Morgunblaðið - 08.06.1995, Side 22
MöRGU'NBLAÐIÐ
22 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995
LÍSTÍR
New York -
MYNPUST
N ý I i s t a s a f n i ð
HUGMYNDALIST
„10 eyjaskeggjar frá Ameríku. 10
Islanders from America"
Opið frá 14-18 alla daga til 25 júni.
Aðgangur ókeypis. Sýningarskrá
100 krónur.
FYRIR eitt er sýningin New York
- Nýló sér á báti, sem felst í því að
á móti fímm íslendingum taka fímm
einstaklingar frá Puerto Rico þátt
í henni, en mér er ókunnugt um að
myndlistarmenn frá því fíærlæga
og framandi landi hafí sýnt hér áður.
Hér er að vísu um listaskólanem-
endur að ræða, en telst engu að
síður í senn áhuga- og forvitnilegt,
því maður vill gjaman vita hvemig
listspímr á þeim blóðheitu slóðum
hugsa og í hvetju þær em frá-
bmgðnar þeim á köldu breiddar-
gráðunum.
Allir tíu sýnendumir em skólafé-
lagar frá New York, með dijúgan
áhuga á hugmyndafræðilegri list og
er því óhætt að álykta að hér sé
kominn þverskurður á viðfangsefn-
um listnema úti í heimi. Um er að
ræða þau Annex Burgos, Hrafnhildi
Arnardóttur, Ingibjörgu Jóhanns-
dóttur, Charles Juhasz-Alvardo,
Kristínu Hauksdóttur, Magnús Sig-
urðsson, Ana Rosa Rivera Marrero,
Amaldo Morales, Carmen Olmo og
Stefán Jónsson.
Það verður þó naumast sagt að
funinn í Puerto Rico-þjóðinni, grein-
ist á myndum þessara einstaklinga,
og ei heldur að kuldinn og óútreikn-
anleg veðráttan komi fram í mynd-
verkum íslendinganna. Satt að
segja staðfestir sýningin þá tilgátu,
að listnemar séu að fást við mjög
keimlíka hluti í hundmðum og þús-
undum listaskóla dreifðum um allan
heim, og alls staðar í nafni framleik-
ans. Fmmleikinn er þá, eins og ég
hef oft haldið fram, orðinn að hóp-
efli og akademisma og þá leitar
hugurinn aftur til Salon-listamanna
fyrri alda. Munurinn er þó vemlegur
því að þeir vom málarar yfírstétt-
arinnar, sem ein gat leyft sér að
kaupa listaverk á þeim ámm, en
núlistamenn em upp til hópa háðir
listhúsaeigendum og sýningarstjór-
um. Þannig fjölgar kaupstefnum
listhúsaeigenda stöðugt og em að
verða ieiðandi og markandi áhrifa-
vald um listmat víða um heim.
Og hvar fínnum við eiginlega
framleikann í dag nema hann snerti
hag markaðsins? Gott dæmi um það
er farandsýning á list fmmbyggja
Ástralíu, “Aboiriginal Art“,
Crossroads toward a new reality,
sem er stórbrotin i skreytikenndum
ríkidómi sínum. Hún hefur farið sig-
urför um heiminn á undangengnum
ámm og var ég svo lánsamur að
sjá hana í Tokyo fyrir tveimur og
hálfu ári. Það var svo nýlega til
þess tekið í listheiminum að enginn
hafði sérstakan áhuga á list frum-
byggjanna fyrr en einhveijir upp-
götvuðu að hér væri um gullnámu
að ræða!
Ýmsar spurningar verða óneitan-
lega áleitnar við skoðun sýningar-
innar í Nýlistasafninu en hug-
*
*
ANA ROSA Rivera
Marrero, Án titils.
myndafræðilega fólkið er áberandi
meðvitað um markaðssetningu
verka sinna og er hér um alþjóðlega
hreyfíngu að ræða, sem hefur ekki
svo lítinn svip af trúarbrögðum.
Áleitnust er sú, hvort listaskólar eigi
að fara eftir alþjóðlegum hræringum,
sem hrandið er af stað af markaðs-
öflum beggja vegna Atlantsála, og
standa stöðugt skemur yfír, eða leit-
ast við að rækta eigin garð.
Það er svo alveg nýtt að fmmleik-
inn sé falinn í því að láta fjarstýra
sér og mata sig á alþjóðlegum
gmndvelli, öðmvísi mér áður brá.
Hins vegar er hið góða við þetta
að sjálfur leikurinn er virkjaður en
hann er einn mikilvægasti þáttur
1
ARNALDO Morales. Fex Selec 4000 No 94
sköpunarferlisins, eða næst á eftir
vinnunni og sársaukanum. Mikil
áreynsla, eins og t.d. í íþróttum,
verður til að auka blóðstreymið og
adrenalínið í líkamanum þannig að
mönnum líður betur. Það gerist ekki
án áreynslunnar og sársaukans,
nema um notkun örvandi lyíja sé
að ræða. Svipað er það í listinni,
því án vinnu og áreynslu ná menn
ekki nýjum áföngum og mikilvægt
er að útiloka enga möguleika og
festa sig ekki um of á afmörkuðum
vettvangi þótt hann sé „in“ þessa
stundina. Þá er samvinna ólíkra
þjóðarbrota á listavettvangi af hinu
góða og verður vonandi til að bæta
heiminn.
Ég viðurkenni að ég er lítið inni
í myndlist eyjarinnar fjarlægu á
Karabíska hafínu og er þess nokk-
urn veginn fulviss eftir skoðun sýn-
ingarinnar að ég sé svo til jafnnær,
og ei heldur hafí mér aukist tiltak-
anlega þekking á íslenzkri list. Mér
þóttu þó vinnubrögðin yfírvegaðri
hjá útlendingunum og handverkið
fullkomnara. Alvömleysi og hálf-
kæringur virðist stundum hijá
vinnubrögð landans á hugmynda-
fræðilega sviðinu, eins og kemur
skýrt í ijós af nafngift einnar mynd-
arinnar, „Þijú rassgöt og jafnmarg-
ar píkur“. Vinnubrögðin við út-
færslu myndanna em í samræmi
við hana og á gmnnskólastiginu.
Summan af þessu er, að ég sé
fátt á sýningunni sem framkallar
viðbrögð og það helst að alvara,
átök og hnitmiðun em að baki at-
hafnanna.
Sýningarskráin er mjög vel hönn-
uð í alla staði, en hvergi kemur fram
hvar hún hafi verið prentuð né hveij-
ir standi að baki. Er ég ætlaði að
grennslast fyrir um það á staðnum
daginn eftir og rýna um leið betur
í sýninguna kom ég að lokuðum
dyrum á auglýstum sýningartíma.
Naumast nógu gott enda urðu fleiri
frá að hverfa á sama tíma, en víst
er fólkið ungt og leikur sér.
Bragi Ásgeirsson
Alþjóðleg- tónlistarhátíð í annað sinn á ísafirði
Heimskunnur píanókenn-
ari heldur námskeið
JÓNSMESSUTÓNAR er yfírskrift
alþjóðlegrar tónlistarhátíðar sem
haldin verður á ísafirði dagana
20.-24. júní næstkomandi. Hápunkt-
ur hátíðarinnar verður píanónám-
skeið Ludwigs Hoffmanns, eins virt-
asta píanókennara Þýskalands, en
einnig verður efnt til tónleika og
fyrirlestra þar sem sérstök áhersla
verður lögð á íslenska tónlist.
Tónlistarskóli ísafjarðar hefur veg
og vanda af undirbúningi Jónsmessu-
tóna en hann gekkst fyrir áþekkri
hátíð, Sumarsólstöðunámskeiðinu,
árið 1991. Sigríður Ragnarsdóttir
skólastjóri segir að hún hafí þótt
mjög vel heppnuð og hafi hlotið fá-
dæma góðar viðtökur tónlistarmanna.
Jónsmessutónar leggjast vel í Sig-
ríði og fagnar hún sérstaklega komu
Hoffmanns. „Það er mikill fengur í
því að fá slíkan afburða listamann
til að halda námskeið á íslandi og
sérstaklega ánægjulegt að ísafíörður
skuli njóta þess. Á Isafirði er sterk
hefð fyrir píanóleik og píanókennslu
en Ragnar H. Ragnar, fyrram skóla-
stjóri Tónlistarskóla Ísaíjarðar, var
mikill frámkvöðull á því sviði og er
sannarlega verðugt að minnast
starfa hans með því að efla píanóleik
á íslandi."
Ludwig Hoffmann fæddist í Berlín
árið 1925 og lagði þar stund á píanó-
nám áður en hann hélt
til Vínarborgar og Köln.
Naut hann leiðsagnar
manna á borð við
Weingarten, Rössler og
Schmidt-Neuhaus. Á
áranum 1954-85 var
Hoffmann virkur kon-
sertpíanóleikari og hélt
tónleika um víða veröld,
aðallega sem einleikari.
Til em ótal upptökur
með leik hans en sér-
staka athygli hefur vak-
ið túlkun hans á tónlist
Beethovens og-Liszts.
Hoffmann hefur ver-
ið prófessor við Tónlist-
arháskólann í Miinchen
í aldarfjórðung og
gegnir nú einnig pró-
fessorsstöðu við Tón-
listarháskólann í Vínarborg. Hann
er afar eftirsóttur kennari enda seg-
ir Sigríður að nemendur hans veki
hvarvetna mikla athygii fyrir yfír-
burðatækni og frábæra listræna
túlkun.
Öll píanóverk Jóns Leifs
Jón Leifs og verk hans verða einn-
ig í brennidepli á hátíðinni. Öm
Magnússon píanóleikari mun efna til
tónleika og verða öll tónverkin sem
Jón samdi fýrir píanó á
efnisskránni. Þá mun
Hjálmar H. Ragnarsson
tónskáld við sama tæki-
færi fjalla um tónlistina
og tónskáldið. Hjálmar
mun jafnframt efna til
fýrirlesturs um eigin
verk, Fimm prelúdíur
fýrir píanó, á hátíðinni
og mun Öm flytja
prelúdíumar jafn óðum.
Á hátíðinni verða
einnig kammertónleik-
ar, þar sem meðal ann-
ars verða flutt verk eft-
ir Aaron Copeland,
Sjostakovits, ViIIa-
Lobos, Schubert og Bo-
huslav Martinu. Flytj-
endur verða kanadísku
hljóðfæraleikaramir
Lana Betts þverflautuleikari, David
Enns píanóleikari og Karl Toews
sellóleikari. Þau tvö fyrstnefndu
starfa sem tónlistarkennarar í Stykk-
ishólmi en Sellóleikarinn starfar í
Noregi.
Sigríður segir að mikill áhugi sé
fyrir námskeiðinu og margir hafí
skráð sig til leiks, þar á meðal nokkr-
ir þekktir píanóleikarar. Hátíðinni
lýkur væntanlega með tónleikum
þátttakenda.
LUDWIG Hoff-
mann er afar eft-
irsóttur píaiió-
kennari.
Hanna Dóra verð-
launuð
Barcelona. Morgunblaðið.
HANNA Dóra Sturludóttir
vann 3. verðlaun í söngkeppni
Maria Canals í Barcelona ný-
verið. Keppnin hefur verið
haldin á hverju ári frá 1954 og
er lítil en virt
píanó- og söng-
keppni.
Hanna Dóra
lauk 8. stigi úr
Söngskóla
Reykjavíkur
árið 1992 með
hæstu einkunn
sem þar hefur
verið gefin.
Hún fór síðan í
framhaldsnám
til Berlínar og hefur numið þar
söng við Hochschule der Kunste
síðastliðin þrjú ár. Hún hélt
ljóðatónleika í Hafnarborg á
Islandi á síðasta ári og hefur
nú í ár tvívegis sungið með FQ-
harmóníu Berlínar.
Þetta er fyrsta keppnin sem
Hanna Dóra tekur þátt í og var
hún að vonum ánægð með ár-
angurinn. „Það er allt annað
að syngja í keppni, heldur en
á tónleikum. Þetta var góð
reynsla og það var ótrúlega
spennandi eftir hverja umferð,
á Spáni
að sjá hverjir komust áfram
þangað til við vorum bara fjór-
ar eftir í lokaumferðinni,“
sagði Hanna Dóra. 46 keppend-
ur voru skráðir í söngkeppnina
en aðeins þrír voru verðlaun-
aðir. „Ég hafði ekki búist við
að komast svona langt þannig
að í lokaumferðina hafði ég
skráð á mig aríu sem ég hafði
aldrei sungið áður opinber-
lega. En þetta tókst allt saman
undravel." Hanna Dóra heillaði
spönsku dómnefndina með því
að syngja m.a. verk úr Pétri
Gaut, La Boheme, Carmen og
Töfraflautunni, en hún söng
einmitt hlutverk Paminu í
Töfraflautunni í uppfærslu
skólans á verkinu í Berlín á
síðasta ári.
Það er mikið að gera hjá
þessari íslensku valkyiju og
hún bjóst ekki við að taka þátt
í annarri keppni strax á næst-
unni. „Ég syng aftur með Fíl-
harmóníu Berlínar nú í sumar
og á stóru Óperufestivali í Bad
Hersfeld um miðjan júlí. Þegar
tími gefst til tek ég ábyggilega
þátt í einhverri annarri
keppni,“ sagði Hanna Dóra
Sturludóttir.
Apple-umboðið
Þjónustudeild:
i Applc-umboðið hf.
Skipholti 21, Reykjavík
511 5115