Morgunblaðið - 25.05.1995, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 25. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR VIKUNNAR
SJÓNVARPIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ
VI QQ nn ►Makleg málagjöld
l»l* fct.UU (Requiem Apache)
Bresk sjónvarpsmynd um fyrrverandi
bankaræningja sem neyðist til að taka
upp fyrri iðju.
LAUGARDAGUR 27. MAÍ
|l| QiJ J C ►Kotkarlar (Sodbust-
lll. 4 I. IU ers) Kanadískur
vestri í léttum dúr frá 1994 um smá-
bændur í Kólóradó og baráttu þeirra
við illmenni sem ætlar að sölsa undir
sig land þeirra.
|#| QQ CC ► Lili Marleen Þýsk
l»l. LL.UU bíómynd frá 1981.
Myndin gerist í Þýskalandi í upphafi
seinni heimsstyijaldar og segir frá
revíusöngkonu sem slær í gegn með
laginu Lili Marleen. Framinn hefur
mikil áhrif á líf hennar og þau ekki
öll góð. Áður á dagskrá 26. nóvember
1988.
SUNNUDAGUR 28. MAI
|f| QQ on ►Óðal móður minnar
lll. LL.LU (Le cháteau de ma
mére) Frönsk bíómynd byggð á endur-
minningum Marcels Pagnols og er
þetta beint framhald af myndinni Veg-
• semd föður míns sem Sjónvarpið hefur
áður sýnt.
FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ
|f| 41 ItC ►Barnið mitt (Bamb-
lll. L I.Uu ino Mio) Bresk sjón-
varpsmynd sem segir frá breskri ekkju
sem ætlar sér að ættleiða barn frá
E1 Salvador.
Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 26. MAÍ
VI Q<| IC ►Morgunverður á
1*1* L 1.43 Tiffany’s (Breakfast
at Tiffany’s) Þessi mynd er gerð eftir
sögu Trumans Capote um smábæjar-
stúlkuna sem sleppir fram af sér beisl-
inu í stórborginni New York. Kallar
hún sig Holly Golightly og nýtur hins
ljúfa lífs út í ystu æsar. Hún vekur
áhuga nágranna síns sem fer að gefa
henni gætur og verður smám saman
heillaður af þeirri dulúð sem umlykur
hana.
Stöð tvö
VI QQ IC ►Hundalíf í London
1*1* fcu.43 (London Kills Me)
Clint er tvítugur strákur sem lifír og
hrærist á heldur napurlegum strætum
stórborgarinnar. Hann hefur fengið
nóg af útigangslífmu og dópinu og
langar að fá sér vinnu til að geta lifað
mannsæmandi lífi. Félagar hans gefa
lítið fyrir slíkt tal og sjá ekkert fram-
undan nema meiri dópsölu og meira
vændi.
VI 1 Qll ►Ofríki (Deadly Rel-
lll. I.3U ations) Hér er á ferð-
inni sönn saga um ofbeldishneigðan
föður sem sýnir ijölskyldu sinni
óhugnanlegt ofríki og leggur allt í
sölurnar fyrir peninga. Stranglega
bönnuð börnum.
UQ nil ►Hasar í Harlem (A
. U.UU Rage in Harlem) Has-
armynd á léttu nótunum um hina íðil-
fögru Imabelle sem kemur til Harlem
og ætlar að láta lítið fyrir sér fara
um tíma endá hefur hún í fórum sínum
gullfarm sem hún rændi af Slim og
félögum hans í Mississippi. En í Harl-
em ægir saman alls konar lýð og þar
er enginn óhultur sem hefur fullar
hendur fy'ár. Stranglega bönnuð
börnum.
LAUGARDAGUR 27. MAÍ
VI QJ QC ►Benny & Joon
III. 41.43 Benny Pearl er mynd-
arlegur og vel gefinn ungur maður
sem hefur helgað yngri systur sinni
líf sitt. Hún heitir Joon og býr yfir
mikilli sköpunargáfu en er kleyfhugi
og á það því til að vera býsna baldin
og erfið viðureignar. Líf systkinanna
breytist þegar þau kynnast utangarðs-
manninum Sam sem er hinn mesti
furðufugl. Sam og Joon semur prýðis-
vel og það gefur Benny tækifæri til
að komast aðeins í burtu og njóta lífs-
ins utan heimilisins. En Benny bregst
hins vegar hinn versti við þegar honum
verður ljóst að systir hans og furðu-
fuglinn eru orðin ástfangin.
VI QQ nc ►Bopha! Micah
Rl. 43.U3 Mangena er stoltur
af starfí sínu sem aðstoðarvarðstjóri
í lögregluliði friðsæls bæjarfélags í
Suður-Afríku. Hann er þeldökkur og
honum semur ágætlega við hvíta yfir-
menn sína. Micah býr ásamt eiginkonu
sinni og syni við góð kjör og vill að
sonurinn feti í fótspor sín og gerist
lögreglumaður. Hins vegar dregur
bliku fyrir sólu þegar námsmenn mót-
mæla því að þurfa að læra afríkans,
tungumál Búanna, í stað enskunnar
sem þeir líta á sem tungumál frelsis-
ins.
SUNNUDAGUR 28. MAÍ
VI Qll CC ►Móðurást (Labor of
lll. 4U.33 Love) Hugljúf mynd
um íjölskyldukærleika og undur
læknavísindanna. Rakin er saga Ar-
lette Schweitzer sem fæddi barnabörn
sín inn í þennan heim. Fjölskyldan býr
í íhaldssömu samfélagi í Suður-Dakota
þar sem álit annarra skiptir miklu
máli og flestir eru með nefið niðri í
hvers manns koppi.
MQQ Q|| ►Straumar vorsins
■ 4Ú.4U (Torrents of Spring)
Rómantísk kvikmynd um Dimitri San-
in, rússneskan óðalseiganda sem fellur
flatur fyrir eiginkonu vinar síns.
MÁNUDAGUR 29. MAI
VI QQ Qn ►Klappstýrumam-
III. 43.3U man (The Positively
True Adventures of The Alleged Tex-
as Cheerleader-Murdering Mom)
Sannsöguleg mynd um húsmóðurina
Wöndu Holloway sem dreymir um að
dóttir sín verði klappstýra og verður
miður sín þegar önnur stúlka hreppir
hnossið.
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ
VI QQ Qfl ►Frjáls eins og fugl-
III. 43.3U inn (Butterflies Are
Free) Skemmtileg mynd um Don Ba-
ker, ungan strák sem flýr ofríki móð-
ur sinnar og sest að í hippahverfi
ónefndrar stórborgar.
MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ
VI QQ On ►Hvað með Bob?
Hl. 43.4U (What About Bob?)
Gamanmynd um Bob Wiley, fælni-
sjúkling af verstu gerð, og geðlæknir-
inn Leo Marvin sem reynir að rétta
honum hjálparhönd.
FIMMTUDAGUR 1. JUNI
VI QQ 1C ►Linda Spennumynd
Rl* 44.13 um hjónin Paul og
Lindu Cowley og Jeff og Stellu Jeffri-
es sem fara 'saman í sumarleyfi á af-
skekkta strönd í Flórída. Þegar þang-
að kemur verður Paul var við ýmislegt
undarlegt í fari Lindu og honum verð-
ur órótt þegar hann uppgötvar að
Jeff hefur tekið riffil með í ferðina
og segist ætla að æfa sig í að skjóta
í mark.
BÍÓIN í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIIM
Tvöfalt líf k
Mislukkaður sálfræðitryllir í c-flokki
með vita vonlausan mannskap framan
og aftan við tökuvélarnar.
Þyrnirós (sjá Bíóhöllina)
Strákar til vara k k
Þijár vinkonur hafa hver sinn djöful
að draga en Hollywood fer offari enn
eina ferðina í tilfínningamálunum.
Leikkonurnar bjarga nokkru í mis-
jafnri mynd.
í bráðri hættu kk*
Flaustursleg en hröð og fagmannlega
gerð spennumynd um bráðdrepandi
vítisveiru og baráttuna við að stöðva
útbreiðslu hennar.
BÍÓHÖLUN
Þyrnirós kk'A
Falleg Disney-teiknimynd frá 1959
sen byggir á ævintýrinu um Þymirós.
Fyrri hlutinn hægur en lokaátökin hin
skemmtilegustu.
Fjör í Flórída k k
Nokkrar framhjáhaldssögur eru aðal-
inntakið í þessari rómantísku gaman-
mynd sem minnir svolítið á Woody
Allen. Hressileg samtöl en frekar
óspennandi efni.
Algjör bömmer k
Grín og spenna blandast saman í svert-
ingjaspennumynd eins og þær voru
fyrir 20 árum.
Banvænn leikur k-kk
Lögfræðiprófessor kemur dauða-
dæmdum fanga til hjálpar í ágætlega
gerðum trylli þar sem Sean Connery
er traustur sem fyrr í hlutverki hins
réttláta manns.
Litlu grallararnir k k
Ágæt bamamynd sem fer rólega í
gang en vinnur á eftir því sem á líð-
ur. Litllu krakkamir standa sig vel,
þó ekki með sömu ágætum og hinir
sögufrægu forverar þeirra í Our Gang
stuttmyndunum.
Táldreginn kkk
Linda Fiorentino fer á kostum sem
voðakvendi í frábærri spennumynd um
konu sem gerir allt fyrir peninga.
„Ný-noir“ tryllir eins og þeir gerast
bestir.
HÁSKÓLABÍÓ
Star Trek: Kynslóðir k k'A
Sjöunda myndin í Trekkabálknum
markar kaflaskil því nú tekur nýr
kapteinn við stjóm. Sami gamli góði
hasarinn í útgeimi.
Dauðataflið 'h
Dæmalaust óspennandi og illa leikin
sálfræðileg spennumynd.
Höfuð uppúr vatni k k
Norsk spennumynd og svört kómedía
um konu á sumarleyfiseyju og menn-
ina í kringum hana. Frambærileg en
varla neitt stórvirki.
Orðlaus kk
Rómantísk gamanmynd sem á marga
ágæta spretti enda Michael Keaton
og Geena Davis skemmtileg í aðalhlut-
verkunum en endirinn er væmið Holly-
woodnúmer sem skemmir mikið fyrir.
Ein stór fjölskylda k 'A
Kúgaður kærasti barnar fimm á einu
bretti. Þokkaleg hugmynd fær slæma
úrvinnslu í flesta staði.
Stökksvæðið k'A
Góð háloftaatriði er nánast það eina
sem gleður augað í íburðarmikilli en
mislukkaðri spennumynd sem reynist
ekki annað en B-mynd í jólafötunum.
Nell kk'A
Forvitnileg mynd frá Jodie Foster sem
framleiðir og fer með titilhlutverk
ungrar konu sem hefur ekki komist í
kynni við samtíðina.
Skógardýrið Húgó kk
Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön-
um, elskulegum frændum vorum og
vinum, um Húgó hinn hressa sem
syngur og dansar og hoppar og hlær
smáfólkinu til ánægju og yndisauka
en hinum fullorðnu mest til angurs
og armæðu.
Forrest Gump kkk'A
Tom Hanks fer á kostum í frábærri
mynd um einfelding sem ferðast um
sögu Bandaríkjanna síðustu þijá árat-
ugina og lendir í ýmsu. Ljúfsár,
skemmtileg, fyndin, gerð með ríkri
saknaðarkennd og einstaka sinnum
ber fyrir sönnum kvikmyndalegum
töfrum.
LAUGARÁSBÍÓ
Snillingurinn k
Það fer ekkert fyrir snillingáfunni í
vandræðalegri gamanmynd þar sem
ágætur leikhópur er úti á þekju í hlut-
verkum sögufrægra persóna.
Heimskur heimskari kkk
Vellukkuð aulafyndni um tvo glópa á
langferð. Sniðin fyrir Jim Carrey og
Jeff Daniels. Hláturinn lengir lífið.
Háskaleg ráðagerð k k
Forvitnileg smámynd um saklausa
sveitastráka sem lenda í hremmingum
lífs síns. Leikstjórinn Wamer er eng-
inn Tarantino en auðséð er hvert hann
sækir fyrirmyndina. Kemur á óvart.
REGNBOGINN
Kúlnahríð á Broadway k k k'A
Frábærlega gamansamur farsi frá
Woody Allen sem kominn er aftur í
sitt gamla form. Fyndið handrit, skop-
leg persónusköpun og unaðslegur leik-
hópur gera Kúlnahríðina að bestu
gamanmynd í bænum. Ekki missa af
þessari.
Norður 0
Það stefnir allt norður og niður í hrika-
legum mistökum Rob Reiners.
Austurleið 'A
Gamanvestri sem reyndist síðasta
mynd John Candys. Ekki sérlega
frumleg, flestir brandaramir virðast
endurunnir úr öðmm svipuðum mynd-
um.
Rita Hayworth og Shawshank-
fangeisið kkk
í alla staði sérlega vel gerð mynd um
vináttu innan fangelsisveggjanna og
meinfyndna hefnd. Robbins og Free-
man frábærir saman.
SAGABÍÓ
Rikki ríki k k
Dálagleg barnaskemmtun um h'kasta
drenghnokka í heimi sem á allt nema
vini. Macaulay Culkin fer hnignandi
sem stjama.
/ bráðri hættu (sjá Bíóborgina)
STJÖRNUBÍÓ
Litlar konur kkk'A
Einstaklega vel gerð, falslaus og falleg
mynd um fjölskyldulíf á Nýja-Eng-
landi á öldinni sem leið. Winona Ryder
fer fremst í flokki afburðaleikara.
Ódauðleg ást kkk
Svipmikil mynd um snillinginn Beet-
hoven fer hægt í gang en sækir í sig
veðrið. Tónlistin stórkostleg og útlitið
óaðfinnanlegt.
Vindar fortíðar kkk
Skemmtilegt og glæsilega kvikmynd-
að fjölskyldudrama. Verður ekki sú
sögulega stórmynd sem að er stefnt
en virkar frábærlega sem Bonanza
fyrir þá sem eru lengra komnir.