Morgunblaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 56
fholHEWL£TT# **
mLliM PACKARD
I4P Vectra P1-
OPIN KERR I IP
Sími: 567 1000
ATCT
SYSTEMAX
Kapalkerfi
fyrir öll kerfi
hússins.
<Ö>
NÝHERJI
SKIPHOLTI 37 - SlMI 88 80 70
Alltaf skrefi á undan
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sj ómannasamningar
voru á lokastigi í nótt
Ágreiningur um frestun verkfalls og
atkvæðagreiðslu tafði undirritun
VINNU við gerð nýs kjarasamn-
ings milli sjómanna og útvegs-
manna lauk að mestu leyti laust
eftir miðnætti, en búist var við að
hann yrði undirritaður í nótt.
Ágreiningur var hins vegar um
hvernig standa ætti að atkvæða-
greiðslu um samninginn. Útvegs-
menn töldu eðlilegt að fresta verk-
falli um leið og samningar hefðu
verið undirritaðir, en margir samn-
ingamenn sjómanna vildu ljúka
atkvæðagreiðslu áður en verkfallið
yrði blásið af.
Samningaviðræður gengu hægt
í allan gærdag þrátt fyrir að deilan
stæði um fá efnisatriði. Einna
harðast var tekist á um breytingar
á olíuverðstengingu. Undir kvöld
féllust útvegsmenn á kröfu sjó-
manna í málinu og þá varð ljóst
að samningar myndu takast. Sam-
komulagið um olíuverðsviðmiðun
færir sjómönnum engan launa-
auka miðað við verð á olíu í dag,
en þeir munu fá meira í sinn hlut
ef olía lækkar frá því verði sem
nú er greitt.
U ppsagnarfr estur lengdur
Samkomulag tókst um að lengja
uppsagnarfrest undirmanna, en
hann er vika. Sjómenn með
tveggja ára starfsaldur fá 14 daga
uppsagnarfrest. Fjögurra ára starf
veitir þeim 21 dags uppsagnar-
frest og eftir sex ára starf fá þeir
30 daga uppsagnarfrest.
Sjómenn náðu jafnframt fram
auknum réttindum varðandi
starfsaldursálag, en fram að þessu
hafa sjómenn misst réttindi við
að færa sig frá einni útgerð til
annarrar. Samstaða varð einnig
um að gera smávægilegar breyt-
ingar á samkomulagi deiluaðila
um verðmyndun á afla. Gert er
ráð fyrir að tíminn, sem úrskurðar-
nefnd sjómanna og útvegsmanna
hefur til að kveða upp úrskurð,
rísi ágreiningur um fiskverð, verði
styttur.
Ósamið um humarveiðar
Samkvæmt því sem næst varð
komist var óljóst hvort samkomu-
lag um sérsamning um humarveið-
ar næðist. Margt benti til að það
atriði yrði ekki að finna í samn-
ingnum sem undirritaður yrði.
Skiptar skoðanir voru um það
meðal samningamanna hvort rétt
væri að láta greiða atkvæði um
samninginn í dag og á morgun eða
hvort ætti að fresta verkfalli strax
og greiða atkvæði á næstu 3-4
vikum. Ágreiningur um þetta tafði
undirskrift samninga og ekki flýtti
fyrir þegar sá orðrómur komst á
kreik í Karphúsinu að útgerðar-
menn væru farnir að ræsa áhafnir
til skips.
Sprengjuhótun
Klukkan rúmlega ellefu í gær-
kvöldi hringdi maður og sagði að
sprengja myndi springa í Karphús-
inu kl. 24.05. Samningamenn létu
þessa hótun ekki trufla sig og
héldu viðræðum áfram. Lögregla
var ekki kvödd á staðinn og engin
sprengja sprakk.
Morgunblaðið/Halldór B. Nellet
Júlíus á
grálúðu-
veiðum
TOGARINN Júlíus Geirmunds-
son IS 270, sem útgerðarfélagið
Gunnvör hf. á ísafirði gerir út,
er nú á grálúðuveiðum vestur
af landinu. Fleiri skip eru þar
á veiðum og hefur afli þeirra
verið þokkalegur undanfarna
daga. Myndin var tekin í könn-
unarflugi Landhelgisgæslunn-
ar yfir miðin í gær.
Morgunblaðið/Pétur
Færeyingar mokveiða
Trilla sökk eftir árekstur við hraðbát
Tók í sundur
við stýrishús
Fundu kíló
af hassi á
Þingvöllum
KRAKKAR í 7. bekk grunnskólans
í Ólafsvík fundu kíló af hassi við
Almannagjá á ÞingvöIIum þegar
þeir voru í skólaferðalagi í lok maí.
Sveinn Þór Elínbergsson, aðstoðar-
skólastjóri, segir að fundur fíkniefn-
anna hafi óneitanlega sett svip sinn
á tveggja daga ferðalag bekkjarins.
Sveinn Þór segir að krakkarnir
—hafí verið við útsýnisskífuna fyrir
ofan Almannagjá þegar tveir dreng-
ir tóku eftir brúnu umslagi, sem
var skorðað í gjótu.
„Rútubílstjórann grunaði hvers
kyns var og gerði lögreglunni við-
vart. Þegar bekkurinn var kominn
til Laugarvatns, þar sem gist var
um nóttina, komu þangað menn úr
fíkniefnalögreglunni til að spyijast
nánar fyrir um fundinn. Þá var
komið í ljós að strákamir höfðu
fundið kíló af hassi. Lögreglan fékk
þá með sér til Þingvalla aftur, þar
sem þeir sýndu hvar hassið fannst."
-----» ♦ ♦----
Fjöldi fyrir-
spurna hjá
Handsali
MIKIÐ var um fyrirspumir hjá
Handsali í gær vegna auglýsingar
fyrirtækisins um langtímalán til ein-
staklinga.
Að sögn Pálma Sigmarssonar,
framkvæmdastjóra, má ætla að um
-600 manns hafi sett sig í sam-
band við fyrirtækið og voru allar
símalínur rauðglóandi. I lok dagsins
höfðu borist umsóknir um lán að
fjárhæð 50-60 milljónir.
Sparisjóðsstjóri Sparisjóðs vél-
stjóra segir að tilboð Handsals kunni
að hafa áhrif á lækkun vaxta.
■ Kann að hafa/B2
FÆREYINGAR hafa landað rúm-
um 15.000 tonnum af síld hérlend-
is og kom Þrándur í Götu til Seyð-
isfjarðar í gær með metafla eða
2.500 tonn. Til samanburðar má
geta að íslensku skipin taka frá
600 tonnum og eldra metið átti
Hólmaborg, rúm 1.500 tonn.
Arne Hansen, skipstjóri, sagði
að síldin væri veidd norður af
Færeyjum innan færeysku lög-
sögunnar. Hann sagði að mikil
síld væri þar, sem og í Síldar-
smugunni og innan íslensku lög-
sögunnar.
Ekki er vitað hversu mikið
Færeyingar hafa veitt nákvæm-
lega því að skipin fjögur, sem
helst hafa veitt hér við land, hafa
ekki tilkynnt aflann til Fiskistofu,
að sögn Indriða Kristinssonar.
Var þeim send ítrekun í gær frá
Fiskistofu en ekkert svar hafði
borist síðdegis.
TRILLAN Sigfús Baldvin sökk í
gærmorgun austan við Grímsey
eftir að fiskihraðbáturinn Asi af
gerðinni Viking 800 sigldi á hana.
Jóhannes Magnússon var einn um
borð og náði að komast yfir í hrað-
bátinn áður en trillan sökk. Talið
er að mannleg mistök hafi valdið
þessu óhappi.
„Mér fannst eins og þetta gæti
verið yfirvofandi þegar ég sá bát-
inn koma á siglingu. Það hvarflaði
að mér að fara fram í stýrishúsið
til að setja í gang. Ef ég hefði
gert það væri ég tæpast til frá-
sagnar núna,“ sagði Jóhannes í
samtali við Morgunblaðið í gær.
„Báturinn fór hálfgert yfir trill-
una, Ienti á miðju stýrishúsinu og
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
undirbýr nú aðgerðir til að mæla
úrkast afla á fiskiskipum. Jakob
Jakobsson, forstjóri stofnunarinn-
ar, telur það geta skemmt fyrir
aðgerðum ef upplýst er í hveiju
þær felast á þessu stigi málsins.
Hann tók það fram í viðtali við
Morgunblaðið að ekki væri um
neinskonar refsiaðgerðir að ræða,
heldur einungis leitað eftir töluleg-
um staðreyndum.
Takmarkaðar mælingar hafa
verið gerðar á þeim afla sem kast-
tók trilluna í sundur þar. Hún sökk
þó ekki strax því að framendinn
festist í skrúfu eða stýri bátsins
og ég notaði þá tækifærið, stökk
upp á mótorhúskappann, þaðan
upp á stýrishúsið og skreið svo
upp á bátinn að aftanverðu.'Rétt
eftir að ég komst yfir sökk
trillan."
Tryggð á tvær milljónir
Trillan og hraðbáturinn eru
tryggð hjá sama tryggingarfélag-
inu og var trillan metin á tvær
milljónir. „Það er auðvitað ekki
þar með sagt að það bæti tjónið,"
segir Jóhannes. „Báturinn var vel
útbúinn og ég fæ varla svona góð-
an bát fyrir tvær milljónir aftur.“
að er fyrir borð á íslenskum fiski-
skipum. Tvisvar voru gerðar mæl-
ingar á úthafskarfaveiðum sem
gáfu þá niðurstöðu að 16-17% af
aflanum færi í úrkast. Sérfræðing-
ar eru á einu máli um að afla
þurfi upplýsinga um hvað mikið
af veiddum afla fer í sjóinn. Ef
miklar breytingar eru á því frá
ári til árs getur það haft áhrif á
stofnstærðarmælingar Hafrann-
sóknastofnunar.
■ Aðgerðir i undirbúningi/29
Hafrannsóknastofnun
Undirbúa mæl-
ingar á úrkasti