Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 1995 15
Stærsti hópur kandídata frá Háskólanum á Akureyri
Nám í matvælafram-
leiðslu og iðjuþjálfun
STÆRSTI hópur kandídata sem
útskrifaður hefur verið frá Háskól-
anum á Akureyri brautskráðist á
háskólahátíð sl. laugardag, alls 52.
Flestir þeirra luku Bs-prófi í hjúkr-
unarfræði eða 18, þá luku 9 prófi
í iðnrekstrarfræði og 11 í rekstrar-
fræði. BS-prófi í gæðastjórnun luku
7 manns og jafnmargir BS-prófi í
sjávarútvegsfræðum, en sem fyrr
voru fjórar deildir starfræktar við
skólann.
Nemendum við Háskólann á Ak-
ureyri fjölgaði um 40% milli ára og
kom fram í ávarpi Þorsteins Gunn-
arssonar háskólarektors að þessi
mikla aukning væri á mörkum þess
að skólinn hafi með góðu móti get-
að tekið við henni og hafi ein deilda
hans, heilbirgðisdeildin beitt fjölda-
takmörkunum inn á vormisseri 1.
árs af þeim sökum.
Matvælasetur
Rektor greindi frá því að nú lægi
fyrir ítarleg skýrsla um með hvað
hætti megi mæta þörf matvælaiðn-
aðarins á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir
menntað vinnuafl og bæta rekstrar-
umhverfið. Settar eru fram þijár
tillögur í skýrslunni, þ.e. að komið
verði á fót Matvælasetri í tengslum
við Háskólann á Akureyri, nám í
matvælagreinum á framhaldsskóla-
stigi verði samræmt og að sett verði
á stofn námsbraut í matvælafram-
leiðslu við Háskólann á Akureyri.
Nám í matvælaframleiðslu yrði
sérstök námsbraut innan sjávarút-
vegsdeildar og miðað við fjögurra
ára nám sem lyki með 120 eininga
BS-prófi, lokaverkefni yrði unnið í
samvinnu matvælaseturs og fyrir-
tækja og myndi skólinn þannig
tengjast matvælaiðnaði og rann-
sóknarstarfsemi á því sviði sterkari
böndum. Stofnun slíkrar brautar
krefst nokkurs undirbúnings en lík-
legt er að mati rektors að kennsla
gæti hafíst haustið 1996 fáist til
þess fjárveitingar.
Af öðrum nýjungum sem á döf-
inni eru nefndi Þorsteinn að boðið
yrði upp á fleiri sérsvið í deildum
skólans, þannig væri áætlað að inn-
an kennaradeildar yrði komið á fót
námi fyrir verðandi leikskólakenn-
ara og námi í iðjuþjálfun við heil-
brigðisdeild.
Atvinnudeild Háskólans
Yfirstjórn Háskólans á Akureyri
flytur í nýtt framtíðarhúsnæði á
Sólborgarsvæðinu í ágúst næst-
komandi, en nýtt húsnæði leysir
Heyflutn-
ingar
stöðvaðir
FLUTNINGAR á heyi frá bæjum í
Svarfaðardal þar sem riðuveiki kom
upp í vor voru stöðvaðir á föstudag
og laugardag, en heyið átti að fara
í hesthúsahverfi Akureyringa.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri
barst tilkynning um heyflutninga
úr Svarfaðardal á föstudag og voru
þeir stöðvaðir norðan Akureyrar og
þeim sem að flutningunum stóðu
vísað með heyið til baka. Sama
sagan endurtók sig svo á laugar-
dag. Að sögn lögreglunnar bárust
svo fregnir af því að áður hefði
verið flutt hey úr Svarfaðardalnum
í hesthúsahverfið við Akureyri, en
það stóð þar á vagni án þess að
byrjað væri að gefa eitthvað af
því. Var það fjarlægt af staðnum
fyrir tilstilli starfsmanns riðuveiki-
nefndar.
mikinn bráðavanda í húsnæðimál-
um skólans.
Rektor sagði uppbyggingu skól-
ans á þessu svæði opna marga
möguleika og myndi með öflugu
samstarfí háskólans og rannsókna-
stofna verða hægt að byggja upp
á næstu árum Atvinnudeild Háskól-
ans á Akureyri þar sem kennd yrðu
námskeið sem væru nátengd at-
vinnuvegum landsmanna. Þar hefðu
rannsókarstofnanir atvinnuveg-
anna aðstöðu og gert væri ráð fýr-
ir nýjum rannsóknarstofnunum eins
og t.d. Stofnun Vilhjálms Stefáns-
sonar, rannsóknar- og þróunarsetri
í matvælaframleiðslu og rannsókn-
ardeild í ferðamálafræðum.
52 kandídatar
Eftirtaldir 52 kandídatar voru
brautskráðir 10. júní:
BS-próf í hjúkrunarfræði (18):
Anna Rósa Magnúsdóttir, Anna
Margrét Pálsdóttir, Anna Margrét
Tryggvadóttir, Elín Margrét Hall-
grímsdóttir, Emilía J. Einarsdóttir,
Erna Margrét Bergsdóttir, Eva
Hjörtína Ólafsdóttir, Fanney Frið-
riksdóttir, Fríður Brandsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir, Guðrún Sig-
urðardóttir, Hulda Guðný Finn-
bogadóttir, Ingibjörg Einarsdóttir,
Ingibjörg R. Þórðardóttir, Kristín
SEX manns, ökumenn og farþegar
í tveimur bílum, voru flutt á slysa-
deild Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri síðdegis á laugardag eftir aft-
anákeyrslu á Norðurlandsvegi, í
Vaðlareit handan Akureyrar.
Bílunum var báðum ekið í suður-
átt. Ökumaður annarrar bifreiðarinn-
ar ók á töluverðri ferð aftan á hina,
en varðstjóra lögreglunnar á Akur-
eyri var ekki kunnugt um hvort fremri
bifreiðin hefði verið kyrrstæð eða
Thorberg, Sigríður Kristinsdóttir,
Valgerður Jónsdóttir, Þorsteinn B.
Bjamason.
Iðnrekstrarfræði (tveggja ára
nám) (9):
Axel Aðalgeirsson, Einar Áskels-
son, Einar Bjöm Erlingsson, Guð-
mundur Rúnar Guðmundsson, Jón
Hreinsson, Óðinn Steinsson, Rand-
ver Karlsson, Valgerður Kristjáns-
dóttir, Þorgils Sævarsson, Ama S.
Sigurðardóttir, Borghildur Freyja
Rúnarsdóttir, Hafdís Elva Ingi-
marsdóttir, Helgi Einarsson, Jón
Páll Kristófersson, Katrín Harðar-
dóttir, Óttar Gauti Erlingsson,
Ragnar H. Bjarnason, Sigurlína
Styrmisdóttir, Sigurður Björnsson,
Þórir Jón Guðlaugsson.
BS-próf í rekstrarfræði, g-æða-
stjórnun (7):
Davíð Hjaltested, Gísli Hrannar
Sverrisson, Hannes Steinar Guð-
mundsson, Jón Skjöldur Karlsson,
Lilja Kolbrún Bjarnadóttir, Sigurð-
ur Steingrímsson, Smári Kristins-
son.
BS-próf í sjávarútvegsfræði (7):
Bernharð Stefán Bernharðsson,
Gestur Geirsson, Gunnar Öm Krist-
jánsson, Hermann Stefánsson, Sig-
mundur Andrésson, Stefán Bjarni
Gunnlaugsson, Sævaldur Gunnars-
son.
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
henni ekið hægt eftir veginum. Við
áreksturinn valt fremri bíllinn út af
veginum og hafnaði í brattri hlíðinni.
Ókumaður og farþegi í annarri
bifreiðinni og ökumaður og þrír far-
þegar úr hinni vom fluttir á slysa-
deild þar sem gert var að sárum
þeirra, en að sögn varðstjóra var
ekki talið að um alvarleg meiðsl
væri að ræða. Bílarnir vom báðir
dregnir á brott af slysstað og em
mikið skemmdir.
Sex á slysadeild
tt t
íslenskt grænmeti er safríkt, bragð-
mikið, hreint og hollt.
Hreinleikarannsóknir hafa sýnt
að engin aukaefni finnast í
íslensku grænmeti.
Það er ómissandi í salöt, sem álegg,
í pottrétti eða sem ferskur biti á milli
máltíða.
Njóttu hreinleikans og hollustunnar
í íslensku grænmeti.
<é
tSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
ÍSLENSK
GARÐYRKJA