelona 4:0 í úrslitum í fyrra. Það
byijaði ekki sannfærandi í keppninni
en sigraði Benfíca og PSG örugglega
í átta liða úrslitum og undanúrslitum.
Ajax og AC Milan vora saman í riðli
og vann Ajax báða leikina 2:0 en
þjálfararnir segja það sem á undan
sé gengið hafi ekkert að segja í kvöld.
„AC Milan hefur bætt sig mikið
síðan síðast liðið haust og teflir fram
breyttu liði,“ sagði Loius van Gaal,
þjáifari hollenska liðsins. „Það sem
gerðist í fyrra hefur ekkert með þenn-
an leik að gera.“
Hollendingurinn Frank Rijkaard hjá
Ajax hefur ákveðið að leggja skóna á
hilluna eftir leikinn en hann á 15 ára
feril að baki. Fyrir fímm áram gerði
hann sigurmark AC Milan á sama
velli í 1:0 sigri gegn Benfíca í úrslitum
meistarakeppninnar og varð AC Milan
þá meistari í fímmta sinn. „Þetta verð-
ur aðeins draumaúrslitaleikur fyrir
mig ef Ajax sigrar," sagði hann.
Mikið hefur verið gert úr ungu og
efnilegu liði Ajax og bíða margir
spenntir eftir því að sjá hvernig því
vegnar gegn reynslumiklu liði AC
Milan sem leikur í fímmta sinn til
úrslita á síðustu sjö árum.