Morgunblaðið - 07.06.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
n
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995 C 3
VIÐTAL
Eiríkur Böðvarsson hefur fiskvinnslu í hraðfrystihúsinu Trostan ehf. á Bíldudal
„HER eru ýmsir möguleikar á að ná
sér í hráefni, ég óttast það ekki.
Aðalatriðið er hvort eitthvað fáist út
úr vinnslunni," segir Eiríkur Böðvars-
son. Hann átti og rak rækjuverk-
smiðjuna Básafell á ísafirði með fé-
lögum sínum þar til hann keypti eign-
ir Sæfrosts á Bfldudal af Fiskveiða-
sjóði. Hann hefur nú hafið rekstur
hraðfrystihúss undir nafninu Trostan
ehf. og í haust mun hann einnig
heQa rækjuvinnslu í húsunum.
VIII vera elnn á báti
„Það voru fyrst og fremst per-
sónulegir hagir mínir sem réðu þess-
ari ákvörðun,“ segir Eiríkur þegar
hann er spurður að því hvers vegna
einn af „rækjukóngunum" á ísafirði
hefði ákveðið að söðla um og gerast
nýr „Bíldudalskóngur". „Eg kom
ekki hingað vegna þess hvað hér er
fallegt! Mig langaði einfaldlega til
að takast á við hlutina einn. Ég var
í ágætis rekstri á ísafirði með góðum
félögum. Ég lenti í áföllum fyrir
nokkrum árum, hef einangrast og
þá er alltaf hætta á að maður verði
lík í lestinni í samstarfi við aðra.
Það á betur við mig að vera einn á
báti og ég ákvað að byija upp á
nýtt,“ segir Eiríkur. Afallið sem
hann vísar til er gjaldþrot Niðurs-
uðuverksmiðjunnar hf. á ísafirði sem
hann stýrði.
Varðandi sögu frystihússins á
Bíldudal, gjaldþrot tveggja rekstrar-
aðila á fáeinum árum, segir Eiríkur
að Fiskvinnslan hf. á Bílduda! hafi
ekki verið eina fyrirtækið sem lenti
í erfiðleikum á þessum tíma, öll
frystihúsin á Vestfjörðum og nánast
um land allt hafi lent í því sama.
Hins vegar hafi ekki verið áhugi á
að styðja rekstur Fiskvinnslunnar
hf. áfram og hún verið gerð gjald-
þrota. Þeir sem tóku við rekstrinum
hafi síðan ekki fengið tækifæri til
að komast almennilega í gang eftir
gjaldþrotið.
Nýjar aðferðir við vinnsluna
Eiríkur segist hafa gert góð kaup
þegar hann keypti hraðfrystihúsið á
61 milljón af Fiskveiðasjóði. Það sé
þó auðvitað afstætt. Kaupin verði
að teljast góð miðað við rekstur til
langs tíma. En kaupverðið sé hins
vegar hátt ef litið sé til þess sem
aðrir vildu greiða. Húsin eru nýleg
að hluta og eru þau virt í brunabóta-
mati á 200 milljónir kr. þannig að
kaupverðið er innan við þriðjungur
af áætluðum kostnaði við að byggja
þau upp í svipuðu horfi og nú. Hann
telur sig hafa verið heppinn að kom-
ast yfir eignirnar, vel hafi gengið
að fjármagna kaupin og bankavið-
skipti fengist í Éyrarsparisjóði á
Patreksfirði.
Eignirnar mynda að mörgu leyti
heppilega rekstrareiningu, að sögn
Eiríks. Hann segir að húsið sé lítið
og tiltölulega ódýrt í rekstri en pláss-
ið nýtist vel þannig að frystihúsið
hafi kosti stóru húsanna. Hann segir
að eignirnar hafi verið í sæmilegu
ástandi þegar hann tók við þeim í
Vildi byija
upp á nýtt
Fiskvinnsla er að hefjast í hraðfrystihúsinu á Bíldudal á nýjan leik,
nú á vegum Trostans ehf., fyrirtækis Eiríks Böðvarssonar, og
rækjuvinnsla hefst í haust. Unnið hefur verið að endurskipulagn-
ingu framleiðslunnar með þeim vinnubrögðum sem best þekkjast
í dag. Þegar Helgi Bjamason ræddi við Eirík á Bíldudal sagðist
hann vera bjartsýnn um hráefnisöflun og rekstur og sagði að Am-
firðingar hefðu tekið sér vel.
apríl en komið hafí verið að viðhaldi.
Undanfamar vikur hafa því verið
notaðar til að dytta að ýmsum hlut-
um, þvo og mála, eftir því sem fjár-
hagslegt bolmagn leyfir.
„Nei, það er af og frá að hægt
sé að kveikja á vélunum og hefja
vinnslu á sama hátt og á þeim var
slökkt. Miklar breytingar hafa orðið
í frystihúsarekstri á undanförnum
ámm. Við munum eftir megni inn-
leiða nýjar aðferðir við vinnsluna.
Keyptur hefur verið nýr flokkari og
verður allur fiskur stærðarflokkaður
og hausaður við móttöku. Það eykur
hraðann í fiskvinnslunni og eykur
nýtingu. Þá er verið að huga að
framleiðslu í smápakkningar," segir
Eiríkur.
Eiríkur segir að vel líti út með
hráefnisöflun. Mikið af hráefni ber-
ist á land á þessu svæði auk þess
sem möguleikar hafi skapast á að
kaupa að hráefni lengra að, til dæm-
is fryst hráefni og úthafskarfa. Hann
nefnir færaafla krókabáta, kola sem
veiðist í snurvoð og steinbít á línu
á vorin. Býst hann við að vinna
400-600 tonn af kola í sumar og
segir að nýi stærðarflokkarinn sé
forsenda þeirrar vinnslu. Samvinna
verður við saltfiskverkunina í Nausti
um skipti á hráefni, eftir því sem
þeim hentar best.
Þijú hraðfrystihús á suðurhluta
Vestfjarða, Oddi á Patreksfirði,
Hraðfrysithús Tálknafjarðar og
Trostan, hafa tekið upp sanivinnu
um að kanna möguleikana á vinnslu
á úthafskarfa. Myndu þau þá kaupa
stóra farma og skipta á milli sín.
„Ég á eftir að fá sannfæringu fyrir
því hvað kemur best út í vinnsl-
unni. Hráefnisöflunin verður ekki
vandamálið heldur hvað hefst út úr
vinnslunni.“
Samkeppni um rækjuna
Eiríkur á bát á ísafirði. Hann
býst alveg eins við að selja hann og
losa sig alveg út úr útgerð. Og hann
hefur litlar áhyggjur af því að reka
kvótalausa fiskvinnslu. „Það liggja
ákveðnir möguleikar í staðsetningu
frystihússins vegna þess afla sem
hér berst á land, auk þeirra mögu-
leika sem eru á kaupum hráefnis
annars staðar frá. Það er því ekki
eins mikil þörf fyrir kvóta og var
fyrir nokkrum árum,“ segir hann.
Trostan hefur fengið rækju-
vinnsluleyfi og segist Eiríkur hefja
rækjuvinnslu í haust þegar rækju-
veiðin á Arnarfirði hefst. Hefur hann
leyfi fyrir tveimur pillunarvélum og
ætlar að byija smátt. Hann segir
að nokkuð sé til af tækjabúnaði til
rækjuvinnslu og annað geti hann
keypt fyrir tiltöluíega lítinn pening,
þannig að ekki þurfí að fjárfesta
mikið vegna rækjuvinnslunnar.
Nokkur spenningur er á Bíldudal
vegna væntanlegrar samkeppni Ei-
ríks við Rækjuver sem lengi hefur
rekið rækjuvinnslu á staðnum. Eirík-
ur segir að þetta sé ekki einungis
spurning um' verð, heldur einnig um
möguleika rækjusjómanna til að
velja sér viðskiptaaðila, þegar hann
er spurður að því hvort aukin sam-
keppni sprengi ekki rækjuverðið
upp. Segist hann greiða sama verð
fyrir rækjuna og á ísafirði. Hann
bendir á að rækjubátarnir séu ekki
lengur bundnir af því að leggja upp
hjá tilteknum stöðvum. Því séu ailir
í samkeppni við alla um hráefni.
Rækjuverksmiðjurnar séu farnar að
kaupa hráefni í öðrum landshlutum,
Rækjuver hafi til dæmis hafið kaup
á Eldeyjarrækju af Suðurnesjum.
Vonlr bundnar við Trostan
Þegar full vinnsla verður komin í
gang hjá Trostan ehf. skapast vinna
fyrir 30-40 manns og veltan er áætl-
uð 350-400 milljónir kr.
„Mér hefur verið afar vel tekið
og á orðið marga vini og kunn-
ingja,“ segir Eiríkur. Hann viður-
kennir að eftir mikla erfiðleika í at-
vinnulífi staðarins frá því Fiskvinnsl-
an hf. varð gjaldþrota verði hann
var við miklar væntingar vegna þess
rekstrar sem hann er að hefja á
staðnum. „Fólk bindur vonir við
Trostan. Ég hef heyrt því fleygt að
margir líti á þetta sem síðustu til-
raunina til endurreisnar og það flytji
í burtu ef hún gangi ekki upp. En
ég verð fyrst og fremst að gera
þetta á mínum eigin forsendum.
Sjálfs mín vegna verð ég að standa
mig. Ég legg mikið á mig til þess.
Hitt verður að koma með ef vel
gengur,“ segir Eiríkur Böðvarsson.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
UNNIÐ við kolafrystingu hjá Trostan ehf.
EIRÍKUR Böðvarsson fyrir framan hraðfrystihús
Trostans ehf. á Bíldudal.
Skiparadíó hf.
kynnir FURUNO FR-2100 radarínn sem kallaður
er "UNDRI" vegna fjölhæfni oggæða.
Kynntu þér málið og verðið.
Skiparadíó hf.
Fiskislóð 94,101 Reykjavík, sími 562 0233.
r
lnnrítnn er Ibík
ÚTVEGSSVIÐ
Á DALVIK
Boðið er upp á 1. og 2. stíg skipstjóranáms, fiskiðnaðamám og 1. ár framhaldsskóla
Leitíð upplýsinga í síma 466-1083 og í bréfsíma 466-3289.
V.
J