Morgunblaðið - 04.06.1995, Blaðsíða 3
2 C SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1995 C 3
Dró úr
solu d
japönskum
SALA á japönskum bílum var
dræm í Evrópu á síðasta ári.
í heild seldust 16,5% færri jap-
anskir bílar í Evrópu í fyrra
en 1993. Þó var ljósa punkta
að finna í sumum löndum, eins
og í Danmörku þar sem sölu-
aukningin í fyrra varð 29% og
8-9% á Spáni og írlandi.
33 milljónir
bíla med
loftpúóa
FRÁ því líknarbelgir voru fyrst
kynntur til sögunnar 1987
hefur notkun hans jafnt og
þétt aukist í Bandaríkjunum.
Nú eru yfír 33 milljónir bíla í
Bandaríkjunum með líknar-
belg í stýri, þar af 15 milljónir
einnig með líknarbelg fyrir
farþega í framsæti. Niðurstöð-
ur rannsókna benda til þess
að líkur á dauðsföllum í
árekstrum framan á bíla
minnka um 23% ef bílar eru
með líknarbelg.
42% undir
óhrifum
40 ÞÚSUND manns létust í
umferðinni í Bandaríkjunum í
fyrra. Rannsóknir benda til
þess að rekja megi 42% dauðs-
fallanna til ölvunaraksturs.
Aðeins hefur því ástandið
skánað því árið 1993 var sam-
svarandi tala 46%.
Námskeið
fyrir vél-
hjóla-
kennara
KENNARAHÁSKÓLINN gekkst
fyrir námskeiði fyrir vélhjóla-
kennara með aðstoð Okukenn-
arafélags Islands og var því slit-
ið 20. maí sl. Þetta er í fyrsta
sinn sem svo yfirgripsmikið
námskeið er haldið í þessum
fræðum hér á landi. Fenginn var
til landsins danski leiðbeinand-
inn Göran Dahl en námskeiðið
var bæði bóklegt og verklegt.
Hver nemandi var í tvo daga
í verklegum æfingum á flug-
braut á Reykjavíkurflugvelli.
Guðbrandur Bogason formaður
Okukennarafélagsins sagði að
flugbrautin hefði reynst heldur
þröng til þessara nota en að-
stöðuleysi væri mikið á þessu
sviði. Kvaðst hann vonast til þess
að námskeiðið yrði til þess að
betur yrði tekið á vélhjólanámi
hér á landi, en fram til þessa
hefði þessum málum ekki verið
sinnt nægilega.
24 ökukennarar voru skráðir
á námskeiðið, þar af um helm-
ingur sem hafði réttindi til þess
að kenna á vélhjól, en hinn helm-
ingurinn hafði ekki fengist áður
við slíka kennslu.
Guðbrandur sagði að síðustu
árin hefði alls ekki verið boðið
upp á námskeið fyrir vélþjóla-
kennara og hér áður fyrr hefðu
þeir þjálfað sig sjálfir. Þeir
þurftu þó að gangast undir
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
24 ÖKUKENNARAR luku námskeiði
í vélhjólakennslu. Hér er hópurinn
samankominn ásamt leiðbeinendum.
Morgunblaðið/Hreiðar Haraldsson
GUÐBRANDUR Bogason, formaður Ökukennarafélags
Islands, veitir vélhjólakennaranemum tilsögn á Reykjavík-
urflugvelli.
munnlegt próf sem Bifreiðaeftir-
lit ríkisins hélt.
Nú er gengin í gildi námskrá
um vélhjólakennaranám þar sem
gert er ráð fyrir skyldunámi í
bóklegum fræðum og 9 tíma við-
veru í verklegum æfingum, þar
af 7% tíma á baki vélhjóls. Bók-
legi þátturinn samanstendur af
kraftfræði, t.a.m. miðflóttaafli,
þyngdarpunkti o.sv.frv., búnaði
ökumanns og fjallað er um sam-
band vélhjóls og bíls. ■
Endurskipulag* hjú Þ. Jónssyni, Vélalandi
Fimm starfs-
menn með 40
úra starfsaldur
VÉLAVERKSTÆÐIÐ Þ. Jónsson,
Vélaland hf. hefur verið endur-
skipulagt og varahlutaverslun
stækkuð verulega. Fyrirtækið á
sér langa sögu á tímum mikilla
breytinga og tækniþróunar í fag-
inu. Einn stofnendanna, Grétar
Árnason, hefur starfað við fyrir-
tækið í rúm 45 ár og starfar enn.
Fjórir aðrir starfsmenn með meira
en 40 ára starfsaldur eru þeir
Eysteinn Sigurðsson, Ólafur Lár-
usson, Einar Már Magnússon og
Alfreð A. Frederiksen.
Árið 1949 urðu þeir Þórir Jóns-
son, Grétar Árnason og Jón
Adolfsson, stofnendur vélaverk-
stæðisins Þ. Jónssonar & Co.,
fyrstir til að endurbyggja bílvélar
á skipulagðan hátt, m.a. með því
að bjóða svokallaðar skiptivélar
eftir bandarískri fyrirmynd.
Sklpt um bílvél á 45 mínútum
Greint var frá því í Morgunblað-
inu árið 1950 í máli og myndum
þegar Reimar Stefánsson leigubíl-
stjóri kom til Þ. Jónssonar & Co.,
sem þá var til húsa í Brautar-
holti, fékk setta endurbyggða vél
í bíl sinn í stað þeirrar gömlu og
var mættur aftur á leigubílastöð-
ina 45 mínútum síðar.
Þetta var nokkur tímamótaat-
burður í þá daga og svona segir
frá honum í frétt blaðsins: „í gær
voru fréttamenn Morgunblaðsins
viðstaddir atburð sem ekki mun
hafa gerzt áður hér á landi og að
líkindum hvergi í heiminum að því
er okkur er tjáð. Skipt var um vél
í Ford leigubíl og tóku skiptin
aðeins 45 mínútur."
Árið 1968 flutti fyrirtækið í
Skeifuna 17 þar sem það hefur
verið síðan. Lokið er miklum
endurbótum og breytingum á hús-
næðinu og varahlutaverslun. Með
auknum og endurbættum véla- og
tækjakosti er Þ. Jónsson, Vélaland
orðið að tæknilegri þjónustumið-
stöð þar sem -unnin eru öll sér-
hæfð verkefni við bensín- og dísil-
vélar í bílum auk endurbyggingar
véla ásamt dísilstillingum. Auk
stillingarverkstæðis rekur fyrir-
tækið verslun með vélarhluti í all-
ar gerðir véla.
Á annað þúsund bílvélar
Þar til á 9. áratugnum voru að
meðaltali endurbyggðar á annað
Morgunblaðið/Sverrir
STARFSMENN og eigendur. F.v.: Harald P. Hermanns, Grétar Árnason, Alfreð Fredriksen, Ólafur
Lárusson, Einar Már Magnússon, Eysteinn Sigurðsson og Sigurður Grétarsson.
Morgunblaðið/Ól. K. M.
Á VÉLAVERKSTÆÐI Þ. Jónssonar og & þegar skipt var um vél í
Ford leigubíl Reimars Stefánssonar á 45 mínútum árið 1950.
þúsund bílvélar á ári hjá fyrirtæk-
inu. Nú endast bílvélar lengur en
fyrir 20-30 árum. Jafnframt eru
þær orðnar flóknari. Verkefnin
hafa því verið að breytast, nú er
meira um viðgerðir á einstökum
hlutum, m.a. fyrir önnur verk-
stæði.
Árið 1988 keyptu þeir Grétar
Árnason og Sigurður Grétarsson
sonur hans hlut hinna tveggja
stofnendanna í fyrirtækinu. Árið
1993 keypti svo Harald P. Her-
manns hlut Grétars. í beinu fram-
haldi sameinuðust Þ. Jónsson &
Co. og sérhæft þjónustuverkstæði
fyrir dísilvélar, sem Harald hafði
rekið fram að þeim tíma. Nú nefn-
ist fyrirtækið Þ. Jónsson, Vélaland
hf. og því stjóma þeir Sigurður og
Harald. ■
Dekk fyrir
vélhjól í
bílastæró
MICHELIN hjólbarðafram-
leiðandinn hefur sett sex nýjar
gerðir af hjólbörðum fyrir vél-
hjól á mark-
að. Hjólbarð-
amir eru
bæði til götu-
aksturs og
torfæruakst-
urs en
stærsta
dekkið er
samt kapp-
í>líctur*cH-
ekkið Hi Sport TX 15 og TX
25. TX 25 er í stærðinni
200/50ZR17, þ.e.a.s. jafn
breitt og hjólbarði á bíl.
Morgunblaðið/Sverrir
TEXSON pallhýsið er með
fjórum vökvatjökkum. Húsið
er úr áli en klætt að innan
með krossviði.
Arftaki BMW
5-línunnar
BMW 5-línan hefur verið
óbreytt á markaði frá 1988
en verið er að undirbúa kynn-
ingu á arftakanum. Þessa
njósnamynd náði ljósmyndari
Automative News þegar verið
var að prófa bílinn í Bandaríkj-
unum fyrir skemmstu. Að utan
sækir bíllinn margt til þeirra
BMW bíla sem nú eru á mark-
aði en vélarhlífin og skottlokið
er styttra en á núverandi 5-
línu. Hins vegar hefur hjólhaf-
ið verið lengt og innanrýmið
aukið. Búist er við að ný 5 lína
frá BMW verði kynnt á bíla-
sýningunni í Frankfurt í haust.
■
NÝR BMW 5 prófaður í
Bandarikjunum fyrir
skemmstu. -
m
Texson
pallhýsi
á 5 manna
pallbíla
TEXSON Pallhýsi bjóða sérhönnuð
sjö feta pallhýsi fyrir Toyota Do-
uble Cab, Nissan, Isuzu og Mitsub-
ishi L200 Double Cab. Húsin eru
klædd áli að utan og eru sjö fet
að lengd. Þau em með vökvatjökk-
um á öllum fjórum hornum og flöt-
urinn yfir stýrishúsinu hefur verið
lengdur um 25 sm til þess að ná
sem bestum aksturseiginleikum.
Fyrir aftan pallinn eru sérsmíðaðir
geymslukassar en einnig er hægt
að fá pallhýsin án fremri kassa
fyrir minni pallbíla með
einu eða einu og hálfu
húsi.
Texson pallhýsi
bjóða einnig upp á.
Litli sendillinn
Opel Combo
BÍLHEIMAR hf. hafa hafið sölu á litlum sendi-
bíl, Opel Combo. Bíllinn, sem er í megindrátt-
um byggður á Opel Corsa, fæst þrennra dyra
með tveimur vélargerðum, 1,2 Jítra og 1,4 lítra,
89 hestafla. Með minni vélinni kostar bíllinn
með virðisaukaskatti 1.245.000 kr. og
1.349.000 kr. með stærri vélinni.
Combo sameinar í einum bíl notagildi mikils
flutningarýmis, og kosti fólksbíls. Okumanns-
rýmið er eins og menn eiga að venjast í Corsa
en það sem setur sterkastan svip á Combo er
þaklínan og bylgjur i kassanum sem sagðar
eru koma í veg fyrir titring inni í bílnum.
Aðgengi er frá ökumannsrými að flutninga-
rýminu.
Combo er 4.230 mm langur og flutningsrým-
ið 1.807 mm langt, 1.330 mm breitt og hæðin
er 1.213 mm. Burðargeta bílsins er 475 kg.
Helsti búnaður í bílnum er bílbeltastrekkjarar,
tvöfaldir styrktarbitar í hurðum, hiti í aftur-
rúðu, tímastillir á rúðuþurrku, vasar í hurðum,
FLUTNINGSRÝMIÐ er 1.807
mm langt, 1.330 mm breitt og
1.213 mm hátt.
sér geymsluhólf í kassa og fleira.
Vökvastýri er staðalbúnaður með
Combo 1,4 1. ■
Morgunblaðið/Árni Sæberg
OPEL Combo fæst með 1,2 1 og 1,4 1 vélum.
I
-n
loftpúða sem festir eru á hásingu
og upp í grind. Að innan er pallhýs-
ið klætt með krossviði og engin
samskeyti eru á þaki. Gler eru lituð.
Vökvatjakkarnir eru nýjung í
Texson pallhýsunum sem hafa verið
hér á markaði frá 1991. Þeir auð-
velda mjög ásetningu, losun og
geymslumöguleika hússins. í útileg-
um er hægt að skilja húsið eftir ef
skreppa á í stuttar ferðir. Eins er
hægt að gista í húsinu án þess að
þaó sitji á bílnum.
Meðal búnaðar að innan má
nefna ísskáp, gaseldavél, vask með
handdælu og fleira. Texson TC700
pallhýsi kostar frá 605.000 kr.
SNYRTILEGUR frágangur
er að innan og svefnpláss
fyrir 3-4.
Morgunblaðið/Þorkell
STEFÁN Bjarnason fjármálastjóri Stillingar hf. og Óskar K.
Ólafsson vélstjóri við átöppunarvél sem sá síðarnefndi smíðaði.
NP VARAHLUTIR ?
fyrir japanska bíla
Tímareimar - Viftureimar - Kúplingar - Bremsuhlutir - Þurrkur
Hljóllegusett - Bensíndælur - Vatnsdælur - Pakkningasett
Kertaþræðir - Olíurofar - Hitarofar - Framlugtir - Öxulliðir
Öxulhosur - Demparar - Aukahlutir - Sendum út á land
SMIÐJUVEGUR 24 C
200 Kópavogi
SÍMI 587 0240— FAX 587 0250
Smurbætief ni flutt
út til Norðurlanda
STILLING hf., sem hefur dreifinga-
rétt á Militec-1 á Norðurlöndunum,
hyggst tappa smurbætiefninu á
neytendaumbúðir hér á landi og
flytja síðan út til Norðurlanda. Að
sögn Stefáns Bjarnasonar fjármála-
stjóra fyrirtækisins standa vonir til
þess að þó nokkur störf skapist við
þessa starfsemi.
Tappað verður á hálfs lítra um-
búðir og miðar verða prentaðir og
hannaðir á íslandi. Sigurplast hf.
hannar og framleiðir umbúðirnar.
Töppunarvélin er hönnuð Óskari K.
Ólafssyni vélstjóra.
Militec-1 smurbætiefnið hefur
rutt sér til rúms hér á landi sem
víðar undanfarin tvö ár og er nú,
að sögn Stefáns, langmest selda
smurbætiefnið á íslandi. Það er not-
að af fjölmörgum aðilum, allt frá
skotveiðimönnum til útgerðar-
manna.
Sýning í Bella Center
Stefán segir að Militec-1 myndi
húð á yfirborði málma sem er aðeins
ein sameind að þykkt og veiti þannig
betri smurningu en áður hafi þekkst.
Efnið hafi hlotið mikla viðurkenningu
um allan heim og einn stærsti bif-
reiðaframleiðandi í heimi, General
Motors, hafi gert alþjóðlegan sölu-
samning við Militec Corp. í febrúar
síðastliðnum og munu verksmiðjurn-
ar nota efnið við sína bílaframleiðslu.
Stilling hefur dreifingarétt á Mi-
litec-1 á Norðurlöndum auk íslands
og segir Stefán að mikil vinna hafi
verið lögð í að kynna efnið á Norður-
löndunum. Sú vinna sé nú loks að
skila árangri. Nýverið gekk Stilling
frá samningum um dreifingu í Nor-
egi, Danmörku og Færeyjum. Þá er
í athugun samstarf við mjög öflugan
aðila í Eistlandi, að sögn Stefáns.
Dreifing er reyndar þegar hafin á
efninu í Danmörku og segir Stefán
að viðtökurnar hafi verið mjög góðar
og danski herinn m.a. tekið það til
prófunar. Danska hollustuverndin
framkvæmdi ítarlega rannsókn á
Militec-1 áður en innflutningur þang-
að var heimilaður. í október verður
Stilling með sérstakan bás á alþjóð-
legri vörusýningu í Bella Center í
Kaupmannahöfn og kynnir efnið.
TILBOÐ
ÓSKAST
í Ford Explorer Eddie Bauer 4x4, árgerð ’91, Chevrolet
Lumina Euro, árgerð '90, Jeep Cherokee Limited 4x4,
árgerð '89 og aðrar bifreiðar er verða sýndar á Grensás-
vegi 9, þriðjudaginn 6. júní kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í G.M.C. tankbifreið m. 5.000
gal. áltank, árgerð ’77, Studebakertrukk M35AI 6x6,
árgerð ’68, United Tractor dráttartögg 4.000 Ibs., árgerð
’86 og Polaris Indy Sport GT. 440 vélsleða, árgerð '92.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA