Morgunblaðið - 15.06.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
lllo Cjjun W aírii)
D
1995
FIMMTUDAGUR 15.JUNI
BLAD
KNATTSPYRNA / 1. DEiLD KARLA
Línuvörður veitt-
ist að þjálfara
LEIKUR Snæfells og Stjörnunnar í bikar-
keppni 2. flokks karla í knattspyrnu, sem fór
fram í Stykkishólmi fyrr í vikunni, var flautað-
ur af í stöðunni 3:1 fyrir gestina eftir að ann-
ar linuvörðurinn hafði veist að þjálfara Stjörn-
unnar og hrint honum með þeim afieiðingum
að hann féll á höfuðið og vankaðist. Þegar
leikur er flautaður af skal leika hann að nýju
en Snæfell ákvað að gefa leikinn og baðst af-
sökunar á atvikinu. Full sátt hefur náðst á
milli félaganna í málinu en dómaranefnd á
eftir að taka það fyrir.
Þorbjörn kallar
landsliðið saman
til æfinga
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, kallar landsliðið saman til æfinga á
mánudaginn kemur. Hann segist verða með
17 til 19 leikmenn, sem hann var ekki búinn
að velja í gær, í þriggja vikna æfingabúðum.
„Ég kem til með að byggja á sama kjarna og
var á HM,“ sagði Þorbjörn og vildi ekki gefa
upp hvort einhver nýliði yrði í íslenska hópn-
um. Þetta verða fyrstu æfingar landsliðsins
undir hans sljórn. Liðið mun aftur koma saman
í tíu daga fyrir fyrsta leikinn í Evrópukeppn-
inni gegn Rúmenum sem fram fer ytra í lok
september.
Linford Christie
hættir í haust
Meistarar
ÍA enn á
sigurbraut
SKAGAMENN hafa sigrað í fjór-
um fyrstu leikjunum í 1. deild-
inni í knattspyrnu í gærkvöldi.
Þeir sigruðu Leiftursmenn 2:0 á
Ólafsfirði í gærkvöldimeð mörk-
um Dejans Stojics og Ólafs Þórð-
arsonar og eru einir á toppnum,
með 12 stig. Á myndinni stekkur
umræddur Stojic hærra en Júlíus
Tryggvason, einn varnarmanna
Leifturs, og skallar að marki en
hefur ekki erindi sem erfiði að
þessu sinni. Gunnar Oddsson er
til hægri.
í hinum leikjum gærkvöldsins
urðu úrslit þau að Valsmenn sigr-
uðu í fyrsta sinn í fjórum tilraun-
um; lögðu FH-inga að velli 3:2 í
Hafnarfirði og á KR-velli sigruðu
heimamenn lið Grindvíkinga, 2:1.
■ Leikirnir / D2
Morgunblaðið/Björn Gíslason
ALÞJOÐA OLYMPIUNEFNDIN
Samaranch vill sitja
JUAN Antonio Samaranch, forseti alþjóðaólympíunefndar-
innar (IOC), ætlar að bera undir atkvæði innan nefndarinn-
ar hvort breyta eigi reglum sem kveða á um að hámarksald-
ur meðlima nefndarinnar skuli vera 75 ára, þannig að eng-
in aldurstakmörk verði fyrir hendi. Það myndi líkleg tryggja
að Samaranch gangi inní fjórða kjörtímabil sitt, sem líkur
1997 en þá verður hann 77 ára.
Fulltrúi nefndarinnar tilkynnti
á þriðjudaginn að reglu-
nefndin hefði samþykkt að. taka
fyrir tillögu Samaranch hvort af-
nema eigi regluna með aldurinn.
Reglan var sett fyrir 10 árum,
meðal annars af Samaranch sjálf-
um, sem sagði nauðsynlegt að
færa störf nefndarinnar í nútíma-
legra horf. En Spánveijinn, sem
verður 75 ára í júlí, virðist ætla
sér að vera áfram og sendi fyrir
skömmu út til meðlima spuminga-
lista til að kanna viðhorf þeirra.
Ákveðin hefur verið leynileg
atkvæðagreiðsla þegar meðlimir á
fundi IOC í Búdapest í vikunni,
hvort breyta eigi til og ef svo fer
þarf að kjósa um þijár tillögur:
sleppa öllum aldurstakmörkunum,
setja takmörk á aldur forseta eða
setja mörkin við 78 ára aldur.
Þegar svo búið er að ákveða það,
þarf að leggja tillöguna fram fyr-
ir alla alþjóða ólympíunefndina
og þarf tvo þriðju hluta til sam-
þykktar.
„Það er ekkert óvenjulegt við
þetta,“ sagði aðalframkvæmda-
stjóri IOC, Francois Carrard og
þegar hann var spurður um hvort
þetta væri ekki eingöngu til að
halda Samaranch í stólnum sagði
hann að „það sem utanaðkomandi
segja er þeirra mál en nefndin
samþykkti þetta samhljóða."
Heimildir innan Ólympíuhreyf-
ingarinnar segjast ekki sjá að til-
lagan verði felld, þar sem boðin
er lífstíðaraðild að einum besta
klúbbi í heimi, hvort sem mönnum
líkar við Samaranch eða ekki, en
hann hefur ávaxtað sjóð nefndar-
innar gífurlega í forsetatíð sinni.
ÓLYMPÍUMEISTARINN í 100 metra hlaupi,
Bretinn Linford Christie, ætlar ekki að veija
titil sinn á næstu leikunum í Atlanta. Christie
sagði í sjónvarpsviðtali í vikunni að hann myndi
hætta að hlaupa í lok yfirstandandi tímabils,
vegna ofsókna breskra fjölmiðla.
Christie hefur ekki gengið sem best á hlaupa-
brautinni í ár og hefur tapað fjórum af fimm
hlaupum en hann hefur einnig átt í erfiðum
viðræðum við breska fijálsíþróttasambandið
um greiðslur til sín fyrir þátttöku í mótiun.
f viðtalinu sagði hann einnig að breskir fjöl-
miðlar væru með aldur sinn á heilanum og
hefðu einungis áhuga á því hvenær hann drægi
sig i hlé. „Breskir fjölmiðlar eru skaðvaldarn-
ir, þeir setja of mikla pressu á mann. Nú er
svo komið að ég gæti vel hugsað mér að hætta
einhvern daginn og iþróttin skiptir mig ekki
svo miklu máli meira. Ég mun hætta og fer
örugglega ekki á ólvmpíuleikana."
Heimsmet
Pankratovs
DENIS Pankratov frá Rúss-
landi sló í gær heimsmetið í
200 metra flugsundi þegar
hann synti á 55,22 sek. á al-
þjóðlegu móti í Canet í Frakk-
landi. Hann bætti þar með
fjögurra ára met Melvins
Stewart um 0,47 sekúndur.
Landi Pankratvos, Alex-
ander Popov, tvöfaldur
heims- og ólympiumeistari,
vann 50 metra skriðsundið á
22,52 sekúndum en það er
ekki nóg til að ógna 21,81
meti Tom Jagers frá 1990.
Heimsmei8tarinn Vladimir
Selkov og félagi hans Andrei
Ivanov syntu á bestu tímum
ársins þegar Selkov fór 200
metra baksund á 1.59,06 og
Ivanvov 200 metra bringu-
sund á 2.12,94 mínútum. Clau-
dia Poll frá Costa Rica vann
200 metra flugsund kvenna á
1.59,86, sem er besti tíminn á
þessu ári.
HANDKNATTLEIKUR: ÍSLENDINGA VANTAR MUN MEIRILÍKAMLEGAN STYRK / D4