Morgunblaðið - 24.05.1995, Side 8
KORFUKNATTLEIKUR
BBBBMWWWB
Dómaramir björg-
uðu heimamönnum
ÍSLAND tapaði 78:87 fyrir Sviss í gærkvöldi í æsispennandi ieik
þar sem dómararnir, frá Skotlandi og Spáni, virtust staðráðnir
í þvífrá upphafi að heimamenn ættu að sigra. Dómurunum tókst
ætlunarverk sitt þó svo munurinn var ekki mikill. Villurnar í leikn-
um segja ef til vill mest um vilja dómaranna. í fyrri hálfleik voru
dæmdar 13 villur á ísland en aðeins 5 á Sviss og í síðari háif-
l^ik voru tölurnar 13-8.
JÓN Kr. Gíslason, fyrlrliðf landsliðsins, lék sinn 150. lands-
leik í gærkvöldi — gegn Svfss.
Islendingar byijuðu leikinn mjög
vel. Vömin var þétt og vel hreyf-
anleg og sóknarleikurinn skipulagður
enda tóku heima-
Skúli Unnar menn leikhlé eftir
Sveinsson þijár mínútur, en þá
skrifarfrá var staðan 9:3. Eftir
Sviss leikhléið komu
heimaménn ákveðnir til leiks og tókst
að jafna 16:16 er rúmar 7 mínútur
voru liðnar. Með mikilli hjálp þeirra
gráklæddu tókst Sviss að komast
yfír 20:22, en íslensku leikmennimir
sýndu aðdánunarverða ró og yfírveg-
un þrátt fyrir mótlætið sem þeir
mættu hjá dómumnum og komust
yfír aftur, en Sviss hafði 40:42 yfir
í leikhléi.
Sama baráttan hélt áfram í síðari
toðm
FOLX
■ GUÐMUNDUR Bragason lék
í gær sinn 100. lndsleik. Honum
voru ekki afhent blóm fyrir leikinn
þar sem þjálfararnir töldu rétt að
bíða með það og tmfla ekki einbeit-
ingu Guðmundar fyrir leikinn.
■ ÞAÐ vora fleiri blómaleikir, án
blóma í gær, því fyrirliðinn Jón Kr.
Gíslason lék í gær 150. landsleik
sinn.
■ HELGI Bragason dæmdi leik
Kýpur og Rúmeníu í gær og stóð
sig með ágætum, en leikurinn var
alls ekki auðdæmdur þó svo munur-
inn á liðunum hafí verið nokkur.
■ KEPPT er í tæplega hálfs árs
gömlu íþróttahúsi, Istituto Elvetico,
sem er um leið skólahús og er kennsia
á fullu þessa dagana og mikið íjör
þegar krakkarnir em í frímínútum.
Iþróttasalurinn, sem er á annarri
hæð hússins, er með parketi og er
mjög mjúkt gólfíð, ekki ósvipað því
sem er í Valsheimilinu.
■ ÞAÐ rúmast 8.500 áhorfendur
í sæti í höllinni en alls má koma þar
fyrir um 12.000 áhorfendum.
■ TVEIMUR leikjum verður sjón-
varpað, leik Sviss og Austurríkis
og leik heimamanna og Portúgals.
■ RÚMENAR gátu ekki mætt
með sína bestu menn í mótið að þessu
sinni. Muresan sem leikur með Bul-
lets í NBA komst ekki, en hann er
2,30 metrar á hæð, og svo er annar
leikmaður þeirra að reyna að komast
að í NBA.
■ ÍSLAND virðist vera eina liðið
sem fer alveg eftir reglum varðandi
skóbúnað og annað. Leikmenn verða
að vera í eins skóm, en hjá sumum
liðum em svartir, rauðir og hvítir
skór, en íslensku strákarnir eru allir
í svörtum skóm.
hálfleik og liðin skiptust á um að
leiða. Teitur fór útaf með fimm villur
er 12 mínútur voru eftir og þetta
var stöðug barátta við dómarana,
sérstaklega þennan frá Spáni. Þegar
fimm mínútur voru eftir var staðan
62:73 en hafði verið 56:53 sjö mínút-
Tim áður. Á þessum kafla skutu
menn dálítið fyrir utan en skotin
duttu ekki og menn voru ekki nógu
ákveðnir við að fara í sóknarfráköst-
in. Það var því fátt sem benti til að
íslendingar gætu sigrað.
En með góðum leikkafla, l-2-l-l
pressuvöm og síðan 1-2-2 vöm tókst
að vinna boltann og skora þijár
þriggja stiga körfur. Staðan oriðin
77:80 þegar 1,25 mín. var til leiks-
loka. Þá leist þeim spænska ekkert
á blikuna og tók til sinna ráða, dæmdi
villu á Guðmund þegar greinilega
átti að vera uppkast og þegar Sviss
tapaði knettinum dæmdi hann aftur
jafn fáránlega villu og Svissarar
bmgðust ekki á vítalínunni, en þar
voru þeir með 78% nýtingu.
íslendingar léku vel, en þeir réðu
því miður ekki við dómarana. Það
vom þó nokkrir þættir sem hefðu
mátt vera betri. Nýtingin í þriggja
stiga skotum var 34% og er svo sem
í lagi. Eftir að Svisslendingar breyttu
yfir í svæðisvörn í lok fyrri hálfleiks
gekk erfiðlega að skapa nógu góð
færi fyrir skytturnar. Boltinn gekk
of hægt fyrir utan þannig að bak-
verðir þeirra vom alltaf mættir í
skytturnar okkar. Það gekk líka erf-
iðlega að koma boltanum inn í teig-
inn þar sem Guðmundur átti skín-
andi leik. Vörnin var ágæt en það
er erfitt að leika vörn ef annar dóm-
arinn vill að þegar mótheijinn nálgat
sé dreginn út rauður dregill og mann-
Torfi Magnússon landsliðsþjálf-
ari var að vonum ekki ánægð-
ur eftir tapið gegn Sviss í gær og
á blaðamannafundi eftir leikinn, þar
sem þjálfarar liðanna mættu var
hann beðinn um að segja álit sitt á
leiknum á ensku. „Hva, viljið þið
ekki að ég tali ítölsku?" spurði Torfi
og vitnaði þar til þess að þjálfari
Sviss er ítali og spænski dómarinn
ræddi lengi við hann fyrir leikinn
og virtust þeir miklir vinir.
„Vörnin var trúlega ekki nægi-
lega góð, alla vega voru dæmdar á
okkur margar villur þannig að
Svisslendingar fengu bónus
snemma í leiknum. í sókninni gekk
inum hjálpað upp að körfunni. Það
var með ólíkindum hvað Spánveijinn
gat dæmt á. Með þessu móti fengu
Svisslendingar bónus um miðjan fyrri
hálfleikinn.
Svissneska liðið lék vel og þá sér-
staklega Mrazek sem var hreint
óstöðvandi og réðu íslensku strák-
arnir ekkert við hann. Vörn Sviss
var sterk eftir að þeir breyttu í
svæðsivörnina og í sókninni gekk
okkur erfiðiega að koma boltanum
inn í teiginn og lékum allt of langt
frá körfunni. Skytturnar komust
aldrei vel í gang og gerðu ekki það
sem þeim er ætlað að gera — að
skora
Fyrir keppnina sagði ég að þetta
væri líklega leikurinn sem skipti
öllu máli hvað varðar möguleika
okkar á að komast áfram í keppn-
inni. Við ætlum samt ekki að gef-
ast upp og við verðum að vinna
annanðhvort Rúmena eða Portúg-
ali, en það verður erfitt, eins og
allir leikir hér,“ sagði Torfi.
Morgunblaðið bað þjálfarana að
segja álit sitt á dómurunum. Mario
þeim vel að leysa þau vandamál sem
íslenska liðið reyndi að leggja fyrir
þá.
Það er ljóst eftir þetta tap að róð-
urinn verður erfiður því íslenska liðið
þarf helst að vinna alia leikina sem
eftir eru til að tryggja áframhald í
Evrópukeppninni. Þó gæti dugað að
vinna annað hvort Rúmeníu eða Port-
úgal og sigra Kýpur og Skotland
eins og okkar strákar eiga að gera.
de Sisti, þjálfari Sviss varð fyrri
til. „Ég er ekki vanur að tala um
dómarana en þegar þeir dæma tíu
sinnum skref á lið mitt þá held ég
að það sé eitthvað að. Dómararnir
virðast ekki fylgjst með þeim breyt-
ingum sem gerðar hafa verið. Þeir
hafa kanski lesið þær, en þeir dæma
ekki eftir þeim. Þeir vita ekkert um
FIBA reglur. Hvað viðkemur vill-
unum sem þeir voru að dæma þá
getur verið að þeir hafi haldið að-
eins með okkur.“
Torfi vildi hins vegar ekki tjá sig
um dómarana: „Ég tala aldrei um
dómarana opinberlega. Ég vona
bara að þeir geri alltaf sitt besta.“
Riley að
hætta með
New York
ALLT bendir til þess að Pat
Riley, þjálfari New York,
hætti nú með liðið eftir fimm
ára starf. Hann sagði að það
væri kominn tími á breytingar
hjá félaginu. „Það er Ijóst að
það þarf að stokka spilin upp
á nýtt. Það hefur sýnt sig að
leikmenn liðsins eru ekki
nægilega góðir til að vinna
NBA-titilinn,“ sagði Riley.
Hann sagðist sjálfur vera að
hugsa um að hætta, en ætlaði
að taka sér nokkurra daga
umhugsunarfrest.
Jordan ætl-
ar að halda
áfram
MICHAEL Jordan sagðist
reikna með því að leika áfram
með Chicago Bulls næsta vet-
ur. „Ég verði áfram ef Pippen
og Kukoc verða hjá félaginu
næsta vetur. Það var ótrúleg
pressa á liðið eftir að ég kom
til baka aftur og það var eins
og ég væri einhver trúaiieið-
togi. Við vorum ekki að spila
eins vel og fyrir 19 mánuðum
en við reyndum okkar besta,“
sagði Jordan.
Adelmann
þjálfar
Golden
State
RICK Adelman hefur verið
ráðinn þjálfari Golden State.
Adelman var þjálfari hjá
Portland í nokkur ár, eða þar
til hann tók sér eins árs frí í
fyrra. Hann náði góðum ár-
angri með Portland og þykir
góður þjálfari.
Houston
byrjaði vel
heima
ROBERT Horry skoraði þeg-
ar 6,5 sekúndur voru til leiks-
loka og tryggði Houston Roc-
kets 94:93 sigur gegn San
Antonio Spurs í fyrrinótt.
Þetta var fyrsti leikur félag-
anna í úrslitum Vesturdeildar
NBA en liðin leika mest sjö
Jeiki.
Sean Elliott hitti ekki úr
tveimur vítaskotum fyrir
gestina þegar 26,6 sekúndur
voru eftir og í kjölfarið tók
Houston leikhlé til að skipu-
leggja lokasóknina. Hakeem
Olajuwon gaf út á vinstri
kantinn á Horry sem þóttist
ætla að gefa á Sam Cassell.
Avery Johnson féll á bragð-
inu, Horry fékk ráðrúm til að
skjóta og skoraði.
Olajuw'on var með 27 stig,
12 fráköst og átti sex stoð-
sendingar fyrir Houston sem
hefur sigrað í fjórum leikjum
í röð í úrslitakeppninni en
þetta var annar sigur liðsins
í sjö leikjum gegn San An-
tonio á tímabilinu. Elliott var
með 24 stig fyrir gestina og
David Robinson 21 stig.
Torfi Magnússon landsliðsþjálfari um framhaldið
Verður erfitt