Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 1
TOYOTA TACOMA PALLBILL MEÐ 6 STROKKA VEL -
FIMM STARFSMENN MEÐ 40 ÁRA STARFSALDUR - OPEL
COMBO - SMURBÆTIEFNIÁTAPPAÐ OG FLUTT ÚT
Kringlunni 5 - sími 569-2500
fllttgmiMiibtfr
SUNNUDAGUR 4. JUNI
1995
BLAÐ
m
5 dyraj
er kominn og kostar
aðeins 2.389.000 kr.
j <® TOYOTA
; Tákn um gceði
SPARAR SANNANLEGA allt að 20% BENSIN
Kynningarverð kr. 2.990 Sími: 565 1402
48% aukning í
bílasölu í maí
48% AUKNING varð í bílasölu í
maímánuði í samanburði við sama
mánuð í fyrra en fyrstu fímm mán-
uði ársins nemur söluaukningin
20%. Jónas Þór Steinarsson fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins segir að jafnvel þótt að aukning-
in á árinu öllu verði 25-30% miðað
við síðasta ár verður salan á árinu
undir 7 þúsund bílum. Það nær
ekki meðaltali síðustu 15 ára en
að meðaltali hafa selst 8.390 bílar
á ári frá 1980.
Samtals seldust 2.733 fólksbílar
fyrstu fimm mánuði ársins. Mark-
aðshlutdeild Toyota var mest,
21,2%, þá kom Nissan með 15,3,
Volkswagen 12%, Hyundai 9,1%,
Subaru 6%, Opel 5,3%, Mitsubishi
4,8% og aðrir minna. ■
CHRYSLER Airflow árgerð 1934 er ein helsta perlan á sýningu Museum of Fine Arts í Montreal.
Nýr Volvo 600
kynntur í Frankfurt
EINN af helstu sýningargripun-
um á alþjóðlegu bílasýningunni í
Frankfurt í haust verður án efa
Volvo 600. Bíllinn er hluti af sam-
vinnuverkefni Volvo, Mitsubishi
og hollenskra stjórnvalda sem
sameinuðust um bílaframleiðslu
undir merkinu NedCar. Þegar
hefur bíll Mitsubishi, Carisma,
verið kynntur á þessum síðum en
hann var frumsýndur á bílasýn-
ingunni í Amsterdam í febrúar.
Nýi Volvo-inn er í millistærðar-
flokki eins og Carisma og undir-
vagn og fleiri grunnþættir bílsins
eru þeim báðum sameiginlegir en
hvor framleiðandi fyrir sig setur
sitt persónulega mark á endan-
lega útfærslu sinna bíla. Þannig
verður útlit á framenda og aftur-
enda annað á Volvo en Mitsubishi
og Svíarnir bjóða upp á aðrar
vélagerðir og innréttingu en Jap-
anirnir.
Hliðarlíknarbelglr
Búist er við að Volvo 600 verði
búinn hliðarlíknarbelgjum, SIPS-
kerfi, auk líknarbelgs í stýri og
fyrir framsætisfarþega. Þessu
fagna Danir því með því að bíl-
kaupendur þar í landi fá 90 þús-
und ÍSK lækkun á innflutnings-
gjöldum frá hinu opinbera með
hveijum líknarbelgi sem fylgir
bíl, þannig að með í kaupunum á
Volvo 600 fylgja 360 þúsund ÍSK
í frádrátt. Líklegt má telja að
verði Volvo 600 fluttur inn til ís-
lands verði reynt að fá bílinn án
þessa öryggisbúnaðar því hérlend-
is er búnaður af þessu tagi skatt-
lagður að fullu.
í fyrstu verður Volvo 600 boð-
inn með tveimur gerðum fjögurra
ventla véla, 115 og 140 hestafla.
Seinna er svo von á langbaksút-
færslu. Líklegt má telja að Volvo
600 verði aðeins sýndur sem
frumgerð á sýningunni í Frank-
furt því sala á bílnum á ekki að
hefjast fyrr en á næsta ári.
Með Volvo 600 kemur áhuga-
verður bíll í millistærðarflokki,
stærri en 400-línan en minni en
800-línan. Bíllinn verður að líkind-
um öllu dýrari en 400-línan. ■
NÝTT í BÍLINN
FIMMTA HVER ÁFYLUNG FRÍ
Segulsvið tækisins gerir eldsneytið
rokgjamara í brunahólfmu.
ÁBYRGÐ
SKILARÉTTUR
EINFÖLD ÍSETNING
VERKFÆRIÓÞÖRF
Þetta veldur jafnari og fullkomnari bruna
HÁGÆÐA
MEIRI KRAFTUR - MINNI MENGUN KERAMIC-SEGULL
í LÍKINGU við myndina að ofan mun
Volvo 600 líta út. Bíllinn verður fram-
hjóladrifinn með fjórum iiknarbelgjum.
FRAM til þessa hefur
bfll í hugum manna
nánast eingöngu verið
samgöngutæki en nú er
farið að gæta áhuga
sumra til þess að lyfta
bflnum á æðri stall. Þeir
hinir sömu telja suma
bíla til listaverka sem
eigi skilið sinn sess á
listasöfnum.
í síðustu viku var
sett upp sýning í Muse-
um of Fine Arts í Mon-
treal þar sem helstu list>
munimir eru Bugatti, Rolls Royee,
Alfa Romeo, Cord og Porsche. Sum-
ir segja að helsta meistaraverkið á
sýningunni sé Chrysler Airflow
árgerð 1934, sem skipuleggjendur
sýningarinnar kalla myndsýn úr
stáli og rennileika.
Sögulegur skllningur á
hlutverkl bíls
Skínandi vagnamir, fagurlega
mótaðir, ávalir eða hvassir, em
engu síðri listaverk en höggmyndir
frægra listamanna. Jafnvel lita-
notkunin í sýningarbílunum, til að
mynda appelsínugulur og svartur
litur á Aubmn Boattail '29 og föl-
grænn Cord ’36, ber einnig vott um
ríka listræna hugsun. Innanrými
bflanna bera einnig vott um list-
ræna hönnun, sérstaklega í Tucker
árgerð 1948 og Bentley árgerð
1949, þar sem þægindi ökumanns
og farþega er tvinnað
saman við hugmynda-
ríkahönnun.
„ A því er enginn vafi
að bílahönnuðir hafa
lagt hart að sér á
sínu sviði ekki síður
en hönnuðir ann-
arra hluta og hafa
oft skapað mikla
fegurð. Ég vildi að
almenningur fengi
tækifæri til þess að
öðlast skilning á
hlutverki því sem
bfllinn hefur gegnt og upplifa
hann sem hreint form,“ segir Pi-
erre Theberge, forsljóri Museum
of Fine Arts í Montreal.
Bílaáhugamenn og listunnendur
fá tækifæri til að beija augum Benz
Patent Motorwagen árgerð 1986,
sem var fyrsti ijöldaframleiddi bfll-
inn með sprengihreyfli, og Alfa
Romeo Gran Sport árgerð 1930,
sem varð fyrirmynd að hönnun
margra sportbíla. En á sýningunni
verður einnig Cadillac Eldorado
árgerð 1957, yngsti bfllinn sem
sýndur er. Þann bíl te|ja sýningar-
haldarar einna helsta táknið fýrir
ameríska drauminn og gnægtar-
þjóðfélagið sem stóð að baki hon-
um. Þeir tejja jafnframt að frá og
með þeim bfl hafi nýir tímar runn-
ið upp. Notkunargildið hafi verið
sett á oddinn, og ekki síst öryggis-
og umhverfissjónarmið. ■
Bíllinn
sem
lista-
verk