Morgunblaðið - 27.05.1995, Qupperneq 2
2 B LAUGARDAGUR 27. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Gassi til Glasgow Rangers
EKKERT virðist geta kotnið í
veg fyrir að enaki knattepyrnu-
maðurinn Paui Gascoigne yfir-
gefi herbúðir Lazio á Ítalíu að
ioknu þessu timabili og gangi ti)
iiðs við skoska liðið Glasgow
Rangers. „Málið er frágengið og
við munum ekki sjá Gascoigne í
Róm framar nema þá sem ferða-
mann,“ hafði ítalskt dagblað eft-
ir Sergio Cragnotti stjórnaform-
anni Lazio í gær. Skoska liðið
þarf að að greiða sem svarar 450
milijónir fyrir kappann. Leeds,
Aston Villa og Chelsea hafa líka
verið að bera víurnar í leikmann-
inn. Dvöl kappans á ítaliu sl.
þijú ár hefur verið þyrnum stráð
og liann hefur átt við stöðugt
meiðsii að striða og leikið stop-
ult með Lazio af þeim sðkum.
Auk þess hefur hann látið skapið
hlaupa með sig í gönur nokkrum
sinnum, siðast I siðustu viku þeg-
ar hann átti að leika æf ingaieik
með varaiiði Lazio en iét ekki
sjá sig. I framhaidi af þvi var
ákveðið að gefa honum ekkí
fleiri tækifæri og á fmidi si. mið-
vikudag var honum tilkynnt
ákvörðun félagsins. Gassi mætti
of seint á fundinn og varð þess
valdandi að Dino Zoff þjálfari
og Cragnotti stjórnarformaður-
misstu af flugi til Vínar á úrslit-
leik Ajax og AC Milan.
UM HELGINA
Knattspyrna
Laugardagur:
1. deild karla:
Kaplakriki: FH - Grindavík.........kl. 14
Keflavík: Keflavík-ÍA..............kl. 14
Yalbjamarv.: Fram-lBV..............kl. 14
Ólafsfjörður: Leiftur-KR...........kl. 14
Kópavogsvöllur: Breiðabl. - Valur..kl. 16
1. deild kvenna:
Ásvellir: Haukur-KR................kl. 14
Stjömuvöllur: Stjaman - ÍBV........kl. 14
Valsvöllur: Valur - ÍA.............kl. 14
Akureyri: ÍBA-Breiðabl.............kl. 17
3. deild karla:
ísaflörður: BÍ-Höttur..............kl. 14
Sunnudagur:
2. deild karla:
Akureyri: KA- Stjaman..............kl. 14
Borgames: Skallagr. - Fylkir...,...kl. 14
ÍR-völlur: ÍR-Víðir............... kl. 14
Kópavogsvöllur: HK-ÞrótturR........kl. 14
Víkingsvötlur: Víkingur-ÞórA.......kl. 14
3. deild karla:
Dalvík: Dalvík - Haukar............kl. 14
Neskaupst.: Þróttur - Völsungur....kl. 14
íjölnisvöllur: Fjölnir-Ægir........kl. 20
Selfoss: Selfoss - Leiknir.,.......kl. 14
4. deild:
Gervigras: Léttir-Hamar............kl. 20
Ólafsvík: Víkingur-Framheijar......kl. 14
Varmárvöllur: UMFA - Víkverji.....’kl. 14
Gervigras: TBR-Ármann..............kl. 17
Vestm’eyjar: Smástund - Bmni.......kl. 14
Sandgerði: Reynir-Grótta...........kl. 14
Leiknisvöllur: Ökkli - Njarðvík....kl. 16
MelarHörgardai: SM-Hvöt.......,....kl. 16
Sauðárkrókur: Þrymur - Tindast.....kl. 12
Siglufjörður. KS-Neisti............kl. 14
Djúpavogsv.: Neisti-KVA............kl. 14
Seyðisfjörður: Huginn-Sindri.......kl. 16
Frjálsíþróttir
Vormót UMFA verður haldið að Varmár-
velli I Mosfellsbæ á morgun, sunnudag.
■Hið árlega Neshlaup Trimmklúbbs Sel-
tjamamess verður haldið í dag, laugardag.
Hlaupið hefst kl. 11.00. Vegalengdimar sem
boðið er upp á eru; 3, 5, 7 og 14 km og
eru verðlaun veitt fyrir fyrstu þijú sætin í
öllum flokkum karla og kvenna.
Körfubolti
Körfuknattleikssamband íslands og Pizza
67 standa fyrir götukörfubolta í Keflavik,
Hafnarfírði og í Reykjavik um helgina.
Mótið hefst í dag kl. 13.00.
Tennis
Tennishelgi verður hjá Tennisklúbbi Víkings
í Fossvogi um helgina. Ókeypis aðgangur
að völlunum allan helgina og verða leiðbein-
endur á staðnum til að kenna og kynna
almenningi íþróttina frá kl. 12 - 15 báða
dagana.
Keila
Laugardagsmót í Keiluhöllinni, fyrir byijend-
ur og þá sem lengra eru komnir, hefst kl. 20.
Skagaliðið
skemmtilegt
- segir Guðni Kjartansson, sem spáir í
spilin í 1. deildarkeppni karla
EG trú ekki öðru en að Reykja-
víkurfélögin rétti úr kútnum og
minnsta kosti eitt ef ekki tvö
Reykjavíkurfélög vinni leik í
annari umferð. Ef ekki þá þurfa
þau að skoða sinn gang,“ sagði
Guðni Kjartansson, fyrrum
landsliðsþjáifari íknattspyrnu,
í samtali viö Morgunblaðið.
Skagaliðið er sterkt og að öllum
líkindum munu þeir bera sigur-
orð á Keflvíkingum í aðalleik umferð-
arinnar. Miðað við vorleikina þá eiga
Skagamenn að vera sterakri þrátt
fyrir að Keflvíkingar séu með gott
lið. Skagaliðið er þrælskemmtilegt
og á meðan lykilmenn sleppa við
meiðsli sé ég ekkert lið stöðva þá.
Þar að auki eru ungu strákamir mjög
góðir og koma sterkir inn til dæmis
Kári Steinn.“ sagði Guðni.
„Ég veðja á að Framarar leiki
betur en síðast og spái þeim jafn-
tefli gegn ÍBV á Valbjarnarvelli.
Þeir hljóta að gera það því annars
verða þeir að setjast niður og skoða
sitt mál. Þrátt fyrir að KR-liðið sé
með nokkra menn í meiðslum þá
þarf liðið að sigra Leiftur. Það verð-
ur erfitt því leikurinn er fyrir norðan
og þar verður gríðarleg stemmning.
En ef KR leikur af eðlilegri getu og
ætlar að keppa að því marki sem
þeim hefur verið spáð verða þeir að
sigra.“
„Valur verður að vinna og sama
er að segja um Breiðablik og því er
þar um jafnan leik að ræða. Breiða-
blik verður án síns sterkasta manns,
Arnars Grétarssonar sem er í leik-
banni, en þeir munu selja sig dýrt.
Leiðin hjá Valsliðinu getur ekki ann-
Sparisjóðsmót
Opið Golfmót verður haldið á golfvelli GKG
við Vífilsstaði Garðabæ sunnudaginn
2$ maí n.k.
Keppnisfyrir komulag:
Höggleikur með og án forgjafar.
Verðiaun verða veitt fyrir 1. 2. og 3. sæti
með og án forgjafar.
Happdrætti:
Dregið úr skorkortum við verðlaunaafhendingu.
i i #S ##' |
Ræst út frá kl. 9:00
Skráning er í síma 565-7373
■ ■ / ■
SPARISJOÐURINN
GARÐABÆ
Guðni KJartansson.
að en legið upp á við eftir slæma
útreið gegn ÍBV í fyrstu umferð. Lið-
ið getur leikið betri vöm og leikmenn
verða að gera sér grein fyrir að það
þýðir ekki að leika reitafótbolta þegar
komið er í fyrstu deild. Lið FH og
Grindavíkur eru svipuð að styrkleika.
Bæði leika sterkann vamarleik og
því reikna ég ekki með að mikið verði
skorað og leikurinn verði markalaus,
í mestalagi að annað liðið geri eitt
mark.“ sagði Guðni þegar hann var
inntur eftir leikjum dagsins í dag í
1. deild.
„Fyrsta umferðin og þau óvæntu
úrslit sem þar voru sýna að i sumar
getur ekkert lið verið öruggt fýrir
fram. Leiftur til dæmis getur unnið
hvaða lið sem er og þrátt fyrir menn
segi að þeir komi á fullum krafti í
hvern leik þá er það ljóst að alltaf
er hugsað að þessi og hinn leikurinn
sé léttari en annar. Deildin verður
það jöfn og skemmtileg í sumar að
liðin geta ekki leyft sér að hugsa
svoleiðis." sagði Guðni Kjartansson
að lokum.
KVARTMILA
Breiðabliki
spáð sigri
1. deildarkeppni kvenna hefst í dag
KNATTSPYRNUKONUR ásamt
þjálfurum komu saman í gær
til að spá fyrir um úrslit í 1.
deild kvenna í knattspyrnu í
sumar og er það í fyrsta sinn
sem leikmenn og þjáifarartaka
þátt í slíkri spá. Skemmst er
f rá að segja að Breiðablik trón-
ir á toppnum með 149 stig og
KR fékk 142 en næsta lið fékk
119 stig. Á botninn fóru Haukar
og ÍBA en Vestmannaeyingar
ráku lestina með 20 stig.
Spáin ætti ekki að koma mikið á
óvart. Breiðablik hefur um ára-
bil sýnt og sannað getu sína og
ætti ekki að vera mikil breyting þar
á þó að nokkrir leikmenn hafi yfir-
gefið Kópavoginn. Vesturbæingar
hafa fylgt Blikum fast eftir og unnu
þá 1:0 í Meistarakeppninni. Róður-
inn hjá neðstu liðunum, sem bæði
eru nýliðar í deildinni, verður eflaust
erfiður enda bæði af landsbyggðinni
og ferðalög geta sett mark sitt á
leiki þeirra.
Sigrún Óttarsdóttir fyrirliði
Breiðabliks sagði að sumarið yrði
erfítt. „Það er mjög stutt á milli
okkar og KR en við ætlum auðvitað
að taka titilinn. Við sáum í meistara-
keppninni að það verður ekki auð-
velt. Við misstum til dæmis Olgu
Færseth til KR, Katrínu Jónsdóttur
í Stjömuna og _Ásta B. Gunnlaugs-
dóttir er hætt. í staðinn fengum við
meðal annars Ásthildi Helgadóttur
yfir úr KR og Margrét Sigurðardótt-
ir verður með að nýju.“
„Spáin er ekki falleg, það er gott
fyrir okkur en við ætlum ekki að
fara eftir henni,“ sagði Írís Sæ-
mundsdóttir fyrirliði ÍBV. „Markm-
iðið hjá okkur er ekki sett hátt, við
ætlum að halda okkur uppi. Við
erum með mjög ungt lið og eru flest-
ar stúlkumar úr öðmm og þriðja
flokki.“
Spá leikmanna og þjálfara
Lið stig
Breiðablik 149
KR 142
Valur 119
ÍA 111
Stjarnan 109
Haukar 50
ÍBA 46
ÍBV 20
Að sögn Eggert Magnússonar
formanns KSÍ er mesti vaxtabrodd-
urinn í íslenskri knattspyrnu hjá
kvenfólkinu og nauðsynlegt að
styðja betur við bakið á landsbyggð-
inni. „Gæði kvennaknattspyrnunnar
hafa aukist á hvetju ári og ljóst að
mikið af ungum stúlkum eru að
koma frá landsbyggðinni. Því er
nauðsynlegt styðja við bakið þar og
stórir kjarnar úti á landi verða að
taka sig saman tii að stúlkurnar
fari ekki allar til Reykjavíkur."
Einnig var í gær endurnýjaður
styrktarsamningur við Mizuno, sem
gerði þriggja ára samning í fyrra.
Að sögn Halldórs Kjartanssonar
framkvæmdastjóra Kj. Kjartansson-
ar, umboðsfyrirtækis Mizuno, er
verðmæti samningsins um þijú til
fjögur hundruð þúsund.
FRJALSAR
Met hjá Hauki
HAUKUR Gunnarsson, Ármanni, sló
íslandsmet fatlaðra í langstökki þeg-
ar hann stökk 5,02 metra á fyrri
hluta vormóts ÍR, sem fram fór á
Laugardalsvelli. Fyrra metið var 4,98
metrar, sett 1993, ogtvíbætti Hauk-
ur það á mótinu. Fyrstu tvö stökk
Hauks voru ógild, næst komu 4,64
og 4,96 metrar en síðan féll íslands-
metið með 5,01 og Haukur bætti svo
sentimetra við.
Valur spilar
og þjálfar í
Danmörku
VALUR Ingimundarson, landsleikja-
hæsti körfuknattleiksmaður íslands, og
þjálfari og ieikmaður Njarðvíkinga, hef-
ur ákveðið að flytja til Danmerkur þai’
sem honum bauðst vinna við að jyálfa
og leika með 2. deiidar liðið frá Oð-
insvé. Valur fer utan í ágúst og mun
fyrsta árið fara í að læra dönskuna eu
slðan ætlar hann í skóla. Að sögn Vals
er þetta gott tækifæri til að breyta um
umhverfi og komast utan.
Valur hefur spilað 16 ár i Úrvalsdeild-
inni og þaraf einnig þjálfað í 8 ár. Hann
hefur leikið 159 leiki fyrir ísland og nær
160. gegn Skotum í dag.
Þriú íslandsmet
Þtjú íslandsmet voru sleginn á
fyrsta mótinu til íslandsmeist-
ara í kvartmílu, sem fram fór á
uppstigningardag. Keppt var í sex
flokkum og voru sett Islandsmet í
öllum mótorhjóla flokkum, en það
gerðu Unnar Már Magússon, Sigurð-
ur Gylfason og Jóhann Jóhannsson,
sem óku mismunandi útfærðum
Suzuki mótorhjólum.
Flokkur útbúinna götubíla var fjöl-
mennur, en þar lagði Gunnlaugur
Emilsson Grétar Jónsson að velli í
úrslitum, en Brynjar Gylfason náði
þriðja sæti. Ómar Norðdahl vann
Eggert B. Samúelsson í flokki götu-
bíla og Torfi Sigurbjörnsson lagði
Halldór Björnsson í flokki bíla með
forgjöf. Sextán móthjólaökumenn
mættu til leiks og kepptu í þremur
mismunandi vélarflokkum. Keppt
var eftir nýjum reglum um útbúnað
hjólanna og voru öll eldri tekin af
skrá, þannig að besti aksturstími í
keppninni skapaði nýt met. Karl
Gunnlaugsson og Jón Kr. Gunnars-
son, báðir alvanir keppendur mætt-
ust í úrslitum í flokki kraftmestu
hjólanna. Þurfti aukaspymu til að
knýja fram úrslit og sigur féll Karli
í skaut. í sama flokki náði Sigurður
Gylfason bronsverðlaunum og setti
íslandsmet á tímanum 10.530 sek-
úndum.. í flokki 750 cc mótorhjóla
vann Jóhann Jóhannsson, en Arnar
Árnarsson varð annar eftir að hafa
sett íslandsmet á tímanum 11.02
sekúndum. í flokki 600 cc mótor-
hjóla vann Unnar Már Magnússon
og setti íslandsmet á tímanum
11.277. Hann vann Valgeir Péturs-
son í úrslitum.
„Nýju reglurnar urðu þess vald-
andi að við settum íslandsmet, þó
ég hafi t.d. átt betri aksturstíma
áður í sama flokki", sagði Unnar
Már í samtali við Morgunblaðið.
„Það er búið að banna ýmsan bún-
að, m.a. nitró innspýtingu fyrir öll
hjól nema sérútbúinn. Þá má ekki
vera með spymugrind né stífða
fjöðrun. Þá verða mótorhjólin að
vera í útliti eins og þau koma frá
framleiðanda."
1
ÞES