Morgunblaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ1995 45
BRÉF TIL BLAÐSIIMS
Vandræði fatlaðra
Frá Albert Jensen:
ÞEIRBORGI sem njóta, var boð-
skapur fyrrverandi heilbrigðisráð-
herra. Þar var átt við notkun lyfja
og þjónustu.
Fjömörg börn fæðast fötluð og
mörg þeirra vaxa upp án nok-
kurar getu til sjálfsbjargar og búa
við það ævilangt. Hvemig slíkt
fólk borgar aðstoð án hjálpar, er
mér hulið. Fólk getur fatlast á
hvaða aldri sem er og með svo
margvíslegum hætti að ég reyni
ekki að tína það til. Það er víst
að öllu langar þessu fólki að vinna.
En lífið gerir ekki öllum jafnhátt
undir höfði.
í dag hefur þjóðfélagið ekki
næga vinnu fyrir þegnana, svo
ekki er von að slíkt liggi á lausu
fyrir þá sem flest vantar nema
hug og vilja. Peningar spretta
ekki á trjánum fyrir þetta fólk.
Ég er viss um að Sighvatur
Björgvinsson hefur viljað vel í
erfíðu ráðuneyti. Óvinsældir hans
má rekja til reynsluleysis í byrjun
og hvatvísi. Flumbrugangurinn
gekk þó fram af mönnum, þegar
gera átti helming endurhæfíngar-
deildar Grensáss að öldrunarheim-
ili. í því máli hafði skynsemin sig-
ur.
Vandræðagangur í málefnum
fatlaðra er stundum allskrítinn og
verðugt umhugsunarefni.
íslenskir arkitektar hafa verið
langt á eftir tímanum hvað þetta
fólk varðar. Lélegur arkitekt er
eins og skemdarverkamaður.
Hann gerir fólki lífíð leitt með því
að brengla umhverfí þess, í staðin
fyrir að gera það fagurt og að-
gengilegt. Ég get fært rök fyrir
því, að arkitektar þurfí á endur-
hæfíngu að halda, þó þeim hafí
aðeins miðað í seinni tíð. Þeir
hafa bætt ráð sitt gagnvart fötluð-
um með því að breika hurðir og
auka rafbúnað þeirra. Þeir hafa
gert sér ljóst að þetta fólk notar
klósett og eru famir að gefa því
pláss á teikningum. Oft taka arki-
tektar útlit fram yfir hagnýtt gildi,
í stað þess að sameina þessa kosti.
Þar sem tröppur eða stigar em
nauðsyn, á að koma þeim fyrir
innandyra, sé það útlitslega hægt.
ísland getur nefnilega verið á kaf
í snjó helming ársins.
Flestar opinberar stofnanir, bíó,
veitinga- og skemmtistaðir eru
fötluðum lokuð, vegna fyrir-
hyggjuleysis hönnuða.
Ég skora á fjölmiðla, að gefa
nokkrar fríar auglýsingar þeim
stöðum, sem fatlaðir geta nýtt án
hjálpar. Yrðu örugglega fáar.
Úrfellingar á yfírleitt of háum
gangstéttarbrúnum, hafa verið
framkvæmdar af áhuga- eða
skilningslausum verktökum. Illa
gert, þó jafndýrt, en umfram allt,
hættulegt fötluðum.
Það er ónotalegt að fá tilfínn-
ingu fyrir að illa farinni mann-
eskju sé neitað um hjólastól, með
eða án rafmagns, á þeirri for-
sendu, að henni líði ekki eins illa
og hún vilji meina. Eða þegar tal-
ið er að viðkomandi geti tæpast
átt langt eftir. Ef manneskju
fínnst stóll óþægilegur og hann
veldur vanlíðan, á undanbragða-
laust að taka tillit til þess.
Það er án hugsunar, ef viðgerð
á hjólastólum, fer bara fram í
Reykjavík. Að senda stól með ti-
heyrandi kostnaði til verkstæðis
sem annar ekki þörfinni sýnir að
í kerfínu er fólk sem þar á ekki
að vera. Fólkið á landsbyggðinni
getur örugglega séð um þessi mál
sjálft og komið um leið i veg fyr-
ir að lamað fólk þurfí að hírast
vikum saman í rúmi, meðan stóll
þess er á þarflausu flakki. Hér
er átt við rafmagnsstóla og fólk
sem getur ekkert án þeirra.
Það væri álitsauki listafólki að
skemmta öðru hvoru á vistheimil-
um og stofnunum án endurgjalds.
Ég vona að enginn listamaður
álíti sig of góðan til slíks, eða tíma
sínum illa varið. Músikstjórar, als-
konar og söngvarar, það væri ör-
ugglega öllum til gagns og gam-
ans að færa síðari hluta æfínga
ykkar til þessa fólks.
Þið uppskerið öðruvisi og ör-
ugglega ekki síður. Allur fluttn-
ingur tónlistar, gleður og gerir líf
þessa fólks betra.
ALBERT JENSEN,
Háaleitisbraut 129, Reykjavík.
Vináttufé-
lag Islands
og Kanada
Frá Tryggva V. Líndal:
MARGIR eru undrandi þegar þeir
frétta af stofnun þessa félagsskap-
ar. Ætla menn að slíkt félag hljóti
að hafa verið stofnað fyrir löngu,
ellegar þá að Þjóðræknisfélag Is-
lendinga í Vesturheimi hljóti að
vera slíkt félag.
Því er til að svara að nú fýrst
er grundvöllurinn orðinn fyrir slíku
félagi: Nýbúum frá Kanada hefur
fjölgað svo að þeir mynda nú þegar
óformlegan félagsskap. Er um að
ræða hóp fólks, sem er gjarnan
gift Íslendingum. Er þá oftar en
ekki að þessir nýbúar eru af öðru
en íslensku bergi brotnir.
Einnig fer þeim ijölgandi sem
hafa stundað háskólanám í hinum
ýmsu borgum Kanada, og þá gjarn-
an annars staðar en meðal Vestur-
íslendinga. Hafði hluti þessa hóps
komið saman áður.
Þjóðræknisfélagið snýst hins
vegar um fólk erlendis, sem er af
íslensku bergi brotið, og höfðar því
ekki að öllu leyti til okkar félags-
manna í Kanadafélagi. Af hliðstæð-
um félögum við okkar á íslandi
mætti fremur nefna Vináttufélag
íslands og Bandaríkjanna, Anglíu,
Alliance Francaise og Germaníu.
Einnig vináttufélög Kanada og ís-
lands í Toronto, og fleiri borgum
Kanada, sem samanstanda af ýmiss
konar íslandsvinum, auk fólks sem
á einhveijar ættir að rekja til Islend-
inga.
Ákveðið var að freista þess að
steypa nýbúahópnum og náms-
mannahópnum saman í eitt félag,
og gera það að skemmti- og
fræðslufélagi. Enda eiga Íslending-
ar margt ólært um lýði og lands-
hætti Kanada. Hveijir kunna t.d.
skil á indíánaþjóðunum þar eða lifn-
aðarháttum hinna tuga þjóðarbrota
sem hafa flust til Kanada frá Evr-
ópu, Asíu og Afríku í gegnum ald-
irnar? Eða geta nefnt allar þær teg-
undir fugla, físka og plantna sem
við eigum sameiginlegar? Að ekki
sé talað um þau fræði sem íslend-
ingar hafa sótt þangað undanfarna
áratugi?
Tími er kominn að fólk átti sig
á að í Kanada er saman komin
smækkuð mynd af miklum hluta
heimsins, og að þar býr þjóð sem
er ólík Bandaríkjamönnum.
Nú um stundir fjölgar myndum
í sjónvarpi um Kanada, og ekki
hafa allir gleymt tilveru Vestur-
íslendinganna. En betur má ef duga
skal, í upplýsingakapphlaupi nútím-
ans. Við bjóðum öllum áhugamönn-
um um Kanada að taka þátt í fé-
lagsskap okkar.
TRYGGVIV. LÍNDAL.
sólarvörur
standa svo sannarlega
fyrir sínu!
Franska neytendablaðið Que Choisir birti í júlí 1994 niðurstöður
úr prófun blaðsins á virkni og gæðum sólarvara frá ýmsum
framleiðendum. Allar tegundirnar voru bornar á ferninga á baki
10 þátttakendum og þeir síðan látnir liggja undir sólarlampa þar
til þeir brunnu. Sólarvörurnar reyndust misjafnlega. Nokkrar
gáfu í raun ekki þá vörn sem gefin var upp á umbúðunum og
aðrar gáfu mun meiri vörn en merkingin sagði til um. Sumar
tegundirnar reyndust misvel eftir húðgerð þátttakandans.
Niðurstaða greinarhöfunda var að miðað við verð væru
bestu kaupin í Nivea sólarvörum. Sólarvörurnar frá
Nivea voru meðal þeirra sem gáfu meiri vörn en gefin var
upp og þær gáfu öllum þátttakendunum svipaða vörn án
tillits til húðgerðar.
Samanburðar tafla úr grein franska neytendablaðsins
Que Choisir nr. 307, júlí- ágúst 1994.
MERKI OG NAFN Innihald í ml. Verð pr. lítra í FF Umbúðir Lýsing Síutegundir Innihald á þekktum ofnæmis- völdum Uppgefinn stuðull Mældur stuðull Stöðugleiki varnar Heildar-1 einkunn 1
NIVEA Sun sensitive lait enfant peaux sensibles Flaska 200 240 ★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Nei 10 13,5 ★★★ *★* I
NIVEA Sun lait solaire actif hydratant Flaska 200 210 ★ ★ ★ A og B efna- og steinefnasiur Nei 8 12 ★★★ *** I
VICHY Capital soleil lait hydratant haute protection Flaska 150 533,33 ★ ★ ★ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 10 17,5 ★★★ *** I
CLARINS créme solaire bronzage sécurité Túba 125 560 ★ ★★ ■ A og B Ekki inni- haldslýsing 12 15 ★★★ * * * I
YVES ROCHER Hydra puiss solaire lait bronzant hydratation intense Flaska 150 393,33 ■ ★ Aog B efnasíur Nei 8 15 ★★★ ★ ★ ★ I
BIOTHERM lait bronzant protection sécurité Túba 125 608 ★ ★★ ■ B efna- og steinefnasíur Ekki inni- haldslýsing 12 11 ★★ ★ ★ |
LUTSINE lait solaire aux céramides Túba 125 416 ★ ★ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 9 ★ ** I
ROC lait solaire resistant d l'eau Flaska 150 373,33 ★ ■ B efnasíur Nei 7-9 13 ★★★ ★ ★ 1
BIOTHERM gelée bronzante hydratante Túba 125 600 ★ ■ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 9 ★ *★
GARNIER Ambre solaire lait bronzant hydratant Flaska 200 207,50 ★ ★★ ★ A og B efna- og steinefnasiur Já oxybenzone 12 10 ■■ ■
CLUB MED lait bronzant hydratant Flaska 150 453,33 ★ ★★ ■ A og B efna- og steinefnasiur Já oxybenzone 12 10 ■■ ■ |
BERGASOL écran solaire bronzant Túba 75 920 ★ ★ efna- og steinefnasíur Ekki inni- haldslýsing Með psoral 10 10 ■■ ■ |
PIZ BUIN Sun sport lotion solaire non grasse Flaska 125 664 ■ ■ Aog B efnasíur Ekki inni- haldslýsing 8 6,5 ■■ ■B
YVES ROCHER Cap soleil lait enfant résistant á l'eau Úðabrúsi 100 590 ★ ★★ ★ ★ Aog B Nei 12 9,5 ■■ ■■
KLORANE Les polysianes lait solaire haute protection Flaska 150/143 593,33 ★ ★ ★ A og B efna- og steinefnasíur Nei 10-15 7 ■■ ■■
★★★ MJOG GOTT ★★GOH ★ ÞOKKALEGT
ILELEGT
I SLÆMT Nánari upplýsingar um prófunina fást hjá JS Helgason hf. sími: 587- 5152