Morgunblaðið - 24.05.1995, Side 4
4 C MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Martröð Vals-
manna í Eyjum
VALSMENN fengu herfilega
útreið þegar þeir sóttu Eyja-
menn heim f gærkvöldi. Vest-
mannaeyingar réðu lögum og
lofum allan leikinn og 8:1 sigur
var sjst of stór. Nýliðarnir f liði
ÍBV, ívar Bjarklind og Tryggvi
Guðmundsson, voru í aðal-
hlutverkum með sjö mark
saman.
Strax á fyrstu mínútunni var
ljóst að Eyjamenn ætluðu sér
ekkert nema signr og staðfestu það
með tveimur mörk-
Stefán um innan fjögurra
Stefánsson mínútna. Þeir leyfðu
skrifar Valsmönnum samt
að halda boltanum
aftarlega á miðjunni um stund,
hirtu hann þá af þeim og brunuðu
í sókn og nokkrum mínútum síðar
komu þriðja og fjórða markið án
þess að gestirnir næðu að komast
í færi. Eftir þennan skell í byrjun
var erfitt fyrir Valsmenn að ná upp
baráttu enda fengu þeir engan frið
fyrir Eyjamönnum sem tvíefldust
við hvert mark en tókst ekki að
gera fleiri fyrir leikhlé þrátt fyrir
góð færi.
Síðari hálfleikur byijaði einnig
með tveimur mörkum Eyjamanna
innan fimm mínútna, staðan orðin
6:0, og ekki bætti úr skák þegar
Valsmaðurinn Hörður Már fékk að
líta rauða spjaldið. Valsmenn
reyndu aðeins að klóra í bakkann
og tókst að skora nokkrum mínút-
um síðar en glæsimark Trygga
strax á eftir kæfði litla neistann
hjá þeim og vindurinn lak úr Valsl-
iðinu. Það sem eftir lifði leiks fór
að mestu fram fyrir framan mark
Vals þar sem Eyjamenn áttu hvert
tækifærið af öðru en Lárus Sigurðs-
son markvörður sá við þeim. Stór-
kostlegt lokamark Tryggva var þó
sanngjarn bónus fyrir vel unnið
verk.
Eyjamenn áttu sigurinn sannar-
lega skilinn fyrir geysilega baráttu
í 90 mínútur. Þeir gáfu Valsmönn-
um falsk öryggi, þegar gestirnir
fengu að vera með boltann smá-
stund á miðjunni, en brunuðu síðan
yfir þá. Lítið reyndi á Friðrik í
markinu en hann greip inní þegar
þurfti. Aðeins nieira reyndi á vama-
mennina en miðjuspilararnir Ingi
Sigurðsson og Tryggvi Guðmunds-
son ásamt Rúti Snorrasyni tókst
að halda hlut sínum á miðjunni og
snöggar árangursríkar sóknir Vest-
mannaeyinga byijuðu yfirleitt á
þeim. Ef þetta er sýnishorn af því
hvernig ÍBV ætlar að gera í sum-
ar, er nokkuð ljóst að öll lið í deild-
inni mega gæta sín.
Valsmenn voru daufir í byrjun
og ekki skánaði það að láta valta
yfir sig með hveiju markinu á
fætur öðru. Þeir fengu litlu sem
engu ráðið á vellinum og virtust
utanveltu. Það var aðeins Lárus í
markinu sem reyndi sitt besta, fékk
að vísu á sig átta mörk en bjarg-
aði liði sínu frá enn meiri hneisu.
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Þeir gerðu sex
NYLIÐARNIR í liðið iBV, Ivar Bjarklind, (t.v.) og Tryggvi Guð-
mundsson, (t.h.) léku Valsvörnina oft grátt í gærkvöldi og
skoruðu samtals sex mörk. Þar á meðal gerðl Tryggvi tvö
með sannkölluðum þrumufleygum af löngu færi.
0STRAX á þriðju mínútu skaust Rútur Snorrason upp hægri
kantinn og góð fyrirgjöf hans rataði beint á Tryggva Guð-
mundsson sem skaliaði boltann inn, 1:0
Bjarklind sem renndi boltanum framhjá Lárusi Sigurðssyni markverði
Vals og staðan orðin 2:0
3a ^\ÍVAR Bjarklind var aftur á ferðinni á 24. mínútu. Þá braust
■ WLeifur Geir Hafsteinsson upp að endamörkum rétt við víta-
teig Vals og renndi út á ívar sem renndi aftur vinstra megin við Lár-
us markvörð, 3:0.
boltinn milli manna þar til Rútur Snorrason kom aðvífandi og skailaði
í hornið og staðan orðinn 4:0.
5>#\EYJAMENN byijuðu síðari hálfleikinn eins og þann fyrri;
■ Umeð marki strax í upphafi eða á 48. mínútu. Þá hrökk
boltinn til Ivars af vamamanni Vals en skot ívars rakst í Tryggva
og þaðan í markið, 5:0.
50. mínútu bætti Dragan Manojlovic við sjötta marki
■ %#Vestmannaeyinga þegar þrumuskot hans úr aukaspyrnu
rétt utan við vítateigshomið rataði uppí efra homið í marki Vals, óveij-
andi fyrir Lárus í markinu.
6m "í ÞVERT gegn gangi leiksins minnkuðu Valsmenn muninn
■ I með marki á 56. mlnútu þegar Stewart Beards skallaði
aftur fyrir sig sendingu frá hægri, beint á Kristinn Lárusson sem
skoraði.
7m AÐEINS þremur mínútum síðar,, á 59. mínútu, gerði Tryggi
■ | sitt annað mark með þrumufieyg iangt fyrir utan vítateig,
óveijandi fyrir Lárus markvörð.
8a 4 EF mönum hefur þótt þriðja mark Trygga faliegt gerði
■ I hann enn betur þegar 6 mínútur voru tii leiksloka. Hann
var að spila langt fyrir utan teig, líklega um 30 metra frá marki,
þegar jóvænt þrumuskot hans rataði í vinstra homið og innsiglaði 8:1
sigur ÍBV.
„Baráttan í
sumar til-
einkuð
minningu
Lárusar og
sameining-
unni“
ÞETTA var gott, við vorum
betra liðið og áttum sigur-
inn, sem var síst of stór,
sannarlega skilinn,“ sagði
Atli Eðvaldsson þjálfari ÍBV
eftir 8:1 sigur sinna drengja
á Val í fyrsta leik, en var
jarðbundinn, „við eigum
sjálfir eftir að fá skell í sum-
ar en þetta lið á framtíðan
fyrir sér, sérstaklega ef þeir
fá góðan stuðning eins og í
kvöld en líka þegar illa
gengur. Það er hægt að
koma þessu liði í toppbarátt-
una á þremur árum. En bar-
áttan í sumar verður tileink-
uð minningu Lárusar Jak-
obssonar og sameiningu
Þórs og Týs.“
Fyrirliðinn <
ÓLAUR Þórðarson kom mönnum sínum í ÍA á sporið í lok fyrri hál
fagnar hann fyrra markinu og gefur til kynna að þau verði tvö, Ha
gleðinni en Breiðabliksmaðurinn Arnar Gré
X
Islandsmeistararnir hófu titil
Skagamenn
ÍSLANDSMEISTARAR ÍA hófu tit-
ilvörnina með glæsibrag en þrátt
fyrir snilldarleik og ótal marktæki-
færi unnu þeir Breiðablik aðeins
2:0 á Akranesvelli eftir að glæsi-
leg, yfirbyggð stúka hafði verið
tekin formlega í notkun. Meistar-
arnir koma greinilega mjög vel
undirbúnir til móts og verða erfið-
ir viðureignar í sumar með sama
áframhaldi en ástæða er til að
ætla að baráttan verði erfið hjá
Kópavogsmönnum.
Skagamenn höfðu undirtökin allan
fyrri hálfleik og fór leikurinn að
mestu fram á vallarhelmingi Breiða-
bliks þó gestirnir væru
Steinþór oft snöggir í gagnsókn-
Guðbjartsson um en þeir fengu fímm
skrifar homspymur gegn
fráAkranesi tveimur Skagamanna í
hálfleiknum. Heimamenn fengu mörg
góð færi en ýmist vora þeir of bráðlát-
ir, óheppnir eða Kardaklija sá við þeim
með frábærri markvörslu.
Vængmenn ÍA nýttu vel breiddina
og Dejan Stjoic var einn fremstur
Skagamanna en það virtist skapa næga
Skagamenn þurftu lítið að hafa fyr- „Ég er mjög sáttur við þetta,“ sagði
ir sigrinum gegn Breiðabliki og hann við Morgunblaðið. „Við vomm á
eftir leik mátti alveg eins halda að létt hælunum á kafla í fyrri hálfleik en eft-
æfing væri að baki frekar en alvarleg- ir að við náðum að bijóta ísinn var
ur leikur í titilvörninni. Logi Ólafsson þetta frekar auðvelt, Það er mjög já-
stjórnaði liðinu í fyrsta sinn í deildinni kvætt að ná að skapa öll þessi færi og
og hann var að vonum ánægður með klaufaskapur að nýta ekki fleiri en það
byijunina. kemur og ég er ekki hræddur við fram-
hættu því hvað eftir annað fékk hann
boltann og var óheppinn að koma hon-
um ekki rétta leið. Eftir að nokkrar
fyrirgjafir Haraldar Ingólfssonar frá
vinstri höfðu misheppnast - boltinn fór
yfirleitt of stutt - leiddist fyrirliðanum
Ólafi Þórðarsyni þófið og tók hann
aukaspyrnu frá vinstri kantinum rétt
utan vítateigs. Stjoic, sem var á móts
við fjærstöng, skallaði út og til hliðar
á Sigurð Jónsson sem gaf aftur fyrir
markið. Blikum tókst ekki almennilega
að hreinsa frá og Ólafur Adolfsson kom
aðvífandi en skallaði í slá. Stjoic var
fyrstur áð átta sig en skallaði einni í
slá. Óheppnin algjör en Skagamenn
vora komnir á bragðið og fyrirliðinn
skoraði í þar næstu sókn. Stjoic fékk
síðan tvö dauðafæri áður en flautað
var til hálfleiks, hitti boltann ilia í fyrra
skiptið en Kardaklija varði með glæsi-
brag einn á móti einum í seinna skiptið.
Einstefna
Segja má að yfirburðir ÍA hafi ver-
ið miklir í fyrri háifleik en einstefnan
var algjör eftir hlé. Spilið var þá mun
markvissar-a og hraðára og Blikar
vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið.