Morgunblaðið - 09.06.1995, Page 1
fjttyjpttttftfoifttft
FOSTUDAGUR
9. JÚNÍ 1995
Konur sem eru eldri en
Mikil lyfjanotkun
á öldrunarheimilunum
UM FJÓRÐUNGUR allra vist-
manna á öldrunarheimilum tekur
geðdeyfðarlyf og 61,8 prósent tekur
inn svefnlyf og róandi lyf í Reykja-
vík og nágrenni. Meðalf|öldi lyfja-
tegunda á mann er 7 á höfuðborgar-
svæðinu en 6,4 á Akureyri. í þess-
ari tölu eru öll lyfjaform, t.d. víta-
mín, augndropar og krem. Þetta
kemur fram í nýrri rannsóknar-
skýrslu sem ber heitið Daglegt líf
á hjúkrunarheimilum og gerð var á
vegum heilbrigðisráðuneytisins,
öldrunarlækningardeildar Borgar-
spítalans og elli- og hjúkrunarheim-
ila á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri
og Kirkjubæjarklaustri.
Anna Birna Jensdóttir, hjúkrun-
arframkvæmdastjóri á Borgarspít-
alanum og einn höfunda skýrslunn-
ar, segir að lyfjahlutfallið sé hátt
ef miðað sé við niðurstöður danskra
rannsókna þar sem meðalfjöldi lyfja
á öldrunarstofnunum sé 4,4 lyf.
Hins vegar sé vistunarmat hér
strangara, og allt bendi til þess að
hér sé veikari hópur á stofnunum.
Það sem athygli vekur er að fleiri
taka inn svefnlyf og róandi lyf á
þjónusturými en á hjúkrunarrými
þar sem veikari einstaklingar eru
vistaðir. Anna Birna segir að sú
niðurstaða sé forvitnileg og ástæða
sé að rannsaka hana frekar. ■
Gylltu umbúðirnar
komnar í fornminja tölu
■j* NYR búningur Prince Polo
Gg súkkulaðis kann að valda
aðdáendum þess heilabrotum.
í stað gyllts bréfs með
2 stjömum er súkkulaði-
kexið komið í
jJ*J gular og rauð-
ar plastumbúð-
ir. Skýringin er
sú að skipt var um vélar
í verksmiðju súkkulaðis-
ins í Póllandi og ákveðið
að setja það í lokaða pakka.
Þótt Islendingar séu helstu
neytendur kexins auk Kúweita
voru innflytjendur hér ekki
spurðir álits fyrir breytinguna.
Guðmundur Björnsson hjá Ás-
birni Ólafssyni hf. segir þó
að þeim lítist ágætlega á
nýju umbúðimar. Heldur
snemmt sé að segja um
viðbrögð neytenda þar
sem súkkulaðið í
nýju umbúð-
unum hafí
farið í versl-
anir í síðustu
viku. Þar áður
hafi verið vöntun á
Prince Polo og því lík-
legast að gömlu gylltu stykkin séu
víðast uppseld.
Súkkulaðið vegur nú 40
grömm stykkið í stað 50
gramma, en Guðmundur
segir verð á gramm
óbreytt. Miðað sé við að
hvert stykki kosti nú um
krónur út úr búð,
en áður hafi viðmiðunarverð
verið 60-75 krónur. Litlu
20 gramma kexin
em ekki til ennþá
í nýju umbúðun-
um, en úr því
verður væntan-
lega bætt í sum-
ar.
KÓK og prins hefur lengi
verið meðal þjóðarrétt-
anna og þessari
stelpu finnst
súkkulaði að
minnsta kosti gott.
FRÁ Tókýó - dýrustu borg heims.
67 ára fjölmenna í kvennahlaupið
KONURNAR ganga saman tvo kílómetra eða lengra.
Tókýo og Osaka
langdýrastu borgii heims
ÁRLEGT kvennahlaup verður
haldið sunnudaginn 18. júní nk.
Stendur konum eldri en 67 ára
til boða að fjölmenna og ganga
saman tvo kílómetra eða lengra.
Halldóra Guðmundsdóttir og
Lára Arnórsdóttir hjá Félags-,
og þjónustumiðstöð aldraðra á
Vesturgötu halda utan um hóp-
inn. Að sögn Halldóru eru konur
þegar farnar að láta skrá sig
þjá þeim og aldursforsetinn 87
ára, enn sem komið er.
Troðfullur strætisvagn
af syngjandi konum
Einu sinni áður hefur konum
eldri en 67 ára staðið til boða
að fjölmenna í hlaupið. Það var
fyrir þremur árum og þá var
það troðfullur strætisvagn af
syngjandi konum sem lagði af
stað frá Vesturgötunni.
Meiningin er að konurnar
hittist í Félags- og þjónustumið-
stöðinni á Vesturgötunni í há-
deginu fyrir gönguna og fari
síðan saman þaðan. Fyrir
gönguna gera konurnar upphit-
unaræfingar og í lok hennar
teygjuæfingar. Allar konur
eldri en 67 ára eru velkomnar
í hópinn og þær fá bol og verð-
launapening.
TÓKÝO og Osaka eru langdýrustu
borgir heims, jafnvel dýrari en
Ziirich og Genf samkvæmt síðasta
samanburði, sem stofnun í Sviss
hefur gert á framfærslukostnaði í
ýmsum stórborgum.
Samkvæmt rannsókninni er
þrisvar og hálfu sinni dýrara að búa
í Tókýó en í Mexikóborg, ódýrustu
borginni sem könnunin náði til.
Vegna veikrar stöðu dollars er
ódýrara fyrir erlenda verkamann
að búa í borgum N-Ameríku en
áður. Vísitala framfærslukostnaðar
mælist 100 stig í New York en í
Tókýó hefur hún hækkað í 220 stig
úr 207. Osaka er með 206 stig.
Sjö borgir Evrópu eru meðal 10
dýrustu með Zurich og Genf í broddi
fylkingar (143 og 141 stig).
Moskva, dýrasta Evrópuborgin árið
á undan féll í 6. sæti í Evrópu og
8. sæti í heiminum með 132 stig.
Ástæðan er talin stöðugt gengi
dollars í verslunum í Moskvu og
sterk staða evrópskra gjaldmiðla
gegn dollar.
Dýrasta borg Afríku er Libreville
í Gabon með 129 stig og næst
Brazzaville með 125 stig. Ödýrust
er Lagos með 116 stig í stað 71.
Teheran næstódýrust
Aðeins tvær borgir í Miðaustur-
löndum, Tel Aviv (115) og Amman
(105) voru dýrari en New York.
Tehran var næstódýrasta borg
heims með 66 stig (85 ári áður).
Mexíkó varð ódýrasta borg
heimsins aðallega vegna gengisfell-
ingar pesóans. Frægðin getur orðið
skammæ vegna óðaverðbólgu síðan
pesóinn féll.
Borgir í Kanada, þar á meðal
Calgary með 74 stig, voru meðal
ódýrustu borga heims. ■