Morgunblaðið - 08.06.1995, Blaðsíða 2
2 C FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
1
KVIKMYNDIR VIKUNNAR
SJÓNVARPIÐ
STÖÐ TVÖ
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ
MOO <in.Góður málstaður
.44.111 (The Good Fight)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1993
um fyrrverandi hjón sem bæði eru
lögfræðingar. i erfiðu máli sameina
þau krafta sína og komast jafnframt
að því að enn lifir í gömlum glæðum.
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ
Kl. 21.10'
Pítsustaðurinn
(Mystic Pizza) Banda-
rísk bíómynd frá 1988 um ástarævin-
týri þriggja ungra stúlkna sem vinna
saman á pítsustað í Connecticut.
U| 40 0(1 ^Hæðin (The Hill) Sí-
III. 4u.UU gild bresk bíómynd
frá 1965 um breska fanga í Norður-
Afríku í seinni heimsstyrjöldinni.
SUNNUDAGUR11. JÚNÍ
Kl. 22.25
►Á Unaðshæð
(Brutti, sporchi e catt-
ivi) ítölsk bíómynd frá 1976 um fólk
sem flýr sveitina í von um betri tíma
í þéttbýlinu.
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ
VI 4 4 1|| ►Makaval (The Mat-
III. 4 I • IU ing Game) Bandarísk
gamanmynd frá 1959 um skattrann-
sóknarmann sem er sendur tii að líta
á fjármál fjölskyldu einnar en verður
ástfanginn af heimasætunni.
- ■ m m
Stoð tvo
VI 44 4ft ^Dögun (Daybreak)
III. 40.4 U Myndin gerist í fram-
tíðinni þegar veröldin er orðin gjör-
samlega vitskert. Skæð farsótt ógnar
bandarísku þjóðinni og baráttuglöð
ungliðahreyfing leitar uppi alla þá,
sem hugsanlega eru smitaðir, og send-
ir þá í sóttkvíar sem minna helst á
fangelsi. Þeir, sem á einhvem hátt
bijóta ríkjandi reglur og eru með upp-
steyt, fá einnig að kenna á því.
Stranglega bönnuð börnum.
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ
VI 4 4 411 ^Morð á dagskrá
III. 4 I.4U (Agenda for Murder)
Rannsóknarlögreglumaðurinn Col-
umbo rannsakar dauðdaga Franks
Stalpin, illræmds fjárglæframanns, en
það lítur helst út fyrir að hann hafi
framið sjálfsmorð. Ýmislegt er þó ekki
eins og það á að vera, að mati Colum-
bos.
«44 CC ^.Bál og brandur
• 44.UU (Wilder Napalm)
Bræðumir Wilder og Waliace
Foudroyant eiga margt sameiginlegt.
Þeir eru til að mynda báðir þeim hæfi-
leikum gæddir að geta tendrað bál
hvar og hvenær sem er með hugarork-
unni og þeir eru líka báðir ástfangnir
af sömu konunni, eiginkonu Wilders,
Vidu. Stranglega bönnuð börnum.
Kl. 1.
► Góð lögga (One
Good Cop) New Ýork
löggan Arties Lewis hefur alltaf verið
strangheiðarleg lögga en þegar félagi
hans er skotinn til bana við skyldu-
störfín koma upp erfíð, siðferðileg
vandamál sem krefjast úrlausnar. Þau
hjónin ákveða að taka að sér þijár
munaðarlausar dætur Stevies.
Stranglega bönnuð bömum.
SUNNUDAGUR 11.JÚNÍ
MÁNUDAGUR 12. JÚNÍ
|f| 44 CC wFaðir brúðarinnar
III. 4u.UU (Father of the Bride)
George Banks er ungur í anda og
honum fmnst óhugsandi að auga-
steinninn hans, dóttirin Annie, sé nógu
gömul til að vera með strákum, hvað
þá að ganga inn kirkjugólfíð með ein-
um þeirra. En George verður víst að
horfast í augu við að litla dúllan hans
pabba sé orðin stóra ástin í lífí Bryans
MacKenzie.
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ
VI 44 4ft ►Bekkjarfélagið
III- 40. IU (Dead Poets’ Society)
Frábær mynd sem gerist árið 1959
og fjallar um enskukennarann John
Keaton og óhefðbundna kennsluhætti
hans. Hann ræður sig að Welton-
dréngjaskólanum þar sem strangar
reglur gilda og nemendum eru inn-
rættir góðir siðir. Keaton tekur annan
pól í hæðina og leggur mest upp úr
að kenna nemendum sínum að tjá sig
og lifa lífinu með öll skilningarvit
galopin.
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ
MOO ftC ►Banvæn kynni (Fat-
. 4u.Uu a/ Love) Alison Gertz
hefur ekki getað jafnað sig af flensu
og fer í rannsókn á sjúkrahúsi í New
York. Niðurstöðurnar eru reiðarslag
fyrir hana, foreldra hennar og unn-
usta: Hún er með alnæmi.
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ
VI 41 Ift ^.Jarðskjálfti (Earth-
nl. 4I.IU quake) Mesti jarð-
skjálfti allra tíma ríður yfir suðurhluta
Kalifomíu og Los Angeles borg er
nánast jöfnuð við jörðu. Manntjón er
mikið og þeir, sem eftir lifa, reyna að
bjarga sér við hörmulegar aðstæður.
Við fylgjumst með þeim áhrifum sem
skjálftinn mikli hefur á nokkra borg-
arbúa, en þeirra á meðal eru bygging-
arverktakinn Stewart Graff og Remy,
eiginkona hans, löggan 'Lew Slade,
sem mikið mæðir á og Sam Royce,
eigandi byggingarfyrirtækis sem situr
fastur í einni af byggingum sínum.
Stranglega bönnuð börnum.
MOn «► Trú °9 flötrar
■ 4U.UU (Signs & Wonders)
Fólk sem ekki þekkir til Palmore-flöl-
skyldunnar myndi sennilega ekki taka
eftir því að ekki er allt með felldu.
Fyrir um ári síðan sneri dóttir þeirra
við þeim bakinu og gekk í sértrúar-
söfnuð í Kalifomíu í Bandaríkjunum.
Þessi nýja trú hennar krefst þess að
hún skilji fortíð sína við sig og hafi
ekkert samband við fjölskylduna.
Þetta veldur móður hennar miklu hug-
arangri en pabbi hennar, sem er prest-
ur, hefur hallað sér að flöskunni.
Ýmislegt verður til þess að móðir
hennar tekur ákvörðun um að ná henni
úr þessum sérstrúarsöfnuði og lætur
ræna henni með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum. Seinni hluti er á dagskrá
annað kvöld.
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ
Kl. 21.35
►Lögregluforinginn
Touch of Frost) Ný bresk sjónvarps-
mynd um störf lögregluforingjans
Jacks Frost sem virðist að þessu sinni
hafa fengið óvenju auðvelt mál að
glíma við, en ekki er allt sem sýnist.
j ►Hvarfið (The Van-
ishing) Hörkuspenn-
andi sálartryllir um þráhyggju manns
sem verður að fá að vita hvað varð
um unnustu hans sem hvarf með dul-
arfullum hætti. Bönnuð börnum.
Kl. 23.45
BÍÓIN í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Hinir aðkomnu + *'A
Skemmtileg og spennandi geiminnrás-
armynd sem líður nokkuð fyrir auka-
endi. Blanda af Innrásinni frá Mars
og Innrás líkamsþjófanna með Donald
Sutherland í toppformi.
Ed Wood -k -k +
Ed Wood var lélegasti kvikmyndaleik-
stjóri aldarinnar og einn af aðdáendum
hans, Tim Burton, hefur reist honum
skemmtilegan minnisvarða með
svart/hvítri kómedíu um geggjaða
veröld b-myndanna. Martin Landau
er einfaldiega stórkostlegur sem Bela
Lugosi.
Tvöfalt líf *
Mislukkaður sálfræðitryllir í c-flokki
með vita vonlausan mannskap framan
og aftan við tökuvélamar.
Strákar til vara + +
Þijár vinkonur hafa hver sinn djöful
að draga en Hollywood fer offari enn
eina ferðina í tilfinningamálunum.
Leikkonurnar bjarga nokkru í mis-
jafnri mynd.
BÍÓHÖLLIN
Fylgsnið + +
Spennumynd byggð á sögu eftir Dean
Koontz. Lengst af prýðileg skemmtun
en Qölskylduvæmnin í lokin er fullmik-
ið af því góða.
Þyrnirós ++Vi
Faileg Disneyteiknimynd frá 1959 sem
byggir á ævintýrinu um Þymirós.
Fyrri hlutinn hægur en lokaátökin hin
skemmtilegustu.
Englarnir + +
Lítil og voða sæt mynd um hornabolta-
lið sem fær hjálp af himnum. Há-
bandarísk fjölskylduskemmtun.
Fjör í Flórída + +
Nokkrar framhjáhaldssögur era aðal-
inntakið í þessari rómantísku gaman-
mynd sem minnir svolítið á Woody
Allen. Hressileg samtöl en frekar
óspennandi efni.
Rikki ríki + +
Dálagleg barnaskemmtun um ríkasta
drenghnokka í heimi sem á allt nema
vini. Macaulay Culkin fer hnignar.di
sem stjarna.
Algjör bömmer +
Grín og spenna blandast saman í svert-
ingjaspennumynd eins og þær voru
fyrir 20 áram. Andlaus formúluaf-
þreying.
HÁSKÓLABÍÓ
Rob Roy + +'A
Sverðaglamur, ættardeilur og ástar-
mál á skosku hálöndunum á 18. öld.
Myndin lítur vel út og fagmannlega
en handritið misjafnt og lengdin óhóf-
leg.
Star Trek: Kynslóðir ++'/2
Sjöunda myndin í Trekkabálknum
markar kaflaskil því nú tekur nýr
kapteinn við stjóm. Sami gamli góði
hasarinn í úgeimi.
Dauðataflið '/2
Dæmalaust óspennandi og illa leikin
sálfræðileg spennumynd.
Höfuð uppúr vatni + +
Norsk spennumynd og svört kómedía
um konu á sumarleyfiseyju og menn-
ina í kringum hana. Frambærileg en
varla neitt stórvirki.
Ein stór fjölskylda +'/2
Kúgaður kærasti barnar fímm á einu
bretti. Þokkaleg hugmynd fær slæma
úrvinnslu f flesta staði.
Stökksvæðið +'/2
Góð háloftaatriði er nánast það eina
sem gleður augað i íburðarmikilli en
mislukkaðri spennumynd sem reynist
ekki annað en B-mynd í jólafötunum.
Skógardýrið Húgó + +
Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön-
um, elskulegum frændum voram og
vinum, um Húgó hinn hressa sem
syngur og dansar og hoppar og hlær
smáfólkinu til ánægju og yndisauka
en hinum fullorðnu mest til angurs og
armæðu.
LAUGARÁSBÍÓ
Snillingurinn +
Það fer ekkert fyrir snilligáfunni í
vandræðalegij gamanmynd þar sem
ágætur leikhópur er úti á þekju í hlut-
verkum sögufrægra persóna.
Heimskur heimskari + + +
Vellukkuð aulafyndni um tvo glópa á
langferð. Sniðin fyrir Jim Carrey og
Jeff Daniels. Hláturinn lengir lífíð.
Háskaleg ráðagerð + +
Forvitnileg smámynd um saklausa
sveitastráka sem lenda í hremmingum
lífs síns. Leikstjórinn Wamer er eng-
inn Tarantino en auðséð er hvert hann
sækir fyrirmyndina. Kemur á óvart.
REGNBOGINN
Kúlnahríð á Broadway + + +'/2
Frábærlega gamansamur farsi frá
Woody Allen sem kominn er aftur í
sitt gamla form. Fyndið handrit, skop-
leg persónusköpun og unaðslegur leik-
hópur gera Kúlnahríðina að bestu
gamanmynd í bænum. Ekki missa af
þessari.
Leiðin til Wellville '/2
Mislukkuð gamanmynd um heilsu-
ræktarfrömuðinn og kornflögukóng-
inn Kellogg. Nú fer allt úrskeiðis í
fyrsta sinn hjá Alan Parker.
Rita Hayworth og Shawshank-
fangelsið + + +
í alla staði sérlega vel gerð mynd um
vináttu innan fangelsisveggjanna og
meinfyndna hefnd. Robbins og Free-
man frábærir saman.
SAGABÍÓ
/ bráðri hættu + + +
Flaustursleg en hröð og fagmannlega
gerð spennumynd um bráðdrepandi
vítisveira og baráttuna við að stöðva
útbreiðslu hennar.
STJÖRNUBÍÓ
Litlar konur + + +'/2
Einstaklega vel gerð, falslaus og falleg
mynd um fjölskyldulíf á Nýja-Eng-
landi á öldinni sem leið. Winona Ryder
fer fremst í flokki afburðaleikara.
Ódauðleg ást + + +
Svipmikil mynd um snillinginn Beet-
hoven fer hægt í gang en sækir í sig
veðrið. Tónlistin stórkostleg og útlitið
óaðfínnanlegt.
Vindar fortíðar + + +
Skemmtilegt og glæsilega kvikmynd-
að fjölskyldudrama. Verður ekki sú
sögulega stórmynd sem að er stefnt
en virkar frábærlega sem Bonanza
fyrir þá sem era lengra komnir.