Morgunblaðið - 01.06.1995, Page 6
6 B FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 1995
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hta HtJ,
wí xcm
,um scm
S t g r. ú n V S K
Hans Petersen
fagnar 75 ára sam-
starfi við Kodak
Morgunblaðið/Þorkell
SAMSTARFI Kodak og Hans Petersen í 75 ár fagnað. Frá vinstri:
Bogi Þór Siguroddsson, M.B. Walker, Hildur Petersen, Jón
Ragnarsson og Edward P. Hoppe.
„HANS Petersen hefur náð þeim
merkilega áfanga að hafa verið í
samstarfi við Kodak fyrirtækið í
75 ár og það er sannarlega ástæða
til að halda uppá það og til þess
erum við komnir," segja þeir M.B.
Walker og Edward P. Hoppe sem
eru svæðisstjórar á skrifstofum
Kodak í London og París. „Það
eru ekki nema eitt eða tvö fyrir-
tæki önnur í heiminum sem eiga
svona langa sögu um samstarf við
Kodak því umboðsmenn koma og
fara og í mörgum tilvikum erum
við með okkar eigin sölufyrirtæki
í einstökum löndum."
Höfuðstöðvar Kodak fyrirtækis-
ins eru í Bandaríkjunum en tengsl-
in við Hans Petersen fara gegnum
Frakkland en skrifstofurnar í Par-
ís og London sjá um sölu- og
markaðsmál í Evrópu, Afríku- og
Asíulöndum og Austurlöndum.
„Ég eða aðrir starfsmenn á skrif-
stofunni í París erum nánast í
daglegu sambandi við Hans Pet-
ersen, framkvæmdastjórann,
deildarstjóra eða aðra starfsmenn
sem hafa með sérstök mál að gera
og við fylgjumst því vel með því
er að gerast á öllum sviðum hjá
samstarfsaðilum okkar. Við skipt-
umst á hugmyndum, ræðum
tæknimál eða einhver sérstök
vandamál sem þarf að leysa en
ég fullyrði þó að slík mál eru mjög
fá,“ segir M.B. Walker.
Undir það tók Edward P. Hoppe
og undirstrikaði að það væri harla
óvenjulegt að sama fyrirtækið
héldi út svo lengi og sæi hann
enga ástæðu til að breyta neinu
Bókaútgáfa
þar um. „Hans Petersen er með á
öllum sviðum, sér um þjónustu við
sjúkrahúsin vegna röntgenfílma,
býður allar ljósmyndavörur og
tæki fyrir almenning og selur at-
vinnumönnum allt sem þeir þurfa
á að halda. Við hér náum trúlega
ekki að halda uppá næsta 75 ára
áfahga en kannski verðum við
nógu gamlir til að geta fagnað
með Hans Petersen á 100 ára af-
mælinu!“
Hildur Petersen er fram-
kvæmdastjóri Hans Petersen, Jón
Ragnarsson er forstöðumaður
allra verslana fyrirtækisins og
Bogi Þór Siguroddsson sér um
heildsölu á neytendavörum. Versl-
anir Hans Petersen eru 10 og
starfsmenn alls um 90. Þá er í 9
verslunum út um landið rekin
Kodak-Express framköllunarþjón-
usta og á þessum tímamótum fá
þijár verslanirnar sem eru gamlar
í hettunni sérstaka viðurkenningu
fyrir samstarfið. Þær eru Bóka-
verslun Jónasar Tómassonar á
ísafírði sem hefur í svo gott sem
IÐNTÆKNISTOFNUN, iðnaðar-
ráðuneytið og Aflvaki Reykjavíkur
hf. hafa gefið út bækurnar Stofnun
fyrirtækja og Handbók hugvits-
mannsins.
Tilgangurinn með útgáfunni er
að auðvelda þeim sem vilja stofna
eigið fyrirtæki eða íhuga að koma
í framkvæmd snjallri hugmynd að
fara réttar leiðir strax í upphafí.
Báðar bækurnar er unnt að nota sem
handbækur, þótt vitaskuld sé gagn-
NYLEGA kom út smáritið Skipulag
fyrirtækja sem er tíunda ritið í Rit-
röð Viðskiptafræðistofnunar Há-
skóla íslands og Framtíðarsýnar
hf. Höfundar ritsins eru Runólfur
Smári Steinþórsson lektor, Mar-
teinn Þór Amar viðskiptafræðinemi
og Sigurður Arnar Jónsson við-
skiptafræðinemi.
I frétt frá útgefanda segir m.a.
að skipulagið sé ráðandi um það
hvort fyrirtækið beri gæfu til að
ná því besta fram hjá starfsfólki
sínu og með góðu skipulagi megi
tryggja að starfsemi fyrirtækisins
sé einn samfelldur lærdómsferill
sem sífellt styrki stöðu þess og
hæfi til að ná árangri.
í ritinu er að fínna almenna
umfjöllun um skipulag fyrirtækja.
Þá er því lýst að þróun á skipulagi
þvi er, segir í frétt.
Bókin um stofnun fyrirtækja er
einkum ætluð þeim sem hyggjast
stofna til eigin rekstrar. Einnig má
nota hana til að fá almennt yfirlit
yfir réttindi og skyldur atvinnurek-
enda og stuðningskerfi hins opinbera
í þessu sambandi. I bókinni er yfír-
lit yfir lög og reglur sem varða tengsl
fyrirtækis, starfsmanns, viðskipta-
vina og opinberra aðila.
fyrirtækis verði að skoða sem óað-
skiljanlegan hluta af markvissri
stjórnun þess. Gerð er grein fyrir
flestum þeim þáttum sem falla und-
ir skipulag fyrirtækja og snerta
helstu verkþætti í starfsemi þeirra.
Meginviðfangsefni ritsins er sá
þáttur sem nefndur er stjórnskipu-
lag. Sett er fram skilgreining á því
hvað átt er við með stjórnskipulagi
og hvemig það byggist á samræm-
ingarkerfum og samræmingartækj-
um. Sérstök áhersla er lögð á að
gera grein fyrir hefðbundnum
skipulagsgerðum fyrirtækja og
þeim lýst með skipuritum. Jafn-
framt er fléttað inn í umijöllunina
nýjum skipulagshugmyndum eins
og sjálfstýrðum vinnuhópum, net-
fyrirkomulagi og margþættu skipu-
lagi.
Bókin lýsir þeim kröfum sem opin-
berir aðilar gera um tilkynningar og
skráningu á nýju fyrirtæki, hvernig
á að verða sér úti um ýmis réttindi
og leyfi, almannatryggingar til
handa atvinnurekendum og sjálf-
stæðum rekstraraðilum. Einnig er
lýst reglum um bókhaldsskyldu fyr-
irtækja, að hverju beri að huga þeg-
ar húsnæði er tekið í notkun, ráðn-
ingu starfsmanna o.fl. Þá er einnig
að finna upplýsingar um hvar er
helst að leita aðstoðar og ráðgjafar.
Handbók hugvitsmannsins
Handbók hugvitsmannsins er sér-
staklega ætluð uppfínningamönnum
og öðrum hugvitssömum einstakl-
ingum. I bókinni eru gefnar nytsam-
legar upplýsingar um úrvinnslu hug-
mynda og bent á helstu gildrur sem
hugvitsmenn geta lent í þegar unnið
er að því að gera hugmyndirnar að
veruleika. Þá er bent á leiðir til að
afla stuðnings við að hrinda hug-
myndunum í framkvæmd.
M.a. fjallað um helstu einkenni '
og vandamál hugvitsmannsins,
sköpun, þróun og mat hugmynda,
eflingu þekkingar og færni svo og
verndun og hagnýtingu hugmynda
Hvor bók um sig kostar 1.050
krónur og báðar saman kosta þær
1.570 krónur. Framtíðarsýn hf. sér
um dreifíngu og sölu á bókunum,
einnig er hægt að nálgast þær í Iðn-
tæknistofnun.
Hugvitsmenn og
stofnun fyrirtækja
legt að kynna sér efnið í heild, að
Rit um skipulag fyrirtækja