Morgunblaðið - 24.05.1995, Síða 4

Morgunblaðið - 24.05.1995, Síða 4
4 C MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Martröð Vals- manna í Eyjum VALSMENN fengu herfilega útreið þegar þeir sóttu Eyja- menn heim f gærkvöldi. Vest- mannaeyingar réðu lögum og lofum allan leikinn og 8:1 sigur var sjst of stór. Nýliðarnir f liði ÍBV, ívar Bjarklind og Tryggvi Guðmundsson, voru í aðal- hlutverkum með sjö mark saman. Strax á fyrstu mínútunni var ljóst að Eyjamenn ætluðu sér ekkert nema signr og staðfestu það með tveimur mörk- Stefán um innan fjögurra Stefánsson mínútna. Þeir leyfðu skrifar Valsmönnum samt að halda boltanum aftarlega á miðjunni um stund, hirtu hann þá af þeim og brunuðu í sókn og nokkrum mínútum síðar komu þriðja og fjórða markið án þess að gestirnir næðu að komast í færi. Eftir þennan skell í byrjun var erfitt fyrir Valsmenn að ná upp baráttu enda fengu þeir engan frið fyrir Eyjamönnum sem tvíefldust við hvert mark en tókst ekki að gera fleiri fyrir leikhlé þrátt fyrir góð færi. Síðari hálfleikur byijaði einnig með tveimur mörkum Eyjamanna innan fimm mínútna, staðan orðin 6:0, og ekki bætti úr skák þegar Valsmaðurinn Hörður Már fékk að líta rauða spjaldið. Valsmenn reyndu aðeins að klóra í bakkann og tókst að skora nokkrum mínút- um síðar en glæsimark Trygga strax á eftir kæfði litla neistann hjá þeim og vindurinn lak úr Valsl- iðinu. Það sem eftir lifði leiks fór að mestu fram fyrir framan mark Vals þar sem Eyjamenn áttu hvert tækifærið af öðru en Lárus Sigurðs- son markvörður sá við þeim. Stór- kostlegt lokamark Tryggva var þó sanngjarn bónus fyrir vel unnið verk. Eyjamenn áttu sigurinn sannar- lega skilinn fyrir geysilega baráttu í 90 mínútur. Þeir gáfu Valsmönn- um falsk öryggi, þegar gestirnir fengu að vera með boltann smá- stund á miðjunni, en brunuðu síðan yfir þá. Lítið reyndi á Friðrik í markinu en hann greip inní þegar þurfti. Aðeins nieira reyndi á vama- mennina en miðjuspilararnir Ingi Sigurðsson og Tryggvi Guðmunds- son ásamt Rúti Snorrasyni tókst að halda hlut sínum á miðjunni og snöggar árangursríkar sóknir Vest- mannaeyinga byijuðu yfirleitt á þeim. Ef þetta er sýnishorn af því hvernig ÍBV ætlar að gera í sum- ar, er nokkuð ljóst að öll lið í deild- inni mega gæta sín. Valsmenn voru daufir í byrjun og ekki skánaði það að láta valta yfir sig með hveiju markinu á fætur öðru. Þeir fengu litlu sem engu ráðið á vellinum og virtust utanveltu. Það var aðeins Lárus í markinu sem reyndi sitt besta, fékk að vísu á sig átta mörk en bjarg- aði liði sínu frá enn meiri hneisu. Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson Þeir gerðu sex NYLIÐARNIR í liðið iBV, Ivar Bjarklind, (t.v.) og Tryggvi Guð- mundsson, (t.h.) léku Valsvörnina oft grátt í gærkvöldi og skoruðu samtals sex mörk. Þar á meðal gerðl Tryggvi tvö með sannkölluðum þrumufleygum af löngu færi. 0STRAX á þriðju mínútu skaust Rútur Snorrason upp hægri kantinn og góð fyrirgjöf hans rataði beint á Tryggva Guð- mundsson sem skaliaði boltann inn, 1:0 Bjarklind sem renndi boltanum framhjá Lárusi Sigurðssyni markverði Vals og staðan orðin 2:0 3a ^\ÍVAR Bjarklind var aftur á ferðinni á 24. mínútu. Þá braust ■ WLeifur Geir Hafsteinsson upp að endamörkum rétt við víta- teig Vals og renndi út á ívar sem renndi aftur vinstra megin við Lár- us markvörð, 3:0. boltinn milli manna þar til Rútur Snorrason kom aðvífandi og skailaði í hornið og staðan orðinn 4:0. 5>#\EYJAMENN byijuðu síðari hálfleikinn eins og þann fyrri; ■ Umeð marki strax í upphafi eða á 48. mínútu. Þá hrökk boltinn til Ivars af vamamanni Vals en skot ívars rakst í Tryggva og þaðan í markið, 5:0. 50. mínútu bætti Dragan Manojlovic við sjötta marki ■ %#Vestmannaeyinga þegar þrumuskot hans úr aukaspyrnu rétt utan við vítateigshomið rataði uppí efra homið í marki Vals, óveij- andi fyrir Lárus í markinu. 6m "í ÞVERT gegn gangi leiksins minnkuðu Valsmenn muninn ■ I með marki á 56. mlnútu þegar Stewart Beards skallaði aftur fyrir sig sendingu frá hægri, beint á Kristinn Lárusson sem skoraði. 7m AÐEINS þremur mínútum síðar,, á 59. mínútu, gerði Tryggi ■ | sitt annað mark með þrumufieyg iangt fyrir utan vítateig, óveijandi fyrir Lárus markvörð. 8a 4 EF mönum hefur þótt þriðja mark Trygga faliegt gerði ■ I hann enn betur þegar 6 mínútur voru tii leiksloka. Hann var að spila langt fyrir utan teig, líklega um 30 metra frá marki, þegar jóvænt þrumuskot hans rataði í vinstra homið og innsiglaði 8:1 sigur ÍBV. „Baráttan í sumar til- einkuð minningu Lárusar og sameining- unni“ ÞETTA var gott, við vorum betra liðið og áttum sigur- inn, sem var síst of stór, sannarlega skilinn,“ sagði Atli Eðvaldsson þjálfari ÍBV eftir 8:1 sigur sinna drengja á Val í fyrsta leik, en var jarðbundinn, „við eigum sjálfir eftir að fá skell í sum- ar en þetta lið á framtíðan fyrir sér, sérstaklega ef þeir fá góðan stuðning eins og í kvöld en líka þegar illa gengur. Það er hægt að koma þessu liði í toppbarátt- una á þremur árum. En bar- áttan í sumar verður tileink- uð minningu Lárusar Jak- obssonar og sameiningu Þórs og Týs.“ Fyrirliðinn < ÓLAUR Þórðarson kom mönnum sínum í ÍA á sporið í lok fyrri hál fagnar hann fyrra markinu og gefur til kynna að þau verði tvö, Ha gleðinni en Breiðabliksmaðurinn Arnar Gré X Islandsmeistararnir hófu titil Skagamenn ÍSLANDSMEISTARAR ÍA hófu tit- ilvörnina með glæsibrag en þrátt fyrir snilldarleik og ótal marktæki- færi unnu þeir Breiðablik aðeins 2:0 á Akranesvelli eftir að glæsi- leg, yfirbyggð stúka hafði verið tekin formlega í notkun. Meistar- arnir koma greinilega mjög vel undirbúnir til móts og verða erfið- ir viðureignar í sumar með sama áframhaldi en ástæða er til að ætla að baráttan verði erfið hjá Kópavogsmönnum. Skagamenn höfðu undirtökin allan fyrri hálfleik og fór leikurinn að mestu fram á vallarhelmingi Breiða- bliks þó gestirnir væru Steinþór oft snöggir í gagnsókn- Guðbjartsson um en þeir fengu fímm skrifar homspymur gegn fráAkranesi tveimur Skagamanna í hálfleiknum. Heimamenn fengu mörg góð færi en ýmist vora þeir of bráðlát- ir, óheppnir eða Kardaklija sá við þeim með frábærri markvörslu. Vængmenn ÍA nýttu vel breiddina og Dejan Stjoic var einn fremstur Skagamanna en það virtist skapa næga Skagamenn þurftu lítið að hafa fyr- „Ég er mjög sáttur við þetta,“ sagði ir sigrinum gegn Breiðabliki og hann við Morgunblaðið. „Við vomm á eftir leik mátti alveg eins halda að létt hælunum á kafla í fyrri hálfleik en eft- æfing væri að baki frekar en alvarleg- ir að við náðum að bijóta ísinn var ur leikur í titilvörninni. Logi Ólafsson þetta frekar auðvelt, Það er mjög já- stjórnaði liðinu í fyrsta sinn í deildinni kvætt að ná að skapa öll þessi færi og og hann var að vonum ánægður með klaufaskapur að nýta ekki fleiri en það byijunina. kemur og ég er ekki hræddur við fram- hættu því hvað eftir annað fékk hann boltann og var óheppinn að koma hon- um ekki rétta leið. Eftir að nokkrar fyrirgjafir Haraldar Ingólfssonar frá vinstri höfðu misheppnast - boltinn fór yfirleitt of stutt - leiddist fyrirliðanum Ólafi Þórðarsyni þófið og tók hann aukaspyrnu frá vinstri kantinum rétt utan vítateigs. Stjoic, sem var á móts við fjærstöng, skallaði út og til hliðar á Sigurð Jónsson sem gaf aftur fyrir markið. Blikum tókst ekki almennilega að hreinsa frá og Ólafur Adolfsson kom aðvífandi en skallaði í slá. Stjoic var fyrstur áð átta sig en skallaði einni í slá. Óheppnin algjör en Skagamenn vora komnir á bragðið og fyrirliðinn skoraði í þar næstu sókn. Stjoic fékk síðan tvö dauðafæri áður en flautað var til hálfleiks, hitti boltann ilia í fyrra skiptið en Kardaklija varði með glæsi- brag einn á móti einum í seinna skiptið. Einstefna Segja má að yfirburðir ÍA hafi ver- ið miklir í fyrri háifleik en einstefnan var algjör eftir hlé. Spilið var þá mun markvissar-a og hraðára og Blikar vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.