Morgunblaðið - 25.05.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.05.1995, Qupperneq 1
KNATTSPYRNA piiSinrgiimMaSíiíí 1995 FIMMTUDAGUR 25. MAI BLAÐ Ellert B. Schram eftirlitsmaður á leik AC Milan og Ajax ELLERT B. Schram, forseti ÍSÍ og fyrrum einn af varaformönnum Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA, var eftirlitsmaður sambandsins á úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða — AC Miian og Ajax í Vínarborg í gærkvöldi. Þetta er mikill heiður fyrir Ellert B. og íslenska knattspyrnu. Þess má geta að Ellert B. hefur starfað í mörgum nefndum og gengt mörgum trúnaðarstörfum fyrir UEFA á undanförn- um árum. Jón Amar keppir í Austurríki JÓN Arnar Magnússon, tugþrautakeppi úr UMSS, mun keppa á geysilega sterku tugþrautamóti í Götz- is í Austurríki um helgina. Fyrir utan Evrópu- og heimsmeistaramót er þetta sterkasta tugþrautamót sem haldið er í heiminum. Alls keppa 36 af bestu tugþrautamönnum heims á mótinu. Jón Arnar, sem hefur náð best 7.876 stigum, tslandsmet, er í góðri æfingu um þessar mundir og náði hann tæplega 7.900 stigum í æfingatugþraut í Bandaríkjunum á dögunum. Hann undirbýr sig nú af kappi fyrir Ólympíuleikana í Atlanta á næsta ári. New York vill halda Pat Riley NEW York hefur boðið Pat Riley, þjálfara, 9 milljón- ir dollara eða 490 milljónir íslenskar krónur fyrir þriggja ára samning. Riley, sem hefur verið með liðið síðustu fimm árin, er ekki alveg tilbúinn að skrifa undir. Hann segir að það verði að gera mikl- ar breytingar á liðinu ef hann á að halda áfram. Forráðamenn New York vilja gera allt til að halda honum og eru jafnvel tilbúnir að gera breytingar á leikmannaskipan liðsins. Robinson leikmaður ársinsíNBA DAVH) Robinson, miðheiji San Antonio Spurs, var útnefndur leikmaður ársins í NBA-deildinni í kjöri sem bandarískir iþróttafréttamenn stóðu fyrir. Hann gerði 27,6 stig að meðaltali í leik í vetur, tók 10,8 fráköst og varði 3,2 skot. ShaquiUe O’Neal var í öðru sæti í kjörinu. Robinson sagðist ekki hafa mik- inn tíma til að halda upp á þetta því hann væri með hugann við lokabaráttuna í úrslitakeppninni. „Þetta er engu að síður mikill heiður fyrir mig,“ sagði leik- maður ársins. Hákon fótbrotinn HÁKON Sverrisson, 21 árs landsliðsmaður úr Breiðablik, ristar brotnaði undir lok leiksins á Akra- nesi á þriðjudaginn. Hákon er kominn í gips upp að hné á hægri fæti — hann verður frá keppni í sex til átta vikur. Þetta er mikil blóðtaka fyrir BreiðabUk. Rijkaard fagnaði sigri TÁNINGURINN Patrick Kluiverttryggði Ajax Evrópumeistaratitl- inn í gærkvöldi í Vín, þegar hann skoraði sigurmarkið fimm mín. fyrir leikslok, eftir að hafa komið inná sem varamaður og leikið í sextán mín. áður en hann skoraði af átta metra færi. Hann fékk sendingu frá Frank Rijkaard, en það var einmitt hann sem skor- aði sigurmark AC Milan gegn Benfica í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða í Vín fyrir fimm árum. Leikurinn varð aldrei í háum gæðaflokki — hið unga lið Ajax var meira með knöttinn, en leik- menn AC Milan áttu hættulegri skot að marki. Rykaard er fimmti Ieikmaðurinn í 40 ára sögu Evrópukeppni meistaraliða til að vinna meistaratitilinn með tvéimur liðum, en hann er fyrsti leikmaðurinn til að vinna titilinn gegn fyrrum liði sínu. Þetta var síðasti stórleik- ur Rykaard, sem er 32 ára, en hann ætlað að leggja skóna á hill- una eftir síðasta leik Ajax í hollensku deildarkeppninni um næstu helgi. Það var mikil blóðtaka fyrir AC Milan stuttu fyrir leikinn, að Dejan Savicevic, sem skoraði tvö mörk gegn Barcelona í úrslita- leiknum í fyrra, 4:0, féll á læknisprófi og gat ekki leikið með. Ajax hefur ekki orðið Evrópumeistari síðan liðið vann þijú ár í röð 1971,1972 og 1973. Þámá getaþessað Ajax tapaði úrslita- leik fyrir AC Milan 1969, þegar flestir leikmenn Ajax-liðsins sem léku í gærkvöldi, voru ekki fæddir. Ajax hefur orðið Evrópumeist- ari fjórum sinnum eins og Liverpool, AC Milan hefur orðið fimm sinnum meistari og Real Madrid oftast, eða sex sinnum. Ásgeir hefur valið Svíþjóðarfarana ÁSGEIR Elíasson, landsliðs- þjálfari, hefur valið nítján manna landsliðshóp fýrir Evr- ópuleik gegn Svíum á Rásunda- leikvellinum í Stokkhólmi fimmtudaginn 1. júní. Átján leikmenn fara til Stokkhólms. Níu útlendingar eru í landsliðs- hópnum og þar af fjórir sem leika með liðum í Svíþjóð. Fimm leikmenn íslandsmeistara Akraness eru í hópnum, sem er skipaður þess- um leikmönnum: Markverðir: Birkir Kristinsson, Fram......32 Friðrik Friðriksson, ÍBV.......25 Sóknarleikmenn: Varnarmenn: Arnór Guðjohnsen, Örebro.......57 Guðni Bergsson, Bolton..........60 Eyjólfur Sverrisson, Besiktas..20 Kristján Jónsson, Fram..........37 Arnar Gunnlaugsson, Nurnberg..l3 Izudin Daði Dervic, KR..........12 Bjarki Gunnlaugsson, Niirnberg.. 9 Sigursteinn Gíslason, ÍA.......11 Átján leikmenn fara til Svíþjóð- Hlynur Birgisson, Örebro........ 9 ar, þannig að einn fellur út á laugar- Ólafur Adolfsson, ÍA............ 3 daginn. Miðvallarspilarar: Mikill áhugi er fyrir leiknum í Ólafur Þórðarson, ÍA............57 Svíþjóð og er mikið skrifað um leik- Rúnar Kristinsson, Örgryte......45 inn í sænskum blöðum, sem eru að Þorvaldur Örlygsson, Stoke......37 velta því fyrir sér hvernig sænska Sigurður Jónsson, ÍA............34 liðið verði skipað. Svíar verða að Arnar Grétarsson, Breiðabliki..23 tryggja sér sigur til að eiga mögu- lllynur Stefánsson, Örebro......19 leika að komast í EM í Englandi Haraldur Ingólfsson, ÍA.........14 1996. KÖRFUKNATTLEIKUR: RÚMENAR SKELLTU ÍSLENDINGUM í SVISS / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.