Morgunblaðið - 01.06.1995, Blaðsíða 1
FfARFESTING RANNSÓKNIR H ERLENT
Sjávarútvegur í landvinningum /4 Af steypu og sprungum /8 Jeppaófarir í Japan /9 ’r'MS&t
Ríkisvíxlar
Tilboðum fyrir 2.229 millj. var
tekið í útboði í gær, þar af 1.997
millj., í 3ja mán. ríkisvíxla. Þar
var meðalávöxtun 7,13% en var
7,25% í útboði ríkissjóðs 17. maí
sl. I 6 mán. ríkisvíxlum var með-
aiávöxtun 7,55% en 7,56% 17.
maí. 112 mán. ríkisvíxlum var
meðalávöxtun 8,20%, en 8,22%
17. maí. Nánari umfjöllun er um
vaxtamál á B2.
Bílar
800 fólksbílar voru nýskráðir hér
á landi í maí skv. bráðabirgða-
tölum frá Bifreiðaskoðun Is-
lands. Það er 48% aukning frá
maí 1994 þegar nýskráningar
voru 541. Fyrstu fimm mánuði
þessa árs voru fluttir inn 2.732
fólksbílar en 2.226 á sama tíma-
bili 1993. Aukningin er 23%.
Lánshæfi
Lánshæfi Islands er óbreytt skv.
nýju mati Moody’s. Háar tekjur
á mann, löng hefð fyrir stöðug-
leika í stjórnmálum og árangurs-
rík stjórnun á fábreyttum auð-
lindagrunni gera að verkum að
Island fær áfram einkunnina A2
fyrir erlend langtímalán og P-1
fyrir skammtímabréf ríkissjóðs.
SÖLUGENGIDOLLARS
Verðlag sjávarafurða 1990-1995
90 ........ ....................................b—
1990 1991 1992 1993 1994 1995
Heimild: Hagvísar 29. mai 1995. Þjóðhagsstofnun
Flugleiðir hefja að öllum líkindum
flug til Halifax í mars á næsta ári
Leiðanetið þétt
beggja vegna
Atlantshafsins
FLUGLEIÐIR hf. leita nú leiða til að auka við leiðanet sitt beggja vegna
Atlantshafsins. Þannig eru allar líkur á að félagið hefji áætlanaflug til Hali-
fax í mars á næsta ári. Einnig er á pijónunum að fjölga áætlunarstöðum
í Evrópu og auka flug innan álfunnar. Það þyrfti þó að gerast í samvinnu
við eitt af stóru flugfélögunum og eiga Flugleiðir nú í viðræðum við Luft-
hansa um slíka samvinnu.
Til að jafna flæði farþega um
Keflavíkurflugvöll þyrfti einnig að
auka flug til Bandaríkjanna annað-
hvort með því að bæta við ákvörð-
unarstað vestan hafs eða auka tíðni
til núverandi ákvörðunarstað.
Þetta kom fram á námstefnu Flug-
leiða í gær fyrir forráðamenn fjár-
málastofnana. Sigurður Helgason,
forstjóri, ræddi þar m.a. um sam-
starfsmöguleika Flugleiða við evr-
ópsk flugfélög. Hann sagði samning-
inn við SAS vera félaginu mjög hag-
stæðan. „Á meginlandi Evrópu koma
fjögur flugfélög til greina, þ.e. KLM,
Lufthansa, Swissair og Áir France.
Okkar stærsti markaður á megin-
landinu er Þýskaland. SAS og Luft-
hansa hafa tekið upp samvinnu þann-
ig að við höfum aðeins byrjað núna
að ræða við Lufthansa um hugsan-
lega möguleika samvinnu Flugleiða
og Lufthansa bæði á flugi frá ís-
landi til Þýskalands og jafnvel flug
frá öðrum stað í Evrópu inn til Þýska-
lands.“
Sigurður sagði að Flugleiðir þyrftu
að styrkja sig ennfrekar á Bretlands-
eyjum og stefnt væri að því að fljúga
á hveijum degi til London að viðbætt-
um tveimur ferðum á viku til
Glasgow. Félagið þyrfti að athuga
hvaða möguleikar væru fyrir hendi
á samstarfi við bresk flugfélög en
þar kæmu til greina Britith Midland,
British Airways og Air UK. Þar
kæmi helst til grejna British Midland
sem SAS ætti 40% hlut í og væri
byijað að kanna hvaða möguleikar
væru á samstarfi Flugleiða og Brit-
ish Midland. „Það er mjög nauðsyn-
legt að vera í samstarfi við félög
innan Evrópu ef við ætlum að hasla
okkur ennfrekar völl þar.“
Varðandi möguleika á flugi innan
Evrópu sagði Sigurður að ýmsir stað-
ir hefðu komið inn í myndina t.d.
flug milli Glasgow og Frankfurt. í
Frankfurt væri flugvöllurinn orðinn
fullnýttur og erfitt að fá heimild til
viðbótarflugs. Þá kæmi einnig til
greina að fljúga frá Amsterdam til
annars ákvörðunarstaðar í Evrópu.
Flugleiðir hafa átt í samstarfi við
bandaríska flugfélagið USAir um
nokkurra ára skeið og rætt hefur
verið um að tengja vildarkerfi félag-
anna. Hins vegar sagði Sigurður að
önnur bandarísk flugfélög hefðu ekki
sýnt verulegan áhuga á samstarfi.
Flugleiðir þyrftu að tengjast vildar-
kerfi bandarísks félags því það væri
farið að há félaginu á Bandaríkja-
markaði.
Ut er komið upplýsingarit um Kjörleiðir
Glitnis. Þar er á einfaldan hátt fjallað
um ólíkar gerðir fjármögnunar.
Hringdu og fáðu eintak eða littu inn
Glitnirhf
dótturfyrirtæki íslandsbanka Armúla 7, 155 Reykjavík Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10,
^ ctð hug$a Ktn að jjat<fest<?
Vegna sérstakra laga um flýtifyrningar er rekstraraöilum afar hagstætt aö
fjárfesta í atvinnutækjum nú í ár.
Viö hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun atvinnutækja. Meö Kjörleiðum
Glitnis bjóðast þér fjórar ólíkar leiöir til fjárfestingar í atvinnutækjum.
Haföu samband og fáðu að vita meira um
flýtifyrningar, skattfrestun og hvernig þú losnar viö aö
IL binda rekstrarfé í tækjakosti.
0TTÓ - GRAFlSK HÖNNUN LJÓSM: THE IMAGE BANK