Morgunblaðið - 14.06.1995, Blaðsíða 1
\S3MM EM MŒSMEEniM
,W,IWWI.lT'W:lf,miUJIIL7rR
Stiörnubjart
ÉG heiti Sólveig og les alltaf
Myndasögur Moggans.
Myndin sem ég sendi er af
húsi, tungli og stjörnum.
Kær kveðja, Sólveig.
Svona hljóðar bréfið sem
fylgir með þessari fallegu
mynd. Myndin minnir á
stjörnubjarta sumarnótt.
Kannski þetta sé sjálf Jóns-
messunóttin. Hún er reynd-
ar ekki langt undan því
Jónsmessan er 24. júní.
Þetta er forn helgidagur
helgaður biskupi sem sat á
Hólum í Hjaltadal fyrir
mörgum öldum, þegar ís-
lendingar voru kaþólsk þjóð.
Dagurinn er yfirleitt ekki
haldinn hátíðlegur en þó
fylgja honum fjölmargar
þjóðsögur og mikil hjátrú.
Hún Sólveig er 6 ára göm-
ul, en hún gleymir því miður
að nefna hvar hún býr. Við
þökkum henni kærlega fyrir
myndina og vonum að hún
muni að láta heimilisfangið
sitt fylgja með ef hún sendir
aðra mynd til okkar seinna.
Það skuluð þið, hitt listafólk-
ið, endilega gera líka.
Sjónarspil
NÚ er það athyglin sem gildir! Markmið
þessarar þrautar er að finna hvaða reitur
hefur verið tekinn út úr myndinni og
stækkaður, þ.e. samsvarar reitnum sem
sést við hlið stóra myndflatarins. Spreytið
ykkur nú!
Lausnina er að fínna annars staðar í
blaðinu.
KÆRA Barnablað Mogg-
ans, ég óska eftir penna-
vinkonu á aldrinum
11-13 ára. Sjálf er ég
Í3.
Áhugamál mín
eru dýr, frímerki,
pössun og að lesa.
Mynd á að fylgja
fyrsta bréfi ef hægt
er.
Hrafnhildur
Alfreðsdóttir.
Víðigrund 4
550 Sauðárkróki
Sumarvísa
Það er komið sumar
og sólin skín um allt
fara þá margir að vinna við humar
og drekka þeir þá malt.
En sumir lesa hók
og drekka með þvi kók.
Þessa sniðugu sumarvísu sendi Eygló Egils-
dóttir okkur með sumarmyndinni sinni. Á mynd-
inni sjáum við tvær stelpur að leik, en þær virð-
ast vera að leika sér á miðri umferðargötu. Ég
þarf auðvitað ekkert að minna ykkur á að það
er alveg harðhannað! Og þó að sólin skíni skært
á þessum heita sumardegi mega stelpurnar tvær
ekki gleyma sér því að bílstjórarnir búast ekki
við börnum á götunni og gæta ekki að sér. Til
aiirar hamingju fara flestir ökumenn varlega, en
maðurinn á myndinni virðist hafa ekið bílnum
sínum beint á Ijósastaur vegna þess hve honum
brá mikið. BíIIinn er sjálfsagt skemmdur, en von-
andi er allt í lagi með manninn!
Eygló býr í Heiðartúni 2, 900 Vestmannaeyj-
um. En hún gleymir að geta um aldur sinn. Hjart-
ans þakkir fyrir vísuna, myndina og þessa þörfu
áminningu til okkar allra, Eygló, vonandi hefur
þú það gott í sumar og þið öll, krakkar. Hafið
bara hugfast að það er í rauninni aldrei of var-
lega farið!
Klukkan
ÞAÐ var einu sinni klukka.
Hún var alltaf að óska sér að
hún myndi einhvern tímann
lifna við.
Allt í einu kom litli gauks-
unginn og galaði gú, gú, gú,
gú og þá vaknaði klukkan.
Köttur úti í mýri setti upp
á sig stýri, úti er ævintýri.
Krakkar, munið þið eftir
sögunni í Myndasögunum fyrir
hálfum mánuði um prinsess-
una sem svaf í heila öld? Ein-
mitt! Höfundur þeirrar sögu
er líka höfundúr þessarar
sögu, Lena Snorradóttir, 7 ára,
Kvisthaga 10, 107-Reykjavík.
Lena teiknaði líka myndiná
sem fylgir sögunni. Duglegi
rithöfundur, þakka þér hjart-
anlega fyrir.
Elsku, yndislegu krakka-
gemsarnir mínir, finnst ykkur
ekki gaman að sögum? Ef svo
er sendið okkur þá sögur eftir
ykkur til birtingar í mest lesna
dagblaði á íslandi, Morgun-
blaðinu.